Morgunblaðið - 20.08.2005, Blaðsíða 1
STOFNAÐ 1913 223. TBL. 93. ÁRG. LAUGARDAGUR 20. ÁGÚST 2005 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is
Teflt með
tónum
Músík og manntafli blandað saman
í Lækjargötu Menning
Lesbók | Sjálfvirk viðbrögð Leit útgefandans að metsölubók-
inni Börn | Ævintýri Þrautir Myndasögur Íþróttir | FH-Valur
Chelsea-Arsenal Kvennalandsliðið mætir Hvít-Rússum
Angleton. AP. | Kviðdómur í Texas
komst í gær að þeirri niðurstöðu að
lyfjafyrirtækið Merck og Co. bæri
ábyrgð á dauða manns sem notaði
verkjalyfið Vioxx, sem í eina tíð naut
mikilla vinsælda, en var tekið úr um-
ferð vegna vísbendinga um að neysla
þess yki líkur á hjartaáfalli.
Voru ekkju mannsins, Roberts
Ernsts, dæmdar bætur upp á 253,4
milljónir Bandaríkjadala, um 16 millj-
arða ísl. kr.
Vel hefur verið fylgst með þessu
máli vestra enda þótti það geta gefið
tóninn varðandi málsóknir á hendur
Merck og Co. annars staðar; en alls
bíða 4.200 mál þess að verða tekin
fyrir dóm víðs vegar í Bandaríkjun-
um.
Þá hafa mál á hendur Merck og Co.
verið höfðuð í Kanada, Evrópu, Bras-
ilíu, Ástralíu og Ísrael. Leitt hefur
verið getum að því að rekja megi tæp-
lega 30 þúsund dauðsföll til lyfsins frá
því að það var leyft árið 1999.
AP
Carol Ernst brast í grát er dómurinn
var kveðinn upp í Texas í gær.
Lyfjarisinn
Merck dæmd-
ur ábyrgur
MENNINGARNÓTT í Reykjavík er sennilega
eina nóttin sem hefst að degi til á Íslandi. Dag-
skráin verður formlega opnuð kl. 11 með
ávarpi borgarstjóra sem um leið setur
skemmtiskokkið í Reykjavíkurmaraþoninu.
Sif Gunnarsdóttir, verkefnisstjóri Menning-
arnætur, segir að hátt í þrjú hundruð við-
burðir verði í miðborginni. Gestir geta heim-
sótt draugahús, hlýtt á fiðluleik af svölum,
fylgst með sérkennilegum manntaflsgjörningi
á útitaflinu og jafnvel fjárfest í hlutabréfum
kærleikans. Ítarleg dagskrá Menningarnætur
fylgdi Morgunblaðinu í gær en hana má einnig
nálgast í gegnum vefsíðu Reykjavíkurborgar:
http://www.reykjavik.is.
Morgunblaðið/ÞÖK
Íslenski dansflokkurinn tók lokaæfingu í aðalútibúi Landsbankans í gærkvöld en dansflokkurinn verður með sýningu þar í dag kl. 18.30.
Nóttin sem hófst að morgni
ÆTTINGJAR Brasilíumannsins sem
lögreglumenn skutu til bana í jarðlest í
London segja hann hafa verið „myrtan á
leið til vinnu sinnar“. Þeir krefjast þess
að yfirmaður lögreglunnar segi af sér og
að þeir sem beri ábyrgð á dauða hans
verði sóttir til saka.
Fjölskyldan sakar yfirmann lögregl-
unnar í London, Ian Blair, um að hafa
logið til um hvernig og hvers vegna at-
burðinn bar að, hann hafi reynt að leyna
staðreyndum og reynt að koma í veg fyrir
óháða rannsókn á málinu.
Blair „hafnar algjörlega“ ásökunum
fjölskyldunnar og segir margar staðhæf-
ingar sem deilur standi um aldrei hafa
komið frá lögreglunni. Aldrei leiðrétti
lögreglan þó þær yfirlýsingar og stað-
hæfingar sem henni voru eignaðar.
Jean Charles de
Menezes var skotinn
til bana 22. júlí því lög-
reglumenn grunuðu
hann um að ætla að
fremja sjálfsmorðs-
sprengjuárás.
Brasilískir rann-
sóknarmenn koma til
London í næstu viku
til að ræða við rann-
sóknarnefnd lögreglunnar um misvísandi
upplýsingar um dauða Menezes.
Skýrslu nefndarinnar var lekið í fjöl-
miðla í vikunni, en samkvæmt henni er
vitnisburður sjónarvotta annar en lög-
reglunnar. Einnig segir þar að lögreglan
hafi lagst gegn rannsókn á atburðinum.
Vissu að hann væri saklaus
Alessandro Pereira, frændi Menezes,
sagði í viðtali við breska útvarpið, BBC, í
gær að í þrjár vikur hefði fjölskyldan
þurft að hlusta á hverja lygina á fætur
annarri um það hvernig dauða hans bar
að. Sagðist hann óska þess að Ian Blair
mætti heyra hvernig skýringar hans
hefðu hljómað í eyrum foreldra Menezes.
Lögreglan hefði vitað að hann var sak-
laus, en samt hefði fjölskyldan verið látin
þjást.
„Þeir drápu Jean og lugu svo til um
það,“ sagði hann á blaðamannafundi í
gær. „Fjölskyldu minnar vegna, fyrir
íbúa London, í nafni Jean segi ég að þeir
sem bera ábyrgð á þessu ættu að segja af
sér. Ian Blair ætti að segja af sér.“
Blair segir hins vegar ekki koma til
greina að hann segi af sér. „Maður verð-
ur augljóslega að taka mark á skoðunum
fólks, en ég tel að sá stuðningur sem ég
og lögreglan í London njótum meðal al-
mennings vegi þyngra en þessir tilteknu
atburðir,“ sagði hann.
Segja að Menezes
hafi verið myrtur
Fjölskyldan krefst afsagnar yfirmanns lögreglunnar í London
Eftir Jóhönnu Sesselju Erludóttur
jse@mbl.is
Alessandro Pereira
„ÉG ER stundum allt of
varkár og missi þá kannski
af gulli og gimsteinum af
því að ég er að passa mig of
mikið – það er gott að láta
vaða stundum,“ segir
Björk Guðmundsdóttir í
samtali við Árna Matthías-
son í Lesbók Morgunblaðs-
ins í dag.
Fyrir stuttu kom út
plata með úrvali tónlistar
Bjarkar Guðmundsdóttur
við kvikmynd Matthews
Barneys, Drawing Re-
straint 9. Í viðtalinu segir
Björk frá tónsmíðunum og
samstarfinu við Barney, en
hún samdi og tók upp hálf-
an þriðja tíma af tónlist á
aðeins sex mánuðum. Hún
segir að vinnan hafi verið
lærdómsrík, það hafi verið
henni gagnlegt að vinna
undir svo mikilli pressu og
fyrir vikið hafi hún prófað
ýmislegt sem henni hefði
ekki dottið í hug annars.
Tónlistin í myndinni hef-
ur á sér japanskt svipmót
og Björk segir að við samn-
ingu hennar hafi hún ekki
síst notið góðs af því að
sem unglingur sökkti hún
sér í zen-fræði og lá yfir
shakuhachi-tónlist.
„Mér fannst ég geta gert
þetta verkefni heiðarlega
enda er Japan fyrir mér
öðru vísi en önnur lönd,
mér finnst það eins og það
sé ákveðinn hluti af mér frá
því ég var átján ára göm-
ul,“ segir hún.
Það er gott að láta
vaða stundum
Lesbók, Börn og Íþróttir í dag