Morgunblaðið - 20.08.2005, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. ÁGÚST 2005 37
UMRÆÐAN
„ÞETTA er magnað!“ öskraði
Bubbi Morthens yfir um 100.000
áhorfendur á stórtónleikunum á mið-
bakka á Menningarnótt síðasta sum-
ar. Og hann hafði rétt fyrir sér: Þetta
er magnað! Stærsta hátíð landsins er
gengin í garð, hátíð fólksins.
Á Menningarnótt lifnar miðborgin
við sem aldrei fyrr, viðburðir eru í
boði innandyra sem utan, á götum, í
görðum og á torgum, á söfnum, kaffi-
húsum, í galleríum og í kirkjum, í
verslunum og veitingahúsum. Í ár
verður dagskráin fjölbreyttari en
nokkru sinni og eru vel á þriðja
hundrað viðburðir, sem gestir mið-
borgarinnar geta notið og dagskrár-
svæðið nær á milli Öskjuhlíðar og
Granda – frá miðbakka til Vatns-
mýrar.
Galdurinn við Menningarnótt er að
hún er sjálfsprottin. Hún hefur
þróast frá því að vera tiltölulega hóg-
vær miðborgargleði yfir í að verða
stærsta og vinsælasta hátíð ársins.
Og hún er Menningarnótt allra
landsmanna, það sýnir vaxandi fjöldi
þeirra innlendu og erlendu gesta,
sem ákveða að sækja höfuðborgina
heim á þessum góða degi. Í fyrra tók
þriðjungur landsmanna þátt í Menn-
ingarnótt og víða heyrðist fólk spyrja
sjálft sig og aðra – ánægjulega undr-
andi: „Hvaðan kemur eiginlega allt
þetta fólk?“ Allt þetta fólk kemur
saman til að njóta þess besta, sem
Reykjavík hefur upp á að bjóða:
njóta sköpunargleði og góðs mann-
lífs, fjölbreytni og menningarlegra
verðmæta.
Hátíð eins og Menningarnótt sýnir
hvað raunverulega býr í Reykjavík.
Hún er stærsta svið landsins þar sem
sannast hve listsköpunin getur verið
ótrúlega fjölbreytt og hugmynda-
auðgin óheft. Ef rennt er yfir dag-
skrá Menningarnætur í ár er hægt
að finna gnægð dæma: Hver myndi
ekki vilja eiga hlutabréf á Hluta-
bréfamarkaði kærleikans þar sem
gengi á hverju faðmlagi fer hækk-
andi eftir því sem líður á daginn, taka
þátt í Karnivalgöngu Alþjóðahússins
með hljóðfærum, sem búin verða til
samdægurs, fylgjast með lifandi
skákmönnum, sem tefla sig inn í tón-
verk á útitaflinu í Lækjargötu, eða
kynnast vísindagöldrum Háskóla Ís-
lands og Listsmiðjunnar Klink og
Bank … listinn er langur. Breiddin
spannar allt frá merkustu menning-
arstofnunum landsins til einstakra
listamanna eða íbúa, sem bjóða heim
í alls konar skemmtilegheit undir for-
merkjunum að maður sé manns gam-
an.
Fyrirtækin í miðborginni hafa frá
upphafi verið hryggjarstykkið í sí-
stækkandi dagskrá hátíðarinnar. Í
sumar undirritaði Reykjavíkurborg
þriggja ára samstarfssamning við
Landsbankann – einn af öflugustu
bakhjörlum miðborgarinnar um að
styðja dagskrá og framkvæmd
Menningarnætur. Aðrir lykilaðilar
hafa starfað með Reykjavíkurborg
að því að sinna öryggismálum og for-
vörnum á þessari fjölmennustu hátíð
ársins. Lögreglan í Reykjavík,
Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins,
fjölmörg svið, stofnanir og ein-
staklingar innan Reykjavíkurborgar,
miðborgarprestur, Saman-hópurinn
og margir fleiri hafa lagst á árarnar
með okkur við það mikilvæga verk-
efni að halda gleðilega hátíð. Í ár
verður skipulagt sérstakt hreins-
unarátak til að tryggja það að Menn-
ingarnótt verði hreinlega góð! Ég
hvet alla borgarbúa og gesti þeirra til
þess að láta ekki sitt eftir liggja í
þessu sambandi.
Dagskrá Menningarnætur er fyrir
alla aldurshópa enda hefur það sýnt
sig að fjölskyldur halda gjarnan hóp-
inn á Mennningarnótt. Höfuðborg-
arstofa, sem ber ábyrgð á skipulag-
inu fyrir hönd Reykjavíkurborgar,
og Saman-hópurinn hafa í samein-
ingu hrundið af stað herferð sem
minnir foreldra á ábyrgð þeirra sem
fyrirmyndir og unglingana á að virða
reglur um útivistartíma. Sífellt betri
samstaða er að nást um þessi grund-
vallaratriði sem gera hátíðina gleði-
legri fyrir alla.
Menningarnótt er eitt besta dæm-
ið um góða hugmynd, sem með frum-
kvæði og aðhlynningu Reykjavík-
urborgar hefur orðið að sannkallaðri
þjóðhátíð. Og eignarhald hennar af
sama meiði sprottið. „Hvaðan kemur
allt þetta fólk?“ var spurt fyrir réttu
ári. Ef okkur dettur í hug að spyrja
sömu spurningarinnar í ár þar sem
við stöndum saman niðri á miðbakka
undir litríkri flugeldasýningunni – þá
er svarið þetta: Það eru engir aðrir
en eigendurnir, sem fjölmenna í mið-
borgina á dag og standa sameig-
inlega að því að gera góða Menning-
arnótt enn betri.
Gleðilega hátíð.
„Hvaðan kemur allt þetta fólk?“
Stefán Jón Hafstein m
innir á Menningarnótt ’Galdurinn við Menn-ingarnótt er að hún er
sjálfsprottin. Hún hefur
þróast frá því að vera
tiltölulega hógvær mið-
borgargleði yfir í að
verða stærsta og vin-
sælasta hátíð ársins.‘
Stefán Jón Hafstein
Höfundur er formaður borgarráðs og
formaður menningar- og ferðamála-
nefndar Reykjavíkur.