Morgunblaðið - 20.08.2005, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 20.08.2005, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. ÁGÚST 2005 27 MENNING h ö n n u n : w w w . p i x i l l . i s Opið: mán-fös 10:00-18:00 - lau 10:00-16:00 - sun 13:00-16:00 BÆJARL IND 12 - S : 544 4420 201 KÓPAVOGUR Af öllum sófum og sófasettum 20-40% afsláttur -40% 4ra sæta sófi m/óhreinindavörðu microfiber áklæði Auðvelt að taka af og hreinsa Verð áður: 149.000.- Verð nú: 89.400.- -30% Vandað leðursófasett - ítalskt leður 3+1+1 Verð áður: 256.000.- Verð nú:179.200.--30% 3+2 Verð áður: 242.000.- Verð nú:169.400.--40% Romantiqe sófaborð (120cm x 70cm) Verð áður: 32.000.- Verð nú:19.200.- -40% TV skenkur Verð áður: 32.000.- Verð nú: 19.200.- -30%-30% Leðursófasett 3+1+1 Verð áður: 242.000.- Verð nú: 169.400.- 3+2 Verð áður: 228.000.- Verð nú: 159.600.- Útsalan í fullum gangi 20-70% afsláttur 30-40% afsláttur af Romantiqe hnotulínunni HLJÓMSVEITIN Icelandic Sound Company, sem skipuð er þeim Rík- harði H. Friðrikssyni og Gunnari Kristinssyni, lauk nýverið tónleika- ferð um Þýskaland. Tónleikastaðir ferðarinnar voru af fjölbreyttara taginu. Leikið var á þrennum tón- leikum í Dresden, þar af í menning- arsetrinu Blaue Fabrik sem hefur aðsetur í aflagðri litarefnaverk- smiðju, á bóndabæ í Saxlandi miðju og í Alter Gasometer í Zwickau, sem eins og nafnið gefur til kynna er tón- leikasalur í gamalli gasverksmiðju. Óvenjuleg tónlist Hinir óvenjulegu tónleikastaðir þurfa þó kannski ekki að koma á óvart þegar Icelandic Sound Comp- any á í hlut, því þar er mjög óvenju- legt tónlistarfyrirbæri á ferðinni. Þar mætast rafgítarleikur og slag- verk, tölvutækni og spuni, svo úr verður tónlist sem meira að segja meðlimir eiga erfitt með að henda reiður á. „Við erum ennþá að kanna hvar hún á heima,“ segir Ríkharður í samtali við Morgunblaðið. „Það var því markmið hjá okkur að leika á óvenjulegum stöðum, og sú tilraun heppnaðist mjög vel. Við fórum í tónleikaferð um Ísland í fyrra og þá var besti staðurinn sem við lékum í gamall lýsistankur úti í sveit. Tón- leikastaðirnir í Þýskalandi voru eins konar framhald af þeirri pælingu.“ Tónlistin sem Icelandic Sound Company leikur er spunnin á staðn- um hverju sinni og því eru hverjir tónleikar hennar einstakir. „Það hef- ur í raun verið okkar helsta vanda- mál að finna okkur stað í ákveðnum geira,“ segir Ríkharður. „Við erum ekki rokkhljómsveit, ekki klassísk hljómsveit, ekki djasshljómsveit. Og við erum raftónlist í allt öðrum skiln- ingi en flest raftónlist, að minnsta kosti sú sem ég heyri.“ Spunnið á sviðinu Á tónleikunum í Þýskalandi slóg- ust nokkrir tónlistarmenn í hóp Ice- landic Sound Company. Í öllum til- fellum hittust þeir í fyrsta sinn á sviðinu – æfingalaust – og spunnu saman á staðnum. „Það getur verið viss óvissa fólgin í því fyrirkomulagi, en við vorum mjög heppnir núna með tónlistarfólk, sérstaklega bás- únuleikarann Günter Heinz,“ segir Ríkharður. Hann segir tónlist þeirra alla jafna vera vel tekið, og svo hafi einn- ig verið í tónleikaförinni um Þýska- land. „Það er kannski helst sumt eldra fólk, sem er búið að mynda sér mjög sterkar skoðanir um hvernig tónlist eigi að vera, sem hefur ekki líkað tónlistin okkar. En svo er ann- að eldra fólk sem líkar tónlistin okk- ar mjög vel. Mörgum finnst líka spennandi að sjá umbúnaðinn á tón- leikum; við erum með 900 kg af hljóðfærum á sviðinu með okkur. Það er allt annað að sjá tónlist leikna en að hlusta á upptöku af henni, og það er líka þannig með okkar tón- list,“ segir Ríkharður að lokum. Tónlist | Hljómsveitin Icelandic Sound Company lauk nýverið tónleikaferð um Þýskaland Ríkharður H. Friðriksson og Gunnar Kristinsson í Icelandic Sound Company ásamt Günter Heinz. Leikið á óvenju- legum stöðum Eftir Ingu Maríu Leifsdóttur ingamaria@mbl.is www.isc.is SÝNINGARSTJÓRI hjá Danska list- og hönnunarsafninu, Kunst- industrimuseet, hefur verið ákærður fyrir að stela „100 sýn- ingum“ frá safninu, að því er fréttavefur breska ríkisútvarpsins greinir frá. Maðurinn stal smáhlutum, úr postulíni, gleri og málmi, að and- virði einnar milljónar danskra króna, eða um 10,5 íslenskra króna að sögn talsmanns safnsins. Kunstindustrimuseet var stofn- að árið 1890 og er einn stærsti vettvangur Norðurlanda fyrir hönnun og list. Það á einnig hluti frá Austur-Asíu, einna helst Kína og Japan, frá forsögulegum tíma til dagsins í dag. 100 sýning- um stolið?
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.