Morgunblaðið - 20.08.2005, Blaðsíða 57

Morgunblaðið - 20.08.2005, Blaðsíða 57
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. ÁGÚST 2005 57 KRINGLAN KEFLAVÍKAKUREYRI KICKING AND SCREAMING kl. 2 - 8.15 MADAGASCAR m/ensku tali kl. 4 - 10.30 MADAGASCAR m/ísl.tali kl. 2 - 4 - 6 Þrælskemmtileg rómantísk gamanmynd um dóttur sem reynir að finna draumaprinsinn fyrir mömmuna. HERBIE FULLY... kl. 12 2.20 -4.20 -6.30 -8.40 DECK DOGZ kl. 6 - 8 - 10 THE ISLAND kl. 10.40 B.i. 16 ára THE PERFECT MAM kl. 4.20 - 8 MADAGASCAR m/ísl.tali kl. 12-2.10-4-6.15 BATMAN BEGINS kl. 11.30-1.50-10 FANTASTIC FOUR kl. 1.50 - 3.55 - 8 SIN CITY kl.10 HERBIE FULLY... kl. 2 - 4 - 6 - 8 WHO´S YOUR DADDY kl. 6 - 10.10 400 KR. MIÐAVERÐ Á ALLAR MYNDIR KL. 3 UM HELGAR Í HÁSKÓLABÍÓI. SKELETON KEY kl. 8 - 10 B.i. 16 ára HERBIE FULLY LOADED kl. 2 - 4 - 6 - 8 THE ISLAND kl. 10 MADAGASCAR m/ísl.tali. kl. 2 - 4 m/ensku tali kl. 6 Sýnd bæði með íslensku og ensku tali.     EWAN McGREGOR SCARLETT JOHANSSON ÞEIR VILJA EKKI AÐ ÞÚ VITIR HVAÐ ÞÚ ERT!  Kvikmyndir.is  S.V. Mbl.  DV  Ó.H.T. RÁS 2  Kvikmyndir.is  S.V. Mbl. HÁDEGISBÍÓ AR MYNDIR KL. 12 UM HELGAR Í SAMBÍÓUNUM KRINGLUNNI SÖNGFLOKKURINN Heitar lummur var stofnaður nú í sumar. Söngflokkinn skipa þau Ardís Ólöf Víkingsdóttir, Helgi Þór Ara- son, Kalli Bjarni og Alma Rut, en þau eru öll fyrrum þátttakendur í Idol-stjörnuleitinni. Fyrsta lag þeirra var hljóðritað nú í sumar og hefur heyrst reglulega á öldum ljósvakans undanfarið en það er lagið „Vertu ekki að plata mig“ sem HLH-flokkurinn gerði vin- sælt árið 1984. Lög frá árunum 1970 til 1990 verða Heitu lummunum einmitt hugleikin en þær ætla að gera að sínum nokkur af vinsæl- ustu dægurlögunum frá þeim tíma, lög á borð við „Ég er á leiðinni“, „Riddari göt- unnar“, „Gaggó Vest“, „Seinna meir“ og „Dagar og Nætur“. Í samtali við Morgunblaðið sagði Alma Rut hugmyndina að sjálfsögðu komna frá hljóm- sveitinni Lummunum sem var vinsæl á átt- unda áratugnum. „Lummurnar sungu lög frá fimmta, sjötta og sjöunda áratugnum sem töldust gömul þá. Við einbeitum okkur að lögum frá áttunda til tíunda áratugnum og færum þau til nútímans,“ sagði Alma Rut og segir söngflokkinn að vissu leyti vera að færa nýrri kynslóð þessi gömlu lög. „Við breytum þeim ekkert allt of mikið en reynum að koma með nýjan vinkil á þau,“ segir hún. Eru frekar skemmtikraftar Alma segir Heitu lummurnar líta meira á sig sem skemmtikrafta en kannski hljóm- sveit. „Þetta er einskonar sýning sem við setjum upp og er sviðsframkoman í stíl við það,“ segir hún. Þau hyggjast ekki semja ný lög sjálf held- ur halda sig innan ramma gömlu góðu lag- anna. Lummurnar heitu ætla svo í hljóðver á næstunni til að taka upp sína fyrstu plötu en áætluð útgáfa er í byrjun nóvember á þessu ári. Fjórmenningarnir stigu allir á svið í Idol- stjörnuleitinni. Telur Alma það vera góðan stökkpall fyrir þá sem vilja fást við söng? „Já, algerlega. Ég held að við fjögur séum mjög gott dæmi um það. Við vorum öll að gera eitthvað allt annað þegar við tókum þátt í Idolinu þó söngurinn hafi auðvitað innst inni verið draumurinn,“ segir hún að lokum. Tónlist | Idol-stjörnur taka höndum saman Heitar lummur Þau Kalli Bjarni, Alma Rut, Helgi Þór og Ardís Ólöf eru Heitar lummur. Eftir Birtu Björnsdóttur birta@mbl.is NÝSTÁRLEGT manntafl verður leikið kl. 16 í dag við útitaflið í Lækjargötu. Í stað hefðbundinna taflmanna verður á taflborð- inu lúðrasveit af holdi og blóði. Hljóðfæra- leikararnir færa sig svo um reiti eins og taflmenn og spila mimunandi tóna eftir því hvernig þeim er leikið. Frank Hall, gítarleikari í Ske, vinnur verkið í samvinnu við Lúðrasveit Reykja- víkur og Taflfélagið Hrókinn en verkefnið er hluti af lokaverkefni Franks við Tónlist- ar- og myndlistarháskólann í Haag. „Deildin heitir „Interfaculty of Image and Sound“ og sérhæfir sig í list sem byggist á hljóði og mynd. Ég hef hingað til aðallega verið að vinna með tölvur og var með sýningu um daginn í Nýlistasafninu sem kallaðist Dægurfluga en þá var það fluga á skjá sem lék mis- munandi tónlist eftir því hvernig henni var stýrt.“ Frank segir að Manntaflið hafi þróast út frá öðru verki sem hann vann að í Hol- landi þar sem hann notaði hina vinsælu myllu. „Þar framkölluðu þeir sem spiluðu myll- una raftónlist eftir því hvernig þeir léku leikinn. Mig langaði síðan að víkka þessa hugmynd aðeins og datt þá niður á þessa hugmynd að nota skákina. Lúðrasveit ligg- ur líka svo beint við því að lúðrasveitir eru hannaðar til að ganga og svo voru þær líka notaðar í hernaði hér áður fyrr, léku marsa hermönnum til dáða. Svo ekki sé minnst á fagurfræðilegan flöt lúðrasveit- arbúninga.“ Beðinn að lýsa tónlistinni sem muni hljóma í Lækjargötu í dag segir Frank að hún muni sækja lögun sína í skákborðið. „Það verður leikið eftir stífum en ein- földum reglum og tónlistin verður eitthvað í líkingu við það – ef það útskýrir eitthvað. Skákin verður spiluð alveg til enda, nokk- uð hratt og það verður ekkert jafntefli. Taflfélagið Hrókurinn er með mér í þessu og Höfuðborgarstofa studdi mig einnig, svo ekki sé minnst á Lárus Grímsson, stjórnanda Lúðrasveitar Reykjavíkur, sem reyndist mér ómetanleg hjálp. En sem sagt, þarna mun namibískur skákmaður tefla við Grænlandsmeistarann þannig að það má jafnvel segja að þetta sé lands- leikur í skák.“ Tónlist | Frank Hall blæs til frumlegrar orustu Tónlistar-manntafl í Lækjargötu Frank Hall, höfundur Manntaflsins, er einnig gítarleikari Ske.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.