Morgunblaðið - 20.08.2005, Blaðsíða 48
Grettir
Smáfólk
Kalvin & Hobbes
Hrólfur hræðilegi
Gæsamamma og Grímur
Úthverfið
Kóngulóarmaðurinn
ÞÉR FINNST ÉG
HEIMSKUR ER ÞAÐ
EKKI? ÞESSI STARA
SEGIR: „ÉG ER
SAMMÁLA“
AF HVERJU HORFIR
ÞÚ SVONA Á MIG?
ÉG HEF ALDREI VERIÐ
SVONA NIÐURDREGINN
ÉG ÆTLAÐI AÐ STINGA UPP
Á ÞVÍ AÐ HANN SPANGÓLAÐI Í
TUNGLSKININU
ÞAÐ ER
BÚIÐ AÐ
REKA
KENNARANN
MINN
NÚ ER ÉG ORÐINN VIRKI-
LEGA SVALUR. SJÁÐU BARA
ÞESSAR STÓRU GULU TÖLUR
ÞÚ ERT EKKI SVALUR. ÞÚ
LÍTUR ÚT EINS OG FÁVITI!
KANNSKI ER ÞETTA
NÝ TÍSKA
KANNSKI
ERT ÞÚ
HEIMSKUR
SJÁÐU
KALVIN. ÉG FANN
MIKKA MÚS
BUXUR
VIÐ VORUM Á
ATKINSKÚRNUM
EN SKIPTUM SVO
NÝLEGA YFIR Í
SOUTH PARK
KÚRINN
ERUÐ ÞIÐ BÚNIR AÐ
KOMAST AÐ ÞVÍ HVAÐ ER
AÐ BÁTNUM MÍNUM?
NEI, EKKI
ALVEG.
EN OKKUR GRUNAR AÐ HANN LEKI
ÞARFTU AÐ
TYGGJA MATINN
SVONA?
SVARAR
ÞESSI
SPURNING SÉR
EKKI SJÁLF?
AF HVERJU SKAUSTU GAT Á DEKKIÐ?
HANN MISSTI STJÓRN
Á BÍLNUM VEGNA ÞÍN
HANN VAR NÆSTUM BÚINN AÐ
KEYRA ÞAU NIÐUR, ÁN
ÞESS AÐ STOPPA
ÉG LEYFI MÖNNUM
EKKI AÐ KOMAST UPP
MEÐ SLÍKT
Dagbók
Í dag er laugardagur 20. ágúst, 232. dagur ársins 2005
Vinkona Víkverjalagði á dögunum
land undir fót og
heimsótti ættingja
sína í útlöndum. Hún
dvaldi þar í góðu yf-
irlæti um allnokkra
hríð eða uns komið
var að því að halda
aftur heim á klakann
til að takast á við
hversdaginn að nýju.
Vinkona Víkverja
notar tóbak, hún
sumsé reykir. Sem
hún ætti auðvitað
ekki að gera. En
hverju sem því líður
hugðist hún í Leifsstöð spara sér
nokkrar krónur með því að kaupa
sér sígarettur í Fríhöfninni, því eins
og allir vita fæst þar tóbak á talvert
lægra verði en annars staðar á Ís-
landi. Vinkona Víkverja er hins-
vegar ekki mikið á faraldsfæti,
a.m.k. ekki í útlöndum, og eitthvað
hafði hún misskilið lög og reglur
um það magn sem hún mátti taka
með sér af tóbaki inn í landið. Hún
greip þannig með sér tvær lengjur,
eða karton, af sígrettum í stað eins,
eins og lög kveða á um. Með þetta í
farteskinu og vitandi ekki betur
rann hún beinustu leið að græna
hliðinu, enda hugði hún ekkert toll-
skylt í sínu farteski.
Þar varð á vegi henn-
ar tollvörður einn
mikill. Hann rak aug-
un samstundis í
„smyglið“ og stöðvaði
för „smyglarans“ með
það sama. Það var svo
sem í góðu lagi, lag-
anna vörður var þar
aðeins að sinna skyld-
um sínum. En vin-
kona Víkverja, hinn
meinti glæpamaður,
játaði strax á sig
glæpinn, skammaðist
sín fyrir þessi kjána-
legu mistök og sagðist
myndu taka út þá refsingu sem
henni bæri. En það sem henni hins-
vegar hugnaðist ekki var viðmót
tollvarðarins. Varð hún í drykk-
langa stund að sitja undir skætingi
og dónaskap af hendi tollvarðarins
sem hún taldi sig ekki eiga skilið.
Burtséð frá þeim skertu mannrétt-
indum að mega ekki grípa með sér
tvær sígarettulengjur, fannst vin-
konu Víkverja í góðu lagi að borga
dýru verði fyrir lesti sína og taldi
það ekki eftir sér greiða 3.900 krón-
ur fyrir mistökin. En það fannst
henni heldur hátt verð fyrir ónotin
sem hún varð fyrir. Kurteisi kostar
nefnilega ekki neitt.
Víkverji skrifar... | vikverji@mbl.is
Listasýning | Í Listasafni ASÍ verða opnaðar í dag kl. 16, sýningar Huldu
Stefánsdóttur og Kristínar Reynisdóttur.
Sýning Huldu er í Ásmundarsal og nefnist „Yfirlýstir staðir“. Þar sýnir
hún málverk og ljósmyndir og má sjá eitt verka hennar hér að ofan. Þetta er
þriðja einkasýning Huldu sem lauk námi frá School of Visual Arts í New
York árið 2000.
Kristín sýnir í Gryfju og Arinstofu sýninguna „Yfirborð“. Kristín stundaði
listnám á Íslandi og í Þýskalandi og hefur sýnt bæði hérlendis og erlendis.
Síðast hélt hún einkasýningu í Galleríi Sævars Karls fyrir ári.
Sýningarnar standa til 11. september og er aðgangur ókeypis. Listasafn
ASÍ er opið þri.–sun. frá 13 til 17.
Yfirlýst og yfirborð
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Aug-
lýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569
1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811,
gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.600 kr. á mánuði
innanlands. Í lausasölu 220 kr. eintakið mánudaga til laugardaga. Sunnudaga 350 kr.
„Trú þú á Drottin Jesú, og þú munt verða hólpinn og heimili þitt.“ Og
þeir fluttu honum orð Drottins og öllum á heimili hans. (Post. 16, 31.–33.)