Morgunblaðið - 20.08.2005, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. ÁGÚST 2005 29
DAGLEGT LÍF | FERÐALÖG
ÝMISLEGT þarf að hafa í
huga eftir skemmtilega dvöl í
öðru landi þegar hótelreikning-
urinn er borgaður. Í Bretlandi
getur það t.d. komið fyrir að
10% þjónustugjald sé lagt á all-
an reikninginn án þess að þess
sé sérstaklega getið, líkt og
lýst er á vef Daily Telegraph.
Umræddur reikningur fyrir
gistingu, málsverð, morg-
unverð og drykki eftir dvöl á
hótelinu Sheene Mill hljóðaði
upp á 329,28 pund en átti í raun
að vera 299,35 pund. Þjónustu-
gjald var lagt á allt, hvort sem
það var gisting eða veitingar
en hótelið endurgreiddi þó
gjaldið sem lagt var á gist-
inguna.
Ferðalag getur reynst dýr-
ara en ætlað var í upphafi þeg-
ar allt er tínt til. Sums staðar
er morgunverður ekki innifal-
inn í gistiverðinu og ýmislegt
er gott að hafa í huga áður en
lagt er í hann með ákveðið verð
í huga:
Þegar morgunverðurinn er
ekki innifalinn í verði á
breskum hótelum getur
hann kostað allt upp í 25
pund eða sem samsvarar
hátt í 2.900 krónum.
Skattur er ekki alltaf inni-
falinn í uppgefnu verði þar
sem hótelhaldarar halda því
fram að erlendir gestir geti
fengið skattinn end-
urgreiddan. Skattar eru
mismunandi eftir löndum og
ferðamenn ættu að kynna
sér hvert hlutfallið er áður
en haldið er af stað.
Ekki er alltaf á hreinu hvort
greiða á þjórfé eða ekki.
Sums staðar er þjónustu-
gjald innifalið og oft er það
10% en sums staðar 15%. Að
því er fram kemur á vef
Telegraph verður æ algeng-
ara að þjónustugjaldinu sé
bætt ofan á allan hótelreikn-
inginn eins og í fyrstnefnda
dæminu, en ekki bara á veit-
ingar á hótelinu. Gestir ættu
einnig að vera á varðbergi
fyrir því að greiða ekki
þjónustugjald tvisvar. Á
hótelum þar sem þjónustu-
gjald er innheimt getur
samt verið gert ráð fyrir
þjórfé á reikningi veitinga-
staðarins.
Kostnaður felst í því að
koma sér á milli staða og
þótt hótelið bjóði upp á að
sækja gestina á flugvöllinn
getur það reynst gestunum
dýrt.
Flestir vita að minibarinn
er dýrt spaug. Þrátt fyrir að
ekki sé hægt að drekka
kranavatnið alls staðar,
bjóða ekki öll hótel upp á
flöskuvatn. En ef vatns-
flaska stendur á borðinu er
hún í boði hótelsins, ef hún
er inni í minibarnum á gest-
urinn að borga fyrir hana.
Ekki gera ráð fyrir að fá
dagblað þér að kostn-
aðarlausu þrátt fyrir boð um
að fá blaðið á hverjum
morgni. Það er kannski ekki
dýrt en getur verið óþarfi.
Ef afpanta þarf herbergið
hefur það kostnað í för með
sér. Ferðamenn ættu að
kynna sér skilmála þess efn-
is vandlega.
Ef hótelgestir freistast til
að taka með sér handklæði
eða slopp af hótelherberg-
inu geta þeir búist við að
verða rukkaðir fyrir það síð-
ar meir. Sama á við um
neyslu úr minibarnum.
GISTING
Huga þarf
að hótel-
reikn-
ingnum
NÚ í lok ágúst mun Grange City
Hotel sem er miðsvæðis í Lund-
únaborg, opna nýja álmu með 68
herbergjum sem eingöngu eru ætl-
uð konum. Allt þjónustufólkið mun
einnig vera kvenkyns og karlmenn
fá ekki aðgang.
Fulltrúar hótelsins tóku ákvörð-
un um að byggja þessa nýju álmu
eftir að hafa lagt könnun fyrir gesti
sína sem sýndi að helmingur hót-
elgestanna eru konur og margar
þeirra lýstu yfir öryggisleysi sínu
við það að ferðast einar.
Herbergi kvennaálmunnar góðu
eru því með mjög svo kven-
vinsamlegum útbúnaði eins og lýs-
ingu inni í klæðaskápum, stórum
förðunarspegli með baklýsingu og
sérlega kröftugur hárblásari er í
hverju herbergi. Á herbergishurð-
inni er gægjugat svo hægt sé að sjá
hver bankar upp á og einnig er ör-
yggiskeðja innandyra fyrir hurð-
inni.
Barry Wishart talsmaður Grange
Hotel Group segir að fyrrgreind
könnun hafi sýnt að meirihluti
kvengesta hótelsins hafði sams kon-
ar þarfir. Hann sagði að venjan
væri að hafa hótel sérlega karl-
miðuð, sérstaklega viðskiptahótel.
Hann viðurkennir þó að varla verði
fullkomlega hægt að halda
karlmannsbannið í álmunni, því
konur verði jú að hafa leyfi til að
bjóða karlmanni til herbergis síns
ef þær óski þess.
LONDON | Hótel opnar álmu þar sem karlmenn fá ekki aðgang
Herbergin hönnuð fyrir konur
Ljósmynd/Kristinn Ingvarsson
TVÖ hundruð ára afmælis H.C.
Andersens verður minnst í Dan-
mörku og 3. september nk. verður
haldin sérstök afmælishátíð. Þá
verður stóri H.C. Andersen dag-
urinn haldinn hátíðlegur og skrúð-
ganga til minningar um það þegar
skáldið fluttist 14 ára gamalt til
Kaupmannahafnar.
Börn eru hvött til að koma klædd
sem uppáhaldspersónan úr æv-
intýrum Andersen og þeir sem
standa fyrir hátíðahöldunum von-
ast til að skrúðgangan verði full af
prinsessum, tindátum, ljótum and-
arungum o.s.frv.
Þeir sem hyggjast ferðast til
Kaupmannahafnar í haust eiga ef-
laust eftir að verða varir við ýmiss
konar hátíðahöld í tengslum við
minningu H.C. Andersen. Leiksýn-
ingar og tónleikar í tengslum við
Andersen verða t.d. margir í haust.
Eitt af því sem ferðamenn í Kaup-
mannahöfn geta gert er að feta í
fótspor Andersen í Kaupmanna-
höfn en um borgina hafa verið mál-
uð hvít fótspor í skóstærð skáldsins
47. Þau liggja þar sem H.C. And-
ersen fór um og eru 2.000 talsins. Á
62 stöðum eru nánari upplýsingar
um tengsl skáldsins við einmitt þá
staði. Hægt verður að feta í fótspor
skáldsins út september.
DANMÖRK | H.C. Andersen
Vegleg af-
mælishátíð
Morgunblaðið/Ómar
Litla hafmeyjan í Kaupmannahöfn.
Nánari upplýsingar er að finna á
slóðinni:
www.hca2005.dk
Ódýrari bílaleigubílar fyrir
Íslendinga
Bílar frá dkr. 1.975 vikan
Bílaleigubílar
Sumarhús í
DANMÖRKU
www.fylkir.is sími 456-3745
Innifalið í verði: Ótakmarkaður akstur,
allar tryggingar, engin sjálfsábyrgð.
(Afgreiðslugjöld á flugvöllum.)
Höfum allar stærðir bíla, 5-7 manna
og minibus, 9 manna og rútur með/
án bílstjóra.
Sumarhús
Útvegum sumarhús í Danmörku af
öllum stærðum, frá 2ja manna og
upp í 30 manna hallir. Valið beint af
heimasíðu minni eða fáið lista.
Sendum sumarhúsaverðlista;
Dancenter sumarhús
Lalandia orlofshverfi
Danskfolkeferie orlofshverfi
Hótel. Heimagisting. Bændagisting.
Ferðaskipulagning.
Vegakort og dönsk gsm-símakort.
Fjölbreyttar upplýsingar á
heimasíðu; www.fylkir.is
Í báðum vélum:
Lyftigeta á framskóflu 3.500 kg í fulla hæð.
Perkins 1104-44T. 86KW/117 hp.
Vinnuþyngd 8.500 kg.
Lyftigeta á framskóflu 3.000 kg í fulla hæð.
Perkins 1104-44T. 77KW / 105 hp.
Vinnuþyngd 8.800 kg.
Lyftigeta á gröfuarmi í fulla hæð á dipper enda 1.500 kg.
Mótor staðsettur þversum í miðju vélar undir ökumannshúsi.
Fullkomið jafnvægi vélar með mótor undir miðju húsi.
„Vökva Servo“ fyrir gröfuarm og mokstursarm.
„Boch Rexroth Hydrostatic transmission“ stiglaus skipting.
„Speed reduction“ stillanlegur ökuhraði óháður snúningshraða mótors.
„Inch pedal“ Skipting slær út við hemlun vélar.
Vökvahraðtengi fyrir framskóflu.
Brettagafflar á lyftaraplani.
Tregðulæsing fyrir fram- og afturdrif.
Liðstýrð traktorsgrafa VF- 9.23
Fjórhjólastýrð traktorsgrafa VF 10.33B
Traktorgröfur
Loftsæti fyrir ökumann.
Yfirstærð af rafgeymi og alternator.
Opnanleg framskófla með skera.
Gúmmíplattar undir stuðfótum.
Öryggisventill fyrir gröfuarm.
Lagnir fyrir brothamar og vökvabor.
Skotbóma, mesta grafdýpt 5.800 mm.
„Vökva Servo“ fyrir gröfuarm.
„Vökva Servo“ fyrir mokstursgálga.
4 stk. grafskóflur. 45 cm – 60 cm – 90c m – 130 cm.
– handsmíðaðar gæðavélar
Vélar og þjónusta hefja innflutning á frábærum vinnuvélum frá Venieri. Venieri er einn
virtasti framleiðandi vinnuvéla í Evrópu, ítalskt fjölskyldufyrirtæki sem framleiðir um 900 vélar
á ári. Vélarnar eru ekki settar saman í fjöldaframleiðslulínu heldur er hver og ein handsmíðuð
af sérþjálfuðum starfsmönnum. Venieri-vélarnar hafa reynst framúrskarandi við íslenskar
aðstæður og eru á mjög góðu verði.
Eigum Venieri-vélar á lager - komdu og kynntu þér þær!
Góð gisting í Kaupmannahöfn
Hótel í miðbænum. Snyrtileg herbergi. 295 danskar kr.
fyrir manninn í 2ja manna herb. með wc og sturtu.
Tökum einnig á móti hópum.
Løven Hotel, Vesterbrogade 30, DK-1620 Cph. V.
Sími +45 33 79 67 20.
www.loeven.dk • loeven_bb@hotmail.com