Morgunblaðið - 20.08.2005, Blaðsíða 49
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. ÁGÚST 2005 49
DAGBÓK
Lifun hefur fest sig í sessi
sem nýstárlegt tímarit
Blaðið er unnið á faglegan hátt þar sem samspil fallegra
mynda og áhugaverðra efnistaka um hönnun og híbýli
opnar auglýsendum nýja leið að mikilvægum markhópi.
Lifun er dreift í 60.000eintökum
og mun sjötta tölublaðið koma út 27. ágúst
næstkomandi.
Panta þarf auglýsingar fyrir
kl. 16 miðvikudaginn 24. ágúst
Auglýsingar: Sif Þorsteinsdóttir, sími 569 1254.
– auglýsingar 569 1111
Ámorgun, sunnudag, verður undirrit-aður samstarfssamningur milli fyr-irtækisins Marels og Fjölskyldu- oghúsdýragarðsins um fjármögnun Vís-
indaveraldarinnar sem starfrækt er í garðinum.
Verður af þessu tilefni efnt til nokkurs konar
hátíðar í garðinum, m.a. munu tölvunarfræði-
nemar frá Háskólanum í Reykjavík sýna vél-
menni og kenna ungu fólki að búa til vits-
munaverur úr gömlum heimilistölvum.
Stella Björg Kristinsdóttir, kynningarfulltrúi
hjá Marel, segir stuðninginn við Vísindaveröld-
ina hluta af stefnu fyrirtækisins að stuðla að ný-
sköpun og vekja áhuga ungs fólks á málefnum
rannsókna og vísinda. „Við styrkjum þetta fjár-
hagslega en leggjum líka mikla vinnu í þetta
sjálf, komum t.d. að hönnun og hugmyndamótun
tækjanna sem sýnd eru í Vísindaveröldinni, tök-
um þátt í að útbúa þau og framleiða,“ segir hún.
Stella Björg segir að verið sé að loka útitækj-
unum í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum fyrir
veturinn, Parísarhjólinu sem þar hefur verið
starfrækt og öðru þess háttar, og því hafi verið
ákveðið að halda eins konar þemadag nú á
sunnudag; hefur þemað á sunnudag yfirskriftina
Bílskúrsgervigreind. Hafa nokkrir háskólanemar
verið fengnir til að koma með hugmyndir og búa
til tæki úr gömlum heimilistækjum. „Á sunnu-
dag er jafnframt fjölskyldudagur Marel og við
ætlum að nota þetta tilefni til að ganga frá und-
irskrift samstarfssamningsins,“ segir Stella
Björg.
Munu þeir Lárus Ásgeirsson, framkvæmda-
stjóri Marels, og Tómas Óskar Guðjónsson, for-
stöðumaður Húsdýragarðsins, skrifa undir
samninginn upp úr klukkan tólf á sunnudag en
Fjölskyldu- og húsdýragarðurinn er annars op-
inn á milli tíu og sex eins og aðra daga nú í
sumar.
Þú segir Marel leggja áherslu á að stuðla að
auknum áhuga ungs fólks á rannsóknum og vís-
indum. Hvers vegna?
„Við erum þekkingarfyrirtæki og erum að
reyna að skapa og viðhalda þessari ímynd, að
Marel búi yfir mikilli þekkingu. Við leggjum líka
mikið upp úr starfsmannaþróun og okkur er
mikið í mun að fá til okkar nægilegt vinnuafl
hér á Íslandi, vinnuafl sem hefur áhuga á þess-
um greinum sem við vinnum í. Við erum auðvit-
að að vinna að hátækniverkefnum og það er þörf
á slíku fólki í íslensku atvinnulífi.“
Þannig að þessi áhersla sem þið leggið á að
vekja áhuga ungs fólks á vísindum er að hluta
til langtíma starfsmannastefna?
„Já, það má alveg líta á það þannig. Við erum
einfaldlega að fjárfesta í framtíðinni með þess-
um hætti,“ sagði Stella Björg.
Vísindi | Þemadagur í Vísindaveröldinni í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum á sunnudag
Marel fjárfestir í framtíðinni
Stella Björg Krist-
insdóttir fæddist í
Reykjavík árið 1966.
Hún er nýflutt aftur til
Íslands eftir nítján ára
búsetu erlendis, fyrst í
Þýskalandi og svo í
Danmörku. Hún lagði
stund á nám í við-
skiptafræðum og ferða-
málafræði í Þýskalandi
og bætti svo við sig
gráðu frá Copenhagen Business School nýver-
ið. Hún hóf störf hjá Marel í vor. Stella er frá-
skilin, á þrjú börn, Leon Arnar, 8 ára, Eddu
Björg, 5 ára, Sunnu Dís, 3 ára. Stella Björg býr
í Hafnarfirði.
Ferð í Fjörður 23.–26. júlí
VIÐ vinkonurnar höfðum lengi
haft áætlun um að komast í Fjörð-
ur, tækifærið kom nú í sumar.
Þessi ferð fór langt fram úr
björtustu vonum okkar. Ótrúlega
fjölbreytt og fallegt landsvæði.
Ekki spilla mennirnir sem um
ferðina sjá.
Fyrir hönd okkar beggja vil ég
senda Fjörðungum okkar allra
bestu kveðjur með þakklæti fyrir
yndislega ferð. Birni Ingólfssyni
fyrir allan fróðleikinn, vonandi toll-
ir eitthvað eftir í kollinum. Hesta-
strákum og matsveinum, konum og
körlum. Forréttindi að þurfa ekki
að sjá um matinn þegar komið var
úr göngu. Heimi fyrir að vera það
náttúrubarn sem hann er. Harð-
fiskinn Eyjabita sem er einn sá
besti sem við höfum lengi smakk-
að. Jónsa fyrir lúmska kímni og
lipurð. Elínu fyrir hressilega fram-
komu. Og öllum fjórum fyrir ein-
staka þjónustulund, og ekki síst
hestunum fótvissu fyrir að bera
allt dótið okkar, stóla sem og ann-
að.
Með kveðju,
Helga Jörgensen og Torfhildur
Rúna Gunnarsdóttir.
Deilur í Garðabæ
SÓKNARBARN í Garðabæ sendi
línu til Velvakanda föstudaginn 12.
þ.m. varðandi upplifun sína á
fundi, sem svokallaðir stuðnings-
menn sóknarprestsins gengust fyr-
ir.
Ég get tekið heilshugar undir
hvert orð, sem þar stendur, því að
allt þetta upphlaup varðandi sókn-
arprestinn og málsmeðferð hans
og stuðningsfólks hans er með
slíkum endemum að engu tali tek-
ur.
Ég vil nota þetta tækifæri og
benda á mjög góða grein eftir
gjaldkera Garðasóknar í Frétta-
blaðinu föstudaginn 5. ágúst. sl.,
þar sem rangfærslur í skrifum um
prestamál Garðasóknar eru teknar
til umfjöllunar.
Þar segir m.a.: Í umræðu stuðn-
ingsmanna sr. Hans Markúsar
Hafsteinssonar er sannleikanum
snúið við. Staðreynd málsins er sú
að það var sóknarpresturinn, sr.
Hans Markús Hafsteinsson, sem
kærði samstarfsfólk sitt og það var
hann, sem krafðist þess að djákn-
inn yrði rekinn þegar djákninn
kallaði á hjálp og bað sóknarnefnd-
ina um aðstoð eftir að sóknarprest-
urinn hafði ítrekað hindrað djákn-
ann í störfum sínum og gripið
fram fyrir hendurnar á djákn-
anum. Allir aðilar, sem að málinu
hafa komið til þess að leysa það,
hafa komist að sömu niðurstöðu,
þ.e. að öll sök sé hjá sóknarprest-
inum og að eina lausnin sé sú að
hann verði fluttur til í starfi. Þetta
vill sóknarpresturinn ekki fallast á
og kærir alla sem leyfa sér að
leggja slíkt til og er jafnvel svo
forhertur að segja að Biskup Ís-
lands, sem hann hefur líka kært,
hafi ekkert með málið að gera, þar
sem hann (sóknarpresturinn) sé
skipaður af ráðherra. Þvílíkt og
annað eins rugl held ég að sé vart
finnanlegt og hafi allir skömm af,
sem með framferði sínu eru að
eyðileggja gott safnaðarstarf í
Garðasókn til margra ára.
Sóknarbarn í Garðasókn.
Veski týndist
ÍSLENDINGUR búsettur í
Þýskalandi týndi veski sl. fimmtu-
dag, annað hvort í Reykjavík eða á
Álftanesi. Í veskinu eru skilríki
o.fl. Skilvís finnandi hafi samband í
síma 892 4145.
Farsími í óskilum
FARSÍMI fannst í Fjölskyldu- og
húsdýragarðinum sunnudaginn 31.
júlí sl. Nánari upplýsingar í síma
897 9523.
Gullhringur týndist
GULLHRINGUR með rúbínsteini
týndist 9. ágúst, sennilega í eða við
Suðurbæjarlaug Hafnarfjarðar.
Skilvís finnandi hafi samband í
síma 555 0970. Fundarlaun.
Velvakandi
Svarað í síma 5691100 frá 10–12
og 13–15 | velvakandi@mbl.is