Morgunblaðið - 20.08.2005, Blaðsíða 60

Morgunblaðið - 20.08.2005, Blaðsíða 60
STURLA Böðvarsson sam- gönguráðherra segir sjálfsagt að skoða flugvöll við Löngu- sker sem einn kost til fram- tíðar ef það er mögulegt út frá kostnaðarlegu og umhverf- islegu sjónarmiði, og telji stjórnvöld fært að fara þá leið. Á fundi fulltrúa FL Group og Flugfélags Íslands með borg- aryfirvöldum í síðustu viku kom fram að flugfélögin telja Álftanes og Löngusker álit- legustu kostina fyrir nýjan innanlandsflugvöll ef Reykja- víkurflugvöllur verður færður úr Vatnsmýrinni. Sturla bendir á að sam- gönguráðuneytið sé í stöð- ugum viðræðum við flug- félögin um flugvallarmálin og ráðuneytið reyni að uppfylla óskir þeirra. „Fulltrúar flug- félaganna telja að Reykjavík- urflugvöllur í Vatnsmýrinni sé besti kosturinn,“ tekur hann fram. Sturla segist hins vegar vera „að láta meta flugtækni- legar aðstæður, bæði hvað varðar flugvöllinn eins og hann er nú, eða láta meta flug- völl á Lönguskerjum. Þetta er nú verið að vinna á mínum vegum“. Dagur B. Eggertsson, for- maður skipulagsráðs Reykja- víkurborgar, tekur í sama streng hvað varðar þann stað sem flugrekstraraðilarnir kjósi helst. Hann bendir á að þeir hafi jafnframt sagt á fundinum með borgaryf- irvöldum að óvissan sé mjög slæm fyrir atvinnurekstur þeirra. Spurður um kostnað vegna framkvæmda við innanlands- flugvöll segir Dagur að hann gæti orðið á bilinu 8–10 millj- arðar. Hann bendir á að gróf kostnaðaráætlun hafi verið gerð fyrir um fimm árum vegna millilandaflugvalla, og hljóðaði hún upp á 13 millj- arða. Hann segir að kostn- aðurinn vegna landfyllinga væri 9 milljarðar. „Það sem breytist þegar þú ferð frá millilandaflugvelli með löngum brautum í innanlands- flugvöll er að brautirnar stytt- ast og helgunarsvæðin helm- ingast,“ segir Dagur og bætir því við að gera megi ráð fyrir að fyllingarkostnaðurinn myndi lækka um helming. „Það fer allt eftir hönnun og öðru slíku en það er allt saman eftir. Maður fer því varlega í allar fullyrðingar.“ Sturla Böðvarsson samgönguráðherra vill skoða nýja kosti í flugvallarmálum í Reykjavík Löngusker sem framtíðarkostur? Kostnaður við nýjan innanlandsflugvöll á Lönguskerjum gæti verið 8–10 milljarðar  Útilokar ekki | 31Tillaga um flugvöll á Lönguskerjum. MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040, ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 LAUGARDAGUR 20. ÁGÚST 2005 VERÐ Í LAUSASÖLU 220 KR. MEÐ VSK. HÁLFUM mánuði áður en tenniskappinn Arnar Sigurðsson innbyrti sinn níunda Ís- landsmeistaratitil í röð um síðustu helgi lenti hann í miklum lífs- háska. Arnar lýsir því í viðtali í íþróttablaði Morgun- blaðsins í dag er hann var nærri drukknaður í flúðasiglingu sem hann fór í ásamt fleirum um jökulárnar í Skagafirði. „Þetta var hrikalegt og ég komst að því af eig- in raun hve lítið má út af bera og hve skammt er á milli lífs og dauða,“ segir Arnar, sem féll úr bátnum sem hann sigldi með, lenti í þungum straumi og var hátt í mínútu í kafi. Arnar missti meðvitund og segist í raun hafa verið búinn að gefast upp, tilfinningin hafi verið sú að nú væri allt búið. Hann rakst að auki utan í kletta og hlaut nokkra áverka á baki. „Það var hrein heppni að þeir skyldu ná mér upp og þegar ég komst til meðvitundar var ég ekki með neinn mátt í fótunum. Verkurinn var mikill og ég hélt að ég væri brotinn,“ segir Arnar en hann náði fljótt áttum og læknisrannsókn leiddi í ljós að hann var óbrotinn og öll líffæri sluppu. Hann harkaði af sér og þrátt fyrir ráðlegg- ingar sjúkraþjálfarans um að keppa ekki skráði hann sig á Íslandsmótið tveimur vik- um eftir slysið. Þar upplifði hann sinn sæt- asta sigur á ferlinum. | Íþróttir Tennismeist- ari í lífsháska Arnar Sigurðsson SJÖ slösuðust, þar af einn alvarlega, í árekstri vörubíls og strætisvagns á mótum Suðurlandsbrautar og Kringlumýrarbrautar við Laugaveg laust eftir klukkan níu í gærmorgun. Vagnstjóri strætisvagnsins slasaðist mest. Hann kastaðist út úr vagnin- um og hlaut einnig alvarleg meiðsl á fæti. Hann gekkst undir aðgerð á skurðdeild Landspítalans og átti að flytja hann yfir á gjörgæsludeild að henni lokinni. Sex farþegar strætisvagnsins, mest roskið fólk, voru fluttir á slysadeild og fengu allir að fara heim að lokinni skoðun nema einn sem var lagður inn á spítalann. Að sögn læknis á slysadeild var ekki talið að slysið hefði verið það alvarlegt að setja þyrfti í gang hóp- slysaáætlun. Vettvangur slyssins var girtur af á meðan lögregla og sjúkralið unnu á vettvangi og var öllum aðkomu- leiðum að gatnamótunum lokað. Samkvæmt upplýsingum lög- reglunnar voru tildrög slyssins þau að strætisvagninum var ekið vestur Suðurlandsbraut og vörubifreiðinni norður Kringlumýrarbraut. Sam- kvæmt skýrslu vitna bendir allt til þess að vörubifreiðinni hafi verið ekið yfir gatnamótin gegn rauðu ljósi. Upplýsingar úr ökurita vöru- bílsins segja hraðann hafa verið 80 km/klst. Mun strætisvagninn hafa verið nýlagður af stað á grænu ljósi þegar vörubíllinn skall á honum. Lögreglumaður og gatna- gerðarmenn veittu hjálp Fyrir tilviljun var ómerktur bíll frá tæknideild lögreglunnar í Reykjavík staddur næst á eftir strætisvagninum þegar bílalestin lagði af stað yfir gatnamótin. Við- komandi lögreglumaður brást strax við eftir áreksturinn og hlúði að slösuðum á meðan beðið var eftir sjúkraliði. Starfsmenn verktaka- fyrirtækis sem unnu við fram- kvæmdir á gatnamótunum brugð- ust einnig við og veittu hjálp. Við áreksturinn snerist strætis- vagninn um 45 gráður og kastaðist upp á umferðareyju sem starfs- mennirnir voru að vinna við. Aðeins örstuttu fyrir slysið höfðu þeir verið nákvæmlega á þeim stað þar sem strætisvagninn lenti. Þeir höfðu fært sig úr stað og segir lögregla það mikla mildi að enginn skyldi vera fyrir þegar vagninn fór stjórn- laust upp á eyjuna. Sjö slasaðir eftir að vörubíll fór yfir á rauðu ljósi á gatnamótum Skall á strætisvagn- inum á 80 km hraða Morgunblaðið/Júlíus Við áreksturinn kastaðist vagnstjórinn út úr vagninum. Var hlúð að honum af fjölmennu sjúkraliði. Eftir Örlyg Stein Sigurjónsson orsi@mbl.is  Harmi slegin | 4 ÞETTA er dæmi um alvarleg- ustu slysin í þéttbýli sem geta orðið á gatnamótum sem þess- um,“ segir Óli H. Þórðarson, formaður Umferðarráðs. „Þarna hefði getað farið mun verr og þetta sýnir okkur líka hvað slysin eru fljót að gerast. Á umferðarljósum er hættan jafnvel enn meiri en ella því ökumenn á grænu ljósi eiga allajafna ekki von á því að keyrt sé á þá. Í þessu tilviki eiga ennfremur tveir atvinnubílstjórar í hlut og við gerum mjög ríkar kröfur til þeirra á grundvelli þess að þeir hafa aukin ökuréttindi.“ Alvarlegasta tegund bílslysa í þéttbýli HÖSKULDUR Jónsson, forstjóri ÁTVR, skrifar grein í Morgunblaðið í dag þar sem hann segir að þess misskilnings gæti að nær ómögulegt sé að koma svokölluðum „gæðavínum“ fyrir í hillum vínbúðanna þannig að þau standi neytendum til boða. Hann bendir á að birgjum standi til boða að koma þeim vínum í sölu sem þeir óska. Hann segir að framboð á betri rauðvíns- tegundum sé gott. Það láti nærri að vín- áhugamaður geti valið sér nýja gæðateg- und í vínbúðunum nánast á hverjum degi. „Þyki þetta lélegt úrval getur vín- áhugamaðurinn óskað að ÁTVR sérpanti vín úr því safni sem heildsalar halda fyrir veitingahúsin. Venjulega tekur það vín- búðirnar einn dag að afgreiða slíka pönt- un til viðskiptavina á höfuðborgarsvæð- inu,“ segir Höskuldur og bætir því við að hugsanlega gæti vínáhugamaðurinn drukkið tvær nýjar tegundir gæðavíns á dag. | miðopna Framboð gott á betra rauðvíni ♦♦♦
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.