Morgunblaðið - 24.09.2005, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 24.09.2005, Blaðsíða 4
4 LAUGARDAGUR 24. SEPTEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs 2004 „Ég er finnskur rithöfundur – sjálfhverfur, alvarlegur, gráðugur, vel á mig kominn, grannholda og þröngsýnn, niðurdrepandi og gaman- samur.“ Kari Hotakainen (um sjálfan sig)1. sæti Allar bækur Penninn Eymundsson og Bókabú›ir MM 14. – 20. sept. „Súperstöff“ Frábærlega vel skrifuð og skemmtileg saga sem farið hefur mikla sigurför um flest lönd Evrópu og alls staðar orðið metsölubók. Finnskur húmor eins og hann gerist bestur. „Ég hló svo mikið að ég var nærri dottinn af stólnum.“ - Lasse Pöysti „Frábærlega unnið verk ... Súperstöff.“ - Páll Baldvin Baldvinsson, DV HALLDÓR Blöndal, forseti Al- þingis, kynnti í gær umfangsmiklar endurbætur sem staðið hafa yfir á Alþingishúsinu sl. tvö ár. Árið 2002 var ákveðið að ráðast í endurbætur á Alþingishúsinu öllu, en engar heildstæðar viðgerðir höfðu þá farið fram á húsinu frá því það var byggt árið 1881. Meðal annars hefur verið skipt algerlega um gólfefni og aðgengi fatlaðra bætt til muna. Þá hefur veggjum verið breytt til að bæta hljómburð hússins. Alþingishúsið og Skálinn verða til sýnis almenningi í dag frá kl. 10–15 en inngangur er um að- aldyr Skálans. Mikill raki í gólfum Framkvæmdunum var skipt í nokkra áfanga, enda aðeins hægt að vinna að þeim að sumarlagi á meðan hlé er gert á þingstörfum. Sumarið 2003 var gert við suður- og austurhlið hússins að utan og anddyri þess endurgert. Sumarið 2004 var unnið að endurbótum og viðgerðum innanhúss á 1. og 2. hæð og voru m.a. gólfplötur í her- bergjum 1. hæðar brotnar upp, skipt um jarðveg og gólfin steypt á ný, enda höfðu komið í ljós veru- legar rakaskemmdir í þeim. „Það var svo mikill raki kominn í gólfin og húsið, bæði af því útveggirnir héldu ekki vatni og líka að rakinn kom undan gólfinu, að það var ekki hægt að leggja parket á gólfin fyrr en það var búið að þurrka allt upp. Þess vegna þurfti að hafa teppi á öllum gólfum,“ segir Halldór. „Þá voru veggirnir lagfærðir og þiljaðir að hálfu til að bæta hljóðvist hér innandyra. Svo eru allir litir húss- ins eins og þeir voru upphaflega. Þetta er allt öðruvísi en hið nú- tímalega umhverfi sem þú sérð annars staðar, mun meiri litadýrð.“ Í sumar sem leið var viðgerðum haldið áfram, einkum á 1. og 3. hæð, og var lyfta sett í húsið til að greiða aðgang fatlaðra að þingpöll- um. Þá hafa þröskuldar einnig ver- ið lagaðir til að auðvelda umferð hjólastóla. Vinnuaðstaða bætt til muna Í áranna rás hefur húsið tekið miklum breytingum, m.a. með til- komu nýrrar tækni, s.s. síma, raf- magns, miðstöðvarkyndingar og tölvubúnaðar. Úreltar lagnir voru hreinsaðar burtu og gengið frá nýj- um, en þó á eftir að endurgera loft- ræstikerfi hússins. Þá hefur að- staða blaðamanna í húsinu verið bætt til muna. Heildarkostnaður við endurgerð og viðgerðir á Alþingishúsinu er um 285 milljónir króna og kostn- aður við viðgerðir sem enn er ólok- ið utanhúss og við loftræstikerfi og endurnýjun húsgagna er áætlaður um 100 milljónir króna. Aðspurður kveður Halldór þennan kostnað alls ekki mikinn miðað við þann gríð- arlanga tíma sem húsið hefur verið viðgerðalaust. „Það hefur ekki ver- ið gert við húsið í rúm 120 ár og hér er verið að bæta mjög starfs- aðstöðu þess fólks sem vinnur hér, þannig að hún sé stofnuninni sæm- andi,“ segir Halldór. Umfangsmiklum viðgerðum innanhúss í Alþingi er lokið eftir 120 ára viðhaldsleysi Vinnuaðstaðan til mikils sóma Morgunblaðið/Árni Sæberg Umfangsmiklum endurbótum á Alþingishúsinu er nú lokið. Næstum allt húsið er nú parketlagt, en hér sýnir Hall- dór Blöndal blaðamanni Kringluna, sem upphaflega var hugsuð sem móttökusalur ráðherra Íslands. Annar langskipsstóllinn sem Alþingi fékk að gjöf frá skoskum handverksmanni sómir sér vel við leiðina út. Morgunblaðið/Kristinn Guðmundur Magnússon, formaður starfsnefndar Sjálfs- bjargar um ferlimál, prófar lyftu ásamt þingverði. Morgunblaðið/Árni Sæberg ÍSLENSKUR flugvirki lenti í hringiðu hættuástands á Manchest- erflugvelli í gærmorgun þegar karl- maður var handtekinn vegna grun- samlegrar skjalatösku. Sprengju- sérfræðingar breska hersins voru kallaðir út og lögregla handtók manninn á grundvelli nýrra laga um aðgerðir gegn hryðjuverkum. Lúðvík Kristinsson, flugvirki hjá Air Atlanta, sá þegar lögreglumenn yfirbuguðu hinn grunaða kl. 8.40 í gærmorgun. Maðurinn var mikill vexti og þurfti sex lögreglumenn til að ná tökum á honum. „Hann braust um og þeir áttu í erfiðleikum með hann,“ sagði Lúðvík. „Maður fylgdist með og horfði á þetta og fólki brá nokkuð. Þegar ég kom að voru lögreglumennirnir að ná hon- um en þeir höfðu hlaupið á eftir honum og stukku á hann.“ Lúðvík sá atburðinn á 100–200 metra færi út á flugvélastæði og var þriðjungi flugvallarins lokað vegna aðgerð- anna. „Það voru allir reknir úr flug- vélum og við fengum ekki að vinna í flugvélunum okkar á þessu svæði og tólf flugvélar voru kyrrsettar. Öll- um farþegum var stefnt inn í flug- stöðina og enginn mátti koma ná- lægt vélunum.“ Sprengjusveit frá Liverpool mætti á vettvang og var skjalataska mannsins sprengd á flugbrautinni. Ljóst var þá að ekki var sprengja í töskunni. „Maður hefur unnið um allan heim og séð alls kyns rugl en ekk- ert eins og þetta. Fólk var frekar yfirvegað en þó varð maður var við smáhræðslu,“ sagði Lúðvík. Búið var að opna flugvöllinn klukkan 11.30 að staðartíma í gær. Viðbúnaður á Manchesterflugvelli Íslenskur flug- virki lenti í hring- iðu hættuástands Reuters Sjá mátti lögreglumenn hvarvetna á flugvellinum meðan á þessu stóð. LEIGUBÍLSTJÓRI var kýldur í andlitið af farþega sínum í Keflavík í gær og hlaut talsverðar bólgur á auga. Hann hafði ekið farþeganum frá Reykjavík til Keflavíkur og var neitað um greiðslu fyrir aksturinn þegar þangað kom. Þar yfirgaf far- þeginn bílinn en þegar bílstjórinn elti hann fékk hann hnefahögg í andlit. Lögreglan í Keflavík leitaði daglangt að árásarmanninum en fann hann ekki. Leigubílstjóri kýldur af farþega TVEIR erlendir mótmælendur við Álverið í Straumsvík voru hand- teknir í gær af lögreglunni í Hafn- arfirði og færðir til yfirheyrslu fyrir ólæti við lóð Alcans. Þeir voru í hópi 15 mótmælenda og reyndu að stöðva för rútu frá svæðinu og köstuðu reyksprengju í veg fyrir hana. Lögreglan lét hina mótmælendurna afskipta- lausa og segist ekki munu hugsa meira um þá. Hins vegar hafi þótt ástæða til að taka mennina tvo úr umferð. Þeir eru á miðjum þrí- tugsaldri. Að sögn Hrannars Péturssonar upplýsingafulltrúa Alcan munu mótmælendurnir hafa staðið í að- gerðum sínum á sama tíma og gestir á alþjóðaráðstefnu um skautsmiðjur álvera voru í skoð- unarferð í Straumsvík. Mótmælendur handteknir í Straumsvík HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur úrskurðaði í gær þrjá menn í gæsluvarðhald til 29. september vegna ránsins sem framið var í Laugarnesapóteki í fyrradag. Mennirnir voru handteknir mjög fljótlega í kjölfar ránsins en þeir beittu hnífum til að ógna starfsfólki og voru hettuklæddir. Þeim tókst að taka smáræði af lyfjum og peningum en misstu allt í götuna á flóttanum. Einn þeirra var á bíl og náðist skömmu á eftir félögum sínum. Allir hafa þeir áður komið við sögu lögreglunnar. Í gæsluvarðhald vegna lyfjaráns
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.