Morgunblaðið - 24.09.2005, Blaðsíða 28
28 LAUGARDAGUR 24. SEPTEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
MINNSTAÐUR
AKUREYRI
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
Vatnsmýrin | Misskilnings gætti í
máli Dags B. Eggertssonar um
Reykjavíkurflugvöll, þar sem hann
sagði að samkomulag hefði náðst ár-
ið 1999 um að kennslu- og einkaflug
færðist úr Vatnsmýrinni, segir Matt-
hías Sveinbjörnsson, stjórnarmaður
í Flugmálafélagi Íslands.
Hann segir að hið rétta sé að um
sé að ræða bókun í samkomulaginu
um að byggja eigi upp snertilend-
ingavöll í nágrenni borgarinnar, en
hvergi sé talað um það að kennslu-
og einkaflug fari frá Reykjavíkur-
flugvelli. Hann segir að unnið hafi
verið að því að finna stað fyrir snerti-
lendingar, sem hafi raunar fækkað
umtalsvert síðan samkomulagið var
gert, þar sem flugmenn fari frekar á
velli utan borgarinnar.
Samkomulagið var undirritað 14.
júní 1999, og þar segir m.a.: „Í tillögu
að flugáætlun fyrir tímabilið 2000–
2003, sem samgönguráðherra leggur
fyrir Alþingi í haust, verði gert ráð
fyrir að snertilendingar í æfinga- og
kennsluflugi flytjist á flugvöll í hæfi-
legri fjarlægð frá Reykjavík. [...]
Flugvöllurinn verði hannaður með
það í huga að hægt verður að þróa
hann til víðtækari nota fyrir t.d. æf-
inga-, kennslu og einkaflug.“
Flugvöllur verði í
eða við Reykjavík
Í yfirlýsingu frá Herði Sverris-
syni, formanni Félags íslenskra
einkaflugmanna, segir að Flugráð
hafi lagt til í umsögn sinni í mars
2003 að sérstakur snertilendinga-
flugvöllur yrði ekki byggður, heldur
yrði þessum æfingum komið fyrir á
Keflavíkurflugvelli annars vegar og
á endurbættri lendingarbraut á
Sandskeiðsflugvelli hins vegar.
„Mikilvægi flugs á Íslandi er ótví-
rætt. Þar skiptir engu hvort það sé
millilanda-, innanlands-, björgunar-,
kennslu-, æfinga- og jafnframt
einkaflug. Það vill oft gleymast að
einkaflug á stóran þátt í þeirri þjálf-
un flugmanna sem koma úr flugskól-
um á braut þeirra til atvinnuflugs.
Reykjavík og flugvöllur borgarinnar
hefur þar gegnt mjög mikilvægu
hlutverki,“ segir í yfirlýsingu Félags
íslenskra einkaflugmanna.
Þar segir ennfremur:
„Félag íslenskra einkaflugmanna
styður eindregið að staðsetning
flugvallar, ekki bara fyrir innan-
landsflug heldur einnig kennslu og
einkaflug, verði annaðhvort í eða
við Reykjavík, höfuðborg Íslands.
Þar teljum við að Vatnsmýrin eigi
að vera einn af þeim kostum sem lit-
ið skal til, þá í breyttri og bættri
mynd, sem gæti verið borginni og
Íslandi til sóma.“
Misskilningur að einka-
flug hafi átt að fara
Morgunblaðið/Golli
Skýrslur | Viðskiptadeild Háskól-
ans á Akureyri hefur gefið út ritröð
með rannsóknum starfsfólks frá
árinu 2003. Í ritröðinni, sem ber
heitið Working Paper Series, hafa
komið út tvær skýrslur á þessu ári.
Annars vegar er skýrslan Intercult-
ural communication – A challenge to
Icelandic education eftir Rafn Kjart-
ansson lektor við viðskiptadeild.
Skýrslan fjallar um vaxandi al-
þjóðavæðingu á Íslandi og fjölgun
innflytjenda sem gera auknar kröfur
um kennslu í menningarsamskiptum
og menningarlæsi í íslensku skóla-
kerfi.
Hins vegar er skýrslan A Test of
Market Efficiency: Evidence from
the Icelandic Stock Market eftir
Stefán Gunnlaugsson lektor við við-
skiptadeild. Þessi skýrsla fjallar um
skilvirkni íslensks hlutabréfamark-
aðs með tilliti til erlendra rannsókna
og Capital Asset Pricing líkansins.
Mögulegt er að nálgast rafræn
eintök af skýrslunum á útgáfuvef há-
skólans: www.unak.is/utgafa.
Vistaskipti | Hólmkell Hreinsson
amtsbókavörður munu næsta mán-
uð eða svo gegna starfi menningar-
fulltrúa Akureyrarbæjar að hluta
til. Þórgnýr Dýrfjörð menningar-
fulltrúi er á leið í fæðingarorlof, en
á vef Akureyrarbæjar er eftir hon-
um haft að hugmyndin með þessu
sé ekki síst sú að nota tækifærið til
að prófa og vekja athygli á þessari
aðferð. Með henni kynnist starfs-
menn verkefnum hver annars, sjái
hlutina frá fleiri sjónarhornum, auk
þess sem vænta megi að skilningur
og traust aukist. „Allt felur það í
sér dýrmæta eiginleika fyrir hvaða
vinnustað sem er,“ segir á vef bæj-
arins. Þá hefur verið ákveðið að
Þórgnýr setjist í stól amts-
bókavarðar í eina viku þegar hann
snýr á ný úr fæðingarorlofinu,
þannig að kynnin af störfunum
verða gagnkvæm.
Skák | Vetrarstarfsemi hjá Skák-
félagi Akureyrar er hafin.
Skákfélag Akureyrar hóf vetr-
arstarf sitt með startmóti sem er
hraðskákmót. Rúnar Sigurpálsson
sigraði örugglega, hlaut 12,5 v. af 14.
Ágúst Bragi Björnsson varð annar
með 10,5 v.
Haustmót Skákfélags Akureyrar
hefst á sunnudaginn, 25. september,
kl. 14 í KEA-salnum í Sunnuhlíð.
Teflt verður tvisvar í viku á sunnu-
dögum og fimmtudögum. Barna- og
unglingaæfingar verða á mánudög-
um í vetur frá kl. 16.30–18.00 í KEA-
salnum í Sunnuhlíð.
FJÖLVEIÐISKIP Samherja hf.,
Baldvin Þorsteinsson EA 10 og
Vilhelm Þorsteinsson EA 11,
komu með fullfermi til Akureyrar
í gær að lokinni vel heppnaðri
síldarvertíð. Bæði skipin eru nú
búin með aflaheimildir sínar úr
norsk-íslenska síldarstofninum.
Samherjamenn notuðu tækifærið í
tilefni af heimkomu beggja skip-
anna, lokum síldarvertíðar og því
að 5 ár eru nú liðin frá því Vil-
helm Þorsteinsson EA kom fyrst
til heimahafnar og bauð áhöfnum
skipanna, mökum sem og öðrum
góðum gestum í siglingu um úfinn
Eyjafjörðinn í gærdag. Í þeim
hópi voru m.a. verðandi sjáv-
arútvegsráðherra, Einar K. Guð-
finnsson og Valgerður Sverr-
isdóttir iðnaðar- og
viðskiptaráðherra, alþingismenn,
bæjarstjóri og bæjarfulltrúar auk
forsvarsmanna hinna ýmsu fyr-
irtækja og stofnana.
Síldarvertíð hófst 10. maí síð-
astliðinn, en frá þeim tíma hafa
skipin tvö, Baldvin og Vilhelm,
veitt um 39 þúsund tonn af síld
upp úr sjó. Úr aflanum hafa
áhafnir þeirra unnið tæplega 20
þúsund tonn af frystum afurðum,
en söluverðmætið nemur um
tveimur milljörðum króna.
„Þetta er glæsilegur árangur
hjá áhöfnum skipanna,“ sagði
Þorsteinn Már Baldvinsson for-
stjóri Samherja.„Þetta er ævintýri
sem enginn hefði getað trúað,“
sagði Einar K. Guðfinnsson verð-
andi sjávarútvegsráðherra en
hann sigldi með Baldvini um
Eyjafjörð. Megnið af síldinni var
veitt utan íslenskrar fiskveiði-
lögsögu og allur afli unninn og
frystur um borð.
Afkastamiklar vinnslustöðvar
Þorsteinn Már Baldvinsson, for-
stjóri Samherja, sagði að þrír
mánuðir væru liðnir frá því skipin
tvö hefðu verið við Íslands-
strendur, „þau koma sjaldan til
heimahafnar,“ sagði Þorsteinn
Már og því hefði þótt tilvalið að
kynna starfsemi þessara miklu
skipa nú þegar þau væru í heima-
höfn. Áhafnir skipanna voru að
jafnaði um borð í 30 til 35 daga í
senn og fóru áhafnaskipti fram í
Noregi.
„Um borð í þessum tveimur
skipum hafa á góðum degi verið
framleidd samtals um 300 tonn af
frystum flökum, eða sem nemur
150 tonnum í hvoru skipi. Til
samanburðar má nefna að í tveim-
ur af stærri frystihúsum okkar Ís-
lendinga, það er hjá Samherja á
Dalvík og hjá Brimi á Akureyri,
nemur framleiðslan samtals um
50 tonnum af afurðum á dag. Af
þessu sést vel hversu afkastamikl-
ar vinnslustöðvar það eru, sem
hér eru að leggjast að bryggju,“
sagði Þorsteinn Már.
Hann gat þess að um þessar
mundir væru 5 ár liðin frá því
Vilhelm Þorsteinsson kom fyrst til
heimahafnar, en skipið var smíð-
að í Noregi. Á þessum 5 árum
hefur skipið veitt um 250 þúsund
tonn af fiski og er uppistaða
aflans síld, loðna og kolmunni.
Aflaverðmæti skipsins nemur um
6,5 milljörðum króna á þessu ára-
bili.
„Við erum stödd í fljótandi af-
kastamiklum vinnustað,“ sagði
Kristján Vilhelmsson í ávarpi um
borð í Vilhelm Þorsteinssyni.
Í áhöfnum skipanna tveggja eru
um 100 manns, en um er að ræða
tvöfalda áhöfn má því um 50
manns eru um borð í einu. Það
sem af er þessu ári hefur launa-
kostnaður Samherja verið nálægt
100 milljónum króna á mánuði
vegna þessara tveggja skipa. „Svo
miklar tekjur hafa auðvitað mikil
áhrif til góðs á atvinnu- og at-
hafnalíf hér á Eyjafjarðarsvæð-
inu,“ sagði Þorsteinn Már.
Farsæl ábending
Þorsteinn Már kvaðst vænta
þess að eiga í framtíðinni farsælt
samstarf við nýjan sjávarútvegs-
ráðherra og þakkaði honum sér-
staklega fyrir góða ábendingu
fyrir 19 árum. Þannig hafi háttað
til að félagið var þá að hefja út-
gerð tveggja skipa og vantaði yf-
irmenn. „Ég hringdi í Einar og
spurði hvort hann gæti ekki bent
mér á einhverja unga og efnilega
menn þarna fyrir vestan,“ rifjaði
Þorsteinn Már upp. Ekki stóð á
Einari, hann benti strax á frænda
sinn einn, Guðmund Þ. Jónsson.
Hann var ráðinn og er nú skip-
stjóri á Baldvini Þorsteinssyni,
„þetta var farsæl ábending hjá
Einari,“ sagði Þorsteinn Már.
Skipin verða ekki lengi í höfn á
Akureyri, komu bæði um hádegi í
gær, en gert er ráð fyrir að þau
haldi til veiða á ný í dag, laug-
ardag.
Fjölveiðiskip Samherja með fullfermi til heimahafnar í gær
Morgunblaðið/Þórhallur Jónsson
Kristján Vilhelmsson færir móður sinni, Önnu Kristjánsdóttur, blóm í til-
efni dagsins. Hún og Vilhelm heitinn Þorsteinsson gengu í hjónaband fyrir
55 árum, 23. september 1950.
Morgunblaðið/Kristján
Fjölveiðiskip Samherja, Baldvin Þorsteinsson EA og Vilhelm Þorsteinsson
EA komu með fullfermi af síldarafurðum til Akureyrar. Hér siglir Vilhelm
Þorsteinsson EA aftan við Baldvin Þorsteinsson EA á Pollinum.
Söluverðmæti afurða eftir
síldarvertíð um 2 milljarðar
Eftir Margréti Þóru Þórsdóttur
maggath@mbl.is