Morgunblaðið - 24.09.2005, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 24.09.2005, Blaðsíða 26
Eskifjörður | Þrátt fyrir að ekki verði lengur vikist undan hausti og snjóað hafi á láglendi eystra, sækja menn berjamóinn eitt- hvað áfram. Enn má finna hrútaber í skógum og bláber og krækiber í dölum og hlíðum. Þessar eskfirsku yngismeyjar fylkja sér í flokk berjatínslu- manna og sögðust galvaskar vera á leiðinni í bláberjamó. Þær heita Selma Dagmar, Hekla Björk, Dagbjört Nótt, Kolbrún Sól og fremst er Sess- elja Bára. Morgunblaðið/Helgi Garðarsson Enn sótt í berjamó Akureyri | Höfuðborgin | Árborg | Landið | Suðurnes Minnstaður Höfuðborgarsvæðið Brjánn Jónasson, brjann@mbl.is, sími 569-1100. Suðurnes Helgi Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310. Akureyri Margrét Þóra Þórsdóttir, maggath@mbl.is og Kristján Kristjánson, krkr@mbl.is, sími 461-1600. Vesturland Ásdís Haraldsdóttir, asdish@mbl.is, sími 898-5258. Austurland Steinunn Ásmundsdóttir, aust- urland@mbl.is, sími 669-1115. Árborgarsvæðið og Landið Helgi Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310 og Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is, sími 569-1290. Mínstund frett@mbl.is BRÁÐUM heilsa haust og vetur hér á Hólmavík og hafa raunar þegar gert, því kólnandi veðurfar og hvít slikja í fjöllum er orðið að veruleika á Strönd- um. Með þessu má meðal annars fylgj- ast á vefmynda- vélum sem er að finna á Steingríms- fjarðarheiði, Holta- vörðuheiði og Enn- ishálsi. Í næsta nágrenni hefur svo bæst við ein enn myndavél sem er staðsett í Reykja- nesi við Djúp. Víða um Strandir má líka sjá fólk í hefðbundnum haustverkum, smalamennska, kartöfluuppskera, fé á leið til slátrunar, allt eru þetta ótvíræð- ar vísbendingar um að haustið sé kom- ið. Víða í sýslunni var réttað um síðustu helgi og fjöldi manns lagði leið sína á réttardansleik sem haldinn er í tengslum við Skarðsrétt í Bjarnafirði. Hjá rækjuvinnslunni Hólmadrangi hafa menn einnig haft í nógu að snúast en haustverkin þar hafa fyrst og fremst snúið að enn frekari endurbótum á verksmiðjunni sem hefur fyrir löngu skipað sér í röð þeirra fullkomnustu á landinu og þótt víðar væri leitað. Vinnsla er nýlega hafin eftir þriggja vikna lokun vegna endurbótanna og sumarleyfa starfsfólks. Unnið hefur verið að uppsetningu smápakkalínu síð- an í haust, sem gefur möguleika á pökk- un í neytendaumbúðir og þar með fjöl- breyttari sölumöguleika. Einnig er verið að setja upp rafskautaketil. Fyr- irtækið veitir um 25 manns vinnu og er því einn stærsti vinnuveitandinn í Strandasýslu. Skólastarfið er komið á fullt skrið enda nær mánuður síðan það hófst eins og víðast hvar annars staðar. Þar hefur rækjan einnig komið við sögu þar sem rúmlega helmingur þeirra 85 nemenda sem skólann sækja tók á móti verðlaun- um í samkeppni um besta sjávarútvegs- vefinn. Hafnaði rækjuvefur Grunnskól- ans í fyrsta sæti og hlaut skólinn að launum skjávarpa, vídeóvél og fartölvu. Sveitarstjórnin bætti svo um betur og launaði alla nemendur og starfsmenn skólans með pitsuveislu á Café Riis. Úr bæjarlífinu STRANDIR Kristín Sigurrós Einarsdóttir fréttaritari á Hólmavík Haustið lætur ekkiá sér standaþetta árið. Því lá svo mikið á að sumarið fékk aldrei almennilega að komast að. Það segja a.m.k. heimamenn í Mý- vatnssveit. Hraðar breytingar og sviptingar í veðri eru áberandi í tíðarfarinu. En svo gefur stund milli stríða. Sólarglenna með snjó í fjöllum og haustlit- um í hraunin þó aðeins sé í hálfan dag, gleður geð guma. Gangnamenn okk- ar voru í öðrum göngum um síðustu helgi. Þeir fengu vonsku hríð- arveður á norðurfjöllum. Haustlitir eru sem óðast að taka völdin í nátt- úrunni. Morgunblaðið/BFH Haust við Mývatn Rúnar Kristjánssonhefur fundið fyr-ir tískunni að tala um „reynslubolta“: Rífur skolta og reigist við rótarsoltið menntalið. Rekur stolt að rembusið reynsluboltakjaftæðið! Hann finnur sér einn- ig yrkisefni norðan heiða: Þingeyingar menntir meta, mörg er frábær þeirra gjörð. Á lofti einu lifað geta lengur en aðrir hér á jörð! Þar er Friðrik Stein- grímsson í Mývatnssveit og yrkir um Baugsfjöl- skylduna sem fagnaði erlendis frávísun Baugs- málsins í Héraðsdómi: Meðan hérna landar loppnir lífsins gæða fara á mis, fyrir hornið feðgar sloppnir fagna sigri erlendis. Af reynslu- boltum pebl@mbl.is Reykjavík | Boðað hefur verið til foreldra- þings í Hagaskóla í dag kl. 10. Yfirskrift þingsins er „Foreldrar eiga fyrsta orðið“ og er það samstarfsverkefni Samfoks og Vesturgarðs. Markmiðið er að ræða hvern- ig hægt er að byggja upp og styðja uppeld- isumhverfi barna og unglinga. Fyrirhugað er að setja afrakstur þings- ins í frekari vinnslu og verður það formlega tengt verkefninu „Börn og samfélag“ sem þjónustumiðstöð Vesturbæjar, Vestur- garður, starfrækir sem sérstakt áherslu- verkefni. Þinginu lýkur kl. 13 og verða nið- urstöður kynntar borgarstjóra við opnun þjónustuskála Vesturgarðs í dag kl. 14. Þá halda Vesturbæingar Hausthátíð í dag þar sem m.a. verður reynt að slá Ís- landsmet Grafarvogsbúa í sippi. Á hátíðinni mun Skerjafjarðarskáldið Kristján Hreinsson frumflytja ljóð sitt, Garðurinn okkar, við opnun þjónustuskála Vesturgarðs. Í kjölfarið mun Vesturgarðs- bandið Valkyrjurnar flytja lög með frum- sömdum hverfistextum. Boðið verður upp á fjölbreytta dagskrá, sem dæmi má nefna ratleik Ægisbúa, tónlistaratriði unglinga, kórsöng barna úr frístundaheimilum Frostaskjóls og tónlistaratriði Do Re Mi. Þá býður Íslenski fjallahjólaklúbburinn upp á hjólaferðir, en síðast en ekki síst munu fara fram æsispennandi Vesturbæj- arleikar milli hverfisráðs Vesturbæjar, starfsmanna Vesturgarðs og frístundamið- stöðvarinnar Frostaskjóls. Foreldrar í Vesturbæn- um eiga fyrsta orðið MENNINGARNEFND Fljótsdalshéraðs hefur óskað eftir því að bæjarstjórn beiti sér fyrir formlegum viðræðum sveitarfé- lagsins við eigendur gamals sláturhúss í miðbæ Egilsstaða, Kaupfélag Héraðsbúa. Vill nefndin að sveitarfélagið kaupi húsið svo hægt verði að koma þar á fót menning- arstarfsemi af ýmsum toga. Jafnframt er lögð á það áhersla að gangi kaupin eftir muni það ekki hægja á eða koma í veg fyrir byggingu á nýju menningarhúsi og upp- byggingu Safnahúss Austurlands á Egils- stöðum. Ýmsar hugmyndir eru uppi um notkun hússins. Það gæti t.d. hýst hrein- dýrasafn, tónlistarkennslu, myndlistar- gallerí og vinnustofur listamanna. Sláturhús menningarhús ♦♦♦ Berjastúlkur
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.