Morgunblaðið - 24.09.2005, Blaðsíða 31
til að eitt sveitarfélag verði færara
um að taka ákvarðanir og veita öll-
um íbúum aukin og jöfn þjónustu-
gæði.
Við veikjum okkur með því að
berjast innbyrðis. Best væri að það
heyrði fortíðinni til að sveitar-
stjórnarmenn á Suðurnesjum þurfi
að eyða kröftum sínum í innbyrðis
baráttu um íbúa og atvinnutæki-
færi á svæðinu. Samkeppnin stend-
ur við önnur þjónustusvæði á land-
inu og til framtíðar einnig erlendis.
Efling sveitarstjórnarstigsins
veitir okkur möguleika á að takast á
við fleiri verkefni sem ríkið sinnir
nú. Það mun þýða að þjónustan
verður nær þeim sem þurfa á henni
að halda.“
Reykjanesbær | Bæjarstjórn
Reykjanesbæjar gerði þann 20.
september sl. einróma bókun varð-
andi sameiningu sveitarfélaganna
Garðs, Sandgerðis og Reykjanes-
bæjar. Bókunin er
svohljóðandi: „Bæj-
arstjórn Reykja-
nesbæjar er ein-
róma sammála
niðurstöðu skýrslu
nefndar um samein-
ingu sveitarfélag-
anna Garðs, Sand-
gerðis og
Reykjanesbæjar
þar sem fram kem-
ur að skynsamlegt
sé fyrir svæðið í
heild að sameinast í
eitt sveitarfélag.
Bæjarstjórnin
harmar jafnframt
að meirihlutar bæjarstjórna í Garði
og Sandgerði hafi ítrekað lýst yfir
andstöðu við sameiningu, áður en
niðurstöður skýrslunnar voru
kynntar. Það er að okkar mati hluti
af lýðræðislegu ferli að íbúar fái að
kynna sér rök með og á móti áður
en þeir taka afstöðu.
Þau mikilvægu hagsmunamál
sem tengjast sameiginlegum at-
vinnusvæðum og bættri þjónustu
sveitarfélaga í skólamálum, sam-
göngumálum og umhverfis- og
skipulagsmálum, benda eindregið
Bæjarstjórn
Reykjanesbæjar
vill sameiningu
Nágrannar Frá kynningarfundi nefndar um samein-
ingu Garðs, Sandgerðis og Reykjanesbæjar í húsi
Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum.
Ljósmynd/Víkurfréttir
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. SEPTEMBER 2005 31
MINNSTAÐUR
Léttar veitingar fyrir alla fjölskylduna
Stórstjörnurnar Elín Ósk Óskarsdóttir, Gunnar
Guðbjörnsson og Jóhann Friðgeir Valdimarsson
verða á léttu nótunum ásamt Jónasi Þóri
Vegmúla 2 - Sími 533 1220
Stuðningsmenn
OPNUM KOSNINGASKRIFSTOFUNA
Í DAG KL. 14.00 Í VEGMÚLA 2
Reykjanesbær | Þeim fer sífellt
fjölgandi fuglunum á Fitjatjörnum í
Reykjanesbæ, eftir að hafa dvalið í
sumar á varpstöðvum uppi á heið-
um. Það er því runninn upp sá tími
að tilvalið er að staldra við með
brauð í poka og gauka að þeim.
Þessi stutti Reykjanesbæingur
lagði allan sinn kraft í að kasta til
svananna og andanna á tjörnunum
sem þáðu brauðið með þökkum í
blíðviðrinu á laugardag.
Morgunblaðið/Svanhildur Eiríksdóttir
Fjölgun á Fitjatjörnum
SUÐURNES