Morgunblaðið - 24.09.2005, Qupperneq 18

Morgunblaðið - 24.09.2005, Qupperneq 18
18 LAUGARDAGUR 24. SEPTEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF                      !!"  # $% &$'"        ÞETTA HELST ... VIÐSKIPTI                   () *  +,$-. /01 2 !! *3, +,$-. /01 2-,4 ,5 /01 6 7 +,$-. /01 8 +,$-. /01 92 +, ' /01 :6 '; '! /01 & ,4;$, ' , /01  -.< '7 2 '! /01 37-' /01 8 '; '! :6 ' /01  ,"6 /01 : /01 ), -=-, >5,0") '7 ,; '! /01 ?-, /01     )$,! +,$-. /01  != ,! 4-, :6 ' /01 9 =. 4> ' /01 #("6 ' ( +,$-. /01 8@0)A!' >B4-, '' /01 $ (  / $' /01 C/",> /01 7 0> ,! .) /01 D )6 ') ( "),$6"-= ,E77 '7 = 4)34 ' /01 F ''6-)34 ' /01   !  "#  !"6 E> 0> ,4 , /01 8 '@= :6 ' /01 65)-,0G6 7 -4-,6 ' *01 A! 0A, /01 " $ %& #H @4 ) * 4!1*",4      I  I  I           I  I I I    I I I   I I I 2,"E) '7 0,5 0E,, * 4!1*",4 I I I I I I I I I I I I I I I I I I I I I I I I J IK J IK I I J I K I J IK I J  K J IK J K J I K I J K J IK J  K I J K I I I I J K J  K I I I I I I I 9" 6 ,* 4! .)  7 '  6;$4 @ 6$!  7L  -. 6  1 1 1 I 1 I 1 I 1  1 1 1 1  1 I  1 1 I I I 1 1  I I I 1  I I I                                                         F 4! .) @ <M1 !,1 91 N )/-7-' ,6 ) >36 * 4! .) I I I     I  I I I  I I I I I I 91I F"7' 0E, ,/-7 4, , 0!,5' '7 ,1 91I E, ,/-7 4-,  =,-' 1 91I F"7' E0 ,)3!-) 6;$41 Hækkun í Kauphöllinni ● ÚRVALSVÍSITALA Kauphallar Ís- lands hækkaði um 0,2% í gær í þriggja milljarða króna viðskiptum. Lokaverð vísitölunnar er 4.604 stig. Mest viðskipti voru með hlutabréf í Hampiðjunni, eða fyrir tæplega 600 milljónir, og hækkaði gengi þeirra um 14,5%, sem var mesta hækkun dagsins. Af úrvalsvísitölufélögunum hækkuðu hlutabréf í Landsbank- anum mest, eða um 1,4. Afkomuviðvörun frá Alcoa ● BANDARÍSKA álfyrirtækið Alcoa til- kynnti í gær að afkoman á þriðja fjórðungi þessa árs yrði ekki í samræmi við væntingar og sagði að hækk- andi orkuverð og hráefnaverð hefði dregið úr hagnaði og á sama tíma hefði ál verð lækk- að. Alcoa sagði að fellibylurinn Ríta hefði einnig áhrif. Hrönn Pétursdóttir hjá Alcoa á Ís- landi segir þessar fréttir engin áhrif hafa á framkvæmdir fyrirtækisins hér á landi og að þeim verði haldið áfram í samræmi við áætlanir. FLUGFÉLAGIÐ Delta, þriðja stærsta flugfélag Bandaríkjanna, hefur ákveðið að nota Kastrup flug- völl í Kaupmannahöfn sem miðstöð fyrir flug félagsins í Evrópu. Félag- ið hyggst fljúga alla daga vikunnar milli Atlanta og Kaupmannahafnar og hefjast ferðirnar í maí. Jens Wittrup Willumsen, yf- irmaður hjá SAS, segir í viðtali við danska fréttavefinn stok.is, að hann hafi ekki trú á því að ferðir banda- ríska flugrisans til Kaupmanna- hafnar verði arðbærar. Þá segir hann að samkeppnin muni frekar bitna á flugfélögum sem ekki fljúgi beint til Bandaríkjanna, t.d. Ice- landair sem millilendir á Íslandi, heldur en SAS. Jón Karl Ólafsson, forsjóri Ice- landair, segir að Icelandair sé í samkeppni við fjölmörg flugfélög og markaðshlutdeild félagsins sé ekki það stór að áhrifin á félagið muni koma til með að verða mikil með tilkomu Delta. Jón Karl segir að hins vegar sé athyglisvert í þessu sambandi að bandarískt flugfélag sem nýtur gjaldþrotaverndar þar í landi sam- kvæmt 11. kafla bandarísku gjald- þrotalaganna, eins og á við um Delta, skuli geta ráðist í markaðs- sókn eins og fyrirhugað sé. Þetta gerist á sama tíma og félagið þurfi ekki að greiða reikninga sína. Hér sé því um að ræða ákveðna gerð af niðurgreiðslu sem stuðli að ójafnri samkeppni. Í nýjasta tölublaði The Econom- ist er fjallað um það sem Jón Karl segir um gjaldþrotaverndina sem Delta nýtur. Þar segir að vaxandi óánægju gæti meðal evrópsku flug- félaganna í garð 11. kafla gjald- þrotalaganna í Bandaríkjunum. Í frétt á fréttavef Berlingske Ti- dende segir að farþegar Delta um Kastrup flugvöll komi til með að verða allt að hundrað þúsund á ári og að þeir muni flestir koma frá suðausturhluta Bandaríkjanna, en þaðan hefur ekki áður verið flogið til Norðurlandanna. Segja upp 7–9 þúsund Nýlega tilkynnti flugfélagið Delta, sem nú er í greiðslustöðvun, að áformað væri að segja upp 7–9 þús- und starfsmönnum fyrir lok ársins 2007, eða 17% af öllu starfsfólki fé- lagsins. Með þessum aðgerðum hyggst félagið ná sparnaði upp á 3 milljarða dala. Fjögur af sex stærstu flug- félögum Bandaríkjanna njóta nú gjaldþrotaverndar samkvæmt 11. kafla gjaldþrotalaganna. Kastrup verður miðstöð Delta Aukin samkeppni við Icelandair milli Evrópu og Bandaríkjanna Reuters SÍF hf. hefur gengið frá sölu á öllum hlut sínum í Iceland Seafood International ehf. Samhliða sölunni á Iceland Seafood International var einnig gengið frá sölu SÍF hf. á öllu hlutafé í Trosi ehf. í Sandgerði sem sérhæft er í útflutningi á ferskum sjávarafurðum. Sú breyting hefur orðið á upphaflegum samningum að nú hefur allt hlutafé SÍF hf. í fyr- irtækinu verið selt til nýrra eigenda en í tilkynningu í mars var gert ráð fyrir sölu á 55% hlut. Nýir eigendur eru Ker hf., Bjarni Benediktsson og Benedikt Sveinsson. Miðast salan við 1. apríl 2005 og hafa nýir eigendur þegar tekið við félaginu. Stefnan að minnka eignaraðild Jakob Sigurðsson, forstóri SÍF hf., segir að með sölunni á Iceland Sea- food International sé stórum áfanga náð í stefnumótun SÍF hf. Það hafi verið stefna félagsins að minnka eignaraðild sína í Iceland Seafood yf- ir ákveðinn tíma og átti eignarhlut- urinn að vera kominn niður í 20% fyr- ir lok þess árs. Hinsvegar hafi verið áhugi fyrir því að fara hraðar í þetta ferli. „Nú er megináhersla SÍF á framleiðslu fullunninna matvæla fyr- ir Evrópumarkað. Við munum nú einbeita okkur að smærra og þéttara markaðssvæði en SÍF hefur gert í gegnum tíðina. Salan á Iceland Sea- food er stór áfangi á þessari leið. Fé- lagið var stór hluti af veltu SÍF en reksturinn féll ekki saman við þá stefnu sem SÍF hefur tekið. Eins og staðan er núna erum við búnir að selja frá okkur flest allt sem ekki fell- ur undir kjarnastarfsemi og teljum okkur hafa skapað þá umgjörð í kringum fyrirtækið sem við höfum boðað.“ Skuldsetning SÍF hf. minnkar um 63 milljónir evra við söluna miðað við skuldastöðu þann 31. desember 2004. Áhrif af sölu fyrirtækjanna á afkomu samstæðunnar eru óveruleg, að því er fram kemur í fréttatilkynningu. Stór áfangi í stefnumótun Eftir Helga Mar Árnason hema@mbl.is SÍF hf. hefur selt allan hlut sinn í Iceland Seafood International ehf. BENEDIKT Sveinsson hefur verið ráðinn forstjóri Iceland Seafood Int- ernational, í stað Kristjáns Davíðs- sonar sem hefur óskað eftir því að láta af störfum. Iceland Seafood International ehf. var stofnað í nóvember 2004 um hefðbundið sölu- og markaðsstarf SÍF hf. með lítt unnar sjávarafurðir. B. Benediktsson ehf., Benedikt Sveinsson og Ker hf. hafa keypt öll hlutabréf SÍF í Iceland Seafood Int- ernational. Hefur orðið sam- komulag um að Benedikt Sveinsson taki við starfi forstjóra nú þegar. Benedikt hefur áratugareynslu af rekstri fyrirtækja í sölu og fram- leiðslu sjávarafurða bæði hér heima og erlendis. Hann var m.a. forstjóri Íslenskra sjávarafurða og forstjóri Iceland Seafood Corporation, dótt- urfélags SÍF í Bandaríkjunum. Hann segist þannig að sumu leyti vera kominn aftur heim. „Fyr- irtækið er engu að síður nýtt en stendur á gömlum merg. Næsta verkefni er að móta stefnu félagsins og framtíðarsýn. En það er ljóst að íslensk fiskvinnsla glímir nú við sterka krónu og á nokkuð erfitt. Það hefur síðan áhrif á alla grein- ina, meðal annars Iceland Seafood. En ég held að félagið sé í góðu áliti og eigi fullt erindi, það hef- ur góð við- skiptasambönd og byggir á traustum grunni sem ger- ir það álitlegt fyrir framleið- endur að versla við. Við munum leggja áherslu á að efla tengsl fé- lagsins við framleiðendur og not- endur sjávarafurða ásamt því að tryggja áhugavert starfsumhverfi.“ Benedikt man tímana tvenna þeg- ar kemur að sölumálum íslenskra sjávarafurða og segir hann lands- lagið harla ólíkt því sem áður var. Nú sé ekki lengur til að dreifa hin- um stóru og sterku sölusam- böndum, heldur séu nú fleiri smærri um hituna. „Umhverfið hefur breyst mikið og sérstaklega finnst mér vægi sjávarútvegs almennt hafa minnkað í íslensku atvinnulífi. En hann er enn jafnmikilvægur fyrir okkur og við teljum okkur vera á beinni og breiðri braut,“ segir Benedikt. Benedikt Sveinsson Benedikt forstjóri Iceland Seafood Umframeftirspurn í útboði Össurar hf. ● EIGENDUR 96,3% hlutafjár í Össuri hf. nýttu forgangsrétt sinn í útboði til hlut- hafa sem hófst í byrjun þessarar viku og lauk í gær. Sam- tals óskuðu þeir eft- ir kaupum fyrir 8,3 milljarða króna, sem er 62% umfram það hlutafé sem í boði var. Félagið selur í útboðinu 63.391.690 nýja hluti á genginu 81, en andvirði þeirra er 5.135 milljónir. Fyrirtækjaráðgjöf KB banka hafði umsjón með útboðinu. Það var liður í fjármögnun á kaupum Össurar á bandaríska félaginu Royce Medical Holdings Inc. í júlímánuði síðast- liðnum, en kaupverðið var jafnvirði liðlega 13 milljarða íslenskra króna. Í tilkynningu frá Össuri segir að samhliða útboðinu hafi verið gengið frá sölu á 3.107.757 nýjum hlutum í félaginu á sömu kjörum og í útboð- inu, að andvirði 252 milljónir, til þrjá- tíu og eins stjórnanda hjá Össuri. VÁTRYGGINGAFÉLAG Íslands hf., VÍS, hefur eignast tæplega 10% hlut í norsku tryggingafélagi, Pro- tector Forsikring ASA. Þetta gerist í tengslum við hlutafjáraukningu sem fjallað verður um á aukaársfundi norska félagsins í október næstkom- andi. Eigendur Protector Forsikring verða eftir breytinguna 60-70 talsins og VÍS verður einn stærsti hluthaf- inn, samkvæmt tilkynningu frá VÍS. Ásgeir Baldurs hjá VÍS segir stjórnendateymi norska fyrirtækisins eina helstu ástæðuna fyrir þeirri ákvörðun VÍS að fjárfesta í Protector Forsikring. „Stjórnendurnir eru að okkar mati mjög sterkir og hafa mikla reynslu af rekstri tryggingafélaga. Viðskiptaáætlun fyrirtækisins er sömuleiðis afar áhugaverð og lofar góðu,“ segir Ásgeir. Ásgeir segir að þrátt fyrir að Pro- tector Forsikring sé ungt félag, stofn- að haustið 2003, hafi það mjög mikla möguleika og að norski markaðurinn sé sömuleiðis mjög áhugaverður. Höfuðstöðvar Protector eru í Osló og er starfsemi þess einkum á höf- uðborgarsvæðinu en markaðssvæðið er í raun allur Noregur. Ásgeir segir ekki útilokað að VÍS kaupi í framtíðinni frekari hlut í félag- inu, en VÍS mun með kaupunum nú fá einn mann í stjórn norska félagsins. Hann segir einnig VÍS stefna á frek- ari útrás í framtíðinni. „Við höfum gert okkur grein fyrir því að það eru tækifæri til vaxtar utan Íslands og við horfum til Norður-Evrópu í því sam- bandi,“ segir Ásgeir. Forstjóri Protector er Jostein Sør- vall en hann var áður framkvæmda- stjóri hjá Storebrand, Norske Liv og Swiss Re í Noregi. VÍS kaupir í norsku tryggingafélagi Jakup Jackobsen fjár- festir í Bandaríkjunum ● NORRÆNT fjárfestingarfélag hefur keypti 9,9% hlut í bandaríska hús- gagnaverslanafyrirtækinu Linens’n Things Inc., að því er fram kemur frétt Reuters-fréttastofunnar. Í frétt- inni segir að Lagerinn ehf., TF Hold- ing og Jakup Jackobsen, sem er eig- andi Rúmfatalagersins hér á landi, standi að kaupunum. Lagerinn er eignarhaldsfélag í eigu Jakups en TF Holding er frá Færeyjum, þaðan sem Jakup er einnig. Reuters segir að ekki liggi fyrir hverjar séu fyrirætlanir fjárfestanna, hvort um sé að ræða hreina fjárfest- ingu eða hvort í vændum sé yfirtöku- tilboð. Linens’n Things selur hús- búnað og smávöru til heimilisins og gjafavöru ýmiss konar. Verslanir fyr- irtækisins eru tæplega 500 talsins í 45 ríkjum Bandaríkjanna og 5 í Kan- ada. Fyrirtækið var stofnað árið 1975. Höfuðstöðvar þess eru í New Jersey.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.