Morgunblaðið - 24.09.2005, Side 20
20 LAUGARDAGUR 24. SEPTEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
105 ár eru liðin síðan mannskæðasti fellibylur í
sögu Bandaríkjanna gekk yfir hafnarborgina
Galveston sem er nú nær mannlaus vegna felli-
bylsins Rítu. Íslensku landsmálablöðin fjölluðu
um fellibylinn sem kostaði um það bil 8.000 manns
lífið.
Fjallkonan birti fyrstu fréttina 24. september
árið 1900, um hálfum mánuði eftir náttúruhamfar-
irnar: „Voða-fellibylur í Texas fyrir skömmu. Skip
fórust og hús og járnbrautarlestir fuku. Mann-
tjónið talið 5000, og fjártjón ógurlegt.“
Þjóðólfur birti ítarlegri frétt 28. september:
„Voðalegur fellibylur kom í Texas í Norður-
Ameríku um 9. þ.m. Voðaleg hafalda sópaði bæn-
um Galveston nær gersamlega burtu og er talið að
um 3000 manna hafi misst lífið, sumir segja allt að
5000. Er þetta einhver sá háskalegasti og mann-
skæðasti fellibylur, sem komið hefur í Ameríku í
manna minnum, en neyðin meðal hinna eptirlif-
andi voðaleg. Hefur Bandaríkjastjórn gert alvar-
legar ráðstafanir til að ráða bót á þessum vand-
ræðum.“
Austri fjallaði einnig um hamfarirnar 9. októ-
ber: „Fellibylur ógurlega mikill gekk nýlega yfir
hafnarborgina Galveston í Texas við Mexíkóflóa,
er drap 3000 manna, feykti 4000 húsum og hvolfdi,
og rak í land mesta fjölda skipa og er fjártjónið –
auk mannanna, er þarna fórust – voðalega mikið.
Þessi fellibylur gerði og víðar í Texas fylkinu stór-
skaða.“
Ísafold sagði frá fellibylnum degi síðar:
„Feiknaslys varð í Ameríku snemma í f. mán.
Fellibylur og sjávargangur gjöreyddi þar nálega
borg eina í Texas er Galveston heitir eða hét, suð-
ur við Mexíkóflóa, svo skyndilega, að milli 6 og 7
þús. manna týndi lífi.“
Þjóðviljinn, blað Skúla Thoroddsens á Ísafirði,
birti að lokum ítarlegustu fréttina 11. október:
„Hræðilegur fellibylur kom ný skeð í Galveston í
Texas í Bandaríkjunum. Sópaði bylurinn burt
húsum, og er ætlað að hann hafi jafn vel orðið allt
að 10 þúsundum manna að bana; en neyðin af-
skapleg meðal þeirra, er eptir lifðu, svo að Banda-
ríkjastjórn hafði þegar gjört ráðstöfun til að
senda þangað 10 þús. tjöld, og matvæli handa 50
þúsundum manna.
Það jók og mjög á vandræðin, að þangað söfn-
uðust þegar alls konar þorparar til að rupla og
ræna svo að ráðgert var að senda þangað herlið til
að gæta lögreglu.
Líkin, sem lágu hér og hvar í hrönnum, pestuðu
og loptið, svo að farið var að bóla á ýmsum sjúk-
dómum.“
Sagt er frá umfjöllun íslensku blaðanna um
fellibylinn og fleiri atburði á aldamótaárinu 1900 í
bókinni Horfinn heimur eftir Þórunni Valdimars-
dóttur sagnfræðing. Þar er dregin upp lýsing á
árinu 1900 eins og það birtist í blöðunum.
Samkvæmt upplýsingum frá Fellibyljastofnun
Bandaríkjanna var fellibylurinn árið 1900 mann-
skæðasti bylur í sögu landsins og þrettándi öfl-
ugasti bylurinn frá árinu 1851, í fjórða og næst-
efsta styrkleikaflokki.
Voðaleg hafalda sópaði bæn-
um nær gersamlega í burtu
Umfjöllun blaða á Íslandi árið 1990 um skæðasta fellibyl Bandaríkjanna
’Það jók og mjög á vandræðin,að þangað söfnuðust þegar alls
konar þorparar, til að rupla og
ræna, svo að ráðgert var, að
senda þangað herlið.‘
Brussel. AFP. | Framkvæmdastjórn
Evrópusambandsins, ESB, varaði
Svisslendinga við í gær og sagði, að
felldu þeir í þjóðaratkvæðagreiðslu
að opna vinnumarkað sinn fyrir
fólki í hinum nýju aðildarríkjum
sambandsins, myndi það hafa slæm-
ar afleiðingar fyrir samskipti þeirra
og ESB.
Skoðanakannanir, sem birtar
voru í síðustu viku, sýndu, að 50%
Svisslendinga ætluðu að segja já og
samþykkja að opna vinnumarkaðinn
en 38% nei. Í fyrri þjóðaratkvæða-
greiðslum hafa hins vegar nei-fylk-
ingarnar oft verið drjúgar á enda-
sprettinum og fengið fleiri atkvæði
óákveðinna kjósenda.
Svisslendingar höfnuðu því í þjóð-
aratkvæðagreiðslu 2001 að sækja
um aðild að ESB en gerðu þess í
stað ýmsa sérsamninga við sam-
bandið, til dæmis um viðskipti, at-
vinnumál, mennta- og tæknimál.
Áttu þeir síðar að ná til nýrra aðild-
arlanda.
Svissneskir þjóðernissinnar,
hægriflokkarnir og þeir, sem eru
yst til vinstri, vilja ekki lengur una
þessu og fengu nægar undirskriftir
til að knýja fram þjóðaratkvæða-
greiðslu um ákvæðin. Halda þeir
því fram, að þau muni draga úr full-
veldi landsins og draga það að lok-
um inn í ESB. Hamra þeir á því, að
útlendingar muni taka störfin frá
heimamönnum.
Stóraukið eftirlit
með undirboðum
Já-fylkingin, ríkisstjórnin, mið-
flokkar, jafnaðarmenn, viðskiptalífið
og verkalýðsfélögin, vísa áróðri nei-
manna á bug og segja, að með
ákvæðunum muni Svisslendingar fá
ótal efnahagsleg tækifæri í upp-
gangsríkjunum í Austur-Evrópu
auk þess sem stórhert eftirlit með
undirboðum á vinnumarkaði muni
koma í veg fyrir flóð af ódýru
vinnuafli.
Já-menn benda einnig á, að verði
samþykkt að opna vinnumarkaðinn,
muni það sýna, að Svisslendingar
ætli að standa við gerða samninga
við ESB. Verði neiið ofan á, verði
um leið allt í uppnámi. Þá kunni full
aðild að ESB að vera eina lausnin.
Svisslend-
ingar var-
aðir við
„neiinu“
ENN er reynt að mynda samsteypu-
stjórn í Þýskalandi en hafi það ekki
tekist fyrir 18. október verður að efna
til nýrra þingkosninga. Angela Merk-
el, kanslaraefni kristilegu systur-
flokkanna (CDU og CSU), átti að
sögn AFP-fréttastofunnar árangurs-
lausan fund í gær með talsmönnum
græningja og sagði að ekki hefði tek-
ist að finna flöt á samstarfi. Skoðana-
kannanir gefa til kynna að mest fylgi
sé við að kristilegir og Jafnaðar-
mannaflokkur (SPD) Gerhards
Schröders, núverandi kanslara,
myndi næstu stjórn.
Óttast er að langvarandi þrátefli
geti haft slæmar afleiðingar fyrir
efnahag landsins en mikið atvinnu-
leysi og lítill hagvöxtur þjakar Þjóð-
verja. Þreifingar hófust þegar á
fimmtudag milli SPD og CDU/CSU
og þótt þær bæru ekki árangur virð-
ast flestir stjórnmálaskýrendur nú
hallast að því að slík stjórn verði nið-
urstaðan. Merkel sagði þó að mikið
bæri í milli flokkanna. Kristilegir
fengu þremur þingsætum meira en
jafnaðarmenn og krefst Merkel því að
fá kanslarastólinn. Könnun Emnid-
stofnunarinnar á fimmtudag sýndi
47% fylgi við Merkel sem kanslara í
„stórri samsteypustjórn“ en 44% við
Schröder.
Tími hrossakaupa
Hinn síðarnefndi bendir hins vegar
á að munurinn á fylgi flokkanna sé
sáralítill og segist ekki ætla að gefa
stólinn eftir. Nýtur hann stuðnings
flokksmanna sinna í þeim efnum en
ljóst þykir að enn muni líða nokkur
tími hrossakaupa áður en samningar
takast. Fyrr mun ekki verða slakað á
kröfunum á opinberum vettvangi.
Orðrómur var á kreiki í gær um að
Schröder myndi gefa eftir stólinn
gegn því að Merkel gerði slíkt hið
sama. Yrði þá að finna nýtt kanslara-
efni en rætt hefur verið um að CDU-
maðurinn Christian Wulff, forsætis-
ráðherra í Neðra-Saxlandi, myndi
geta orðið málamiðlun. Hann nýtur
mikilla vinsælda meðal kristilegra.
Könnun Politbarometer-stofnunar-
innar fyrir ZDF-útvarpsstöðina var
birt í gær og sögðust 45% aðspurðra
vilja að mynduð yrði ríkisstjórn
hægri- og vinstrifylkinganna en 43%
voru andvíg þeirri lausn. Næstmestur
stuðningur var við samsteypustjórn
kristilegra, græningja og Frjáls-
lyndra demókrata, 36%. Frjálslyndir
bættu við sig fylgi í kosningunum ný-
verið en stóru flokkarnir töpuðu báð-
ir. Voru úrslitin mikil vonbrigði fyrir
Merkel og liðsmenn hennar enda
höfðu skoðanakannanir spáð þeim
góðum sigri. Jafnaðarmenn réttu hins
vegar úr kútnum undir lokin og var
fylgistap þeirra minna en spáð hafði
verið.
Vinstriflokksmenn
með Stasi-fortíð
Væntanlegir þingmenn hins nýja
Vinstriflokks, þar sem saman eru
komnir óánægðir jafnaðarmenn og
fyrrverandi kommúnistar, verða 54.
Nú hefur komið í ljós í skýrslum
Stasi, leynilögreglu Austur-Þýska-
lands gamla, að sjö þeirra höfðu
tengsl við Stasi. Voru þeir „óopinberir
samverkamenn“ stofnunarinnar, að
sögn Marianne Birthler, yfirmanns
skrifstofu sem hefur umsjón með
Stasi-skjölunum. Ekki var skýrt frá
nöfnum sjömenninganna. Sagði Birt-
hler að fleiri dæmi um samstarf
myndu ef til vill koma í ljós ef hinir
þingmenn flokksins samþykktu að
farið yrði í saumana á fortíð þeirra.
Talsmenn flokksins sögðu að það
yrði eingöngu gert ef þingmenn ann-
arra flokka samþykktu að sæta sams
konar rannsókn.
Gefur Schröder
eftir stólinn?
Viðræður kristilegra og græningja báru engan árangur
Eftir Kristján Jónsson
kjon@mbl.is
Reuters
Leiðtogar flokks þýskra græningja, Reinhard Bütikofer og Claudia Roth,
ræða við blaðamenn eftir fund með talsmönnum CDU í gær. Þau sögðu
kristilega vera talsmenn „nýfrjálshyggju“ og „á móti umhverfisvernd“.
STARFSMENN lítils sláturhúss í
Jakarta í Indónesíu hreinsa kjúk-
linga. Forseti landsins, Susilo
Bambang Yudhoyono, kvaðst í gær
hafa fyrirskipað förgun alifugla „á
svæðum þar sem mikið er um fugla-
flensu“ til að koma í veg fyrir að
sjúkdómurinn breiddist út. Hann
kvaðst þó ekki vilja refsa bændum
sem hefðu fyrirmælin að engu.
Matvæla- og landbúnaðarstofnun
Sameinuðu þjóðanna (FAO) kvaðst í
gær hafa áhyggjur af útbreiðslu
fuglaflensu í Indónesíu. Stofnunin
hvatti þarlend stjórnvöld til að
kappkosta að afstýra fuglaflensuf-
araldri, m.a. með förgun fugla á
svæðum þar sem smithættan er
mest.AP
Förgun
alifugla
fyrirskipuð
í Indónesíu