Morgunblaðið - 24.09.2005, Qupperneq 36
Moritz er alveg
frábært útivist-
arsvæði fyrir
alls konar
íþróttir og
dægradvöl
og mikið líf
og fjör. Þar
er þó nokk-
uð erfiðara
að hjóla en í
Danmörku,
en samt held ég
að flestir gætu
fundið leiðir við sitt hæfi. Sumar
brekkur eru þónokkuð brattar og
langar og þá er bara að hvíla sig þeg-
ar upp er komið. Stelpurnar eru mjög
rólegar og ánægðar í kerrunum sín-
um og eru oftast syngjandi þegar
þær eru vakandi. En þær fylgjast vel
með því sem er að gerast í kringum
þær. Sú eldri spurði til dæmis pabba
sinn þegar hann var að púla upp eina
brekkuna „Pabbi. Af hverju ferðu
svona hægt?“
Við komumst líka að því í Sviss að
við værum langt í frá sérstök að
ferðast svona með börnin. Þetta gera
margar fjölskyldur þar í landi og þeg-
ar börnin stækka eru þau sett á hjól
sem eru tengd við hjól foreldranna,
allt frá fjögurra til fimm ára aldri. Við
hittum einmitt svissneska fjölskyldu
þegar við hjóluðum í Danmörku. Við
höfðum samband við þau áður en við
fórum til Sviss og hjóluðum svolítið
með þeim þar.“ Hulda segir kerr-
urnar sem þau nota mjög góðar.
„Þetta eru fjölnota kerrur og er hægt
að ganga með þær, hjóla og setja
undir þær skíði. Þegar við fórum í
fyrra setti ég barnaburðarstólinn inn
í hana fyrir þá litlu.“ Landslagið í
Sviss var mjög fallegt og fjölbreytt og
segir Hulda að með því að hjóla um
landið sjái maður það í allt öðru ljósi
en að aka um það. "Mér fannst þetta
Svo vel gekk hjólaferðin umMön, Láland og fleiri staði íDanmörku í fyrra að þauHulda og Arnþór ákváðu að
fara í hjólaferð til Sviss í sumar og að
sjálfsögðu að taka dæturnar með.
Eins og gefur að skilja er ákaflega
ólíkt að hjóla í þessum tveimur lönd-
um.
„Mér fannst best að byrja í Dan-
mörku þar sem aðeins fjórir mánuðir
voru liðnir frá því að ég átti stelpuna.
Landið er slétt og engin hætta á að
lenda í brekkum eða þurfa að reyna
of mikið á sig. Enda gekk okkur vel,“
sagði Hulda. „Við vorum í 8 daga í
ferðinni og hjóluðum allt upp í 80 km
á dag með allan farangur á hjólunum,
þar á meðal tjald og svefnpoka. Dæt-
urnar, Anna Rakel sem nú er að
verða þriggja ára og Ólöf Thelma
sem er eins og hálfs árs, voru í kerr-
um sem festar voru við sitt hvort hjól-
ið. Við gistum á skipulögðum tjald-
stæðum þar sem aðstaðan er ofsalega
góð. Meðal annars eru sums staðar
fjölskyldusturtur þar sem öll fjöl-
skyldan getur brugðið sér í sturtu
saman. Á tveggja stjörnu tjald-
stæðum er mjög gott að vera en við
vorum oftast á þriggja stjörnu tjald-
stæðum. Þar er eldunaraðstaða,
sturta, þvottavél og verslun.“
Sofandi eða syngjandi
í kerrunum
Hulda segir að dæmigerður dagur
hafi verið þannig að eftir að fjöl-
skyldan vaknaði var hún að dóla til
um klukkan 11. Þá var lagt af stað og
stelpurnar sofnuðu í kerrunum. Á
meðan hjóluðu foreldrarnir á fullu.
„Oft vöknuðu þær um hálfþrjú og þá
skoðuðum við okkur um, fórum í
dýragarð, eða eitthvað slíkt. Eftir það
var keypt í matinn fyrir kvöldið og
haldið á næsta tjald-
stæði. Í Danmörku er
allt malbikað og við
hjóluðum mikið eftir
sveitastígum þar sem
umferð var lítil. Ég
held að það sé mjög
gott fyrir fólk að
byrja að hjóla í Dan-
mörku, bæði vegna
þess hve allt er slétt
þar og einnig vegna
þess hve aðstaðan er
góð alls staðar. Við
skipulögðum Dan-
merkurferðina ekkert
fyrirfram. Við ákváðum
bara hvenær við færum frá Íslandi og
hvað við ætluðum að vera lengi. Þar
tókum við lest með hjólin og allt haf-
urtaskið og ég viðurkenni að það var
heilmikið basl að koma þessu öllu út
úr lestinni, okkur sjálfum og stelp-
unum líka. Við gistum á farfugla-
heimili í Kaupmannahöfn fyrstu nótt-
ina, en síðan bara á tjaldstæðum.“
Ferðin til Sviss í sumar
var á margan hátt ólík. Þau Hulda
og Arnór ákváðu að fljúga til Münch-
en og taka bílaleigubíl þaðan til St.
Moritz. Þar voru þau aðallega á
tveimur tjaldstæðum og hjóluðu út
frá þeim.
Langt frá því að
þykja sérstök í Sviss
„Í Sviss eru níu merktar hjólaleiðir
og hægt er að panta kortabækur með
upplýsingum um þær á Netinu. Í
þessum bókum er auk kortanna hægt
að sjá erfiðleikastig leiðanna, hvort
hægt sé að taka lest á milli staða með
hjól, hvar viðgerðarverkstæði eru og
fleira. Eldra fólk gerir mikið af því að
fara milli erfiðustu staðanna í lestum
og hjóla á auðveldari leiðunum. Í St.
mjög skemmtilegar ferðir og við er-
um ákveðin í að fara eitthvert næsta
sumar þó enn sé ekki ákveðið hvert,“
sagði hún, „en nóg er í boði, hvort
sem er í Evrópu, Norður-Ameríku
eða í Asíu. Allt þetta heillar.
Höfum alla okkar hentisemi
Með þessu móti getum við skoðað
okkur um en haft alla okkar henti-
semi. Ekkert rekur á eftir okkur og
ef einhver er ekki tilbúinn til að
leggja af stað, er til dæmis ekki í góðu
skapi, þá er bara hægt að bíða þangað
til allir eru kátir og leggja þá af stað.
Það er nánast hægt að stoppa hvar
sem er og leyfa stelpunum að hlaupa
um berfættar í grasinu og engin
hætta á að týna þeim í mannþröng.
Við höfum með okkur nesti yfir dag-
inn og kaupum í matinn seinni part-
inn. Oft komum við frekar seint á
tjaldstæðin og þá eru flestir búnir að
elda svo við höfum aldrei lent í biðröð.
„Mér finnst ég vera örugg á tjald-
stæðunum og þar líður mér vel. Þar
er rólegt og gott og stelpurnar sofa
vel. Erfiðasta nóttin í ferðinni í sumar
var þegar við gistum á hóteli í
München á leiðinni heim. Skarkalinn
var svo mikill að þær voru að vakna
og voru órólegar.“
HJÓLAFERÐIR | Fjölskyldan fór í fyrrasumar og hjólaði um Danmörku og í sumar um Sviss
Margir héldu að Hulda Björk Páls-
dóttir og Arnþór Halldórsson væru
eitthvað verri þegar þau ákváðu að
taka tvær ungar dætur sínar í
hjólaferð til Danmerkur í fyrra-
sumar. Sú yngri var aðeins fjög-
urra mánaða, en sú eldri um
tveggja ára. Hulda sagði Ásdísi
Haraldsdóttur ferðasöguna.
Á tjaldsvæðunum er rólegt og gott og Anna Rakel og Ólöf Thelma una sér vel.
Hulda Björk Pálsdóttir og Arnþór Halldórsson eru ákveðin í að kanna nýj-
ar slóðir næsta sumar ásamt dætrunum Önnu Rakel og Ólöfu Thelmu.
Upplýsingar um hjólaleiðir í Sviss
eru á: www.veloland.ch Ógrynni
upplýsinga um hjólaleiðir víða um
heim má finna með því að slá inn á
leitarvél: bicycle trips
asdish@mbl.is
Af hverju
ferðu svona
hægt, pabbi?
36 LAUGARDAGUR 24. SEPTEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
DAGLEGT LÍF | FERÐALÖG
Vika í Danmörku
www.hertz.is
19.350 kr. - ótakmarkaður akstur,kaskó, þjófavörn, flugvallargjaldog skattar.*Verð á viku miðað við 14 daga leigu.*
Opel Corsa eða sambærilegur
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
H
ER
28
90
9
06
/2
00
5
50 50 600
Bókaðu bílinn heima
- og fáðu 500 Vildarpunkta
Maturinn er rosalega góðurog svo eru hjónin sem reka
staðinn alveg einstök,“ segir Ás-
björg Hjálmarsdóttir sem er ný-
komin frá Salou á Spáni. Í ferð-
inni heimsótti hún
uppáhaldsveitingastaðinn sinn
sem heitir í höfuðið á eigandanum
Blas eða Can Bla’s sem þýðir Hús
Bla’s.
Mágkona Ásbjargar uppgötv-
aði staðinn fyrir nokkrum árum
og síðan hafa vinir hennar og fjöl-
skylda vanið komur sínar þangað.
„Hjónin Paki og Blas sem eiga
og reka veitingahúsið eru alveg
einstök. Þau vinna bara tvö á
þessum stað, hann eldar og hún
þjónar til borðs. Þegar gesti ber
að garði eru móttökurnar hlýjar
og notalegar og börnum er ein-
staklega vel tekið. Það er lítill
garður sem börnin geta svo leikið
sér í á meðan foreldrarnir eru að
borða.
En á Ásbjörg uppáhaldsrétt á
veitingahúsinu?
Já, kálfakjöt hússins er ótrú-
lega gott en svo er bara maturinn
yfir höfuð góður og frekar ódýr.
Steikurnar eru vinsælar með bak-
aðri kartöflu og sósu og með-
alverðið er í kringum þúsund
krónur. Síðan er boðið upp á píts-
ur, fiskrétti og pastarétti.
Þau opna staðinn klukkan sjö á
kvöldin og svo er bara opið fram-
eftir.
SALOU | Uppáhaldsveitingastaður
Faðmlag og fínn matur
Hjónin sem eiga staðinn taka einstaklega
vel á móti viðskiptavinum sínum og
kveðja þá gjarnan með faðmlagi.
Veitingahúsið Can Bla’s, Carrer
París 2
Salou, Spánn
Sími 977 385 602