Morgunblaðið - 24.09.2005, Page 63

Morgunblaðið - 24.09.2005, Page 63
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. SEPTEMBER 2005 63 DAGBÓK Norður-Evrópuþing Alþjóðasamtakakvenna í læknastétt (Medical Wom-en’s International Association(MWIA)) verður haldið á Grand hóteli við Sigtún í Reykjavík 28. september til 1. október 2005 á vegum Félags kvenna í læknastétt á Íslandi (FKLÍ). Þetta er í fyrsta skipti sem þetta þing er haldið hér á landi. Ólöf Sigurðardóttir er ráðstefnustjóri. „Þessi þing eru haldin þriðja hvert ár og síð- ast í London. Við ákváðum þá á staðnum að bjóða hingað á fimmtánda þingið sem hefst á Ísafirði á mánudaginn með forráðstefnu um húðvandamál sem Ellen Mooney sér um og á Ísafirði verður einnig opnuð sýning til að heiðra Kristínu Ólafsdóttur sem fyrst kvenna útskrifaðist sem læknir á Íslandi,“ segir Ólöf. Hvað verður gert á þinginu? „Fyrsta daginn, þ.e. á fimmtudaginn, ætlum við að skoða stöðu kvenna í stéttinni og fyr- irlesarar eru bæði fólk úr læknastétt og utan stéttarinnar. Tveir hádegisverðarfundir verða haldnir um heilsu kvenna, annars vegar geð- heilsu og hins vegar hjartasjúkdóma. Annan daginn verður nær eingöngu fjallað um heilsu kvenna. Fyrirlesarar koma víða að, meðal ann- arra Olaf Aasland sem er norskur og hefur rannsakað heilsu lækna almennt og Ulla Maria Anderberg sem fjallar um streitu og vefjagigt. Á laugardaginn heldur Barbro Dahlbom-Hall frá Svíþjóð fyrirlestur sem nefnist „look to the future“, en hún hefur skrifað margar bækur um stjórnunarstíl kynjanna. Þriðja og síðasta daginn verður Margrét Guðnadóttir heiðruð og ætlar hún að segja frá reynslu sinni sem eini kvenprófessor við læknadeild Háskóla Íslands í þrjátíu ár.“ Hvað ber hæst að þínu mati? „Það er erfitt að velja úr. Það er nauðsyn- legt að vekja athygli á heilsu kvenna, til dæmis kvenna sem greinst hafa með vefjagigt, en margar þeirra virðast skammast sín fyrir þessa sjúkdómsgreiningu. Mér finnst mik- ilvægt að fá opnari umræðu um þennan sjúk- dóm og að með þessu þingi verði vakning í að fylgjast með úrræðum fyrir þær sem þjást af vefjagigt.“ Hafa margir skráð sig til þátttöku? „Nú eru 125 skráðir. Þátttakendur eru frá tólf til fjórtán löndum, aðallega Norðurlönd- unum og Englandi en einnig koma margir frá Kanada og Bandaríkjunum. Læknar af báðum kynjum eru hvattir til að taka þátt í þinginu og unnt er að skrá sig á staka daga eða allt þingið eftir atvikum. Fyrstu þrjátíu unglæknarnir sem skrá sig þurfa ekki að greiða ráðstefnu- gjald en nú hafa átján unglæknar skráð sig. Konur eru mun fleiri í hópi þátttakenda en á þessum þingum hafa aldrei áður verið svo margir karlmenn í hópi fyrirlesara og með því viljum við fá þá með í umræðuna og samræma kynjasjónarmið.“ Hver var aðdragandinn að stofnun FKLÍ og hver eru markmið félagsins? „Utan Íslands er löng hefð fyrir félögum eins og þessum. Lengi framan af voru fáar konur í læknastétt og það var ekki fyrr en 1999 sem stofnfundur var haldinn. Nú eru 130– 140 konur í félaginu. Markmiðin eru til dæmis að efla samstarf og stöðu kvenna í læknastétt á Íslandi og að efla þekkingu og fræðslu um heilsu kvenna og barna.“ Sjá nánari dagskrá á www.fkli.is/congress. Læknisfræði | Norður-Evrópuþing Alþjóðasamtaka kvenna í læknastétt haldið á Íslandi Konur og karlar í læknastétt  Ólöf Sigurðardóttir læknir fæddist í Mýra- sýslu árið 1958. Hún hlaut íslenskt lækn- ingaleyfi árið 1987 og sænskt lækningaleyfi árið 1989. Hún lauk sérfræðinámi í mein- efnafræði og blóð- storkufræðum á Kar- olinska sjúkrahúsinu í Stokkhólmi árið 1992 og doktorsprófi frá Karolinska Institutet árið 1994. Hún hefur verið starfandi sér- fræðingur á klínískri lífefnafræðideild á Landspítala – háskólasjúkrahúsi í fullu starfi frá 1996 er hún kom heim til Íslands. Ólöf var formaður Félags kvenna í lækna- stétt á Íslandi (FKLÍ) frá stofnun þess í maí 1999 þar til í nóvember 2003. Ólöf er í sambúð með Stíg Snæssyni og eiga þau einn son. Árnaðheilla dagbók@mbl.is Brúðkaup | 20. ágúst sl.voru gefin saman í kirkjunni í Árbæjarsafni af sr. Kristni Á. Friðfinnssyni brúðhjónin Heidrun Elise Boettcher og Guð- mundur Rúnar Sigfússon. Ljósmynd/Jóhannes Long Óheillaþróun ÞAÐ var fjallað um tvær einhleypar mæður í DV nýlega. Erfiðleikar þeirra voru miklir, m.a. allt of há húsaleiga. Önnur hafði bara 10 þús. til að lifa af út mánuðinn eftir að hafa greitt húsaleiguna. Þó að ástandið sé svona erfitt virðist sveitarfélagið geta neitað þeim um hjálp – þó að lög kveði á um að það beri ábyrgð á velferð þessa fólks. Sífellt er maður að heyra nýjar sögur um erfiðleika fólks sem er í mikilli neyð. Það er greinilega ekki pólitísk samstaða um að snúa þessari óheillaþróun við. Allir vilja verða borgarstjórar og láta ljós sitt skína í fjölmiðlum þessa dagana. Þar er tal- að um flugvöllinn og Sjálfstæð- isflokkurinn kvartar undan lóðaleysi og hver kennir öðrum um varðandi málefnin. Það er ekki minnst einu orði á félagsmálin, ekki á einstæðu mæðurnar, ellilífeyrisþega og ör- yrkja sem líða hér skort. Margt af þessu fólki er jafnvel húsnæðislaust. Ég er ekki ánægður með frambjóð- endur sem horfa framhjá slíkum málum. Þögn þjóðkirkjunnar er mikil varðandi þessi mál. Það er helst fyr- ir jól og páska sem heyrist frá þeim bænum varðandi fátæktina hér. Það er ekki nóg að prestar messi á sunnudögum. Mér finnst að þeir ættu að vera miklu virkari við að predika yfir stjórnmálamönnunum um að það sé ekki í lagi að fara svona með samborgarana. Hallgrímur. Ömurleg þjónusta hjá Símanum ÉG vil kvarta yfir þeirri óstjórn sem er á Símanum. Það virðist ekki vera nokkur leið að fá fyrirgreiðslu til að fá fótboltann á mitt heimili. Ég er búin að hringja 6 sinnum síðan 10. ágúst og þeir eru sífellt að týna nið- ur pöntunum frá mér, hægri höndin virðist ekki vita hvað sú vinstri er að gera. Finnst mér ömurlegt hvernig komið er fyrir þessu fyrirtæki. Ég er búin að velta á tæpum 3 árum 1.300 þús. hjá þeim og svo fær maður enga fyrirgreiðslu. Svo heyrir maður alls staðar að kvartanir yfir þjónustu Símans við áskrifendur. Eins er ég búin að bíða í 3 vikur eftir að internetið verði lagað hjá mér, og þegar ég hringi til að reka á eftir því er alltaf einhver á leiðinni – og svo gerist ekkert. Þetta hlýtur að vera verst rekna fyrirtækið á Íslandi og þarna virðist vanta eitthvað í þjónustuna hjá þeim. Skora ég á Símann að opna fyrir boltann á með- an þetta ástand ríkir hjá þeim svo fólk geti farið að horfa á boltann án þess að þurfa að standa í þessu. Sesselía Ævarsdóttir. Villi er týndur VILLI týndist frá Hagamel í Reykjavík fimmtudaginn 8 sept. sl. og er hans sárt saknað. Hann er grábrönd- óttur, eyrna- merktur „1271“ og með bláa ól. Þeir sem hafa séð til hans eða vita um ferðir hans eru beðnir að hafa sam- band við Sigurlaugu í síma 662 1045 eða 860 8014. Janus týnd- ist í Garðabæ JANUS, sem er fress, týndist frá Lerkiási 7 í Garðabæ. Hans er sárt saknað. Þeir sem vita um ferðir Janusar eru beðnir að hafa samband við Kristínu í síma 567 1647 eða 895 3813. Velvakandi Svarað í síma 5691100 frá 10–12 og 13–15 | velvakandi@mbl.is Boðsmót í Jakarta. Norður ♠Á98 ♥G8 V/AV ♦ÁKD9764 ♣2 Vestur Austur ♠7642 ♠G5 ♥D97654 ♥3 ♦-- ♦G10852 ♣G76 ♣109543 Suður ♠KD103 ♥ÁK102 ♦3 ♣ÁKD8 Svíar mættu landsliði Indónesa í fyrsta útsláttarleiknum í Jakarta (Governoŕs Cup) og unnu nokkuð auðveldan sigur (104-61 í fjörutíu spilum). Spilið að ofan gaf þeim 17 stig: Vestur Norður Austur Suður Tobing Sundelin Asbi Sylvan Pass 1 tígull Pass 1 hjarta Pass 3 tíglar Pass 7 grönd ! Pass Pass Pass Sylvan treystir sínum manni og spyr ekki einu sinni um ása (enda vandséð að norður eigi fyrir þremur tíglum nema vera með spaðaás og ÁKD í tígli). Vestur kom út með spaða og Sylv- an taldi upp í tólf toppslagi. Hann tók fjórum sinnum spaða og austur henti einum tígli og hjarta. Síðan kom ÁK í hjarta og það var meira en austur þoldi – hann kastaði frá laufinu og Sylvan fékk á laufáttuna í lokin. Karwur og Panelewen sögðu líka sjö grönd á hinu borðinu, en þar var norður sagnhafi og fékk út tígulgosa. Það útspil sker á samganginn, svo engin þvingun myndast. BRIDS Guðmundur Páll Arnarson | dagbok@mbl.is 70 ÁRA afmæli. Í dag, 24. sept-ember, er sjötug Ingibjörg Kristín Þorgeirsdóttir. Ingibjörg og eiginmaður hennar, Þórir H. Ósk- arsson, eiga einnig fimmtíu ára brúð- kaupsafmæli sama dag. Þau hjónin munu taka á móti gestum í sal Odd- fellowa, Grófinni 6b í Reykjanesbæ, frá kl. 16. ÍBÚÐ VIÐ MIÐBORGINA ÓSKAST - T.D. Í 101 SKUGGI, VIÐ KLAPPARSTÍG EÐA SKÚLAGÖTU Traustur kaupandi óskar eftir 110-140 fm sérhæð á framan- greindum svæðum. Afhendingartími eftir samkomulagi. Sterkar greiðslur í boði. Allar nánari uppl. veitir Sverrir Kristinsson SÉRHÆÐ VIÐ ÆGISÍÐU EÐA Í ÞINGHOLTUNUM ÓSKAST STAÐGREIÐSLA Traustur kaupandi óskar eftir 110-150 fm íbúð á framangreindu svæði. Rýming samkomulag. Staðgreiðsla. Allar nánari uppl. veitir Sverrir Kristinsson ÍBÚÐ VIÐ ÞORRAGÖTU ÓSKAST Traustur kaupandi óskar eftir íbúð við Þorragötu. Rýming er sam- komulag. Góðar greiðslur í boði. Allar nánari uppl. veitir Sverrir Kristinsson Sverrir Kristinsson lögg. fasteignasali AKUREYRINGAR/Flughræðslunámskeið Undirritaður heldur námskeið til að takast á við flughræðslu laugardaginn 1. október frá kl. 9.00 til 17.00 á Hótel KEA. Innifalið er flug með Flugfélagi Íslands dagana á eftir. Nánari upplýsingar og skráning í síma 849 6480 og runargu@simnet,is Rúnar Guðbjartsson, sálfræðingur og fyrrverandi flugstjóri.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.