Morgunblaðið - 24.09.2005, Side 73
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. SEPTEMBER 2005 73
BRESKA fyrirsætan
Kate Moss baðst á
fimmtudag opinberlega
afsökunar í kjölfar ásak-
ana um að hún hefði
neytt kókaíns. Moss
sagðist í yfirlýsingu axla
ábyrgð á hegðun sinni og
ætla að takast á við per-
sónuleg vandamál. Hún
viðurkennir hins vegar
ekki fíkniefnaneyslu með
berum orðum.
„Ég axla fulla ábyrgð
á gerðum mínum,“ segir
Moss í yfirlýsingu sem
umboðsfyrirtækið Storm
sendi út. „Ég geri mér
jafnframt grein fyrir því
að ég þarf að fást við ým-
is persónuleg vandamál og hef stigið
erfið en nauðsynleg skref til að leysa
þau. Ég vil biðja alla þá afsökunar,
sem ég hef brugðist með hegðun
minni en hún hefur haft áhrif á fjöl-
skyldu mína, vini, samstarfsmenn,
viðskiptafélaga og aðra. Ég reyni að
vera jákvæð og stuðningur og ástúð
sem ég hef notið eru ómetanleg,“
segir í yfirlýsingunni.
Fyrir viku birti breskt
blað myndir sem sagðar
voru sýna Moss neyta
kókaíns í hljóðveri þar
sem Pete Doherty, vinur
hennar, var að taka upp
plötu. Í kjölfarið hafa
tískuverslanir og snyrti-
vöruframleiðendur sagt
upp samningum við
Moss en allt útlit er fyrir
að hún verði af stórum
samningi sem hún hafði
gert við snyrtivöruris-
ann Rimmel London.
Sagði fulltrúi Rimmel
London að stjórnendur
fyrirtækisins væru
hneykslaðir og stórlega
misboðið vegna meintrar framkomu
Moss. Fyrr í vikunni bárust fregnir
um að tískuhúsin Chanel, Burberry
og Gloria Vanderbilt, auk fatakeðj-
unnar H&M, hefðu ákveðið að end-
urnýja ekki samninga sína við Moss,
sem alls eru taldir hafa hljóðað upp á
þrjár milljónir dollara, eða um 185
milljónir króna.
Kate Moss biðst
afsökunar
SUÐUR-afríska leikkonan
Charlize Theron olli talsverðu
uppnámi á verðlaunahátíð í
Hollywood fyrr í vikunni þeg-
ar hún tók sig til og smellti
kossi á rassinn á Shirley
MacLaine. Þótti Theron að
sögn svo mikið til koma að fá
að hitta MacLaine, sem hún
sagðist dýrka.
Hátíðin var haldin á vegum
kvikmyndatímaritsins Pre-
miere til að heiðra konur í
kvikmyndum. Fengu bæði
Theron og MacLaine við-
urkenningu.
Theron stóðst ekki mátið
og hljóp niður af sviðinu og út
í áhorfendasalinn til Mac-
Laine og tilkynnti hátt og
snjallt: „Shirley, ég dýrka
þig! Til að sanna það ætla ég
að kyssa á þér rassinn – bók-
staflega.“
Fregnir herma að Mac-
Laine hafi þakkað Theron
fyrir og bætt við: „Þetta var
hápunkturinn hjá mér á
árinu.“
Reuters
Charlize Theron sló á létta strengi.
Kyssti rassinn á
Shirley MacLaine
Nicole Kidman hefur gert hvað hún get-ur til að halda því leyndu að hún er
komin með nýjan kærasta, segir Ananova.
Sá er kántrísöngvarinn
Keith Urban, sem m.a.
hefur getið sér það til
frægðar að sitja fyrir nak-
inn á myndum í Playgirl.
Þau hittust á góðgerð-
arsamkomu í Ástralíu í
janúar. Segja vinir Kid-
man að hún hafi reynt að
láta engan vita af ótta við að mikill áhugi
fjölmiðla á málinu myndi hrekja Urban á
flótta.
Söngvarinn hefur áður verið í ástarsam-
bandi við fyrirsætuna Niki Taylor og komið
fram á tónleikum með Kenny Chesney. Á
myndunum sem birtust af honum í Playgirl
var hann kviknakinn, en gítarinn huldi kyn-
færin.
Vikublaðið Country segir að nýlega hafi
skötuhjúin sést í verslunarleiðangri í New
York og þar hafi þau einnig snætt á græn-
metisveitingastað.
„Þau vilja alls ekki að þetta verði áber-
andi,“ hefur tímaritið Grazia eftir heimild-
armanni. „Það hefur slitnað upp úr öllum
ástarsamböndum Nicole síðan hún var með
Tom [Cruise] og hún hefur svarið að hún
ætli ekki að láta það gerast aftur.“
Fólk folk@mbl.is
MIKIL blómasýning stendur nú yfir í Can-
berra í Ástralíu. Stórt svæði á sýningunni er
tileinkað rokktónlist og hefur blómum verið
plantað þannig að þau vísi til þekktra rokk-
laga, svo sem „Blue Suede Shoes“ með Elvis
Presley, „Strawberry Fields Forever“ með
Bítlunum, „Brown Sugar“ og „Paint it Black“
með Rolling Stones og „Rapsody in Blue“ eft-
ir George Gershwin fær að fljóta með þótt það
sé ekki rokkverk. Á myndinni sjást gestir á
blómasýningunni á rokksvæðinu. Reuters
Tónlist
túlkuð með
blómum
Kalli og sælgætisgerðin
JOHNNY DEEP
Frábær leikin
ævintýramynd
frá Disney hlaðin
ótrúlegum flottum
tæknibrellum í anda
“The Incredibles”
Með hinum eina sanna Johnny Depp
(“Pirates of the Caribbean”) og
frá snillingnum Tim Burton kemur
súkkulaðiskemmtun ársins.
Búið ykkur undir bragðbestu
skemmtun ársins.
bönnuð innan 16 ára
VARÚÐ: Þú gætir farið úr
kjálkaliðum af hlátri
KRINGLANÁLFABAKKI Sýningartímar sambíóunum
LANG VINSÆLASTA MYNDIN Á ÍSLANDI Í DAG
walt disney
Með Cole Hauser úr
2 FAST 2 FURIOUS.
l
I .
TOPP5.IS
KVIKMYNDIR.COM
KVIKMYNDIR.IS
Þ.G. / Sirkus
H.J. / Mbl.
Ó.H.T. / RÁS 2
DV
Það eru til staðir sem manninum
var aldrei ætlað að fara á Eitthvað
banvænt hefur vaknað. Magnaður
spennutryllir út í gegn.
r til st ir s i
r l r i tl f r itt
t f r . r
s tr llir t í .Með Steve Carell úr “Anchorman”
og “Bruce Almighty”
VARÚÐ: Þú gætir farið úr
kjálkaliðum af hlátri
Með Steve Carell úr “Anchorman”
og “Bruce Almighty”
THE CAVE kl. 8.15 - 10.30 B.i. 16 ára.
VALIANT m/- Ísl tal. kl. 12 - 2 - 4 - 6
CHARLIE AND THE .. kl. 12 - 2.15 - 4.30 - 6.45 - 8.20 - 10.40
SKY HIGH kl. 12 - 2.05 - 4.10 - 6.15
STRÁKARNIR OKKAR kl. 9 - 11 B.i. 14 ára.
THE 40 YEAR OLD VIRGIN kl. 3.30 - 6 - 8 - 10.30 B.i. 14 ára.
THE 40 YEAR OLD VIRGIN VIP kl. 1.30 - 4.45 - 8 - 10.30
VALIANT m/ensku.tali. kl. 2 - 4 - 6 - 8 - 10.10
VALIANT m/Ísl tal. kl. 2 - 4 - 6
SKY HIGH kl. 1.30 - 6 - 8.15
CHARLIE AND THE.. kl. 1.30 - 3.45 - 6 - 8.15 - 10.30
STRÁKARNIR OKKAR kl. 8.30 -10.30 B.i. 14 ára.
DUKES OF HAZZARD kl. 10.30
RACING STRIPES m/ísl.tali. kl. 1.40 - 3.50
AR MYNDIR KL. 12 UM HELGAR Í SAMBÍÓUNUM KRINGLUNNI
28. sept. – 2. okt. 2005
Reykjavik Jazz Festival