Morgunblaðið - 03.10.2005, Side 4

Morgunblaðið - 03.10.2005, Side 4
4 MÁNUDAGUR 3. OKTÓBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Heimsferðir bjóða frábært tilboð á síðustu sætunum til Búdapest þann 17. október. Þú bókar 2 flugsæti en greiðir aðeins fyrir eitt og kynnist þessari glæsilegu borg á einstökum kjörum. Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • www.heimsferdir.is 2 fyrir 1 til Búdapest 17. okt. frá kr. 19.990 Síðustu sætin Verð kr. 19.990 Flugsæti með sköttum. 2 fyrir 1 tilboð. Út 17. og heim 20. okt. Netverð á mann. Gisting frá kr. 2.800 Gisting pr. nótt á mann í tvíbýli á Hotel Tulip Inn með morgunverði. Netverð. Munið Mastercard ferðaávísunina SVANDÍS Svavarsdóttir, fram- kvæmdastjóri Vinstrihreyfingar- innar-græns framboðs og formaður VG í Reykjavík, varð hlutskörpust í forvali VG sem fram fór um ný- liðna helgi. Árni Þór Sigurðsson- ar borgarfulltrúi fékk flest at- kvæði í efstu tvö sætin og mun því skipa annað sæt- ið á lista flokks- ins í vor. Í þriðja sæti varð Þor- leifur Gunnlaugsson, dúklagningar- meistari og varaformaður VG í Reykjavík. Í samtali við Morgunblaðið sagð- ist Svandís þakklát fyrir það traust, sem henni hefði verið sýnt í forvalinu og hún myndi sinna þeim verkum, sem henni væri treyst fyr- ir, af bestu getu. Hún sagði, að for- valið sýndi að það væri gríðarlegur slagkraftur í flokknum. „Þetta er eindreginn skýr stuðningur sem ég fæ og þá náttúrlega sterkt umboð fyrir forystu listans. Þannig að þetta setur okkur í stuð fyrir kosn- ingarnar í vor,“ sagði Svandís. Samkvæmt upplýsingum frá Stefáni Pálssyni, formanni kjör- stjórnar, voru rúmlega 700 manns á kjörskrá og komu 392 gild at- kvæði upp úr kjörkössum, en kjör- sókn var innan við 60%. Sagðist Stefán býsna ánægður með kjör- sókn, en einna ánægðastur sagðist hann vera með hversu mikið fjölg- aði í flokknum í aðdraganda for- valsins, en reikna má að félögum í flokknum hafi fjölgað um helming. Sóley skaust upp fyrir Grím Að sögn Stefáns fékk Svandís af- gerandi kosningu í 1. sætið eða 277 atkvæði af 392 gildum atkvæðum, sem jafngildir 70% gildra atkvæða. Árni Þór fékk samtals 167 atkvæði í 1.–2. sæti og Þorleifur hlaut sam- tals 160 atkvæði í efstu þrjú sætin. Sóley Tómasdóttir hafnaði í 4. sæti, Grímur Atlason lenti í 5. sæti og Ugla Egilsdóttir endaði í 6. sæti. Samkvæmt upplýsingum frá Stefáni hlaut Grímur raunar tveim- ur atkvæðum fleirum en Sóley í 1.–4 sæti, en vegna reglna VG um fléttulista, þar sem sætin skiptast jafnt milli kynja, skaust Sóley upp fyrir Grím. Bendir Stefán á að reglur VG um fléttulista feli ekki í sér að karl og kona séu á víxl niður allan listann. „Samkvæmt okkar reglum skal standa jafnt á með kynjum á öllum sléttum tölum. Sem þýðir að þegar kemur að oddatölusætinu hlýtur það sá fram- bjóðandi sem er með flest at- kvæði,“ segir Stefán til útskýring- ar og bætir við: „Hins vegar munaði ekki nema tveimur atkvæð- um að við þyrftum ekki að nota fléttulistaregluna.“ Svandís í 1. sæti hjá VG Eftir Silju Björk Huldudóttur silja@mbl.is Morgunblaðið/Brynjar Gauti Kosið um sex efstu sæti hjá VG í Reykjavík sl. laugardag. Samtals voru um 700 manns á kjörskrá og töldust 392 atkvæði gild. Stefán Pálsson, formað- ur kjörstjórnar, er hér lengst til hægri á myndinni. Svandís Svavarsdóttir LÖG og reglugerðir taka ekki mið af torfærumótorhjólaíþrótt- inni eins og hún hefur þróast á undanförnum árum og breytingar eru löngu tímabærar. Þá ættu Umferðarstofa, Umferðarráð og sveitarfélög að taka höndum sam- an og ganga til samstarfs við vél- hjólaíþróttafélögin í landinu um aukna fræðslu og þjónustu við torfæruhjólafólk. Þetta er meðal þess sem kemur fram í ályktun frá opnum fundi Vélhjóla- íþróttaklúbbsins (VÍK) sem hald- inn var á miðvikudag. Á fundinum var m.a. fjallað um stöðu torfærumótorhjólamanna gagnvart umferðarlögum og reglugerðum, tryggingar og tryggingavernd, mótorkross fyrir börn, ólöglegan akstur torfæru- hjóla innanbæjar og utanvega- akstur. Á fundinum var m.a. skor- að á alla eigendur torfæruhjóla að virða gildandi lög um notkun torfæruhjóla, að aka einungis á þeim svæðum sem íþróttinni eru ætluð og aka aldrei utan vega. Meðal þeirra sem héldu fram- sögu á fundinum var Jóhann Hall- dórsson. lögfræðingur og stjórn- armaður í VÍK. Í samtali við Morgunblaðið sagði að það sem helst vantaði væru æfingasvæði fyrir iðkendur. Ef lög banni akst- ur nema á samþykktum svæðum verði að útvega slík svæði, eink- um í nágrenni höfuðborgarsvæð- isins, en nú séu þau örfá. Nýlega var samið um nýtt æfingasvæði fyrir torfæruhjól í Jósefsdal á Hellisheiði en Jóhann segir að það geti varla talist í nágrenni höfuðborgarinnar. Æfingasvæði álíka stór og fótboltavöllur Einnig þurfi að lagfæra ým- islegt í þeim lögum sem gilda um torfæruhjólin. Það væri t.a.m. af- ar ósanngjarnt að innheimta mörg hundruð þúsund krónur í opinber gjöld af torfæruhjólum sem megi síðan ekki aka eftir vegum. Hin almennu rök fyrir gjöldunum séu að þau standi und- ir kostnaði við vegakerfið en þau eigi alls ekki við í þessu tilviki. Gjöldin séu afar ósanngjörn, ekki síst í ljósi þess að líklega hafi mótorhjólamenn greitt um millj- arð króna til ríkisins á und- anförnum árum en fái nánast ekk- ert í staðinn. „Þetta er líka íþróttagrein sem nýtur einskis stuðnings frá ríkinu, eins og aðr- ar íþróttir,“ sagði hann. Spurður hvort það væru einhver sérstök svæði sem þeir hefðu áhuga á, nefndi Jóhann að í sjö ár hefði verið beðið eftir leyfi fyrir æf- ingasvæði í nágrenni Hafn- arfjarðar. Hvorki hefði gengið né rekið í þeim efnum. Æfingasvæði fyrir mótorhjól þyrfti ekki að taka mikið pláss, slík svæði þyrftu ekki að vera stærri en fótbolta- völlur. „Það vantar bara viljann til að leysa þetta,“ sagði hann. Jóhann sagði að annað réttlæt- ismál sneri að tryggingum. Tor- færuhjól sem aðeins megi nota innan sérstakra svæða séu flokk- uð eins og götuhjól þrátt fyrir að áhættugrunnurinn sé allt annar. Áhættugrunnurinn fyrir götuhjól byggi á því að mögulegt sé að hjólinu verði t.d. ekið í veg fyrir stóra rútu fulla af farþegum sem gætu allir farist í árekstrinum. Mun minni áhætta fylgi notkun torfæruhjóla sem ekið er innan afmarkaðs svæðis. Tjónatíðnin og slysabæturnar tali sínu máli í þessum efnum. Í þriðja lagi væri brýnt að breyta reglum um notkun barna á torfærumótorhjólum. Hér á landi væri aldurstakmarkið 12 ár og yngri börn mættu ekki stunda íþróttina. Á öllum hinum Norð- urlöndum gætu börn á aldrinum 5–12 ára hins vegar stundað sportið, að öllum skilyrðum upp- fylltum. Aðspurður sagði Jóhann að fyllsta öryggis væri gætt og að slysatíðnin væri mun lægri í skíða- og boltaíþróttum. Lög og reglur hafa ekki fylgt þróuninni „Vantar bara viljann til að leysa þetta“ Morgunblaðið/Alfons Finnsson Motocross-brautin við Ólafsvík þykir glæsileg. Mótorhjólamenn á höf- uðborgarsvæðinu vilja fleiri slíkar brautir í nágrenni borgarinnar og benda á að þær þurfi ekki að vera stærri en fótboltavöllur. Eftir Rúnar Pálmason runarp@mbl.is  Meira á mbl.is/itarefni Annatíð hjá lögreglunni í Kópavogi ERILSAMT var hjá lögreglunni í Kópavogi aðfaranótt sunnudags. Þrír ökumenn voru teknir grun- aðir um ölvun við akstur og einum skemmtistað bæjarins lokað vegna fjölda ungmenna undir lögaldri. Þetta var annað kvöldið í röð sem skemmtistaðurinn var heimsóttur og höfðu ungmenni fundist inni á staðnum bæði kvöldin. Því var gripið til þess ráðs að loka staðn- um. Bóndinn úr Bitru- firði á batavegi BÓNDI á sextugsaldri, sem slas- aðist mikið þegar hann hrapaði í fjalli við Bitrufjörð á laugardag, er kominn af gjörgæslu. Hann er minna slasaður en óttast var í fyrstu. Bóndinn, sem var við smala- mennsku í fjallinu, var fluttur með þyrlu Landhelgisgæslunnar á Landspítala – háskólasjúkrahús. Að sögn læknis er ástand mannsins stöðugt og hann á batavegi. Maðurinn handleggsbrotnaði við fallið, auk þess sem hann hlaut áverka á rifbeinum og lungum. Þó er ekki um alvarlega innri áverka að ræða. AÐALFUNDUR Læknafélags Ís- lands skorar á heilbrigðisráðherra að standa við yfirlýsingu sína um að beita sér fyrir því að sérfræð- ingar í heimilislækningum geti annaðhvort starfað á heilsugæslu- stöðvum eða á læknastofum utan heilsugæslustöðva. Gerður verði nýr samningur um störf á lækna- stofum, sem byggist á gildandi samningi um sjálfstætt starfandi heimilislækna. Horft til sjúklinga af landsbyggðinni Á fundinum var einnig sam- þykkt tillaga þar sem forstjóri og framkvæmdastjóri Landspítala eru hvattir til að leiða til lykta þau fjölmörgu álitamál sem enn eru óleyst í samskiptum þeirra og læknaráðs stofnunarinnar. Félagið skoraði einnig á heil- brigðisráðuneyti og önnur stjórn- völd til að nýta sér faglega ráðgjöf lækna í læknisfræðilegum málefn- um og allri stefnumótun í heil- brigðismálum. Aðalfundurinn skoraði á heilbrigðisráðherra, sam- gönguráðherra og borgarstjórn Reykjavíkur að hafa í huga hags- muni sjúklinga frá landsbyggðinni og aðgang þeirra að heilbrigðis- þjónustu þegar framtíðaráform um Reykjavíkurflugvöll verða rædd. Þá skora læknar á heilbrigðis- ráðherra að leggja fyrir Alþingi frumvarp sitt um bann við reyk- ingum á veitinga- og skemmtistöð- um. Læknar skora einnig á heil- brigðisráðherra að hafa forystu um að ríkisstjórn Íslands fari að tilmælum Alþjóðaheilbrigðismála- þingsins 2004 og um að herða sam- ræmdar opinberar aðgerðir til að auka heilbrigði Íslendinga með hollara mataræði og aukinni hreyf- ingu. Læknar telja ennfremur tíma- bært að lagt verði fram á Alþingi frumvarp til laga um öryggi sjúk- linga við veitingu heilbrigðisþjón- ustu. Læknar fái að starfa utan heilsugæslustöðva

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.