Morgunblaðið - 03.10.2005, Qupperneq 29
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 3. OKTÓBER 2005 29
DAGBÓK
Kundalini jóga
Orkugefandi jógaæfingar sem byggja á því að örva innkirtlakerfið, byggja upp styrk
og lyfta andanum. Mánudaga og fimmtudaga kl. 17:30 í Maður Lifandi, Borgar-
túni 24. Mánudaga og miðvikudaga kl. 20.30 í Hjónagörðum, Eggertsgötu 2.
Kennari Guðrún Arnalds, símar 896 2396/561 0151
gudrun@andartak.is • www.andartak.is
Upplifðu styrk þinn
Kynningarnámskeið fyrir byrjendur og lengra komna
Rannsóknarstofnun KHÍ heldur málþingdagana 7. og 8. október. Sigríður Ein-arsdóttir, verkefnisstjóri hjá RKHÍ, ereinn af skipuleggjendum viðburðarins:
„Meginþema málþingsins eru PISA-kannanirnar,
sem eru alþjóðlegar kannanir þar sem borinn er
saman árangur grunnskólanema á heimsvísu.
Einnig verður sjónum sérstaklega beint að læsi
og lestrarnámi.“
Fjöldi góðra fyrirlesara heldur erindi. Þar má
fyrstan nefna Andreas Scheilcher, forstöðumann
námsmatsstofnunar OECD og einn af að-
alskipuleggjendum PISA-kannananna. Hann flyt-
ur erindi sem nefnist á ensku „Is the sky the limit
in educational performances?“ þar sem hann velt-
ir fyrir sér hvað má finna sameiginlegt hjá þeim
nemendum, skólum og löndum sem bestum ár-
angri náðu í PISA-rannsóknunum.
„Amalía Björnsdóttir fjallar um niðurstöðu
PISA hvað varðar íslenska nemendur og árangur
þeirra í samanburði við nágrannalöndin. Hún veit-
ir sérstaklega athygli þeim óvenjulega kynjamun
sem kemur fram hjá íslensku nemendunum þar
sem stúlkur ná betri árangri en piltar í stærð-
fræði, öfugt við það sem gerist hjá nágrannalönd-
um okkar,“ segir Sigríður. Þetta er níunda mál-
þingið sem RKHÍ stendur fyrir en dagskráin er
með því sniði að á fyrri degi þingsins eru haldin
ávörp og aðalfyrirlestrar en seinni daginn mál-
stofur frá 8.50 til 15.10 og verða að staðaldri 10
málstofur í gangi samtímis. Á málstofunum verð-
ur rætt um þróun og nýbreytni í starfi og rann-
sóknum innan margra ólíkra námsgreina, m.a. í
náttúruvísindum í leik- og grunnskólum, íþróttir
og hreyfingu, listir og menningu, upplýsingatækni
í kennslu og foreldrastarf.
„Meginmarkmið málþinga RKHÍ er að skapa
vettvang bæði til kynningar og skoðanaskipta um
nýbreytni og þróunarstarf í skólastarfi. Á það við
bæði leikskóla, grunnskóla, framhaldsskóla, tón-
listarskóla og háskóla, og einnig samstarf heimilis
og skóla, tómstundarstarf unglinga og þjálfun
fólks með fötlun,“ segir Sigríður.
„Við undirbúning er alltaf miðað að því að
tengja þingið þeirri umræðu sem efst er á baugi á
sviði mennta og menntamála á Íslandi og í ná-
grannalöndunum og í hvert skipti fjallað um nýtt
viðfangsefni.“
Þingið er opið öllum en nauðsynlegt að skrá
þátttöku fyrirfram. Það má gera á vef málþings-
ins, http://malthing.khi.is.
RKHÍ heldur málþingið í samvinnu við Kenn-
arasamband Íslands, Menntasvið Reykjavík-
urborgar, menntamálaráðuneytið, Grunnsamtök
skólaskrifstofa, Félag íslenskra framhaldsskóla,
Heimili og skóla og Stúdentaráð KHÍ.
Menntamál | Níunda málþing Rannsóknarstofnunar KHÍ um menntamál
Pælt í PISA-rannsókninni
Hans Kristján Guð-
mundsson er fæddur 2.
desember árið 1946 í
Reykjavík. Hans Krist-
ján varði doktors-
ritgerð sína á sviði eðl-
isfræði þéttefnis við
Tækniháskólann í
Stokkhólmi árið 1982.
Hann lét af starfi rekt-
ors NorFA, norrænu
vísindamenntastofn-
unarinnar í Ósló, til að
taka við starfi forstöðumanns Rannís árið
2003.
Hans Kristján er kvæntur Sólveigu
Georgsdóttur þjóðfræðingi og eiga þau einn
son og tvö barnabörn.
1. Rf3 d5 2. g3 c6 3. Bg2 Rf6 4. 0–0
Bf5 5. b3 Rbd7 6. Bb2 Dc7 7. d3 e5 8.
Rbd2 Bd6 9. e4 dxe4 10. dxe4 Bxe4
11. Rc4 Be7 12. Rfxe5 Bxg2 13. Kxg2
Hd8 14. Df3 0–0 15. Hfe1 Hfe8 16.
Had1 Bf8
Staðan kom upp í Evrópukeppni
taflfélaga sem lauk fyrir skömmu í St.
Vincent í Ítalíu. Hin gamalkunna
kempa, Zoltan Ribli (2.591), hafði
hvítt gegn Birni Þorfinnssyni (2.328).
17. Hxd7! Hxd7 18. Rg4! He6 Taflið
væri einnig tapað eftir 18. … Hxe1
19. Rxf6+ Kh8 20. Df5. 19. Hxe6 fxe6
20. Bxf6! h5 21. Rge5 Hd5 22. Bg5
b5 23. Rg6! Df7 23. … Hf5 hefði verið
skammgóður vermir eftir 24. Bf4. 24.
Dxf7+ Kxf7 25. Rce5+ Ke8 26. Be3
og svartur gafst upp. Upp úr 1980 var
Ribli á meðal bestu skákmanna heims
og komst m.a. langt í heimsmeist-
arakeppninni í skák en tapaði hins-
vegar áskorendaeinvígi gegn hinum
62 ára Vassily Smyslov árið 1983.
Hefði honum tekist að vinna einvígið
hefði hann teflt við Garry Kasparov
um réttinn til þess að skora á þáver-
andi heimsmeistara í skák, Anatoly
Karpov. Síðar á ferlinum gerðist Ribli
of friðsamur til þess að hann gæti náð
langt í heimsmeistarakeppninni.
SKÁK
Helgi Áss Grétarsson | dagbok@mbl.is
Hvítur á leik.
Helgafell á Djúpavogi – hvíld-
ar- og hressingarheimili fyrir
aldraða – 10 ára í haust
Djúpivogur á dýrlegan stað
til dvalar lengri og skemmri.
Konurnar hlúa þar öldruðum að,
aðrir þeim tæpast fremri.
Helgafell það er hugþekkt skjól,
og hlýlegt það viðmót sem ræður.
Ekki hér munum við ýtast um stól,
andlega systur og bræður.
Anna og Guðrún hér átt hafa
stund,
og einlægar þakkir nú flytja.
Gott til þess hugsa glaðar í lund,
ef gefst hingað aftur að vitja.
Innilegar heillaóskir.
B.A.
Þakkir fyrir grein
ÉG vil leyfa mér að þakka Stefáni
Sæmundssyni flugmanni kærlega
fyrir grein hans „Flugvöllurinn og
skrítnir fuglar“, sem er að finna á
síðu 26 í Morgunblaðinu 29. sept-
ember sl.
Þessi grein er skrifuð af mikilli
þekkingu, viti og rökfestu.
Vona ég að sem flestir borg-
arfulltrúar í Reykjavík, og aðrir þeir
sem málefni Reykjavíkurflugvallar
láta sig varða, lesi þessa grein með
athygli. Á ég að trúa því að það sé
virkilega vilji meirihluta Reykvík-
inga að flugvöllurinn hverfi úr borg-
inni, Reykjavík verði semsagt án
flugvallar eins og Stefán talar um í
greininni eða sjá menn ekki trén fyr-
ir skóginum?
Er afþvíbara-sjónarmiðið svona
sterkt, eins og Stefán segir, að það
ráði afstöðu manna. Reykvíkingar
ættu að spyrja sig þessara spurn-
inga.
Bragi.
ÖBÍ
NÚ þegar fulltrúar eldri borgara,
bæði í Reykjavík og Kópavogi, hafa
verið að minna á sig og sín kjör, þá
heyrist hvorki stuna né hósti frá ÖBÍ
um málefni öryrkja, síðan Garðar
Sverrisson hvarf af vettvangi vegna
heilsubrests.
Vonandi verður ÖBÍ þeirrar gæfu
njótandi að fá nýjan formann á
næsta aðalfundi sem kveður eitthvað
að.
Málefni öryrkja verða að vera allt-
af í sviðsljósinu. Það má aldrei sofa á
verðinum fyrr en öll mál öryrkja, þar
með talin kjaramál, eru komin í höfn.
Því ætla ég að skora á Grétar Pét-
ur, formann Sjálfsbjargar á höf-
uðborgarsvæðinu, að gefa kost á sér í
formannssæti.
Gunnar G. Bjartmarsson,
Hátúni 10.
Velvakandi
Svarað í síma 5691100 frá 10–12
og 13–15 | velvakandi@mbl.is
SVAVA Jakobsdóttir, rithöfundur og alþing-
ismaður, hefði orðið 75 ára á morgun, 4. októ-
ber. Af því tilefni verður haldið Svövuþing í
Kennaraháskóla Íslands á morgun, þar sem
fjallað verður um sögur Svövu í kennslu-
fræðilegu samhengi.
Svava hafði afgerandi áhrif á jafnréttisbar-
áttu á liðinni öld. Sem skáld og alþingismaður
mótaði hún viðhorf og umræður í íslensku sam-
félagi síns tíma.
Dagskrá Svövuþings er helguð sögum Svövu
og vekur athygli á því hvernig þær geta vakið
löngun til náms hjá nemendum í grunn- og fram-
haldsskólanámi.
Í dagskránni fléttast saman skemmtun,
fræðsla, áhugaverðar hugmyndir og kennslu-
fræði með skírskotun til spennandi námsleiða
fyrir nemendur til að vinna út frá ritverkum
Svövu Jakobsdóttur á fjölbreyttan hátt.
Þeir sem taka þátt í dagskránni eru meðal
annars: Vigdís Finnbogadóttir, Steinunn Valdís
Óskarsdóttir, Ármann Jakobsson, Ása Helga
Ragnarsdóttir, Soffía Jakobsdóttir, Ragnar Ingi
Aðalsteinsson, Baldur Sigurðsson, Aldís Yngva-
dóttir, Lára Jóna Þorsteins-
dóttir, Jón Reykdal, Ingibjörg
Frímannsdóttir, Björn Brynj-
úlfur Björnsson, Þórður
Helgason, Kristín Jónsdóttir,
Halla Kjartansdóttir, Erla
Kristjánsdóttir, Ingibjörg
Þórisdóttir, Jóhanna Þórð-
ardóttir, Þorgerður Katrín
Gunnarsdóttir og fjölmargir
grunnskólanemendur.
Svövuþingið stendur frá kl.
13.10–17.35 og er aðgangur ókeypis.
Svövuþing á morgun
Svava
Jakobsdóttir