Morgunblaðið - 03.10.2005, Side 32
32 MÁNUDAGUR 3. OKTÓBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
EDITH PIAF
Fös. 7/10 örfá sæti laus, lau. 8/10 örfá sæti laus. Sýningum lýkur í október.
KLAUFAR OG KÓNGSDÆTUR
Sun. 9/10 kl. 14:00 nokkur sæti laus, sun. 16/10 kl. 14:00 nokkur sæti laus, sun.
23/10 nokkur sæti laus, lau. 29/10 kl. 20:00.
HALLDÓR Í HOLLYWOOD
Frumsýning fös. 14/10 uppselt, 2. sýn. lau. 15/10 örfá sæti laus, 3. sýn. fim.
20/10 örfá sæti laus, 4. sýn. fös. 21/10 örfá sæti laus, 5. sýn. lau. 22/10 örfá
sæti laus, 6. sýn. fim. 27/10 örfá sæti laus, 7. sýn. fös. 28/10 örfá sæti laus.
STÓRA SvIðIð KL. 20.00
MIÐASALA Á NETINU ALLAN SÓLARHRINGINN - WWW.LEIKHUSID.IS
AFGREIÐSLA ER OPIN FRÁ KL. 12:30-18:00 MÁN.-ÞRI. AÐRA DAGA KL. 12:30-20:00.
MIÐASÖLUSÍMI: 551 1200. SÍMAPANTANIR FRÁ KL. 10:00 VIRKA DAGA.
KODDAMAðURINN
Fim. 6/10 nokkur sæti laus, fös. 7/10 örfá sæti laus, lau. 8/10, sun. 16/10, þri.
18/10 uppselt, mið. 19/10 uppselt, sun. 23/10, mið. 26/10 uppselt.
Sýningum lýkur í október.
LITLA SvIðIð KL. 20.00
Umbo›s- og sölua›ili
Birkiaska ehf.
sími: 551 9239
Birkiaska
Umbo›s- og sölua›ili
sími: 551 9239
Vali› fæ›ubótarefni ársins 2002 í Finnlandi
Minnistöflur
Stóra svið
Miðasalan er opin: Mánud. og þriðjud.:10:00-18:00, mið-, fim- og föstudaga: 10:00-20:00, laugar- og sunnudaga: 12:00-20:00
Miðasölusími 568 8000 - miðasala á netinu: www.borgarleikhus.is
ÞAÐ BORGAR SIG AÐ GERAST ÁSKRIFANDI
Nýja svið/Litla svið
KALLI Á ÞAKINU e. Astrid Lindgren
Í samstarfi við Á þakinu
Su 9/10 kl. 14, Su 16/10 kl. 14,
Lau 22/10 kl. 14, Su 23/10 kl. 14
ALVEG BRILLJANT SKILNAÐUR
Fi 6/10 kl. 20 - UPPSELT
Lau 8/10 kl. 16 - AUKASÝNING
Lau 8/10 kl. 20 - UPPSELT
Su 9/10 kl. 20 - UPPSELT
Su 16/10 kl. 20 - AUKASÝNING
Þr 25/10 kl. 2 - AUKASÝNING
WOYZECK - FORSÝNINGAR
Frumsýnt í London 12. okt og á Íslandi 28. okt
Miðaverð á forsýningar aðeins kr. 2.000
Fi 27/10 kl.20
HÍBÝLI VINDANNA
Aðeins þessar 4 aukasýningar eftir
Fö 7/10 kl. 20,
Su 16/10 kl. 20,
Fi 20/10 kl. 20
Su 23/10 kl. 20
LÍFSINS TRÉ
Fö 21/10 kl. 20 - FRUMSÝNING - UPPSELT,
Lau 22/10 kl. 20,
Fi 27/10 kl. 20,
Fö 28/10 kl. 20,
Fö 4/11 kl. 20,
Lau 5/11 kl. 20
Tvennu tilboð
Ef keyptur er miði á Híbýli vindanna og
Lífsins tré fæst sérstakur afsláttur
SALKA VALKA
15/10 Frumsýning UPPSELT
MANNTAFL
Fö 7/10 kl. 20, Fö 14/10 kl. 20,
Lau 15/10 kl. 20
Forðist okkur
Nemendaleikhusið/CommonNonsense
Höf. Hugleikur Dagsson
Fi 6/10 kl. 20,
Fö 7/10 kl. 20,
Lau 8/10 kl. 20
7. SÝN. FÖS. 7. OKT. kl. 20 ÖRFÁ SÆTI
8. SÝN. LAU. 8. OKT. kl. 20 ÖRFÁ SÆTI
9. SÝN. FÖS. 14. OKT. kl. 20 ÖRFÁ SÆTI
10. SÝN. LAU. 15. OKT. kl. 20
11. SÝN. FÖS. 21. OKT. kl. 20
12. SÝN. LAU. 22. OKT. kl. 20
eftir Thomas MEEHAN, Charles STROUSE & Martin CHARNIN
Sun. 16/10 kl. 14
Laug. 22/10 kl. 15
Laug. 30/10 kl. 14
Miðasala í síma 551 4700 alla daga frá
kl. 13-17 í gamla AUSTURBÆJARBÍÓI
www.annie.is • www.midi.is
- DV Frábær fjölskylduskemmtun!
- Fréttablaðið
Miðasala í síma 4 600 200 / www.leikfelag.is
Fullkomið brúðkaup - forsala hafin
Fim 20.okt kl. 20 Frumsýning
Fös 21. okt kl. 20
Sun 23. okt kl. 20
Fim 27. okt kl. 20
fös 28. okt kl. 20
lau 29. okt kl. 20
fös 4. nóv kl. 20
lau 5. nóv kl. 20
Síðustu
dagar korta-
sölunnar!
6. okt. kl. 21:00 Opnunarkvöld Leikhúskjallarans undir stjórn Arnar Árnasonar
7.-8. okt. kl. 21:00 Þetta mánaðarlega. Hugleikur
9. okt. kl. 21.00 Sunnudagsjass. Jassklúbburinn Múlinn kynnir Tríó Jóns Páls Bjarnasonar
– suðupottur menningar!Leikhúskjallarinn
Á dagskránni í vikunni:
ÁÐUR en við snúum okkur að verk-
inu sjálfu og túlkunarmeðferð þess í
sýningunni er rétt að taka eftirfar-
andi lykilatriði fram, fyrir þá sem
ekki nenna að lesa leikdóma: Þetta er
stórkostleg flugeldasýning þar sem
hæfileikaríkasti leikari þjóðarinnar
sýnir algera virtúósatakta. Fyrir þá
sem njóta þess að upplifa list leik-
arans þar sem hún er hvað sýnilegust
er Ég er mín eigin kona einhver
stærsti og safaríkasti konfektmoli
sem boðið hefur verið upp á hér um
árabil. Og víkur þá sögunni að verk-
inu.
Ég er mín eigin kona er byggt á
ótrúlegu lífshlaupi klæðskiptingsins
Charlottu von Mahlsdorf. það vafðist
víst heil ósköp fyrir höfundinum að
koma efni sínu í sviðsvænt form, og á
endanum urðu þau vandræði ein af
uppistöðum verksins. Í upphafi
kynna sinna af Charlotte hélt Doug
Wright að efnið væri upplyftandi
hetjusaga í amerískum stíl um óbil-
andi einstakling með smáðar hneigðir
sem neitar að láta umhverfið kúga sig
og kemst lifandi undan tveimur
grimmustu alræðisríkjum aldarinnar,
nasistum og kommúnistum á eigin
forsendum – á háum hælum eins og
segir í verkinu. Og tekst í leiðinni að
bjarga merkilegum menning-
arverðmætum í formi húsgagna og
iðnhönnunar frá aldamótunum
nítjánhundruð ásamt því að reka
samkomustað fyrir samkynhneigða í
Austur-Berlín, þar sem slík frávik frá
alþýðlegri meðalhegðan voru víst
ekki sérlega vel liðin.
En svo fóru að birtast skýrslur úr
söfnum austur-þýsku alríkislögregl-
unnar sem bentu eindregið til að
hetjuljóminn hefði mögulega kostað
samferðamenn Charlottu meira en
hana. Hún virtist hafa verið á mála
hjá Stasi, og m.a. komið einum vini
sínum og samstarfsmanni í fangelsi.
Hetjuljóminn, sjálf ástæða þess að
Wright taldi sögu hennar í frásögur
færandi, er horfinn og eftir stendur
lítilsigld manneskja sem setti
grammafónasafnið sitt ofar lífi og
frelsi samborgara sinna. Þessa þraut
tókst Doug Wright ekki að leysa og
kaus í staðinn að skrifa sjálfan sig inn
í verkið og gera þróun samskiptanna
við Charlottu og nýju upplýsingarnar
að þungamiðju þess. Þetta er vand-
ræðaleg lausn og persóna leikskálds-
ins óskýr og illa mótuð í samanburði
við hina aðalpersónuna. Eftir stendur
að lífshlaup hennar er í raun enn
skrautlegra í ljósi þessara nýju upp-
lýsinga þó ekki eigi hún sérstaka að-
dáun skilda.
Leikstjórnarvinna Stefáns Bald-
urssonar einkennist af áreynslulausri
fagmennsku og trausti á leikaranum,
sem kemur ekki á óvart.
Umgjörð sýningarinnar er sérlega
smekkleg og hugmyndalega snjöll í
einfaldleik sínum. Bakveggurinn með
grammófónum í fallegri lýsingu gerir
ást Charlotte á þessum gripum skýra
og skiljanlega, og aðrir merkisgripir
eru kynntir til sögunnar á sniðugan
hátt. Að öðru leyti er leikaranum látið
eftir að draga upp mynd af stöðum,
hlutum og aðstæðum, að ógleymdum
persónunum þrjátíu.
Og hvílíkur leikari! Það eru svosem
engin ný tíðindi að Hilmir Snær sé
bæði einhver teknískasti leikari sem
hér sést á fjölum, eða að hann hafi
ómælt af sviðsþokka og nærveru
þannig að öll augu eru einatt á honum
og samúðin með. Hitt sætir tíðindum
að fá tækifæri til að fylgjast með hon-
um í þrautabraut á borð við þessa. Og
aldrei fatast honum. Leiftursnöggar
skiptingar milli persóna, tímaskeiða
og staða vekja ævinlega aðdáun, og
snöggteiknaðar skopmyndir eins og
sumar aukapersónurnar eru þakklát
viðfangsefni. Ekkert var hér maka-
lausara en danski geðlæknirinn, þar
sem Hilmir nær að sýna frændþjóð-
ina í skyldum skopspegli og við erum
vön að skoða þjóðir á borð við Kín-
verja og Indverja. Þess háttar
inngróið grín geta allir gert, en þar
sem skopgerving baunanna er ekki
komið í fastar skorður er Hilmir þar á
ókönnuðum slóðum. Að sýna manni í
fyrsta sinn að taka má líkamsmál og
framgöngu þjóðar slíkum tökum er
afrek. Stóri galdurinn er samt sköpun
Charlottu von Mahlsdorf. Langbita-
stæðasta persóna verksins og til-
gangur þess. Hér nær list Hilmis
mögnuðum hæðum. Líkamstjáning,
innlifun og tímasetningar óaðfinn-
anlegar. Og hreimurinn. Þýski hreim-
urinn verður Hilmi lykill að persón-
unni, leysir hana úr læðingi allra
klisja um karlmenn í kjólum, drottn-
ingar og sviðshomma. Ein klisjan
frelsar aðra. Hreimarnir eru síðan
helsta vandamál sýningarinnar, eins
og Stasi-skýrslurnar urðu stóri höf-
uðverkur höfundarins. Sú ákvörðun
að leika Charlottu með þýskum
hreim er skiljanleg, djörf og þegar
upp er staðið snjöll. Öðru máli gegnir
um aðrar persónur. Ameríkumenn
eru undantekningarlaust leiknir með
amerískum hreim. Þjóðverjar aðrir
en Charlotta og hinn svikni Alfred
eru án hreims. Ekki er lógíkin á bak
við þetta mér ljós, og Ameríkanarnir
verða því miður að grunnum skop-
myndum í þessari meðferð. Þarna
þykir mér leikstjórinn fipast.
En ekkert getur skyggt á sigur
Hilmis. Ég er mín eigin kona er veisla
fyrir leikhúsunnendur. Af svipuðum
toga og Harlem Globetrotters fyrir
körfuboltafólk. Innihaldið er svona og
svona, en listirnar eru ekki annars
staðar leiknar betur.
Þrjátíu og fimm-þraut
LEIKLIST
Skámáni
Höfundur: Doug Wright. Þýðandi: Guðni
Kolbeinsson, leikstjóri, Stefán Bald-
ursson, leikmynd: Grétar Reynisson, bún-
ingar: Dýrleif Ýr Örlygsdóttir og Margrét
Einarsdóttir, lýsing: Björn Bergsteinn
Guðmundsson. Leikari: Hilmir Snær
Guðnason.
Iðnó 30. september 2005.
ÉG ER MÍN EIGIN KONA
„Hvílíkur leikari!“ Hilmir Snær sem
Charlotte von Mahlsdorf.
Þorgeir Tryggvason
AUGLÝSINGADEILD
netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111