Morgunblaðið - 03.10.2005, Qupperneq 32

Morgunblaðið - 03.10.2005, Qupperneq 32
32 MÁNUDAGUR 3. OKTÓBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ EDITH PIAF Fös. 7/10 örfá sæti laus, lau. 8/10 örfá sæti laus. Sýningum lýkur í október. KLAUFAR OG KÓNGSDÆTUR Sun. 9/10 kl. 14:00 nokkur sæti laus, sun. 16/10 kl. 14:00 nokkur sæti laus, sun. 23/10 nokkur sæti laus, lau. 29/10 kl. 20:00. HALLDÓR Í HOLLYWOOD Frumsýning fös. 14/10 uppselt, 2. sýn. lau. 15/10 örfá sæti laus, 3. sýn. fim. 20/10 örfá sæti laus, 4. sýn. fös. 21/10 örfá sæti laus, 5. sýn. lau. 22/10 örfá sæti laus, 6. sýn. fim. 27/10 örfá sæti laus, 7. sýn. fös. 28/10 örfá sæti laus. STÓRA SvIðIð KL. 20.00 MIÐASALA Á NETINU ALLAN SÓLARHRINGINN - WWW.LEIKHUSID.IS AFGREIÐSLA ER OPIN FRÁ KL. 12:30-18:00 MÁN.-ÞRI. AÐRA DAGA KL. 12:30-20:00. MIÐASÖLUSÍMI: 551 1200. SÍMAPANTANIR FRÁ KL. 10:00 VIRKA DAGA. KODDAMAðURINN Fim. 6/10 nokkur sæti laus, fös. 7/10 örfá sæti laus, lau. 8/10, sun. 16/10, þri. 18/10 uppselt, mið. 19/10 uppselt, sun. 23/10, mið. 26/10 uppselt. Sýningum lýkur í október. LITLA SvIðIð KL. 20.00 Umbo›s- og sölua›ili Birkiaska ehf. sími: 551 9239 Birkiaska Umbo›s- og sölua›ili sími: 551 9239 Vali› fæ›ubótarefni ársins 2002 í Finnlandi Minnistöflur Stóra svið Miðasalan er opin: Mánud. og þriðjud.:10:00-18:00, mið-, fim- og föstudaga: 10:00-20:00, laugar- og sunnudaga: 12:00-20:00 Miðasölusími 568 8000 - miðasala á netinu: www.borgarleikhus.is ÞAÐ BORGAR SIG AÐ GERAST ÁSKRIFANDI Nýja svið/Litla svið KALLI Á ÞAKINU e. Astrid Lindgren Í samstarfi við Á þakinu Su 9/10 kl. 14, Su 16/10 kl. 14, Lau 22/10 kl. 14, Su 23/10 kl. 14 ALVEG BRILLJANT SKILNAÐUR Fi 6/10 kl. 20 - UPPSELT Lau 8/10 kl. 16 - AUKASÝNING Lau 8/10 kl. 20 - UPPSELT Su 9/10 kl. 20 - UPPSELT Su 16/10 kl. 20 - AUKASÝNING Þr 25/10 kl. 2 - AUKASÝNING WOYZECK - FORSÝNINGAR Frumsýnt í London 12. okt og á Íslandi 28. okt Miðaverð á forsýningar aðeins kr. 2.000 Fi 27/10 kl.20 HÍBÝLI VINDANNA Aðeins þessar 4 aukasýningar eftir Fö 7/10 kl. 20, Su 16/10 kl. 20, Fi 20/10 kl. 20 Su 23/10 kl. 20 LÍFSINS TRÉ Fö 21/10 kl. 20 - FRUMSÝNING - UPPSELT, Lau 22/10 kl. 20, Fi 27/10 kl. 20, Fö 28/10 kl. 20, Fö 4/11 kl. 20, Lau 5/11 kl. 20 Tvennu tilboð Ef keyptur er miði á Híbýli vindanna og Lífsins tré fæst sérstakur afsláttur SALKA VALKA 15/10 Frumsýning UPPSELT MANNTAFL Fö 7/10 kl. 20, Fö 14/10 kl. 20, Lau 15/10 kl. 20 Forðist okkur Nemendaleikhusið/CommonNonsense Höf. Hugleikur Dagsson Fi 6/10 kl. 20, Fö 7/10 kl. 20, Lau 8/10 kl. 20 7. SÝN. FÖS. 7. OKT. kl. 20 ÖRFÁ SÆTI 8. SÝN. LAU. 8. OKT. kl. 20 ÖRFÁ SÆTI 9. SÝN. FÖS. 14. OKT. kl. 20 ÖRFÁ SÆTI 10. SÝN. LAU. 15. OKT. kl. 20 11. SÝN. FÖS. 21. OKT. kl. 20 12. SÝN. LAU. 22. OKT. kl. 20 eftir Thomas MEEHAN, Charles STROUSE & Martin CHARNIN Sun. 16/10 kl. 14 Laug. 22/10 kl. 15 Laug. 30/10 kl. 14 Miðasala í síma 551 4700 alla daga frá kl. 13-17 í gamla AUSTURBÆJARBÍÓI www.annie.is • www.midi.is  - DV Frábær fjölskylduskemmtun! - Fréttablaðið Miðasala í síma 4 600 200 / www.leikfelag.is Fullkomið brúðkaup - forsala hafin Fim 20.okt kl. 20 Frumsýning Fös 21. okt kl. 20 Sun 23. okt kl. 20 Fim 27. okt kl. 20 fös 28. okt kl. 20 lau 29. okt kl. 20 fös 4. nóv kl. 20 lau 5. nóv kl. 20 Síðustu dagar korta- sölunnar! 6. okt. kl. 21:00 Opnunarkvöld Leikhúskjallarans undir stjórn Arnar Árnasonar 7.-8. okt. kl. 21:00 Þetta mánaðarlega. Hugleikur 9. okt. kl. 21.00 Sunnudagsjass. Jassklúbburinn Múlinn kynnir Tríó Jóns Páls Bjarnasonar – suðupottur menningar!Leikhúskjallarinn Á dagskránni í vikunni: ÁÐUR en við snúum okkur að verk- inu sjálfu og túlkunarmeðferð þess í sýningunni er rétt að taka eftirfar- andi lykilatriði fram, fyrir þá sem ekki nenna að lesa leikdóma: Þetta er stórkostleg flugeldasýning þar sem hæfileikaríkasti leikari þjóðarinnar sýnir algera virtúósatakta. Fyrir þá sem njóta þess að upplifa list leik- arans þar sem hún er hvað sýnilegust er Ég er mín eigin kona einhver stærsti og safaríkasti konfektmoli sem boðið hefur verið upp á hér um árabil. Og víkur þá sögunni að verk- inu. Ég er mín eigin kona er byggt á ótrúlegu lífshlaupi klæðskiptingsins Charlottu von Mahlsdorf. það vafðist víst heil ósköp fyrir höfundinum að koma efni sínu í sviðsvænt form, og á endanum urðu þau vandræði ein af uppistöðum verksins. Í upphafi kynna sinna af Charlotte hélt Doug Wright að efnið væri upplyftandi hetjusaga í amerískum stíl um óbil- andi einstakling með smáðar hneigðir sem neitar að láta umhverfið kúga sig og kemst lifandi undan tveimur grimmustu alræðisríkjum aldarinnar, nasistum og kommúnistum á eigin forsendum – á háum hælum eins og segir í verkinu. Og tekst í leiðinni að bjarga merkilegum menning- arverðmætum í formi húsgagna og iðnhönnunar frá aldamótunum nítjánhundruð ásamt því að reka samkomustað fyrir samkynhneigða í Austur-Berlín, þar sem slík frávik frá alþýðlegri meðalhegðan voru víst ekki sérlega vel liðin. En svo fóru að birtast skýrslur úr söfnum austur-þýsku alríkislögregl- unnar sem bentu eindregið til að hetjuljóminn hefði mögulega kostað samferðamenn Charlottu meira en hana. Hún virtist hafa verið á mála hjá Stasi, og m.a. komið einum vini sínum og samstarfsmanni í fangelsi. Hetjuljóminn, sjálf ástæða þess að Wright taldi sögu hennar í frásögur færandi, er horfinn og eftir stendur lítilsigld manneskja sem setti grammafónasafnið sitt ofar lífi og frelsi samborgara sinna. Þessa þraut tókst Doug Wright ekki að leysa og kaus í staðinn að skrifa sjálfan sig inn í verkið og gera þróun samskiptanna við Charlottu og nýju upplýsingarnar að þungamiðju þess. Þetta er vand- ræðaleg lausn og persóna leikskálds- ins óskýr og illa mótuð í samanburði við hina aðalpersónuna. Eftir stendur að lífshlaup hennar er í raun enn skrautlegra í ljósi þessara nýju upp- lýsinga þó ekki eigi hún sérstaka að- dáun skilda. Leikstjórnarvinna Stefáns Bald- urssonar einkennist af áreynslulausri fagmennsku og trausti á leikaranum, sem kemur ekki á óvart. Umgjörð sýningarinnar er sérlega smekkleg og hugmyndalega snjöll í einfaldleik sínum. Bakveggurinn með grammófónum í fallegri lýsingu gerir ást Charlotte á þessum gripum skýra og skiljanlega, og aðrir merkisgripir eru kynntir til sögunnar á sniðugan hátt. Að öðru leyti er leikaranum látið eftir að draga upp mynd af stöðum, hlutum og aðstæðum, að ógleymdum persónunum þrjátíu. Og hvílíkur leikari! Það eru svosem engin ný tíðindi að Hilmir Snær sé bæði einhver teknískasti leikari sem hér sést á fjölum, eða að hann hafi ómælt af sviðsþokka og nærveru þannig að öll augu eru einatt á honum og samúðin með. Hitt sætir tíðindum að fá tækifæri til að fylgjast með hon- um í þrautabraut á borð við þessa. Og aldrei fatast honum. Leiftursnöggar skiptingar milli persóna, tímaskeiða og staða vekja ævinlega aðdáun, og snöggteiknaðar skopmyndir eins og sumar aukapersónurnar eru þakklát viðfangsefni. Ekkert var hér maka- lausara en danski geðlæknirinn, þar sem Hilmir nær að sýna frændþjóð- ina í skyldum skopspegli og við erum vön að skoða þjóðir á borð við Kín- verja og Indverja. Þess háttar inngróið grín geta allir gert, en þar sem skopgerving baunanna er ekki komið í fastar skorður er Hilmir þar á ókönnuðum slóðum. Að sýna manni í fyrsta sinn að taka má líkamsmál og framgöngu þjóðar slíkum tökum er afrek. Stóri galdurinn er samt sköpun Charlottu von Mahlsdorf. Langbita- stæðasta persóna verksins og til- gangur þess. Hér nær list Hilmis mögnuðum hæðum. Líkamstjáning, innlifun og tímasetningar óaðfinn- anlegar. Og hreimurinn. Þýski hreim- urinn verður Hilmi lykill að persón- unni, leysir hana úr læðingi allra klisja um karlmenn í kjólum, drottn- ingar og sviðshomma. Ein klisjan frelsar aðra. Hreimarnir eru síðan helsta vandamál sýningarinnar, eins og Stasi-skýrslurnar urðu stóri höf- uðverkur höfundarins. Sú ákvörðun að leika Charlottu með þýskum hreim er skiljanleg, djörf og þegar upp er staðið snjöll. Öðru máli gegnir um aðrar persónur. Ameríkumenn eru undantekningarlaust leiknir með amerískum hreim. Þjóðverjar aðrir en Charlotta og hinn svikni Alfred eru án hreims. Ekki er lógíkin á bak við þetta mér ljós, og Ameríkanarnir verða því miður að grunnum skop- myndum í þessari meðferð. Þarna þykir mér leikstjórinn fipast. En ekkert getur skyggt á sigur Hilmis. Ég er mín eigin kona er veisla fyrir leikhúsunnendur. Af svipuðum toga og Harlem Globetrotters fyrir körfuboltafólk. Innihaldið er svona og svona, en listirnar eru ekki annars staðar leiknar betur. Þrjátíu og fimm-þraut LEIKLIST Skámáni Höfundur: Doug Wright. Þýðandi: Guðni Kolbeinsson, leikstjóri, Stefán Bald- ursson, leikmynd: Grétar Reynisson, bún- ingar: Dýrleif Ýr Örlygsdóttir og Margrét Einarsdóttir, lýsing: Björn Bergsteinn Guðmundsson. Leikari: Hilmir Snær Guðnason. Iðnó 30. september 2005. ÉG ER MÍN EIGIN KONA „Hvílíkur leikari!“ Hilmir Snær sem Charlotte von Mahlsdorf. Þorgeir Tryggvason AUGLÝSINGADEILD netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.