Morgunblaðið - 03.10.2005, Page 40
FÆREYINGURINN Kári á Rógvi er fyrsti
doktorsneminn í lögum við Háskóla Íslands.
Ný doktorsnámsbraut hóf göngu sína haust-
ið 2004 og er Kári fyrsti og jafnframt eini
nemandinn sem er skráður við deildina.
Hann lauk lagaprófi frá Kaupmannahafn-
arháskóla og meistaraprófi frá háskólanum
í Aberdeen í Skotlandi. Hann segir að til-
viljun hafi í raun ráðið því að hann ákvað
að sækja um doktorsnámið á Íslandi. Hann
hafi upphaflega sótt um doktorsnám við
Columbia-háskólann í New York. Hann hafi
hins vegar verið í heimsókn á Íslandi og
frétt af nýju námsbraut-
inni við HÍ sem er í
samstarfi við Fróðskap-
arsetrið í Þórshöfn í
Færeyjum. Hann ákvað
að sækja um og er nú
kominn á kaf í rann-
sóknarefni sitt. Þar ber
hann saman hvernig
dómstólar í Noregi,
Danmörku, Færeyjum
og Íslandi meta hvort
lagasetningar séu í samræmi við stjórn-
arskrá landanna. „Noregur var fyrsta Evr-
ópuríkið til að koma á fót endurskoð-
unarvaldi og heimila dómstólum að kveða
upp úr með það hvort lagasetningar fari
gegn stjórnarskránni,“ segir Kári. „Þetta
var á 19. öldinni en Danmörk kom þessu á
fót fyrir aðeins tveimur árum. Ísland er
þarna á milli og það eru nokkrir íslenskir
hæstaréttardómar sem koma við sögu í
rannsókn minni, þar á meðal hinn svonefndi
kvótadómur.“
Boðið upp á doktorsnám við lagadeild Háskóla Íslands
Vildi | 20
Kári á Rógvi
Eini doktorsneminn er frá Færeyjum
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 MÁNUDAGUR 3. OKTÓBER 2005 VERÐ Í LAUSASÖLU 220 KR. MEÐ VSK.
DÆLUR
FYRIR FISKELDI
Sími 568 6625
4. SÆTIÐ
www.jorunn.is
HÆTT hefur verið við komu hljómsveit-
arinnar Babyshambles á Iceland Airwav-
es-hátíðina, vegna handtöku Pete Dohert-
ys, söngvara hljómsveitarinnar, í
Englandi í gær. Breska lögreglan handtók
Doherty, eftir að fíkniefni fundust við leit
í fórum hljómsveitarmeðlima og sautján
annarra sem sveitinni tengjast.
Þorsteinn Stephensen, framkvæmda-
stjóri Hr. Örlygs, sem er framkvæmdarað-
ili Iceland Airwaves, segir hljómsveitina
hafa átt að vera eitt helsta tromp hátíð-
arinnar. Hann býst þó ekki við að hátíðin
beri skaða af málinu, en unnið er í að leita
staðgengils fyrir sveitina. Þrátt fyrir al-
varlegan vímuefnavanda Dohertys og
persónulega krísu Babyshambles hefur
sveitin aukið vinsældir sínar hratt og
fengið lofsamlega dóma í breskum fjöl-
miðlum á árinu.
Doherty og
félagar
koma ekki
til Íslands
Pete Doherty syngur með Babyshambles.
„ÉG BIND miklar vonir við að Slippstöðin
verði endurreist og tel m.a. vegna þess hve
sjávarútvegurinn er öflugur á svæðinu að það
skipti gríðarlegu miklu máli að þarna verði
áfram þjónusta við skipaflotann,“ segir Val-
gerður Sverrisdóttir, iðnaðar- og viðskiptaráð-
herra, og bendir á að verið sé að vinna að því að
byggja fyrirtækið upp á nýjan leik. Segir hún
það mjög ánægjulegt þar sem miklu skiptir að
glata ekki þeirri gríðarlegu verkþekkingu sem
til staðar sé innan fyrirtækisins.
Hilmir Hilmisson, stjórnarformaður Slipp-
stöðvarinnar, sagðist telja góðar líkur á því að
Slippstöðin yrði endurreist með nýjum aðilum.
Sagðist hann vita um fleiri en einn aðila sem
spenntir væru fyrir því að endurreisa fyrirtæk-
ið, enda vinnuaðstaðan með besta móti á Ak-
ureyri og verkþekking mikil. Sagði Hilmir hins
vegar ekkert launungarmál að skipasmíðar
væru erfið atvinnugrein sem lengi hefði staðið
á brauðfótum, sem sæist best á öllum þeim fyr-
irtækjum í greininni sem lagt hefðu upp laup-
ana á umliðnum misserum.
Auknar endurgreiðslur
Aðspurð hvort Valgerður telji að stjórnvöld
geti eitthvað gert til að bæta stöðu skipasmíða í
landinu bendir hún á að sl. vetur hafi verið að
störfum nefnd sem hafi haft það að markmiði
að skoða hvernig bæta megi samkeppnisstöðu
greinarinnar. „Gerður var m.a. samanburður á
samkeppnisstöðunni hérlendis og í þeim lönd-
um sem við berum okkur saman við og það
kemur í ljós að við stöndum okkur ekki nægi-
lega vel,“ segir Valgerður og nefnir í því sam-
hengi endurgreiðslur á aðflutningsgjöldum sem
eru 4% í dag. Segir hún að það myndi miklu
breyta að hækka þau upp í 6%. „Þetta er mál
sem þarf að ná samstöðu um í ríkisstjórn og
miðað við þau orð sem fyrrverandi fjármálaráð-
herra lét falla á síðasta þingi um þetta mál þá
er ég mjög bjartsýn á að það takist að koma því
í höfn.“
„Það er mín bjargfasta trú að Slippstöðin
haldi áfram að starfa hér á Akureyri, enda yrði
bærinn ekki samur án stöðvarinnar,“ segir
Hákon Hákonarson, formaður Félags málmiðn-
aðarmanna, í samtali við Morgunblaðið. Bendir
hann á að Slippstöðin sé stór vinnustaður og
því afar þýðingarmikill fyrir bæinn. „Og þótt
stöðin hafi lent í þessum erfiðleikum þá er það
mín tilfinning að bæði sú þekking sem þetta
starfsfólk býr yfir og sú aðstaða sem hér er
verði ekki flutt burtu með góðu.“
Spurður hvort hann sjái fyrir sér einhverja
breytingu á starfsemi Slippstöðvarinnar haldi
hún áfram að starfa svarar Hákon því játandi.
„Ég sé fyrir mér að það haldi áfram sú þróun
sem verið hefur í Slippstöðinni undanfarin
misseri, að hún vinni ekki aðeins verkefni
tengd sjávarútvegi heldur sæki í verkefni sem
tengjast vinnu í landi eins og virkjunum og
mannvirkjasmíði.“
Mikill vilji fyrir því að
endurreisa Slippstöðina
Fleiri en einn aðili hefur lýst yfir áhuga á að endurreisa fyrirtækið
Eftir Silju Björk Huldudóttur
silja@mbl.is
Grímsey
Löngum
brælukafla
lokið
SMÁBÁTAR í Grímsey hafa ekki komist
mikið á sjó í september m.a. vegna brælu.
Þorleifur EA 88 fór á sjó á laugardag, fyrst-
ur Grímseyjarbáta, eftir átta daga brælu.
Að sögn Gylfa Þ. Gunnarssonar, skipstjóra
og útgerðarmanns, er óvenjulegt að fá svo
langan brælukafla í september.
„Það er logn hérna núna og sléttur sjór,“
sagði Gylfi. „Það eru oft frátafir í septem-
ber, kannski 1–2 dagar, en ekki átta dagar í
ruddabrælu. Ég held að það sé mjög óvana-
legt.“
Þorleifur EA er á netum og var að leita
að lóðningum þegar Morgunblaðið ræddi
við hann. „Þetta er bara hörmung sem ég er
búinn að fara yfir, en það er ekki mikið
svæði,“ sagði Gylfi. Hann sagði að vel hafi
fiskast fram eftir sumri, en svo dró úr því. Í
september voru menn lítið við veiðar.
Margir fóru á sjávarútvegssýninguna og
stór hópur Grímseyinga fór til útlanda.
„September datt eiginlega út í sjávarút-
vegssýningu, ferðalög og brælu,“ sagði
Gylfi.
Í áhöfn Þorleifs EA eru fimm og er hann
eini netabáturinn úr Grímsey, tveir Gríms-
eyjarbátar eru á dragnót í Eyjafirði en aðr-
ir á línu og handfærum.
TÆPLEGA 600 hundar, þar af yfir 100 hvolp-
ar, voru til sýnis á alþjóðlegri hundasýningu
Hundaræktarfélags Íslands í Reiðhöll Fáks í
Víðidal í Reykjavík um helgina. Þeirra á meðal
var þessi glæsilegi lögregluhundur.
Á sýningunni var tekin upp sú nýbreytni að
allar deildir félagsins voru með kynning-
arbása þar sem einstakar hundategundir voru
kynntar. Fjölmargir lögðu leið sína í Reiðhöll-
ina um helgina til að sjá fallega hunda.
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
Þjónustu- og afrekshundar voru verðlaunaðir.
Jóna Th. Viðarsdóttir og Magnús Jónatansson með verðlaunahundinn Ardbraccan Hallmark.
Margir á hundasýningu
♦♦♦