Morgunblaðið - 09.11.2005, Page 9
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. NÓVEMBER 2005 9
FRÉTTIR
Opið virka daga frá kl. 10-18 laugardaga frá kl. 10-16
• Engjateigi 5
• Sími 581 2141
Glæsilegar dragtir
Sjálfstæðismenn
Vinnum borgina
allir sem einn
Þakka frábæran stuðning
Jóhann Páll Símonarson
sjómaður
Netfang: stakkhamrarv@simnet.is - sími 863 2094
hitakútar
úr ryðfríu stáli
30 ára reynsla á
þúsundum heimila
● 30/50/100/120/200 eða 300 lítra
● Blöndunar- og öryggisloki fylgir
● Hagstætt verð
Borgartúni 28, símar 520 7901/520 7900
www.ef.is
Frábær
ending!
Pelshúfur
og -treflar
LÍKLEGT er að réttargeðdeildin á
Sogni verði stækkuð í kjölfar vinnu
starfshóps sem heilbrigðisráðherra
skipaði á dögunum. Rósa Aðalheiður
Georgsdóttir, sem beitti sér fyrir
stofnun Kærleikssjóðs Sogns, segir
nauðsynlegt að stækka deildina
verulega enda sé ósakhæfum geð-
sjúkum mönnum sífellt að fjölga.
Nýlega heimsótti Rósa Sogn
ásamt Björgólfi Guðmundssyni, for-
manni bankaráðs Landsbankans,
sem hefur stutt sjóðinn dyggilega.
Þann dag heimsótti einnig Jón
Kristjánsson, heilbrigðisráðherra,
Sogn, og lét góð orð falla um að bæta
þyrfti aðstöðuna og bæta við plássi.
„Þetta var stórkostlegur dagur,“
segir Rósa, sem finnst orð ráðherra
benda til þess að í fyrsta skipti í
langan tíma sé vilji til þess að bæta
starfsemina, byggja við og fjölga
sjúklingum sem dvalið geta á Sogni.
Hún segir þó að hvergi nærri dugi
að tvöfalda deildina eins og hug-
myndir hafi verið uppi um, heldur
þurfi að stækka verulega mikið
meira.
Á Sogni dvelja nú átta ósakhæfir
geðsjúkir, en herbergi eru fyrir sjö.
Rósa segir ljóst að það sé mikið af
geðsjúkum mönnum sem þurfi að
komast í aðstöðu eins og þá sem boð-
ið er upp á á Sogni, og ekki veiti
nokkuð af að bjóða upp á 50 pláss
þar, þótt það sé e.t.v. fjarlægur
draumur.
Rósa segist fullviss um að upp-
bygging í þessum málaflokki eigi
hvergi betur heima en á Sogni, ekki
komi til greina að byggja þjónustuna
upp í Reykjavík, sér í lagi þegar rík-
ið eigi þegar þetta fallega land í
Sogni. „Það verða að vera rólegheit
á svona stað, og þarna er himneskt
að vera,“ segir Rósa.
Vígði Rósuskjól
Réttargeðdeildin á Sogni fékk
góða gjöf þegar Rósa kom í heim-
sókn, því hún vígði við það tækifæri
nýtt gróðurhús sem komið hefur
verið upp á Sogni. Gróðurhúsinu
hefur þegar verið gefið nafnið Rósu-
skjól í virðingarskyni við þrotlausa
baráttu Rósu í þágu geðsjúkra
undanfarna áratugi.
Rósa segir að þeir menn sem
dvelja á Sogni þurfi að hafa eitthvað
við að vera, en það hafi nokkuð skort
upp á. „Þó að það sé ef til vill ekki
mikil vinna sem þessir menn geta
unnið þá er lífsnauðsynlegt fyrir þá
að hafa einhverja vinnu.“ Hún segir
að það hafi legið beint við að koma
upp litlu gróðurhúsi til þess að geta
ræktað eitthvað allan ársins hring,
en þar eru í dag ræktaðar kartöflur
og annað grænmeti yfir sumartím-
ann.
Magnús Skúlason, yfirlæknir á
Réttargeðdeildinni að Sogni, segir
gjöfina kærkomna. „Okkar starf-
semi stendur svo mikið og fellur með
því að það sé eitthvað uppbyggilegt
við að vera.“
Rósa Georgsdóttir beitir sér fyrir bættum hag réttargeðdeildarinnar á Sogni
Tvöföldun dugir ekki
Ljósmynd/Guðfinna Ólafsdóttir
Góðir gestir litu í heimsókn á Sogni á dögunum, frá vinstri: Séra Hreinn Hákonarson, Magnús Skúlason, yfirlækn-
ir á Sogni, Björgólfur Guðmundsson bankaráðsformaður, Rósa Aðalheiður Georgsdóttir, Jón Kristjánsson heil-
brigðisráðherra og Magnús Skúlason, framkvæmdastjóri Heilbrigðisstofnunar Suðurlands.
Eftir Brján Jónasson
brjann@mbl.is
FYRSTU 10 mánuði þessa árs fékk
lögregla tilkynningu um að 291 vél-
knúnu ökutæki hefði verið stolið og
eru það talsvert færri tilkynningar
en þrjú árin þar á undan, sam-
kvæmt upplýsingum frá ríkislög-
reglustjóra. Fyrstu 10 mánuði ár-
anna 2002–2004 var að meðaltali
stolið 381 ökutæki. Árið 2001 hafði
291 ökutæki verið stolið.
Árni Vigfússon, aðstoðaryfirlög-
regluþjónn í forvarnadeild lögregl-
unnar í Reykjavík, segir að í yfir-
gnæfandi fjölda tilfella komi bílar
sem stolið er í leitirnar aftur. Al-
gengast sé að þeir sem steli bílum
aki þeim á milli bæjarfélaga eða
bæjarhluta en skilji þá síðan eftir
þegar þeir hafi ekki lengur not fyr-
ir þá. Sjaldgæft sé að stolnir bílar
séu notaðir marga daga í röð en þó
séu dæmi um það. Yfirleitt eru bíl-
arnir lítið skemmdir, að sögn Árna.
Lýst eftir rauðum jeppa
Einn þeirra bíla sem lögreglan
lýsir eftir er rauður Nissan Patrol
jeppi, árgerð 1991, með skráning-
arnúmerið YU-646. Jeppanum var
stolið frá Lyngmóa í Njarðvík á
tímabilinu frá um klukkan 22, mið-
vikudaginn 2. nóvember til um
klukkan 7 morguninn eftir. Jeppinn
er rauður, upphækkaður á 38"
dekkjum með spil í framstuðara.
Samkvæmt upplýsingum frá lög-
reglu taldi vitni sig hafa séð bif-
reiðina í akstri við Rauðavatn í
Reykjavík um hádegisbil fimmtu-
daginn 3. nóvember sl. Frekari
upplýsingar hafa ekki borist og leit
hefur ekki borið árangur. Þeir sem
kynnu að hafa upplýsingar um bif-
reiðina eru vinsamlegast beðnir að
láta lögregluna vita í síma 112 eða
420 2400.
Búið að stela 291 ökutæki
það sem af er þessu ári
Jeppinn sem stolið var í Njarðvík. Lögreglan lýsir eftir honum.
Meira á mbl.is/ítarefni