Morgunblaðið - 09.11.2005, Qupperneq 20
20 MIÐVIKUDAGUR 9. NÓVEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
DAGLEGT LÍF
• Einstaklingsmiðað nám er skipulagt í
ljósi námsgetu, áhuga og stöðu hvers
nemanda.
• Nemandinn setur sér sjálfur markmið í
samvinnu við kennara og foreldra og
velur sér námsleiðir.
Menntasvið
Stefán Jón Hafstein, formaður
menntaráðs, og Gerður G.
Óskarsdóttir, sviðsstjóri
Menntasviðs Reykjavíkur-
borgar, kynna hugmynda-
fræðina á bak við
einstaklingsmiðað nám og
nýtt matstæki fyrir
grunnskóla.
Kynnt
u þér
skóla
á nýr
ri öld
Opnir fundir fyrir
skólafólk og foreldra
í Hlíðaskóla
miðvikudag
9. nóv.
kl. 20:00
í Breiðholtsskóla
fimmtudag
10. nóv.
kl. 20:00
Hvað er einstaklingsmiðað nám
og hvernig er það metið?
Í huga margra eldri ekkla virð-ist hjónabandið virkt út yfirgröf og dauða. Eftir að eig-
inkonurnar hafa kvatt þetta jarðlíf
halda eftirlifandi ekklar gjarnan
áfram að tala til þeirra og dreymir
þær oft. Mikill meirihluti þeirra
vitjar leiðis þeirra reglulega og kýs
að búa í sama umhverfi og breyta
sem minnstu frá því sem var þegar
konan var á lífi.
Þetta má m.a. lesa út úr meist-
araprófsrannsókn sem séra Bragi
Skúlason sjúkrahúsprestur hefur
gert á högum íslenskra ekkla. Úr-
takið var 358 ekklar á aldrinum 30
til 75 ára og svo jafn fjölmennur
samanburðarhópur kvæntra karla.
Ekklarnir sem lentu í rannsókninni
höfðu misst maka sína á árunum
1999, 2000 og 2001. „Tilurð rann-
sóknarinnar má rekja til þess að ég
var á sínum tíma stjórnarmaður í
Nýrri dögun, samtökum um sorg
og sorgarviðbrögð í Reykjavík, sem
höfðu það m.a. að markmiði að
skipuleggja fræðslufundi og sam-
verur um sorg. Ég tók fljótlega
eftir því að fundir þessir voru þétt
setnir konum, en karlmennirnir
sóttu ekki í þetta stuðningsnet
nema í undantekningartilfellum.
Mér fannst ég verða að fá botn í
það hverju þetta sætti og svo virð-
ist sem karlar í sorg leiti annarra
leiða en konur í sorg.“
Upplýsingafundir fyrir karla
Séra Bragi sendi karlmönnunum
ítarlega spurningalista til að svara
og fór auk þess í viðtöl við ekkla
vítt og breitt um landið til að fá
tækifæri til að hitta þá á heima-
velli. Langflestir karlar í sorg nýta
sér nánustu fjölskyldur sem stuðn-
ingsnet og um fjórðungur ekklanna
tiltók að samband þeirra við börnin
hefði orðið nánara eftir makamiss-
inn.
Ekklar áttu hins vegar lítið
frumkvæði að því að sækja sér
stuðning úti í bæ og staðfest er að
aldrei megi auglýsa stuðningsfundi
fyrir karla eða nefna þá nöfnum
sem gæfu til kynna að karlar
höndluðu ekki aðstæður sínar á
eigin spýtur.
Karlmenn eru tregir til að biðja
um hjálp enda eru þeir sífellt að
senda frá sér skilaboð um að þeir
ráði við aðstæður sínar. Stuðnings-
fundir fyrir karla verða því að
heita „upplýsingafundir“ að sögn
Braga.
Þegar rannsóknin var gerð var
liðið eitt til þrjú og hálft ár frá
makamissi. Einn af hverjum fjór-
um ekklum hafði flutt í annað hús-
næði á þessum tíma, en 75%
bjuggu á sama stað og höfðu litlu
sem engu breytt innanhúss því allt
varð að vera á sínum stað. Greini-
legt var að það heimili sem þeir
höfðu átt með konunni veitti mörg-
um ekklum öryggi og festu. Þeir
sem á hinn bóginn höfðu flutt
höfðu jafnvel flutt margoft á stutt-
um tíma og misst dálítið fótanna,
segir Bragi og bætir við að reynsla
af áhrifum sorgar á mannfólkið
hafi sýnt að best sé að stilla meiri-
háttar lífsháttabreytingum í hóf á
fyrstu mánuðum sorgarferilsins.
Betra sé að bíða og vinna breyt-
ingar hægt og rólega inn í framtíð-
ina á eigin forsendum en ekki um-
hverfisins. Þetta á t.d. við um það
hvenær tímabært sé að ganga frá
fötum og öðrum persónulegum
munum þess látna.
Falleg og virðuleg útför
Niðurstöður benda til þess að
tíminn vinni fyrr jákvætt með
yngri ekklum því þeir virðast ná
betri líðan eftir því sem tíminn líð-
ur þótt tíminn lækni ekki sárin
hjálparlaust. Á hinn bóginn er
þveröfug þróun í hópi eldri ekkla.
Að sögn Braga er skýringanna
helst að leita í gisnu stuðningsneti
því færri láta sig varða um líðan
eldri mannanna en þeirra sem
yngri eru. Kannski vegna þess að
við teljum að dauði seint á ævinni
sé tímabærari en snemma. „Tveir
þriðju hlutar ekklanna vitjuðu leið-
is makanna reglulega og 70% úr-
taksins í báðum samanburð-
arhópum sögðu að sig dreymdi
konur sínar, sem segir okkur að
draumar eru greinilega fyrirferð-
armiklir í íslenskum veruleika.
Tveir þriðju aðspurðra voru
sannfærðir um að líf væri eftir
þessa jarðvist. 61% af ekklunum
talaði um að bænin væri mikið
haldreipi í sorginni auk þess sem
þeir töldu kveðjustundir á borð við
kistulagningu og útför gríðarlega
mikilvægar. Við kistulagninguna
sameinaðist fjölskyldan í sorginni
og 89% ekklanna töldu mikilvægt
að útförin væri falleg og virðuleg.“
Fjarbúðarsamböndum fjölgar
Á meðan streita og þunglyndi
virtust meira áberandi í hópi yngri
ekkla töluðu eldri ekklar mikið um
félagslega einangrun og einsemd
eftir makamissi. Um 20% ekklanna
viðurkenndu að hafa leitað á náðir
vímugjafa til að deyfa sorgina. Að-
eins 9% ekklanna voru komin í
aðra sambúð einu til þremur og
hálfu ári eftir lát eiginkonunnar,
sem er, að sögn Braga, í svolítilli
þversögn við þá „mýtu“ að karlar
séu fljótir til að fara í annað sam-
band. Á hinn bóginn virðist svo-
kölluðum fjarbúðarsamböndum
fara fjölgandi og er þá ákaflega
mismunandi hvernig slík sambönd
eru byggð upp.
Þegar Bragi er spurður um ráð
til að vinna sig út úr sorg svarar
hann því til að ekki sé hægt að
benda á einhverja eina leið sem
hentaði öllum. „Sorgarferlið getur
verið eitt ár hjá einum og tíu ár
hjá öðrum. Fólk velur sér leiðir í
sorginni og svo gerist eitthvað í líf-
inu sem hjálpar okkur að end-
urmeta upplifanirnar. Það er hins
vegar ekkert óalgengt að sorgin
geti blossað upp fyrirvaralaust á
sérstökum fjölskyldutímamótum.
Ég er til dæmis sannfærður um að
þeir sem fella tár við skírnir, ferm-
ingar og giftingar eru ekki allir að
gráta af gleði.
Sorgin er mjög fjölþætt fyr-
irbæri og persónubundið. Sorg er
ekki sjúkdómur, en ef maður ýtir
sorginni frá sér og tekst ekki á við
hana skerðir hún raunveruleg lífs-
gæði og maðurinn lifir áfram í
skugga sorgarinnar um ókomna
tíð.“
RANNSÓKN | Karlar í sorg leita annarra leiða en konur í sorg
Ekkla dreymir látn-
ar eiginkonur sínar
Ekkjur eru yfirleitt duglegri við að sækja sér stuðning út á við en ekklar, sem einangra sig meira og treysta frekar sambönd sín við
börnin og aðra aðstandendur eftir makamissi. Séra Bragi Skúlason sagði Jóhönnu Ingvarsdóttur að svarið við vanlíðan eftir maka-
missi væri síst það að hlaupa til í meiriháttar uppstokkun á lífsmynstrinu heldur væri rétt að gera breytingarnar hægt og rólega.
Morgunblaðið/Ómar
Morgunblaðið/Ásdís
Séra Bragi Skúlason, sjúkra-
húsprestur.
join@mbl.is
’Aðeins 9% ekklannavoru komin í aðra sam-
búð einu til þremur og
hálfu ári eftir lát eig-
inkonunnar, sem er í
svolítilli þversögn við þá
„mýtu“ að karlar séu
fljótir til að fara í annað
samband.