Morgunblaðið - 09.11.2005, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. NÓVEMBER 2005 37
DAGBÓK
Selkjöt er hreint sælgæti. Það er ekkertflóknara en það,“ segir GuðmundurRagnarsson matreiðslumeistari sem ætl-ar að töfra fram herramannsmat á laug-
ardaginn þegar hin árlega „Selaveisla“ verður
haldin. Spurður um hvernig bragðið af selkjöti
líkist segir Guðmundur: „Það má eiginlega segja
að þetta sé hreindýr og svartfugl í einum bita. Það
er ekki leiðinleg blanda.“
Selkjöt var talsvert á borðum Íslendinga hér á
árum áður en neysla þess hefur minnkað mikið,
en Guðmundur segir kjötið einstaklega ljúffengt
sé það meðhöndlað á réttan hátt. „Ég fékk þetta
steikt á pönnu með brúnni sósu og lauk hjá afa og
ömmu í gamla daga, en núna fer ég með þetta líkt
og bestu nautalundir enda alveg úrvals hráefni,“
segir Guðmundur, sem fer í Breiðafjörðinn til að
skjóta sel og sér síðan sjálfur um að gera að dýr-
inu eftir kúnstarinnar reglum. „Útselskópskjötið
er einstaklega ljúffengt enda hefur kópurinn aldr-
ei borðað neitt nema móðurmjólkina. Kjötið er al-
veg lungamjúkt og það er villibráðarbragð af því.“
Erfitt er að nálgast selkjöt og segir Guð-
mundur líka mikilvægt að það sé rétt verkað.
Selaveislan, sem verður í Haukahúsinu í Hafn-
arfirði á laugardaginn, er nú haldin í þrettánda
sinn en Guðmundur hefur haft hönd í bagga síð-
ustu átta árin eða svo. „Þetta er alltaf að stækka
og verða viðameira. Þegar þetta var fyrst haldið
voru um 40 manns en núna verður þetta 200
manna veisla og ég gæti trúað að þarna verði
snæddir um 30 selir. Það skemmtilega við þetta
er að flest öllum finnst selurinn alveg rosalega
góður þó svo sumir séu ekki spenntir í byrjun.
Börnum þykir þetta alveg rosalega gott og ekki
ljúga þau. Þau hætta ekki að borða fyrr en allt er
búið og það segir manni mikið um hversu gott
kjötið er.
Ég hef verið með lambalæri með í þessu, svona
til að karlarnir geti mætt með konunum sínum.
Fyrstu árin fór talsvert af lambalærinu en núna
er það eiginlega bara orðið borðskraut,“ segir
Guðmundur.
Á matseðli kvöldins verður meðal annars grill-
að selkjöt, saltaður selur, soðinn, siginn fiskur
með selspiki og hnoðmör, súrsaðir hreifar, súrsuð
selshreifasulta, marineraður hvalur, grillað hval-
kjöt, grafin gæs og hákarl.
Húsið opnar klukkan 19.30 á laugardaginn og
borðhaldið hefst klukkustund síðar undir veislu-
stjórn Níelsar Árna Lund, skrifstofustjóra land-
búnaðarráðuneytisins. Menn þurfa að tryggja sér
miða í tíma enda mikil aðsókn í veislur undanfar-
inna ára. Miða má nálgast á Lauga-Ási á morgun
en fólk utan af landi getur haft samband við Hall-
björn Bergmann í síma 555-3461 og 848-6161.
Matur | Hin árlega „Selaveisla“ verður haldin í Haukahúsinu á laugardaginn
Selkjöt eins og besta nautalund
Guðmundur Ragn-
arsson er fæddur og
uppalinn í Reykjavík en
á ættir sínar að rekja til
Breiðafjarðar og þaðan
kemur áhugi hans á sel.
Hann er matreiðslu-
meistari og fyrrum
landsliðsmaður í grein-
inni og hefur starfað við
matreiðslu í mörg ár, nú
síðast með Magnúsi
Scheving í Latabæjarævintýrinu. „Fyrir fimm
árum ætlaði ég að taka mér þriggja daga frí á
Lauga-Ási en það teygðist eitthvað úr því,“
segir Guðmundur sem býr ásamt konu og
tveimur börnum í Garðabæ.
Úrslitaleikurinn.
Norður
♠KG87
♥92 V/Allir
♦G43
♣KD87
Vestur Austur
♠D1096532 ♠Á
♥G10543 ♥Á876
♦10 ♦K5
♣-- ♣Á106532
Suður
♠4
♥KD
♦ÁD98762
♣G94
Vestur er gjafari og fær því að hefja
leikinn. Það er freistandi að byrja á
spaðahindrun, en er það skynsamlegt
með fimmlit í hjarta til hliðar?
Það er álitamál, sem þeir svöruðu á
ólíkan hátt, Ítalinn Alfredo Versace og
Bandaríkjamaðurinn Paul Soloway.
Spilið er frá síðustu lotu úrslitaleiks
Ítala og Bandaríkjamanna á HM í
Portúgal.
Vestur Norður Austur Suður
Versace Meckstroth Lauria Rodwell
Pass Pass 1 lauf 3 tíglar
3 spaðar Pass 3 grönd Pass
4 hjörtu Pass Pass Pass
Versace kaus að passa í upphafi, en
náði síðan lendingu í fjórum hjörtum,
þrátt fyrir hindrunarsögn Rodwells í
suður. Fjögur hjörtu er gott geim og
Versace fékk 12 slagi eftir útspil í
trompi. Hann henti tígli niður í laufás
og fríaði spaðann með trompsvíningu
fyrir KG. 680 í AV.
Á hinu borðinu vakti Soloway á
þremur spöðum:
Vestur Norður Austur Suður
Soloway Fantoni Hamman Nunes
3 spaðar Pass 4 spaðar 5 tíglar
Pass Pass Dobl Pass
Pass Pass
Hamman lyfti að sjálfsögðu í fjóra
spaða og Nunes tuddaðist í fimm tígla,
sem Hamman doblaði. Útspilið var
spaði og Hamman skipti strax yfir í
laufás og lauf, sem Soloway trompaði.
Hjarta kom til baka, en vestur átti ekki
fleiri tromp, svo Nunes slapp tvo niður.
500 í AV og 5 IMPar til Ítala.
Fjórir spaðar fara niður ef norður
spilar út tígli, en laufkóngur er eðlilegt
útspil og þá vinnst geimið með því að
henda tígli niður, taka spaðaás og spila
hjartaás og hjarta. Þannig verður
hægt að ná trompinu af norðri án þess
að missa tökin.
BRIDS
Guðmundur Páll Arnarson | dagbok@mbl.is
Velvakandi
Svarað í síma 5691100 frá 10–12
og 13–15 | velvakandi@mbl.is
Hið ástkæra ylhýra
„MENN“ í íslensku þýðir mannkyn,
konur og karlar, en á ensku verður að
segja people, folks, men and women,
og person (sem starfskraftur), þótt
guys dugi á guys and ga’ls.
Mér finnst ekki neinn liður í kynja-
jafnréttisbaráttu kristinna íslenskra
kvenna að Háskóli Íslands talar um
„starfsfólk HÍ“ (ekki „starfsmenn
HÍ“). Ekki þætti mér liður í kvenna-
baráttu, og ekki góð íslenska heldur,
að orðið alþingismenn hyrfi fyrir orð-
unum alþingisfólk eða alþingismenn
og -konur. Og orð eins og „sjókonur“
er t.d. svolítið kvenrembugyltulegt.
Konur til sjós eru einfaldlega sjó-
menn. Hví eru sumir svo hvimpa að
fer út í kjánaskap?
Í heiðni er hver kona gyðjan mikla
holdi klædd. „Kvenfyrirlitning kemur
úr Gyðingdómi og er viðhaldið af
kristinni kirkju,“ segir séra Auður
Eir (Kvennakirkjan; menn fá há-
skólagráðu í svona mannfyrirlitn-
ingu). Ég þekkti guðfræðing sem
fékk ekki að taka vígslu vegna þess
að hún var ekki karlmaður. Kristnir
menn á Íslandi vilja ekki lengur hafa
þetta. Í Róm var dyggð að berja kon-
ur. Myrkar aldir, „kali yuga“, eru
þegar vitundarstig þjóða er lágt.
Lúkas bjó víst til hlýðnu Gyð-
ingastúlkuna Miriam. Maríudýrkun
er rómversk útgáfa af hinni virtu göf-
ugu gyðju – sem heimsveldinu tókst
illa að banna.
Heiðnir menn virða hvert víf sem
gyðju, Freyju, þ.e. göfugan sköp-
unarkraftinn holdi klæddan. Og elska
dísir drauma sinna. Þannig er okkar
forna menning. Nú hækkum við vit-
undarstig í heiminum og „satya
yuga“ er að koma.
Guðrún Kristín Magnúsdóttir,
rithöfundur.
Skínandi þáttur
ÉG er sammála þeim aðilum sem
skrifað hafa nýlega í Velvakanda um
þáttinn Mósaík og skil ekki hvers
vegna þessi skínandi þáttur var tek-
inn af dagskrá.
Ég óska eindregið eftir að þessi
þáttur verði tekinn aftur á dagskrá
með Jónatan Garðarsson sem þátta-
stjórnanda.
Margrét.
Sakna Mósaíks
ÉG sakna þess að sjá ekki þáttinn
Mósaík og vonast til að hann komi á
dagskrá aftur.
Kristín.
Þakklæti
ÉG vil koma á framfæri góðri kveðju
og þakklæti til Stefáns Karlssonar
læknis og hans starfsfólks í gamla
rafveituhúsinu við Suðurlandsbraut.
Óska ég þeim alls góðs með miklu
þakklæti bæði fyrr og síðar.
Sæmundur Þorsteinsson.
Samheldni
DALVÍKINGAR. Flugvöllur í
Reykjavík er okkar mál. Bruggverk-
smiðja er ykkar mál.
Ef íbúar Reykjavíkur skyldu dirf-
ast aðskipta sér af ykkar málum, þá
er það slæmt.
Eining meðal okkar þjóðar var síð-
ast í landhelgisdeilunni.
Síðan smáhlutir. Virðið það að
meta okkur vitsmunalega þó við
séum vissulega sunnar.
Með vinsemd og virðingu.
Helgi Steingrímsson,
Laugarnesvegi 88,
Reykjavík.
1. e4 c5 2. Rf3 d6 3. d4 cxd4 4. Rxd4 Rf6
5. Rc3 Rc6 6. Bg5 e6 7. Dd2 Be7 8. 0–
0–0 Rxd4 9. Dxd4 0–0 10. e5 dxe5 11.
Dxe5 Bd7 12. Be2 Hc8 13. Be3 a6 14.
g4 b5 15. g5 Re8 16. Re4 Dc7 17. Dxc7
Hxc7 18. Hhg1 Bc6 19. Rc5 Bf3 20.
Bxf3 Bxc5 21. Hge1 Bxe3+ 22. Hxe3
Hc5 23. h4 Rc7 24. Hd7 f6 25. Be4 fxg5
26. hxg5 Hxf2 27. b4 Hc4 28. Bd3 Hc6
29. Hh3 h5 30. Hxh5 e5
Staðan kom upp í heimsmeist-
arakeppni landsliða sem fer senn að
ljúka í Beer-Sheva í Ísrael. Vladimir
Akopjan (2.707) frá Armeníu hafði
hvítt gegn georgíska stórmeistaranum
Baadur Jobava (2.601). Sá armenski
hefur lengi verið á meðal þeirra bestu í
heimi og lauk hann nú þessari skák
með snyrtilegri fórn. 31. Hh8+! og
svartur gafst upp enda verður hann
mát eftir 31. … Kxh8 32. Hd8+.
SKÁK
Helgi Áss Grétarsson | dagbok@mbl.is
Hvítur á leik.
Á ÞESSU starfsári verða 23 kyrrð-
ardagar í Skálholti. Hefur þessi
starfsemi vaxið mjög enda augljóst
að slíkir dagar mæta þörfum nú-
tímafólks sem býr við meiri streitu
og álag en hollt er. Boðið er upp á
hina hefðbundnu kyrrðardaga þar
sem kyrrðin og þögnin eru í fyr-
irrúmi en einnig eru framundan
tvennir kyrrðardagar í Skálholti og
eru hvorir tveggja nýbreytni.
Karladagar
Um helgina, 11.–13. nóvember,
verða kyrrðardagar karla, þar sem
dagskráin og ytra form er mótað af
væntingum og áhugasviðum karla.
Sr. Bragi Skúlason sjúkra-
húsprestur annast leiðsögnina en
hann hefur um árabil leitt umræðu-
hópa karla.
Kyrrðardagarnir hefjast á föstu-
dagskvöld og þeim lýkur síðdegis á
sunnudag.
Þessir kyrrðardagar munu veita
andlega og líkamlega hvíld og upp-
byggingu auk þess sem boðið er upp
á skemmtilega útiveru og fróðlega
sögugöngu. Þátttakendur búa í sér-
herbergjum og við veislukost. Það er
boðið upp á trúnaðarsamtöl og að
taka þátt í helgihaldi staðarins.
Úr fortíðarfjötrum
Þriðjudaginn á eftir, 15. nóv., hefj-
ast aðrir kyrrðardagar og mjög ólík-
ir þótt ytra formið sé svipað og
kyrrðin móti dagskrána. Systkinin
Sólveig Pétursdóttir félagsmála-
stjóri og dr. Pétur Pétursson pró-
fessor leiða dagana. Þar verða íhug-
anir dr. Péturs og leikræn tjáning
undir leiðsögn Sólveigar notuð til
þess að hjálpa fólki til að varpa af
sér byrðum fortíðarinnar í formi erf-
iðra minninga og njóta betur þess
sem lífið býður upp á.
Nánari upplýsingar og skráning
er í Skálholtsskóla, sími 486 8870,
skoli@skalholt.is.
Tvennir áhugaverðir
kyrrðardagar í Skálholti
Skálholt
WWW.NOWFOODS.COM
Góð heilsa gulli betri
Sverrir Kristinsson lögg. fasteignasali
Viðskiptavinur okkar óskar eftir húsi samkvæmt
framangreindri lýsingu. Æskileg stærð 250-300 fm.
Nánari upplýsingar veitir Sverrir Kristinsson.
EINBÝLI, RAÐHÚS EÐA PARHÚS
Í SUÐURHLÍÐUM ÓSKAST
245 fm raðhús á þremur pöllum með innbyggð-
um bílskúr og aukaíbúð í kjallara (í leigu fyrir 50
þús pr. mán). Húsið skiptist þannig á 1. hæð er
forstofa, hol, gestasnyrting, eldhús,sjónvarps-
herbergi, stofa og borðstofa. Á efri hæð eru
þrjú svefnherbergi (voru fjögur) og baðherbergi.
Bílskúrinn er með rafm. og hita. Í kjallara er
þvottahús og tveggja herbergja aukaíbúð.
Gunnar Hansson teiknaði húsið, en innréttingar
teiknaði Sveinn Kjarval. V. 45 m. 5330
HVASSALEITI - VEL STAÐSETT
Sverrir Kristinsson lögg. fasteignasali