Morgunblaðið - 09.11.2005, Qupperneq 41

Morgunblaðið - 09.11.2005, Qupperneq 41
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. NÓVEMBER 2005 41 MENNING ÍSLENSKA óperan boðar til fyrstu samkomu Óperudeiglunnar á fimmtudag kl. 16.00 í Íslensku óp- erunni við Ingólfsstræti. Markmið Óperudeiglunnar er að stuðla að því að samdar verði nýjar óperur fyrir almenning. Efni fundarins verður kynning á Óperudeiglunni og um- ræður um áherslur og leiðir í fram- kvæmd verkefnisins. Með Óperudeiglunni vill Íslenska óperan skapa vettvang fyrir til- raunastarf og nýsköpun á sviði óp- erulistar. Gengið er út frá því að kveikjan að nýrri óperu geti komið úr ýmsum átttum og að galdurinn sem þarf til að smíða góða óperu sé sjaldan á valdi einnar manneskju. Einnig er gengið út frá því að í kjarna óperulistar sé mannsröddin sem háþróað hljóðfæri. Tilgang- urinn með Óperudeiglunni er að laða áhugasama einstaklinga með ólíka sérþekkingu til samstarfs um ákveð- ið tilraunaferli sem með tíð og tíma kann að fæða af sér áhugaverð verk fyrir óperuhús 21. aldar. Óperudeiglu Íslensku óperunnar er ætlað að vera tvennt í senn: Ann- ars vegar opinn vettvangur til um- fjöllunar og skoðanaskipta um óp- erusmíði. Hins vegar skipulegt vinnuferli hópa einstaklinga með ólíka sérþekkingu sem vilja gera til- raunir með óperuformið í þeim til- gangi að skapa ný verk sem höfða til margra. Óperudeiglan mun halda opna málfundi og starfsfundi um óp- erulist þar sem jafnframt er fjallað á gagnrýninn hátt um verk til- raunahópanna. Fyrsta samkoma Óperu- deiglunnar www.opera.is Sex blaðsíður í nýjasta heftilisttímaritsins Art in Am-erica eru tileinkaðar mynd- listarþætti Listahátíðar í Reykjavík í vor sem leið. Það er myndlist- argagnrýnandinn Lilly Wei sem skrifar, en hún býr og starfar í New York-borg. Wei fer fögrum orðum um hátíð- ina og landið sjálft, kallar atburð- inn „ævintýraferð til jafns við listahátíð“, sem að hennar mati var „fyrsta flokks“.    Wei hefur greinina á því að lýsakvikmynd Ara Alexanders, Gargandi snilld, sem var eitt af opnunaratriðum Listahátíðar í ár. „Hún var eggjandi kynning og boð- aði hinn sterka, staðbundna tón fyr- ir hina umfangsmiklu og metn- aðarfullu hátíð, sem, á næstu dögum, varð ævintýraferð til jafns við listhátíð,“ segir Wei. „Staðsett á ríflega 20 stöðum víðsvegar um landið, stundum á stöðum með mörg hundruð mílna millibili, hóf hátíðin menningartengda ferða- þjónustu í nýjar hæðir. Sýning- arstjórar og listamenn nýttu landið – hið hrífandi fagra landslag hvera, jökla, fossa, eldfjalla og hraun- breiða, menningu þess og sögu – sem meira en umgjörð. Það varð, á undraverðan hátt, hluti af sýning- unni sjálfri.“ Í greininni lýsir Wei ennfremur uppbyggingu hátíðarinnar, hvernig hún var tileinkuð Dieter Roth og verkum hans, og hvernig 35 mynd- listarmenn, íslenskir og erlendir, voru fengnir til að gera verk sem kölluðust á að einhverju leyti við verk Roths, þó stundum hafi teng- ingin þar á milli verið óljós að henn- ar mati. Þá bendir hún á að flestir listamennirnir hafi verið frá Vest- ur-Evrópu eða Skandinavíu, margir íslenskir, og einungis fjórðungur kvenkyns, þar af allar nema ein fæddar eftir 1970. Er að skilja á Wei að henni hafi þótt val á lista- mönnum heldur einsleitt, en í heild- ina er hún þó afar jákvæð gagnvart hátíðinni. „Eins og títt er með slík- ar samkomur, voru innsetningar og myndbönd í öndvegi. Framsetn- ingar voru allt frá óhóflegri drama- tík til ítrustu naumhyggju. Per- sónulegar, félagslegar og umhverfislegar hugleiðingar voru allsráðandi, meðan húmor og kald- hæðni, þó ekki alls fjarri, lentu í aftursætinu.“    Skipulag myndlistarþáttar hátíð-arinnar að þessu sinni var þannig að honum var skipt í tvo hluta, og fer Wei nokkrum orðum um það fyrirkomulag. Sýningin Lest, sem innihélt verk Dieter Roths, var að mati Wei yfirgrips- meiri og settlegri en farandsýning á verkum hans, sem sýnd var í nú- tímalistasafni New York-borgar, MoMA í fyrra, en þó á engan hátt minna róttæk. Verkefnið Tími- rými-tilvera, sem innihélt sýningar margra ólíkra listamanna og Jes- sica Morgan frá Tate Modern- safninu í London stýrði, var að mati Wei „snjöll, ungleg, vel samansett, fremur aðgengilegri en ekki – al- varlega ígrunduð, innihaldsrík sýn- ing.“    Wei lýsir verkum flestra mynd-listarmannanna á hátíðinni, en leggur lítið persónulegt mat á hvernig til tókst hverju sinni. Að hennar mati var þó framlag Matth- ew Barney og Gabríelu Friðriks- dóttur í Listasafninu á Akureyri einn af hápunktum hátíðarinnar. Hún lýsir hringfluginu, þar sem blaðamenn og aðrir gestir flugu milli sýningaropnana í öllum lands- hlutum á einum degi, af áhuga, enda virðist hún telja – eins og hún bendir á í upphafi greinarinnar – að landið sjálft hafi skipað veiga- mikinn sess í hátíðinni. Hún lýkur greininni á þessum orðum: „Hin gegnumgangandi umræða í Tími- rými-tilvera snerist um Ísland, sem, að lokum, var hin sanna stjarna á þessari heitu og köldu, fyrsta flokks hátíð – að Dieter Roth und- anskildum.“ Ísland stjarnan á fyrsta flokks hátíð ’Wei fer fögrum orðum um hátíðina oglandið sjálft, kallar atburðinn „ævintýra- ferð til jafns við listahátíð“, sem að hennar mati var „fyrsta flokks“.‘ AF LISTUM Inga María Leifsdóttir Morgunblaðið/Jim Smart Stóra borðrústin eftir Dieter Roth var sýnd í Listasafni Íslands á Listahátíð í Reykjavík í vor. ingamaria@mbl.is Morgunblaðið/Sverrir Fullkomið augnablik / Óskabrunnur eftir Heklu Dögg Jónsdóttur var hluti af verkefninu Tími – rými – tilvera og sýnt í Gerðarsafni í Kópavogi. MÁLIÐMOG GANUM Á MORGUNMÁLI Ð FYLGIR MEÐ LJÓSINU KASTAÐ Á RAGNHILD I STEINUN NI SJÓNVAR PSKONAN , HÁSKÓL ANEMINN OG LEIKK ONAN

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.