Morgunblaðið - 09.11.2005, Blaðsíða 42
42 MIÐVIKUDAGUR 9. NÓVEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
Ný Íslensk heimildarmynd sem
hefur farið sigurför um heiminnSýnd kl. 5.30 og 10.30 B.i. 12 ára
Sýnd kl. 5, 8 og 10.45 B.i. 12 ára
Sýnd kl. 5.40 og 8
DREW
BARRYMORE
JIMMY
FALLON
MMJ - kvikmyndir.com
S.V. / MBL
Africa
United
S.V. Mbl.
TOPP5.is
Ó.H.T. Rás 2
S.k. Dv
Sýnd kl. 5.30 og 8
kl. 5, 8 og 10.40
Sýnd kl. 5, 8 og 10.40
Sýnd kl. 4 og 6 Sýnd kl. 10.40 B.i. 16
SÁ BESTI Í BRANSANUM
ER MÆTTUR AFTUR!
hörku spennumynd frá
leikstjóra 2 fast 2 furious
og boyz´n the hood
Þeir voru leiddir í gildru...
nú þarf einhver að gjalda!
Sýnd kl. 8 og 10.15 bi. 16 ára
Hún er besti vinur þinn
og versti óvinur þinn Hún
er eina persónan sem þú
getur ekki verið án
Frá leikstjóra 8 Mile & LA Confidential og
handritshöfundi Erin Brockovich
Miðasala opnar kl. 15.30
FARÐU TIL HELVÍTIS!
MBL
TOPP5.IS
MBL
TOPP5.IS
Sýnd kl. 3.50Sýnd kl. 10.15 B.i. 16
TOPP MYNDIN Á ÍSLANDI Í 2 VIKUR
Sími 564 0000
TOPP MYNDIN Á ÍSLANDI Í 2 VIKUR
„Frábær
kvikmynd,
áhugaverðari
og fyndnari
en flestar
þær sem
boðið hefur
verið upp á
undanfarið“
MMJ
Kvikmyndir.com
Frá leikstjóra 8 Mile & LA Confidential
og handritshöfundi Erin Brockovich
Hún er besti vinur þinn og versti óvinur þinn.
Hún er eina persónan sem þú getur ekki verið án
MMJ Kvikmyndir.com
UNGFRÚ Íslands, Unnur Birna Vil-
hjálmsdóttir, heldur til Kína í dag til
þátttöku í fegurðarsamkeppninni
Ungfrú heimur en keppnin fer fram
hinn 10. desember næstkomandi.
Unnur Birna ætlar sér að skrifa
um keppnina og ferðalagið á vef
Morgunblaðsins og hægt verður að
skoða dagbókarfærslur hennar og
myndir frá ferðinni inn á Fólksvef
mbl.is.
Unnur Birna segir að hún sé byrj-
uð að finna fyrir svolitlum taugatitr-
ingi en þó sé eftirvæntingin ennþá
mjög mikil. „Ég er svolítið stressuð
en líka mjög spennt. Þetta verður
örugglega mjög strembið. Fyrstu
tvær vikurnar verð ég mikið að
ferðast um Kína og þá verða dag-
bókarfærslurnar ef til vill svolítið
stopular en eftir það verða þetta að-
allega æfingar í bænum þar sem
keppnin fer fram í bland við ýmsa
kynningarstarfsemi, myndatökur og
tískusýningar og þá ætla ég að vera
dugleg að skrifa um það sem fyrir
augu ber.“
Keppnin sjálf fer fram í bænum
Sanya sem stendur á eyjunni Hainan
úti fyrir Hong Kong. Þar mun hún
etja kappi við rúmlega 100 aðrar
fegurðardrottningar um titilinn
Ungfrú heimur. Og þá geta hlutir
eins og réttur kjóll skipt miklu máli.
„Já, ég verð í sama kjól og ég
klæddist í keppninni hér heima sem
mamma saumaði. Hún hefur þó gert
smávægilegar breytingar á kjólnum
sem gera mjög mikið fyrir hann,“
segir Unnur Birna og það er aug-
ljóst að hún er ánægð með kjólinn og
mömmu sína Unni Steinsson sem
sjálf lenti í 4.–5. sæti í þessari sömu
keppni árið 1983, fyrst íslenskra feg-
urðardrottninga til að komast í úr-
slit.
Unnur Birna segist ekki mikið
hafa skoðað þær stúlkur sem hún
mun keppa við í Kína. „Þetta eru um
115 stelpur þannig að það er ógern-
ingur að leggja eitthvert mat á
þetta. Ég hef aðeins verið að skoða
þessa veðbanka mér til skemmtunar
en það er það sama með þá; þeir eru
svo margir að það er erfitt að henda
reiður á því sem mark er á takandi.“
Ungfrú heimur | Unnur Birna Vilhjálms-
dóttir heldur úti dagbók á mbl.is
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
Unnur Birna Vilhjálmsdóttir með móður sinni, Unni Steinsson.
Stressuð en spennt
FYRIR margt löngu ákvað Siggi
Björns að afla sér lífsviðurværis
með tónlist eingöngu, sjómannslífið
var kvatt og þess í stað var veruleiki
söngvaskáldsins umfaðmaður. Vel
hefur þetta gengið, Siggi hefur
flakkað heimshorna á milli með gít-
ar og ráma rödd að vopni og plöt-
urnar eru orðnar þónokkrar. Sú síð-
asta, Patches, kom út í fyrra, hreint
ágætis plata sem Siggi vann með
Bretanum Keith Hopcroft. Í þetta
sinnið er hann
orðinn einn á
nýjan leik, er
kominn
„heim“, en
platan var unn-
in á Flateyri
þar sem Siggi
ólst upp. Söngvaskáldið hefur haft
það fyrir sið að snúa reglulega aftur
til þessara heimastöðva, þar sem
flakkið er hvílt og batteríin hlaðin.
Stories ber einkenni þessa, og mað-
ur sér Sigga nánast fyrir sér, af-
slappaðan á veröndinni með gít-
arinn og með hina ægilegu en
friðsömu vestfirsku fjallasýn fyrir
framan sig. Platan einkennist af
þessari rósemd, er blátt áfram og
stælalaus, líkt og Siggi sjálfur. Tón-
listin er sígild trúbadúratónlist,
blúsuð og rokkuð á víxl með vísun í
tónlistarhefðir beggja vegna Atl-
antsála og upp á Skandinavíuskaga
einnig. Hljómur plötunnar er hlýr
og notalegur og auðheyranlega eru
engir aukvisar við hljóðfærin.
Í veglegum bæklingi, sem er ríku-
lega myndskreyttur, er ekki bara að
finna alla texta (sem ortir eru á al-
þjóðamálinu ensku) heldur og stutt-
ar greinargerðir fyrir öllum lög-
unum. Þetta er vel til fundið og
dýpkar upplifunina. Og þó að um-
fjöllunarefnin séu oft æði alvarleg
er aldrei depurð eða myrkur yfir
plötunni. Stundum finnst manni eins
og allflestir trúbadúrar samtímans
finni sig knúna til að leita í ang-
urværð og ömurð eftir andagift en
svo er ekki með Sigga. Útgangs-
punktur textanna er alltaf glaðværð
og bjartsýni, vilji til að láta ekki
bugast þótt á móti blási. Þessi reisn
er rígbundin í lög plötunnar og ger-
ir hana nokk heillandi. Siggi sjálfur
er þá mikill sjarmör og hefur sterka
nálægð á plötunni. Þó að mörg
lagana séu æði hefðbundin, jafnvel
fyrirsjáanleg, valda þessir þættir
því að maður tekur vart eftir því.
Eins og titill plötunnar gefur til
kynna eru textar laganna stuttar
sögur, dregnar úr reynsluheimi
Sigga. Segja má að Siggi sé nokkurs
konar „lífskúnstner“, hann hefur átt
viðburðaríka ævi og í honum er du-
lítill heimspekingur sem veltir fyrir
sér eilífðarspurningum er snúa að
ástinni, lífinu, dauðanum og fallvalt-
leika tilverunnar almennt. Í „Those
days are gone“ minnist hann gamals
vinar sem varð óreglu að bráð, í
„The Postcard“ er vöngum velt yfir
hraða og firringu nútímans og í
„Laughing in the rain“ er þraut-
seigja mannsandans sett undir smá-
sjána. Besta lag plötunnar er svo
hið fallega „Voices in the night“ þar
sem Siggi gerir upp við hörmung-
arnar er dundu á Flateyri haustið
1995.
Í fyrstu hljómar Stories sem
fremur venjuleg trúbadúraplata en
þegar lengra er haldið kemur marg-
slungnara verk í ljós. Ber hún höf-
undi gott vitni sem kann nú sitt fag
upp á tíu, eða svo gott sem.
Sögur að
vestan
TÓNLIST
Íslenskar plötur
Lög og textar eftir Sigga Björns. Eitt lag
er eftir Leadbelly og E. Bøgh kemur að
nokkrum textum. Siggi Björns syngur og
leikur á kassagítara, sex strengja banjó
og þvottabretti. Olavi Körre leikur á man-
dólín, búsúkí, fiðlu, selló, túbu og gríska
lýru; Einar Valur Einarsson leikur á
bassa, Önundur Pálsson sér um trommu-
og slagverksslátt, Halldór Pálsson spilar
á rafgítar, mandólín og kassagítar, Lýður
Árnason leikur á munnorgel og Esben
„Langkniv“ Laursen leikur á fetilgítar.
„Brúðkjólabandið“ sér um bakraddir en
það skipa þær Íris Sveinsdóttir, Soffía
Vagnsdóttir og Pálína Vagnsdóttir. Upp-
tökustjórn var í höndum Lýðs Árnasonar
og Sigga en Lýður sá um að snúa tökkum
og renna sleðum. Foxhold gefur út.
Siggi Björns – Stories
Arnar Eggert Thoroddsen
Í NÓVEMBER í fyrra tóku nokkrir
fræknir pylsugerðarmenn hjá Slát-
urfélagi Suðurlands sig saman og
gerðu heimsins lengstu pylsu. Pyls-
an var 11,92 metrar og sló þar með
fyrrum lengdarmet, en það var 10,5
metra löng pylsa sem gerð var í
Pretoríu í Suður-Afríku árið 2003.
Á dögunum fengu heimsmethaf-
arnir afhent viðurkenningarskjal frá
Heimsmetabók Guinness sem stað-
festi heimsmetið. Heimsmetabók
Guinness 2006 er væntanleg í versl-
anir hér á landi á næstunni en heims-
metið í pylsugerð náði ekki inn í þá
útgáfu af bókinni. Um það verður þó
fjallað í næstu útgáfu en Edda út-
gáfa gefur heimsmetabókina út ár
hvert.
Það var talsvert þrekvirki að
koma saman lengstu pylsu í heimi.
Stór hópur pyslugerðarmanna SS á
Hvolsvelli þurfti að smíða sérstakan
stálbakka undir hana svo hún beygl-
aðist ekki, hita hana síðan í bakk-
anum og síðast en ekki síst búa til
görn sem væri nægilega löng. Pylsan
var svo flutt í 42 feta
gámi til Reykjavíkur
þar sem henni var kom-
ið fyrir í pylsubrauði
frá Myllunni. Eftir að
viðeigandi meðlæti var
bætt á pylsuna, og hún
mæld í bak og fyrir,
bragðaði Guðni Ágústs-
son landbúnaðarráð-
herra fyrstur á heims-
methafanum og líkaði
vel.
Næstkomandi laug-
ardag stendur svo til að
bæta enn einu íslenska
heimsmetinu í Heims-
metabók Guinness.
Áætlað er að safna
saman 500 manns með
jójó í Smáralindina og
jójóa stanslaust í tvær
mínútur. Reynt verður
að slá þriggja ára gam-
alt met sem sett var í
Írlandi þegar 426 Írar
jójóuðu í 2 mínútur
samfellt.
Heimsmet | Íslendingar í Heimsmetabók Guinness
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Heimsmethafarnir. Aftari röð frá vinstri Guðjón Guðmundsson, Jón Þor-
steinsson, Benedikt Benediktsson. Fremri röð frá vinstri Björgvin Daní-
elsson, Vigfús Steingrímsson, Björgvin Bjarnason og Oddur Árnason.
Viðurkenningarskjal
heimsmetabókarinnar.
Pylsur
og jójó