Morgunblaðið - 09.11.2005, Side 44
44 MIÐVIKUDAGUR 9. NÓVEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
Enn eitt snilldarverkið frá Tim Burton
(“Charlie and the ChocolateFactory”).
Með hinum eina sanna Johnny Depp.
Ein frumlegasta mynd ársins.
S.V. / MBL
DV
hörku spennumynd frá
leikstjóra 2 fast 2 furious
og boyz´n the hood
Þeir voru leiddir í gildru...
nú þarf einhver að gjalda!
Spenntu beltin og undirbúðu þig undir
háspennumynd ársins með
Óskarsverðlaunahafanum Jodie Foster.
„Meistaraverk!” - San Fran Chronicle
„Fullkomin!“ - The New Yorkera
„Langbesta mynd ársins!“ - Slate
Mörgæsamyndin sem er að slá í gegn
um allan heim og mun heilla alla
Íslendinga upp úr skónum.
OKTÓBERBÍÓFEST
L'enfant • Sýnd kl. 6
The Assas. of R. Nixon • Sýnd kl. 6
La Marche De L´empereur • Sýnd kl. 6, 8 og 10
Guy X • Sýnd kl. 8
Drabet • Sýnd kl. 8
DIG! • Sýnd kl. 10
Voces Inocentes • Sýnd kl. 10
26. október -
14. nóvember
Four brothers b.i. 16 ára
kl. 5.40 - 8 - 10.20
Corpse Bride
kl. 6 - 8 - 10
TOPPMYNDIN Á ÍSLANDI 2 VIKUR Í RÖÐ
M.M.J. / Kvikmyndir.com
Kvikmyndir.is
Roger Ebert
S.V. / MBL
„Hreint listaverk!“
- Fréttablaðið
!"##
$$
% & '(
(
)(
*(
+(
,(
-(
.(
/(
'0(
' 9
## 5$3
## I
@3
2"$ 9$7 F5
0 %9$%@1#
L
Í SOUTH Central hverfinu í Los
Angeles búa ungmenni sem eiga sér
litla framtíðarvon. Þetta er enda
gettóið, þar sem blökkumenn búa við
fátækt og atvinnuleysi og þá hættu að
verða fyrir byssukúlum glæpagengja
þegar þeir eru á leiðinni út í búð. Það
á fyrir mörgum unglingum að liggja
að leiðast út í glæpastarfemi og eitur-
lyfjaneyslu en ofbeldið og eymdin er
allt í kringum þau. Thomas Johnson
er fyrrverandi meðlimur úr glæpak-
líku sem sneri við blaðinu og fór að
skemmta börnum í hverfinu í gervi
trúðsins Tommy. Hann notaði dans
til þess að virkja krakkana og fjöl-
skyldur þeirra og smám saman þró-
aðist leikræn og kraftmikil tegund af
dansi sem miðar að því að virkja
sköpunarkraft og gleði og fá útrás
fyrir reiði og andóf á skapandi hátt.
Heill menningarkimi hefur síðan
sprottið upp í kringum danstækni
Johnsons, en í trúðsdansinum og til-
brigði hans sem kallast „krump“
sameinast hópar ungs fólks um upp-
byggilega listræna tjáningu og sam-
félagslega nærveru í stað þess að
leita í eiturlyf og ofbeldi. David
LaChapelle fjallar um krumpið, ræt-
ur þess og eðli í þessari kraftmiklu
heimildarmynd sem sýnd er þessa
dagana á Októberbíófest. Þar er
brugðið upp næmri mynd af „dans-
gengjunum“ sem ástunda dansinn og
keppa í einvígjum sín á milli. Þar lýsa
þau því af innsæi hvaða þýðingu
dansinn hefur, fyrir þau persónulega
og samfélagið sem hverfist um hann.
Þá er upplifun út af fyrir sig að fylgj-
ast með dönsurum á öllum aldri,
strákum jafnt sem stelpum, spreyta
sig í dansinsum sem byggist á hröð-
um og kraftmiklum hip-hop hreyf-
ingum. En dansinum er í raun ekki
hægt að lýsa með orðum – aðeins sjá
með eigin augum.
Dansararnir
í South Central
KVIKMYNDIR
Háskólabíó: Októberbíófest
Leikstjórn: David LaChapelle. Heimild-
armynd. Bandaríkin, 86 mín.
Upprisa (Rize) Heiða Jóhannsdóttir
Brugðið er upp næmri mynd af dansgengjunum í myndinni.
Útlánið gildir í 45 mínútur og
geta lánþegar sest niður með hin-
um „lifandi bókum“ og rætt við
þær um það sem þeim býr í brjósti.
„Bækurnar setja sín eigin mörk
en það er hægt að spyrja þær um
hvað sem er,“ segir Ösp og bætir
við að starfsmenn séu bjartsýnir á
góða þátttöku.
„Við höfum fengið mjög jákvæð
viðbrögð frá almenningi og vonum
að sem flestir nýti sér þessa þjón-
ustu.“
Hugmyndina um Lifandi bóka-
safn má rekja til Danmerkur en ár-
ið 2000 var þessu fyrst hrint í
framkvæmd á árlegri Hróars-
kelduhátíð þar í landi. Lifandi
bókasafn hefur nú verið sett á
laggirnar víða um Evrópu í
tengslum við ýmiss konar lista- og
menningarhátíðir.
Unglist | Nýstárlegt bókasafn í Hinu húsinu
Fólk til
útláns
Morgunblaðið/Þorkell
Það verða „lifandi bækur“ á boðstólunum í Hinu húsinu í dag.
Eftir Birtu Björnsdóttur
birta@mbl.is
BÝSNA nýstárlegt bókasafn verður
rekið í upplýsingamiðstöð Hins
hússins í dag, fimmtudag og föstu-
dag milli klukkan 14 og 18. Gestir
og gangandi geta fengið að láni í 45
mínútur í senn „lifandi bækur“,
sem í þessu tilfelli eru manneskjur.
Tilgangurinn með útláninu er að
gefa almenningi kost á að kynnast
ólíku fólki sem gæti flokkast undir
minnihlutahópa í samfélaginu eða
hópa sem oftar en ekki mæta for-
dómum frá samferðamönnum. Er
meðal annars hægt að fá til útláns
samkynhneigðan og tvíkynhneigðan
einstakling, innflytjanda, fyrrver-
andi fíkniefnaneytanda, prest og
HIV-smitaðan einstakling, að sögn
Aspar Árnadóttur hjá Hinu húsinu.
Ösp segir útlánin fara fram líkt
og á öðrum bókasöfnum.
„Við verðum með möppu hér í
upplýsingamiðstöðinni sem hefur
að geyma upplýsingar um þá sem
eru til útláns. Upplýsingarnar
verða ekki persónulegar heldur
með svipuðu sniði og upplýsingar
aftan á bókarkápum,“ segir Ösp.
NÝR ÍSLENSKUR spurninga-
þáttur hefur göngu sína á Stöð 2 í
desember og ber hann heitið Meist-
arinn.
Þátturinn á sér ekki erlenda fyr-
irmynd, en hér mun vera á ferðinni
spurningaþáttur fyrir alla fjöl-
skylduna þar sem bæði reynir á
þekkingu og kænsku þátttakenda.
Logi Bergmann Eiðsson verður
stjórnandi Meistarans, en hann var
sem kunnugt er spyrill í Gettu bet-
ur undanfarin ár.
Það er til mikils að vinna fyrir
Meistara Íslands en fyrstu verð-
laun eru fimm milljónir króna.
Þátttaka er öllum opin, svo
framarlega sem fólk hefur náð 20
ára aldri. Inntökupróf fara fram á
laugardaginn kemur víða um land.
Áhugasamir geta mætt klukkan 14
á laugardaginn á einhvern eftirtal-
inna staða og svarað þar 20 spurn-
ingum til að reyna að vera með í
þættinum: Hagaskóla í Reykjavík,
Háskólann á Akureyri, Mennta-
skólann á Egilsstöðum og Mennta-
skólann á Ísafirði.
Sjónvarp | Nýr spurningaþáttur á Stöð 2
Leitin að Meistaranum
Logi Bergmann Eiðsson er þáttarstjórnandi Meistarans.