Morgunblaðið - 08.12.2005, Qupperneq 22
!
"
#$%
& '
(
)
*' $ +
'
,-
+ '
.
/ % $ ' 0$00 1 1
"
2 3
1 4 5 2 #5
,!
6 7 $$
,9
:
'%
"
+
,)
*
;1
0 +$&&$ *
8 +
<-
+
'
&
=
>
"
<< MÁLIÐ ER
Í MIÐJUN
NI Á MOG
GANUM Í
DAG
Sandgerði | Starfsmenn
Hringrásar vinna um þessar
mundir að því að rífa Rock-
ville-ratsjárstöðina og tengdar
byggingar á Miðnesheiði. Er
þetta eitt mesta niðurrifs-
verkefni sem ráðist hefur ver-
ið í hérlendis.
Bandaríski herinn rak rat-
sjárstöðina til ársins 1997 og
síðan hafði meðferðarheimilið
Byrgið mannvirkin til afnota
um tíma. Þau hafa staðið auð
um tíma og hafa óboðnir gest-
ir unnið á þeim skemmdir. As-
best-einangrun er í sumum
húsanna og gerðu íslensk
stjórnvöld kröfu um að varn-
arliðið léti fjarlægja húsin og
hreinsa svæðið.
Fyrirtækið Línuborun ehf.
tók að sér verkið og fól
Hringrás sem undirverktaka
að annast niðurrif. Við nið-
urrifið falla til mörg þúsund
rúmmetrar af efni, meðal ann-
ars steypu, járni og timbri,
auk spilliefna. Öllu á að farga
eftir löglegum aðferðum og
endurnýta sem mest. Þannig
er timbrið kurlað og fer til
Járnblendifélagsins á Grund-
artanga.
Morgunblaðið/Reynir Sveinsson
Vinna við að rífa mannvirki
Rockville-ratsjárstöðvarinnar
Umhverfismál
Niðurrif Íveruhúsin eru rifin með stórum járnklippum sem eru fljótar að vinna sitt verk.
Austurland | Akureyri | Höfuðborgin | Landið
Minnstaður
Höfuðborgarsvæðið Brjánn Jónasson, brjann@mbl.is, sími 569-1100. Suðurnes Helgi
Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310. Akureyri Margrét Þóra Þórsdóttir,
maggath@mbl.is og Kristján Kristjánson, krkr@mbl.is, sími 461-1600. Vesturland Ásdís
Haraldsdóttir, asdish@mbl.is, sími 898-5258. Austurland Steinunn Ásmundsdóttir, aust-
urland@mbl.is, sími 669-1115. Árborgarsvæðið og Landið Helgi Bjarnason, helgi@mbl.is,
sími 569-1310 og 669-1310 og Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is, sími 569-1290.
Mínstund frett@mbl.is
Kjarasamningar brotnir | Lítið hefur
verið um að fyrirtæki á félagsvæði
stéttarfélaganna í Þingeyjarsýslum hafi
ráðið fólk í gegnum starfsmannaleigur
en þó réð Norðlenska í haust til sín 8
erlenda starfsmenn í gegnum starfs-
mannaleigu en þeir eru hættir störfum
og farnir utan. „Því miður verður ekki
annað séð en að kjarasamningar hafi
verið brotnir á þessum einstaklingum
því við skoðun stéttarfélaganna kom
fram að starfsmannaleigan fór ekki eft-
ir gildandi kjarasamningum á Íslandi,“
segir á vef stéttarfélaganna, vh.is.
Verkalýðsfélag Húsavíkur hefur óskað
eftir bréflegum skýringum frá Norð-
lenska vegna málsins sem fyrirtækið
hefur ekki séð ástæðu til að svara, segir
ennfremur. Málið er áfram í skoðun hjá
félaginu. Stéttarfélögin í Þingeyj-
arsýslum vara við því að fyrirtæki á fé-
lagssvæðinu ráði til sín starfsmenn í
gegnum starfsmannaleigur nema gengið
sé frá því að kjarasamningar og lög á
Íslandi séu virt. „Stéttarfélögn munu
taka fast á svona málum sem miða að
því að brjóta niður kjarasamnings-
bundin réttindi, réttindi sem fyrirtækin
eru aðilar að og hafa skrifað upp á, að
þau virði.“
Úr
bæjarlífinu
HÉÐAN OG ÞAÐAN
Jólaljósin kveikt | Nú er komið að þeim
árvissa atburði að kveikt verður á jólatrénu
á horni Gerðavegar og Garðbrautar í Garði.
Athöfnin fer fram á morgun, föstudag, og
hefst kl.18.
Ingimundur Þ. Guðnason, forseti bæj-
arstjórnar flytur ávarp og söngsveitin Vík-
ingar syngur nokkur jólalög. Þá verða at-
riði frá Tónlistarskóla Garðs og jólasveinar
koma í heimsókn. Loks kveikir afmæl-
isbarn jólaljósin á trénu.
Styrkur | Menningar- og tómstundaráð
Vestamannaeyja samþykkti samhljóða á
fundi sínum í vikunni tillögu um að styrkja
Handknattleiksdeild ÍBV um 100 þúsund
krónur vegna komu landsliðs Íslendinga til
Vestmannaeyja. Upphæðin rúmast innan
fjárhagsáætlunar ársins.
Ráðið bendir á að heimsókn sem þessi sé
mikill hvalreki fyrir handboltastarf í Vest-
mannaeyjum og mikilvægt á tímum fækk-
unar að leitað verði leiða til að fjölga iðk-
endum og efla þá sem fyrir eru.
Eyjafjarðarsveit | Vetrarríkið er al-
gjört norðan heiða um þessar mundir.
Dagarnir dimmir og mikið frost, en af-
skaplega fallegt yfir að líta yfir hádag-
inn, enda trén einkennilega hrímuð. Nú
spáir hlýnandi um komandi helgi og þá
má búast við að jólasnjórinn láti undan
sunnanvindinum. Á myndinni er hún
Elísabet Lind Hlynsdóttir, sem er í 3.
bekk í Hrafnagilsskóla í Eyjafjarð-
arsveit að máta sig við jólalegu trén
við skólann og hafði að sjálfsögðu sett
upp viðeigandi höfuðfat fyrir mynda-
tökuna.
Morgunblaðið/Benjamín Baldursson
Vetrarríki norðan heiða
Út er komin hjábókaútgáfunniHólum bókin 101
vísnaþáttur úr DV – og
tveir að auki, í samantekt
Ragnars Inga Aðalsteins-
sonar. Þar er vísa eftir
Rögnvald Rögnvaldsson á
Akureyri ort um áramót:
Endurtekin er vor saga,
á því ræðst ei bót.
Margir sínar neglur naga
nú við áramót.
Böðvar Guðlaugsson orti:
Bölvaður hundsrass var
bernskusveitin
betur ég hefði séð það strax.
Enda láku af fólkin leiðinlegheitin
frá landnámsmorgni til
þessa dags.
Hannes Sigurðsson frá
Egilsstöðum orti
sérkennilega vísu:
Ég er til kvenna afar gír-
ugur flestar stundir.
Lán, hvað mín er lítið skír-
líf um þessar mundir.
Og Jón Ingvar Jónsson
orti um veðrið:
Margur sýta sumar fer
suddinn lítið gleður.
Nú í bítið úti er
algert skítaveður.
Af 101 vísnaþætti
pebl@mbl.is
Reykjanesbær | Meirihluti sjálfstæðis-
manna í bæjarstjórn Reykjanesbæjar
leggur áherslu á að auknar tekjur sem
skapast vegna fjölgunar íbúa og húsa og
hækkunar fasteignamats verði notaðar til
að lækka álögur á íbúa og auka þjónustu
við fjölskyldur. Fulltrúar Samfylkingar-
innar leggja til að afsláttur sem elli- og ör-
orkulífeyrisþegar fá af fasteignaskatti
verði miðaður við tekjur.
Tillaga að fjárhagsáætlun Reykjanes-
bæjar var lögð fram á fundi bæjarstjórnar
í fyrrakvöld. Viðsnúningur er í rekstri
Reykjanesbæjar, að mati Árna Sigfússon-
ar bæjarstjóra sem kynnti fjárhagsáætl-
unina fyrir blaðamönnum. Eftir að íbúa-
fjöldi hafði staðið í stað í nokkur ár er nú
svo komið að íbúum fjölgar langt yfir
landsmeðaltali. Áætlað er að íbúum fjölgi
um 500 á næsta ári sem er álíka og í ár.
Áætlað er að 240 íbúðir bætist á álagn-
ingarskrá fasteigna á næsta ári. Álagning-
arprósenta fasteignaskatts á íbúðarhús-
næði verður lækkuð þannig að íbúar greiði
að meðaltali sömu krónutölu, þótt fast-
eignamat hækki. Útsvarshlutfallið verður
óbreytt, 12,7%, sem er undir landsmeðal-
tali. Gjaldskrá flestra þjónustuþátta bæj-
arins verður óbreytt nema hvað gjald í tón-
listarskóla hækkar um 4% og sorphirðu- og
sorpeyðingargjöld hækka um 10%.
Samkvæmt upplýsingum bæjarstjórans
gerir tillaga að fjárhagsáætlun ráð fyrir
því að þjónusta verði aukin á ýmsum svið-
um, meðal annars sálfræðiþjónusta, vinna
við barnavernd og niðurgreiðslur á þjón-
ustu dagmæðra verður tekin upp á ný.
Í vor verður hafist handa við byggingu
íþróttahúss og sundlaugar við Akurskóla
og nýjan leikskóla í Tjarnahverfi. Hug-
myndir um byggingu tónlistarmiðstöðvar
við Stapann verða kynnt á næstu dögum.
Unnið er áfram að skipulagningu nýrra
svæða til að anna eftirspurn eftir lóðum.
Byrjað verður á byggingu þjónustukjarna
fyrir eldri borgara í Njarðvík og nýju
íþróttasvæði vestan Reykjaneshallar.
Í bókun Kjartans Más Kjartanssonar,
bæjarfulltrúa Framsóknarflokksins, segir
að tillaga meirihlutans að fjárhagsáætlun
beri þess merki að sveitarstjórnarkosning-
ar fari fram næsta vor. Skattahækkanir,
auknar niðurgreiðslur og aðrar aðgerðir,
sem líklegar eru til þess að falla í góðan
jarðveg hjá kjósendum, séu settar fram
þrátt fyrir að sveitarfélagið sé í mjög
slæmri stöðu fjárhagslega, samanborið við
önnur sveitarfélög af sömu stærð. Hann
gagnrýnir jafnframt vinnubrögð meirihlut-
ans við gerð fjárhagsáætlunar.
Auknar tekjur
notaðar til að
auka þjónustu