Morgunblaðið - 08.12.2005, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 08.12.2005, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. DESEMBER 2005 25 MINNSTAÐUR Patreksfjörður | „Ég var auðvitað með hnút í maganum yfir því hvern- ig viðtökur þetta fengi enda hefur ekki mikil bjartsýni verið ríkjandi hér og íbúum fækkað. En reksturinn hefur farið vel af stað og þetta leggst orðið vel í mig,“ segir Haukur Már Sigurðarson, kaupmaður á Patreks- firði. Hann hefur ásamt konu sinni, Gunnhildi Agnesi Þórisdóttir, opnað verslunina Fjölval með matvörum og ýmsum öðrum vörum. Haukur segir að þetta tækifæri hafi komið upp síðsumars, þegar Byggingafélagið Byggir ákvað að hætta rekstri byggingavöruversl- unar og færa trésmíðaverkstæði sitt. Hann hafi ákveðið að taka við bygg- ingavöruversluninni og vínbúð sem henni tengist. Jafnframt ákvað Haukur að færa út kvíarnar og hella sér í slaginn í matvöruversluninni á staðnum. Loks ákvað hann að flytja þangað verslunina Zero sem fjöl- skyldan hafði rekið um tíma en það er verslun með raftæki, gjafavörur, ritföng og leikföng. Það er því ansi fjölbreytt vöruúrvalið í Fjölvali á Patreksfirði og ber verslunin því nafn með rentu. Lægra vöruverð „Við erum með sitt lítið af hverju. Ekki er þó hægt að segja að þetta sé stórt,“ segir Haukur Már. Hann seg- ir að vissulega kosti það mikla yfir- legu að hafa yfirsýn yfir jafnmarga vöruflokka og þau eru með. Haukur segist leggja sitt af mörk- um til að lækka matvælaverðið. „Við þurfum á því að halda á landsbyggð- inni,“ segir hann. Segir hann að verð sé mun lægra í versluninni en þekkst hafi á svæðinu. Þó sé ekki hægt að tala um lágvöruverðs- verslun vegna flutningskostnaðar. Raftæki og byggingavörur eru á svipuðu verði og í Reykjavík, þrátt fyrir flutningskostnað, eins og verið hefur. Haukur segist geta rekið verslunina með lægra vöruverði meðal annars með hagræðingu í inn- kaupum og flutningum. Hann rekur aðra verslun á staðnum, Smáulind, sem er nokkurs konar hraðbúð í ESSO-stöðinni. „Við skelltum okkur í þetta þegar útreikningar í stílabókinni sýndu að það ætti að vera rekstrargrundvöll- ur fyrir þessu. Vonandi þurfum við ekki að rífa blaðsíður úr bókinni til að hagræða sannleiknum um það,“ segir Haukur Már. Margir vöruflokkar og bjartsýni í nýrri búð á Patreksfirði „Sitt lítið af hverju“ Ljósmynd/Guðlaugur Albertsson Annir á opnunardaginn Haukur Már Sigurðarson og Gunnhildur Agnes Þórisdóttir, kaupmennirnir í nýju versluninni á Patreksfirði. Eftir Helga Bjarnason helgi@mbl.is Ólafsvík | Fiskverkunin Klumba í Ólafsvík hefur tekið í notkun nýtt og glæsilegt húsnæði að Ólafsbraut 80 en eldra húsnæði fyrirtækisins brann til kaldra kola í september á síðasta ári. Ekki fékkst leyfi til að byggja upp á sama stað. Nýja húsið er alls 1.650 fermetrar að stærð. Leifur Halldórsson, einn af eigendum Klumbu, segir það mikla byltingu frá gamla húsnæðinu. Hann var alltaf staðráðinn í að byggja upp að nýju, til þess að halda störfunum í bænum. Er verksmiðjan tölvustýrð og búin afar fullkomnum tæknibúnaði. Þeg- ar hún verður komin á fullt verður hafist handa við að setja upp færi- bandaþurrkara sem þurkar hryggi og bein en vinnslulínan er frá Málm- ey í Hafnarfirði. Alls starfa um 20 manns hjá Klumbu og er Ævar Sveinsson yf- irverkstjóri og Guðmundur Ólafsson verkstjóri. Að sögn Leifs tók byggingin um átta mánuði og er hann virkilega sáttur við allar framkvæmdir á hús- inu. Afkastageta verksmiðjunnar er um 7 til 10 þúsund tonn á ári sem er allt að þreföld afkastageta gömlu verksmiðjunnar. Öll framleiðslan er seld til Nígeríu. Auk þess að reka þessa verksmiðju í Ólafsvík eru Leif- ur og synir hans, þeir Steingrímur og Þorgrímur, eigendur að Frost- fiski í Þorlákshöfn og eru með 75 manns í vinnu þar. Morgunblaðið/Alfons Vinnsla hafin Leifur Halldórsson, einn af eigendum Klumbu, í vinnslusal. Alltaf staðráðinn í að byggja upp Eftir Alfons Finnsson LANDIÐ Austfirðingar Gæfuljósin tendruð KLASSIK Egilsstöðum
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.