Morgunblaðið - 08.12.2005, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 08.12.2005, Blaðsíða 30
30 FIMMTUDAGUR 8. DESEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIGGJA kvölda félagsvist Sam- hygðar og Vöku hefur verið haldin í nóvember og desember í um fimm- tíu ár og aldrei fallið niður. Ung- mennafélögin skiptast á að hafa vistina í sínu félagsheimili og sjá sameiginlega um framkvæmd henn- ar. Áður fyrr var oft spilað á um tuttugu borðum á þessum kvöldum en í dag verða borðin yfirleitt ekki fleiri en tíu. Aldursbreiddin á spilakvöldunum er iðulega mikil en yngstu spil- ararnir eru um níu ára og þeir elstu jafnvel komnir yfir áttrætt. Á hverju spilakvöldi eru veitt verðlaun fyrir hæsta ein- stakling í karla- og kvennaflokki en á þriðja og seinasta kvöldinu eru veitt heildarverðlaun fyrir hæstu einstaklinga samanlagt yfir öll þrjú kvöldin í báðum flokkum og skammarverðlaun fyrir þann lægsta. Þrátt fyrir að félagar í Samhygð og Vöku hafi byrjað á þessari sam- eiginlegu félagsvist fyrir tæpum fimmtíu árum þá var það til siðs í báðum sveitunum áður að fólk kom saman og spilaði vist. Síðan tóku ungmennafélögin sig saman og ákváðu að gera úr þessu sameig- inlega skemmtun. Fram til um 1970 tíðkaðist það jafnvel að slegið var upp balli að loknu þriðja og seinasta spilakvöldinu, þá var spilaborðunum rutt til hliðar og dansað við und- irspil hljóðfæraleikara. Þannig að það var meira en spilaskemmtunin sem heillaði við félagsvistina. Félagar í Samhygð og Vöku keppa í meiru sín á milli en fé- lagsvist því öll sumur síðan 1939 hefur farið fram frjálsíþróttakeppni félaganna á milli, þannig að það ríkir sannur ung- mennafélagsandi í Flóanum. Félagsvist í fimmtíu ár Á hverju spilakvöldi eru veitt verðlaun fyrir hæsta einstakling í karla- og kvennaflokki en á þriðja og seinasta kvöldinu eru veitt heildarverðlaun fyrir hæstu einstaklinga samanlagt. Um árin hefur það tíðkast að fólk komi saman og taki í spil. Ingveldur Geirsdóttir spilaði með fé- lögum í Ungmennafélögunum Samhygð og Vöku sem hafa í um hálfa öld hist og spilað félagsvist.  ÁHUGAMÁL | Ungmennafélagar í Gaulverja- og Villingaholtshreppi í Flóa hittast og spila vist Morgunblaðið/Ingveldur Geirsdóttir ARNAR Einarsson frá Urriðafossi í Vill- ingaholtshreppi var einn af yngstu spilurunum þetta kvöldið en hann er 9 ára. Honum gekk vel að spila og vann karla- flokkinn með 169 slagi og sló þar eldri og reyndari spilurum við. „Ég held að ég hafi lært að spila vist fyrir um tveimur árum, systir mín kenndi mér hana. Við systkinin spilum mikið heima en ekki endilega vist því við erum bara þrjú sem erum nógu gömul til að spila hana.“ Arnar man ekki hve- nær hann spilaði á fyrsta spilakvöldinu sínu. „Ég spilaði um daginn á fyrsta kvöldinu í þessari þriggja kvölda félagsvist og núna á öðru kvöldinu. Þetta hefur gengið vel, mamma mín sat við hlið- ina á mér í kvöld og leið- beindi mér í spila- mennskunni og pabbi hjálpaði mér seinast en ég fæ enga hjálp næst, þá vil ég prófa að vera einn.“ Arnar var ánægður með að vinna kvöldið. „Ég hef aldrei unn- ið áður. Mér finnst gaman að spila félagsvist og verð ekkert þreyttur á að klára heilt spjald.“ Arnar var ekki sá eini í fjöl- skyldunni sinni sem mætti á spila- kvöldið því systkini hans Hanna og Haraldur lentu bæði í öðru sæti í sínum flokkum. „Mamma var síðan með okkur, pabbi er heima með fjórða systkinið og svo er fimmta barnið á leiðinni. Ég ætla kannski að kenna yngri systkinum mínum félagsvist,“ seg- ir hinn snjalli Arnar um leið og hann opnar pakkann sem hann fékk í verðlaun. Arnar Einarsson níu ára Ætlar að kenna yngri systkinum vist Arnar kominn með verðlaunin sín. Í BYRJUN desember var annað spilakvöldið í þriggja kvölda röðinni haldið í Félagslundi í Gaulverjabæjarhreppi. Þar var mætt til leiks sem oft áður Guðmunda Kristjana Jónsdóttir, fyrrverandi húsmóðir í Vorsabæjarhól, elst spilamanna, 83 ára að aldri. Hún bjó í 31 ár í Gaulverjabæjarhreppi en býr nú á Selfossi. „Ég kom hingað vestur úr Dýrafirði þar sem ég er fædd og uppalin. Ég lærði ekki að spila vist fyrr ég varð orðin full- orðin, þegar ég var krakki spilaði ég arías, hjónasæng, kasínu og gosa.“ Guðmunda hefur alltaf haft gaman af því að spila. „Ég byrjaði að sækja þessi spilakvöld Samhygðar og Vöku strax í upphafi og hef farið oft síðan og þó nokkuð oft fengið verð- laun. Ég fór nú ekki í fyrra en ákvað að fara núna í ár með tveimur sonum mínum.“ Guðmundu finnst mjög gaman að spila félagsvist og segir hana ögrandi. „Maður verður að spila á þessi spil sem maður fær og það er fyrirfram sagt á þau. Maður verður að standa sig í því að spila grand á kannski ómögu- leg spil.“ Það er augljóst að Guð- munda er mikil spilamanneskja því hún spilar vist þrisvar í viku. „Einu sinni í viku spila ég fé- lagsvist með eldri borgurum á Selfossi, einu sinni venjulega vist og svo hérna núna. Ég hef mjög gaman af því og spila af fingrum fram.“ Guðmunda Kristjana Jónsdóttir 83 ára Lærði vist á fullorðinsárum Guðmunda hefur oft unnið til verðlauna. DAGLEGT LÍF Í KJÖLFARIÐ á fréttum af því sem jafnvel hefur verið kallað undralyf í krabbameinsmeðferð hafa risið deilur á milli sérfræð- inga í Bandaríkjunum og Evrópu um lyfið Herceptin. Þetta kemur fram í The Lancet sem byggir um- fjöllun sína á greinum úr New England Journal of Medicine. Í umfjöllun The Lancet er hvatt til þess að varúð sé viðhöfð í notk- un Herceptin og fullyrt að frekari rannsókna sé þörf áður en hægt er að gefa lyfið öllum þeim sem telja sig þurfa á því að halda. Forsaga málsins er sú að fréttir bárust frá Bandaríkjunum fyrr á þessu ári af því að Herceptin væri sérlega áhrifaríkt og gæti jafnvel læknað brjóstakrabbamein á byrj- unarstigi. Eins og málin standa er Herceptin hins vegar aðeins gefið sjúklingum sem eru með krabba- mein á alvarlegu stigi. Vegna þess hversu vel Hercept- in hefur reynst í frumkönnunum hafa hópar sjúklinga krafist þess að fá lyfið þó að endanlegar rann- sóknaniðurstöður liggi ekki fyrir. Breskir sérfræðingar benda á að full ástæða sé til varfærni því að fram hafi komið aukaverkanir, t.d. hjartabilun, og þó að slík tilfelli séu fá séu þau nógu alvarleg til þess að fullt mark sé tekið á þeim. Niðurstöður úr rannsóknum sem fram eru komnar eru mjög já- kvæðar og sýna fram á að helmingi minni líkur eru á að konur, sem var gefið Herceptin ásamt því að vera í venjulegri lyfjameðferð, fái krabbamein aftur innan árs en konur, sem ekki fengu lyfið. Virt- um læknasamtökum þóttu nið- urstöðurnar það mikilvægar að konum sem voru í hópnum sem ekki fékk Herceptin var síðar boð- ið lyfið. Dr. Richard Horton sem skrifar um Herceptin í The Lancet hvetur vísindamenn, sjúklinga og almenn- ing til að stíga varlega til jarðar og leyfa nefndum sem um málið fjalla og meta virkni lyfsins að ljúka störfum sínum svo að endanlegar niðurstöður liggi fyrir áður en far- ið verður að nota lyfið á breiðari grundvelli. Dr. Victor Montori í McMaster-háskólanum í Toronto í Kanada bendir á að þegar til- raunum er hætt of snemma geti forkannanir sýnt fram á ótrúleg áhrif af meðferð með nýjum lyfjum og hann hvetur einnig til varfærni þegar gögnin eru skoðuð. Horton hefur líka bent á að í greinum þeim sem hafa birst í New England Journal of Medicine séu borin saman gögn sjúklinga sem hugs- anlega eru ekki sambærileg. Deilur um krabbameinslyf  HEILSA
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.