Morgunblaðið - 08.12.2005, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. DESEMBER 2005 31
DAGLEGT LÍF
Grýla og jólasveinarnir
þjóna til borðs
„Það er boðið upp á þetta hefð-
bundna, hangikjöt og svínakjöt,
fisk og kjúkling fyrir börnin,“ segir
Unnur Sigurþórsdóttir, deild-
arstjóri fræðsludeildar í Fjöl-
skyldu- og húsdýragarðinum, þar
sem í boði verður jólahlaðborð í
desember. „Grýla og jólasveinarnir
þjóna til borðs og Grýla á sitt horn
þar sem hún býr á meðan þetta er
í gangi. Það geta um hundrað
manns borðað í einu. Það kostar
2.400 kr. fyrir fullorðna, 5–12 ára
borga 1.200 kr. og yngri borða
frítt.“
Unnur segir að Grýla höfði
kannski meira til fullorðna fólksins
og börnin séu spenntari fyrir jóla-
sveinunum.
„Hún spilar það svolítið eftir eyr-
anu,“ segir Unnur aðspurð hvort
börnin séu ekki hrædd við Grýlu.
Jólasveinn dagsins kemur á
hverjum degi klukkan tvö „og svo
dregur hann kerlinguna með sér
um helgar“, segir Unnur. „Þá koma
annaðhvort tveir jólasveinar eða þá
Grýla og jólasveinn.“
Grýla og jólasveinarnir þjóna til
borðs í Fjölskyldu- og hús-
dýragarðinum fram að jólum. Morgunblaðið/Árni Sæberg
Grýla getur verið ógnvænleg og þá er gott að hafa jólasveininn til að óttinn verði ekki forvitninni yfirsterkari.
NÝTT
SUÐURLANDSBRAUT 32 • SÍMI 591-5350