Morgunblaðið - 08.12.2005, Síða 40
40 FIMMTUDAGUR 8. DESEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
SAMTÖK um betri byggð á
Álftanesi eru opin samtök sem voru
stofnuð þegar einsýnt var að meiri-
hlutinn í bæjarstjórn Álftaness ætl-
aði að knýja í gegn skipulag mið-
svæðis, þrátt fyrir óskir mikils fjölda
íbúa um að fá aðra valkosti. Góður
miðbær og þjónustuhverfi er sam-
eiginlegt hagsmunamál byggð-
arinnar. Að kalla eftir fleiri út-
færslum, af ólíkum toga, er aðeins
sanngjörn ósk í ljósi þess að þema-
tillaga arkitektastofunnar Batter-
ísins ehf. fékk mikla gagnrýni strax
við fyrstu kynningu. Meirihluti bæj-
arstjórnar ákvað að útfæra skipulag-
ið nánar, hunsa gagnrýni og óskir
og afgreiða það sem tillögu. Mark-
mið samtakanna er einfalt, – að
hvetja íbúa og hagsmunaaðila til að
svara spurningu bæjarstjórans um
hvort viðkomandi aðilar hafi at-
hugasemdir við auglýsta deiliskipu-
lagstillögu. Fólkið í samtökunum
vinnur að þessu markmiði með því
að kynna viðhorf sín og kynna mis-
munandi sjónarmið varðandi um-
rædda tillögu. Samtökin búa í hag-
inn fyrir íbúa
Álftaness og auðvelda
þeim að nýta sér rétt
sinn til að senda inn
athugasemdir við til-
löguna til bæjarstjórn-
arinnar.
Tveir uppdrættir
með tillögum að deili-
skipulagi miðsvæðisins
hafa komið fram frá
því að núgildandi
deiliskipulag svæðisins
var samþykkt 1999.
Önnur tillagan var
samþykkt af meiri-
hluta bæjarstjórnar,
en hin var lögð fyrir
skipulagsnefnd af
hálfu Álftaneshreyf-
ingarinnar í lok skipu-
lagsferilsins. Þeirri til-
lögu var vísað frá með
greinargerð, sem Sig-
urður Einarsson arki-
tekt vann samkvæmt
ósk meirihlutans, en
hann er jafnframt höfundur tillög-
unnar sem nú hefur verið auglýst.
Tilgangur Álftaneshreyfingarinnar
með því að vinna sérstaka tillögu
var að sýna fram á hvernig útfæra
má skipulagshugmynd fyrir svæðið
með áherslu á mannlíf og þjónustu
annars vegar og íbúðabyggð og opn-
ar sjónlínur út frá miðsvæðinu hins
vegar, í stað áherslu á bílaumferð
um blandaða byggð með lokuðum
kjörnum og vegarangala með einni
aðkomuleið inn á svæðið. Kári Ei-
ríksson arkitekt var fenginn til að
vinna uppdrátt með skipulagi fyrir
svæðið. Auk þess að taka mið af
framangreindum atriðum voru þær
forsendur gefnar að allt það sem
skipulagsnefndin hafði gert ráð fyrir
að skyldi rýmast á svæðinu skyldi
líka vera til staðar í nýrri tillögu, þó
svo að áformað byggingamagn sé að
margra mati allt of mikið á svæðinu.
Þar sem báðar framangreindar
tillögur að skipulagi á Álftanesi eru
unnar af fagaðilum – og hæglega
mætti kalla eftir fleirum – er aug-
ljóst að álit sérhvers leikmanns í
sveitarfélaginu, um hvor tillagan
hentar betur, ætti að vera jafngilt. Í
auglýsingu bæjarstjórans á skipu-
lagstillögu meirihlutans er kallað
eftir athugasemdum og sagt: „Hver
sá sem eigi gerir athugasemdir við
tillögurnar fyrir tilskilinn frest telst
samþykkja hana.“
Spurningin er hins veg-
ar hverju svarar bæj-
arstjórnin þegar allar
athugasemdirnar ber-
ast. Hagsmuna hverra
verður gætt þegar
meirihluti kosn-
ingabærra Álftnesinga
hefur sent inn andmæli
við tillögunni?
Undanfarið hafa
fulltrúar meirihlutans í
bæjarstjórn Álftaness
ítrekað ásakað fulltrúa
Álftaneshreyfingarinnar
um að hafa hafnað sam-
starfi um skipulagningu
miðsvæðisins, m.a. í
greinum í Morgun-
blaðinu dagana 1. og 3.
desember sl. Því hlýt ég
að mótmæla þar sem ég
á í hlut. Öllum sem
fylgst hafa með ferlinu
á yfirstandandi ári, eða
kynna sér staðreyndir
málsins, má vera ljóst að slíkar
ásakanir bera aðeins vott um und-
arlegan skilning á hugtakinu sam-
vinna. Á mínu heimili er samvinna
eitt og hlýðni annað. Ég áskil mér
rétt til að vinna samkvæmt sannfær-
ingu og af heilindum, bæði á fund-
um skipulagsnefndar og sem al-
mennur borgari.
Samtök um betri byggð á Álfta-
nesi hafa opnað vefsíðu, www.betri-
byggd.net. Þar má m.a. finna ýmsar
upplýsingar um umrætt málefni,
fylgjast með hvað er á döfinni, lesa
skoðanir annarra og fylgjast með
framgangi mála. Þar er einnig kjör-
ið tækifæri til að leggja orð í belg
því allur stuðningur skiptir máli.
Vel skal vanda það
sem lengi á að standa
Kristinn Guðmundsson fjallar
um skipulagsmál á Álftanesi
’Góður miðbærog þjónustu-
hverfi er sam-
eiginlegt hags-
munamál
byggðarinnar.‘
Kristinn Guðmundsson
Höfundur er varafulltrúi í
skipulagsnefnd á Álftanesi.
STEFNA ríkisstjórnarinnar í
málefnum tveggja samfélagshópa
er mörgum umhugsunarefni nú um
stundir. Þessir hópar, aldrað fólk
og öryrkjar, sæta þeirri sameig-
inlegu pólitísku niðurstöðu rík-
isstjórnarflokkanna að þeir eigi
ekki að fylgja með í þróun velmeg-
unar á Íslandi. Þessir hópar báðir
hafa öfluga talsmenn
sem hafa með skýrum
hætti sýnt fram á
stöðu þeirra í sam-
anburði við aðra þjóð-
félagshópa. En Sam-
fylkingin á líka vaska
sveit sem hefur verið
óþreytandi í baráttu
fyrir betri kjörum
þeirra enda hlýtur
það alltaf að vera
hlutverk jafn-
aðarmanna að gæta
réttar þeirra sem
markaðssamfélagið
setur hjá í þjóðfélaginu. Almenn
velferð er líka lykill að auðugu og
kraftmiklu samfélagi. Þetta sann-
ast á því að Norðurlönd standa
fremst í auðsköpun og velsæld
meðal þjóða. Það hefur verið við
furðulega ramman reip að draga í
baráttunni fyrir kjörum þessa fólks
og harka ríkisstjórnarinnar ger-
samlega óskiljanleg á stundum.
Átök hennar við öryrkja eru dæmi
um það. Í stefnu ríkisstjórnarinnar
í skattamálum kemur þessi póli-
tíska afstaða afar skýrt fram. Með
því að halda persónuafslætti svo
lágum sem raun ber vitni hefur
ríkisstjórninni tekist að hækka
skatta á þessum hópum gríðarlega.
Sem dæmi má nefna að í skýrslu
Stefáns Ólafssonar kemur fram að
skattbyrði einhleypra öryrkja hafi
aukist úr 7,4% í 17,15% frá því að
ríkisstjórnin tók við völdum. Til
viðbótar skattahækkunum koma
svo skerðingar bóta sem hirða í
burtu greiðslur lífeyrissjóða og
hverskonar tekjur sem aldraðir og
öryrkjar kunna að
geta átt möguleika á.
Stefnan fer því ekki
milli mála. Hún er að
halda þessum hópum
við það sem við hljót-
um að kalla hung-
urmörk miðað við við-
urkenndar þarfir
nútímasamfélags.
Ástandið í þessum
málum er ekki forríku
samfélagi samboðið,
heldur, eins og rit-
stjóri Morgunblaðsins
sagði í forystugrein
3.desember sl., blettur á íslensku
samfélagi. En skoði menn það sem
hefur verið að gerast í skatta-
málum að öðru leyti á valdatíma
ríkisstjórnarinnar verður staða
þessa fólks enn hróplegri. Skatta-
lækkanir eru ýmist komnar til
framkvæmda eða væntanlegar í
stórum stíl til fyrirtækja, hátekju-
manna og eignamanna. Það er ekki
hægt að saka ríkisstjórnina um
óljósa stefnu hvað þessi mál varðar
vegna þess að hún hefur látið verk-
in tala með svo afgerandi hætti að
ekkert fer á milli mála. Þessu fólki
skal haldið við hungurmörkin.
Jóhann Ársælsson fjallar um
kjör aldraðra og öryrkja
Jóhann Ársælsson
Svona gera menn
ER NEFIÐ STÍFLAÐ?
Fæst í apótekum
og lyfjaverslunum
STERIMAR
Skemmir ekki slímhimnu
er náttúrulegur
nefúði sem losar stíflur
og léttir öndun.
Fyrir 0-99 ára.
AUGLÝSINGADEILD
netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111