Fréttablaðið - 13.02.2003, Síða 1
SKATTAMÁL Davíð Oddsson for-
sætisráðherra hyggst á næstu vik-
um leggja fram tillögur um
skattalækkanir sem eiga að koma
til framkvæmda á næsta kjör-
tímabili. Hann segir að skattar
hafi þegar verið lækkaðir í ýms-
um greinum á þessu kjörtímabili,
til að mynda eignaskattar og
skattar á fyrirtæki.
„Talið er að hagvöxtur á þessu
ári verði um 1,75%, hagvöxtur
verði um 3% á því næsta og á
næstu árum þar á eftir er ætlað að
hann verði enn hærri. Sterk staða
ríkissjóðsins nú og tekjuaukinn
sem sannarlega mun fylgja hag-
vextinum gerir það að verkum að
það er engin goðgá að huga að
breytingum á sköttum í rétta átt,
til lækkunar, en ekki hækkunar.
Við viljum öflugan ríkissjóð sem
getur staðið undir þeim kröfum
sem nútímaþjóðfélag gerir. En
það er engin ástæða til að láta rík-
issjóðinn fitna um of. Óþörf fita er
engum til gagns,“ sagði Davíð
Oddsson forsætisráðherra á Við-
skiptaþingi Verslunarráðs Íslands
í gær.
Hann segist ætla að gera nán-
ari grein fyrir tillögum sínum
þegar þær væru fullmótaðar.
Hann játar því að um kosningalof-
orð sé að ræða en bendir á að hann
hafi verið spar á slík loforð. Við
þetta muni hann standa. Davíð
nefnir lækkun tekjuskatts ein-
staklinga, afnám eignaskatta og
breytingar á erfðafjárskatti. ■
AFMÆLI
Opið hús
bls. 30
Þverholti 9, 105 Reykjavík — sími 515 7500 Fimmtudagurinn 13. febrúar 2003
Tónlist 18
Leikhús 18
Myndlist 18
Bíó 20
Íþróttir 16
Sjónvarp 22
KVÖLDIÐ Í KVÖLD
MÁLÞING Samband ungra Framsókn-
armanna efnir til málþings um
menntamál að Hverfisgötu 33
klukkan 20. Rætt verður um sam-
keppnisstöðu háskólanna, Lánasjóð
íslenskra námsmanna, framtíðar-
sýn í menntamálum og fleira.
Framsögumenn verða Hjálmar
Árnason, Ármann Höskuldsson,
Runólfur Ágústsson og Sæunn Stef-
ánsdóttir.
Framtíðarsýn í
menntamálum
GRÍN Uppistand verður á Sportkaffi
klukkan 20. Gestir fyrsta alþjóð-
lega uppistandsklúbbsins á Íslandi
verða Írinn David O’Doherty og
Nýsjálendingurinn Rhys Darby.
Báðir eru að gera það reglulega
gott á uppistandsenunni í Bretlandi
og eru atvinnumenn í faginu.
Alþjóðlegt
uppistand
TÓNLEIKAR Þau Bryndís Halla Gylfa-
dóttir, Stefán Vovka Ashkenazy og
Judith Ingólfsson mynda einleik-
aratríó á tónleikum Sinfóníuhljóm-
sveitarinnar í Þríleikskonsert Beet-
hovens. Tónleikarnir verða í Há-
skólabíói klukkan 20.30. Einnig eru
á dagskrá þetta kvöld verkið Gang-
ur eftir Þorkel Sigurbjörnsson og
sinfónía nr. 1 eftir Gustav Mahler.
Einleikaratríó
í Háskólabíói
KÖRFUBOLTI Þrír leikir fara fram í
Intersport-deild karla klukkan
19.15. Tindastóll tekur á móti
Breiðabliki, Njarðvík mætir Snæ-
felli á Stykkishólmi og Hamar
keppir við Val á Hlíðarenda.
Þrír leikir í körfunni
TÓNLEIKAR
Orgelverk á
Myrkum
músíkdögum
FIMMTUDAGUR
37. tölublað – 3. árgangur
bls. 6
STJÓRNSÝSLA
Lögin
eru óvirk
bls. 18
ATVINNA Af þeim rúmlega 3.600
sem voru atvinnulausir að meðal-
tali á síðasta ári voru um 2.500 á
höfuðborgarsvæðinu.
Ríkisstjórnin ákvað í fyrradag
að verja 6,3 milljörðum króna á
næstu 18 mánuðum m.a. til að
sporna gegn auknu atvinnuleysi,
en þar af fara 5,6 milljarðar í ýms-
ar framkvæmdir. Um 18% af þeim
fjármunum eru eyrnamerktir höf-
uðborgarsvæðinu, þar sem tæp
70% atvinnulausra búa.
„Hlutur Reykjavíkur er allt of
lítill í þeim fjármunum sem ríkis-
stjórnin veitir til þess að lyfta at-
vinnustiginu,“ segir Össur Skarp-
héðinsson, formaður Samfylking-
ingarinnar og þingmaður Reykja-
víkur. „Stærsti hluti atvinnulausra
býr í Reykjavík, sem fær hins veg-
ar mjög lítinn skerf af þessum
fjármunum. Það er alveg ljóst að
ef Samfylkingin væri við stjórn þá
myndi hún hafa sett meiri fjár-
muni í að byggja upp atvinnustigið
í Reykjavík.“
Össur segir að aðgerð ríkis-
stjórnarinnar miði greinilega ekki
að því að koma til móts við þarfirn-
ar þar sem þær séu, heldur virki
þetta eins og verið sé að skipta
köku rétt fyrir kosningar til að
tryggja sér atkvæði. Hann segir að
löngu sé orðið tímabært að ríkið
geri verulegan skurk í að byggja
upp samgöngumannvirki sem
liggja að og frá borginni. Þau
kæmu ekki bara til með að gagnast
höfuðborgarbúum heldur lands-
byggðinni allri.
„Þessi ákvörðun er líka til
marks um það tómlæti sem Sjálf-
stæðisflokkurinn sýnir íbúum
Reykjavíkur og lætur þá gjalda
síns stöðuga stríðs við Reykjavík-
urlistann. Þetta er ákaflega van-
þroskað af stjórnmálaflokki, en
þessi gjörningur þeirra er stað-
festing á því að Sjálfstæðisflokk-
urinn vinnur ekki að hagsmunum
Reykvíkinga.“
Í utandagskrárumræðum um
aðgerðir ríkisstjórnarinnar í gær
sagði Davíð Oddsson forsætisráð-
herra að aðgerðin væri frábrugðin
atvinnubótaverkefnum fyrri ára.
„Við teljum einnig að þessi inn-
spýting muni í raun ná til landsins
alls,“ sagði Davíð. „Það má auðvit-
að segja að meginþungi aðgerð-
anna verði bundinn við lands-
byggðina. Þetta eru ekki atvinnu-
bótaverkefni af gamla skólanum,
heldur munu verkin standa áfram
og duga til framtíðar, öllum til
hagsbóta.“
trausti@frettabladid.is
Nánar bls. 2 og 4
DAVÍÐ ODDSSON
Sterk staða ríkissjóðs á að skila sér í
skattalækkunum, segir forsætisráðherra.
Davíð Oddsson forsætisráðherra:
Boðar skattalækkanir
KVIKMYNDIR
bls. 28
Er líf
eftir
starfslok?
TÍSKA
Leður og
loðfeldir
bls. 20
REYKJAVÍK Hæg suðlæg átt
og skúrir eða slydduél.
Hvessir þegar líður á
daginn. Hiti 1 til 6 stig.
VEÐRIÐ Í DAG
VINDUR ÚRKOMA HITI
Ísafjörður 13-18 Skúrir 3
Akureyri 10-15 Skýjað 3
Egilsstaðir 10-15 Rigning 2
Vestmannaeyjar 13-18 Skúrir 3➜
➜
➜
➜
+
+
+
+
MEÐALFJÖLDI
ATVINNULAUSRA 2002
Fjöldi
Höfuðborgarsvæðið 2.495
Norðvesturkjödæmi 259
Norðausturkjördæmi 476
Suðurkjördæmi 401
Landið allt: 3.631
5,6 MILLJARÐAR Í
FRAMKVÆMDIR
Milljónir % af heild
Höfuðborgarsvæðið 1.000 18%
Norðvesturkjördæmi 1.200 21%
Norðausturkjördæmi 1.500 27%
Suðurkjördæmi 1.900 34%
Landið allt: 5.600 100%
Taflan tekur til vegaframkvæmda og 1.000 millj-
óna króna framlags í menningarhús á Akureyri
og í Vestmannaeyjum. Auk 5,6 milljarða króna í
framkvæmdir hyggst ríkisstjórnin verja 700 millj-
ónum í atvinnuþróunarátak á vegum Byggða-
stofnunar.
Rýr hlutur höfuðborgar
Tæp 70% atvinnulausra búa á höfuðborgarsvæðinu. Ríkisstjórnin ætlar að verja 5,6 milljörðum
í framkvæmdir til að sporna gegn atvinnuleysi. Höfuðborgarsvæðið fær 18% af fjármagninu.
BYGGINGARFRAMKVÆMDIR Í HAMRABORG
Af þeim 5,6 milljörðum króna sem ríkisstjórnin ákvað í fyrradag að verja í framkvæmdir á næstu mánuðum, m.a. til þess að sporna gegn auknu atvinnuleysi, er 1 milljarður
eyrnamerktur höfuðborgarsvæðinu.
NOKKRAR STAÐREYNDIR UM
MEÐALLESTUR FÓLKS Á ALDRINUM 12 TIL 80 ÁRA
Á HÖFUÐBORGARSVÆÐINU ER 69,6% SAMKVÆMT
FJÖLMIÐLAKÖNNUN GALLUP Í OKTÓBER 2002.
Fr
é
tt
a
b
la
ð
ið
M
o
rg
u
n
b
la
ð
ið
Meðallestur 25 til 49
ára samkvæmt
fjölmiðlakönnun
Gallup frá
október 2002
24%
D
V
80.000 eintök
70% fólks les blaðið
Hvaða blöð
lesa 25 til 49
ára íbúar á
höfuðborgar-
svæðinu á
föstudögum?
66%
71%