Fréttablaðið - 13.02.2003, Blaðsíða 28
28 13. febrúar 2003 FIMMTUDAGUR
TÍSKA Tónlistarmaðurinn Sean
Combs, eða P. Diddy eins og hann
kallar sig, er talinn vera einn rík-
asti listamaður Bandaríkjanna.
Hann er einnig talinn hafa haft
mikil áhrif á menningu vestan-
hafs, ekki bara fyrir tónlist sína
og kvikmyndir heldur hönnun á
fatnaði sem hann klæðist gjarnan
sjálfur.
P. Diddy boðaði til glæsilegrar
sýningar um síðustu helgi og sýndi
þar nýja haustlínu.
Þar gaf að líta glæsilega sam-
setningu á leðri, jakkafötum, loð-
feldum og úlpum svo fátt eitt sé
nefnt. P. Diddy er sagður vera
betri kaupsýslumaður en listamað-
ur. Þó velkist enginn í vafa um að
hann er frábær fatahönnuður og
hannar föt fyrir bæði kynin. Konur
eru afar hrifnar af hönnun hans,
enda átti hann um tíma í ástarsam-
bandi við eina frægustu konu
heims, Jennifer Lopez.
P. Diddy hefur mikið verið í
sviðsljósinu undanfarin ár. Hann
gengur undir jafn mörgum nöfn-
um og kölski sjálfur, samanber
Puff Daddy, Sean Combs eða P.
Diddy. Hann komst í kast við lögin
fyrir nokkrum árum þar sem hann
var grunaður um að hafa átt þátt í
morði. ■
Haustlína P. Diddy:
Leður
og loðfeldir
SMART Í ÚLPU
Jakkaföt og loðfóðruð
úlpa yfir er eitthvað sem
P. Diddy gæti hugsað sér
að klæðast í haust.
LEÐURKLÆDD
Fyrirsæta sést hér klædd leðri en
hönnuður fatnaðarins P. Diddy er afar
hrifinn af því.
P. DIDDY SEAN
„P. Diddy“ Combs var ánægður með af-
raksturinn þegar hann var klappaður upp
eftir tískusýningu sem hann hélt.
Pondus eftir Frode Øverli
Til hamingju
með daginn, Gunni!
Kom þetta
á óvart,
kallinn minn?
Já, ég verð
að segja það!
FLOTTUR Á SVIÐI
Jon Bon Jovi var að vanda flottur þegar
hann tróð upp með hljómsveit sinni á
Meadowlands-leikvanginum í New Jersey.
Er þörf á samkeppni í menntamálum?
- málþing um samkeppnisstöðu háskólanna, LÍN,
framtíðarsýn í menntamálum og fleira.
Framsögumenn:
Hjálmar Árnason, alþingismaður
Ármann Höskuldsson, þjóðlífsfulltrúi í háskólaráði Háskóla Íslands
Runólfur Ágústsson, rektor Viðskiptaháskólans á Bifröst
Sæunn Stefánsdóttir, háskólanemi og frambjóðandi Framsóknarflokksins
Pallborð að loknum framsögum
Fundarstjóri: Dagný Jónsdóttir, formaður SUF
Málþingið fer fram fimmtudagskvöldið 13. febrúar kl. 20:00
að Hverfisgötu 33, 101 Reykjavík.
Allir hjartanlega velkomnir.
Samband ungra framsóknarmanna.