Fréttablaðið - 13.02.2003, Blaðsíða 2
2 13. febrúar 2003 FIMMTUDAGUR
Hlynur Hallsson er myndlistarmaður á Akureyri. Rík-
isstjórnin hyggst verja 500 milljónum til byggingar
menningarhúss á staðnum á næstu mánuðum.
Nei, það er enginn skortur á menningu, en
það er hins vegar skortur á húsnæði til að
rýma allt hið gríðarlega framboð af menn-
ingu sem er á svæðinu.
SPURNING DAGSINS
Er skortur á menningu
á Akureyri?
HEIÐLÓAN
Býr sig undir flug frá Írlandi til Íslands –
með vorið í farteskinu.
Sílamávurinn kominn:
Vorið
á leiðinni
VEÐUR Sílamávurinn er kominn til
landsins fyrstur farfugla og það
boðar vorkomu fyrr en síðar:
„Sílamávurinn er heldur fyrr á
ferðinni en venjulega en hann
kemur yfirleitt fyrstur,“ segir
Ólafur Einarsson, fuglafræðingur
hjá Náttúrufræðistofnun. „Þó er
talið víst að sílamávarnir hafi
ekki allir farið síðasta haust því
nokkrir komu fram í jólatalningu
fugla í desember,“ segir hann.
Þegar sílamávurinn er kominn
styttist í að aðrir farfuglar leggi
upp frá Evrópu með stefnuna á Ís-
land. Næst kemur álftin í byrjun
mars þó svo þúsund svanir hafi
hér vetursetu: „Svo hellast þeir
inn einn af öðrum, grágæsin,
skógarþrösturinn og heiðlóan í
aprílbyrjun. Flestir hafa þessir
fuglar vetursetu í Bretlandi og á
Írlandi nema sílamávurinn, sem
heldur til við strendur Portúgals
þegar hann er ekki hér,“ segir
Ólafur Einarsson. ■
SJÓMENNSKA Nýtt sjómannaheim-
ili, sem setja átti á laggirnar á
Grandagarði við Reykjavíkur-
höfn, er nú í klemmu og óvíst
hvað úr verður eftir gjaldþrot eig-
enda húsnæðisins sem tekið hafði
verið á leigu í þessu skyni:
„Þetta kemur sér illa fyrir okk-
ur. Við vorum byrjaðir að innrétta
þarna þegar gjaldþrot eigenda
blasti við okkur og húsnæðið var
selt á nauðungaruppboði,“ segir
séra Jón Dalbú Hróbjartsson, for-
maður stjórnar sjómannaheimilis-
ins sem hlotið hefur nafnið Sjó-
mannaheimili Reykjavíkur og ná-
grennis. Að sjómannaheimilinu
standa ýmis samtök sjómanna auk
Þjóðkirkjunnar: „Það er mikil
þörf fyrir sjómannaheimili sem
þetta en það er hugsað sem afdrep
og viðverustaður erlendra sjó-
manna sem hingað koma í höfn.
Kannanir sýna okkur að hingað
koma 800 erlend skip á ári,“ segir
séra Jón Dalbú en undirbúningur
að rekstri sjómannaheimilisins
hefur staðið í 2 ár. Húseignin sem
um ræðir er nú í eigu Sparisjóðs
Hafnarfjarðar og vonast séra Jón
Dalbú til að úr málinu greiðist
sem fyrst svo hægt verði að halda
áfram starfinu sem svo vel var á
veg komið áður en gjaldþrot hús-
eigenda setti óvænt strik í reikn-
inginn. ■
KÓREA Alþjóðakjarnorkumála-
stofnunin samþykkti samhljóða á
neyðarfundi að vísa kjarnorku-
uppbyggingu Norður-
Kóreumanna og vanefndum þeir-
ra á alþjóðlegum skuldbindingum
til öryggisráðs Sameinuðu þjóð-
anna. Það bíður því öryggisráðs-
ins að taka ákvörðun um hvernig
sé best að leysa þá
flækju sem er
komin upp á
Kóreuskaga. Áður
hefur komið til um-
ræðu að vísa mál-
inu þangað en því
verið frestað
vegna tilrauna til að leysa deiluna
með öðrum hætti.
Mohamed ElBaradei, forstöðu-
maður stofnunarinnar, sagði að
því væri ekki fært annað en að
vísa málinu til öryggisráðsins þar
sem Norður-Kóreumenn hefðu
ekki staðið við skuldbindingar sín-
ar. „Staðan sem nú er komin upp
er hættulegt fordæmi.“
Rússar og Kúbverjar sátu hjá
við afgreiðslu samþykktarinnar
en allar aðrar þjóðir greiddu at-
kvæði með henni. „Við teljum að
það sé ótímabært að senda málið
til öryggisráðs Sameinuðu þjóð-
anna og gæti virkað þvert á það
sem til er ætlast,“ sagði fulltrúi
Rússa á neyðarfundi ráðsins. Kín-
verjar hvöttu þjóðir til að fara
varlega og varast að grípa til ráð-
stafana sem gætu gert deiluna enn
flóknari en hún er.
Richard Williamson, staðgeng-
ill sendiherra Bandaríkjanna hjá
Sameinuðu þjóðunum, fagnaði
ákvörðuninni en lagði áherslu á að
reynt væri að leysa deiluna með
samningum. „Við erum vissir um
að við getum leyst þetta friðsam-
lega.“ Fulltrúi Suður-Kóreu í ráð-
inu sagði samþykktina óumflýjan-
lega afleiðingu þess að Norður-
Kórea hefði sagt sig frá samn-
ingnum gegn útbreiðslu kjarn-
orkuvopna.
Javier Solana, utanríkismála-
fulltrúi Evrópusambandsins, sagði
rétt að vísa málinu til öryggisráðs-
ins en sagði ótímabært að hefja
refsiaðgerðir gegn Norður-Kóreu.
„Ég held að þvinganir myndu hafa
þveröfug áhrif við þau sem við
vonumst eftir, sem er að leysa deil-
una.“
Norður-kóresk stjórnvöld hafa
sagt að ef reynt verði að þvinga
landið til hlýðni muni þau líta á
það sem stríðsyfirlýsingu. ■
HÆSTIRÉTTUR „Þetta er ömurleg
niðurstaða og hreint einsdæmi,“
segir Árni Johnsen um dóm
Hæstaréttar yfir sér á dögunum í
viðtali við Eyjafréttir í gær.
Árni segist ekki skilja dóminn,
í honum sé ekki tekið tillit til
margra hluta. Hann viðurkennir
að sér hafi orðið á en hann hafi
leiðrétt sín mistök.
„En það hefur enginn leiðrétt
við mig. Að öðru leyti þýðir ekk-
ert að deila við dómarann,“ segir
Árni í viðtalinu.
Hann segir að rifjast hafi upp
fyrir sér að Ingibjörg Benedikts-
dóttir, einn fimm Hæstaréttar-
dómaranna sem dæmdu í máli
hans á dögunum, hafi áður beitt
sig misrétti. Fyrir 20 árum hafi
hann verið tekinn fyrir umferð-
arlagabrot og Ingibjörg hafi sem
fulltrúi sakadóms á þeim tíma af-
greitt málið með óvenjulegum
hætti.
„En ég verð að una þessu
hundsbiti og kappkosta að ljúka
þessu máli svo ég komist aftur til
starfa fyrir mitt fólk,“ segir
Árni. ■
ÁRNI JOHNSEN
Ber hæstaréttardómara
þungum sökum.
Árni Johnsen segir dóm hæstaréttar óskiljanlegan:
Dómarinn hefur áður
beitt mig misrétti
„Staðan sem
nú er komin
upp er hættu-
legt fordæmi.“
Önnur deila inn á
borð öryggisráðsins
Alþjóðakjarnorkumálastofnunin vísaði brotum Norður-Kóreumanna á
alþjóðasáttmálum til öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna. Skoðanir ráða-
manna um næstu skref eru mismunandi.
FUNDURINN UNDIRBÚINN
Til stóð að Alþjóðakjarnorkumálastofnunin fundaði um brot Norður-Kóreumanna fyrir viku.
Því var frestað vegna tilrauna Suður-Kóreumanna til að leysa vandann með öðrum hætti.
GRANDAGARÐUR 8
Þarna átti sjómannaheimilið að vera - og verður vonandi þegar úr rætist.
Tveggja ára undirbúningsstarf í hættu:
Sjómannaheimili fyrir
barðinu á gjaldþroti
HJÁLMAR ÁRNASON
„Þessar aðgerðir munu snerta fullt af fólki
sem býr á höfuðborgarsvæðinu.“
Formaður samgöngu-
nefndar:
Landið
ein heild
ATVINNA Hjálmar Árnason, starf-
andi formaður samgöngunefndar
Alþingis, segir ekki rétt að horfa
eingöngu á það hvert peningarnir
sem verja á til framkvæmda til að
sporna gegn atvinnuleysi fari.
Hann vill horfa á landið í heild
sinni.
Af 5,6 milljörðum króna sem
ríkisstjórnin hyggst verja til
framkvæmda á næstu 18 mánuð-
um fara 4,6 til framkvæmda á
landsbyggðinni, þar sem um 30%
atvinnulausra búa.
„Við verðum að hafa það í huga
að vinnuafl er orðið mjög hreyf-
anlegt,“ segir Hjálmar. „Þessar
aðgerðir munu snerta fullt af
fólki sem býr á höfuðborgar-
svæðinu. Hver veit t.a.m. hvaða
verktaki mun fá Suðurstranda-
veginn og hvaðan vinnuaflið mun
koma. Hitt er svo annað mál að at-
vinnuleysi meðal háskólamanna
hefur verið að aukast en í þessum
aðgerðum er komið til móts við
það með 700 milljóna framlagi til
nýsköpunar.“ ■