Fréttablaðið - 13.02.2003, Síða 4
4 13. febrúar 2003 FIMMTUDAGUR
ÍRAKSDEILAN
KJÖRKASSINN
Farðu inn á frett.is og segðu
þína skoðun
frétt.is
Ætlar þú að fylgjast með
Eurovision á laugardaginn?
Spurning dagsins í dag:
Ertu ánægð(ur) með aðgerðir ríkis-
stjórnarinnar til eflingar atvinnulífsins?
Niðurstöður gærdagsins
á www.frett.is
14,5%
34,8%Nei
50,7%
EUROVISION
VINSÆL
Meirihluti ætlar
að fylgjast með
söngvakeppni
sjónvarpsins á
laugardaginn.
Veit ekki
Já
LYFJAÞRÓUN Íslensk erfðagreining
og bandarísk samtök fjölskyldna
með hryggvöðvarýrnun hafa skrif-
að undir samning um þróun lyfs
gegn hryggvöðvarýrnun. Hlutverk
Íslenskrar erfðagreiningar verður
meðal annars að skilgreina þau
efnasambönd sem líklegast er að
hægt verði að þróa í lyf og sjá um
áframhaldandi rannsóknir og þró-
un á þeim.
Samningurinn er til þriggja ára
og gæti skilað Íslenskri erfðagrein-
ingu 5,2 milljónum dollara, sem
svara til rúmra 400 milljóna króna,
ef tekst að þróa lyf sem samþykkt
verður að taka í klínískar lyfja-
rannsóknir.
Hryggvöðvarýrnun er erfða-
sjúkdómur sem orsakast af því að
ákveðinn erfðavísi vantar. Í Banda-
ríkjunum er talið að yfir 6 milljón
einstaklingar séu arfberar sjúk-
dómsins, sem kemur fram í 1 af
hverjum 6000 fæddum nýburum og
greinist yfirleitt áður en börn ná 18
mánaða aldri.
Kári Stefánsson forstjóri segist í
tilkynningu frá Íslenskri erfða-
greiningu vera stoltur af að Samtök
fjölskyldna með hryggvöðvarýrn-
un skuli hafa valið fyrirtækið til að
þróa ný lyf og koma þeim í klínísk-
ar lyfjaprófanir. „Þessi samtök
hafiaáorkað mjög merkilegum hlut-
um í rannsóknum og staðfesta þeir-
ra við að leita leiða til lækninga á
þessum sjúkdómi er aðdáunarverð.
Aðferðafræði okkar byggist á því
að nota niðurstöður erfðafræði-
rannsókna til lyfjaþróunar og við
munum leggja okkur sérstaklega
fram um að ná árangri í þessu verk-
efni,“ segir Kári Stefánsson. ■
Íslensk erfðagreining gerir 400 milljóna samning:
Rannsakar hrygg-
vöðvarýrnun
ÍSLENSK ERFÐAGREINING VINNUR FYRIR BANDARÍSK SAMTÖK
Niðurstöður erfðafræðirannsókna verða notaðar til lyfjaþróunar og segir Kári Stefánsson
Íslenska erfðagreiningu leggja sig sérstaklega fram um að ná árangri.
WASHINGTON Alan Greenspan,
seðlabankastjóri Bandaríkjanna,
segir að efnahagslíf landsins
þurfi ekki á því að halda að gripið
sé til örvandi aðgerða til að koma
því í gang. Hann segist enn frem-
ur óttast að stjórnvöld gætu misst
stjórn á hallarekstri ríkissjóðs.
Yfirlýsingar Greenspans koma
sér illa fyrir George W. Bush
Bandaríkjaforseta þar sem þær
beinast gegn skattalækkunar-
frumvarpi hans og fjárlagafrum-
varpi sem gerir ráð fyrir því að
ríkissjóður Bandaríkjanna verði
rekinn með mesta halla sögunnar
á næstu tveimur fjárlagaárum.
Greenspan sagði að helsta
hættan sem ógnaði meiri hagvexti
væri óvissa um fyrirsjáanlegt
stríð í Írak. Hann sagðist bjart-
sýnn á að þegar þeirri óvissu yrði
eytt myndi efnahagslífið taka við
sér.
Þegar Greenspan talar um
efnahagsmál hlusta aðrir. Stuðn-
ingur hans við skattalækkanir
Bush fyrir tveimur árum reyndist
mikilvægur í baráttunni fyrir því
að fá þær samþykktar. Andstaða
hans nú getur því reynst Bush erf-
ið þegar kemur að því að fá um-
deildar skattalækkanirnar sam-
þykktar. ■
GREENSPAN RÆÐIR VIÐ ÞINGMENN
Seðlabankastjórinn er einn áhrifamesti
maðurinn í efnahagsumræðu vestan hafs.
STRÍÐ FREKAR EN ÞVINGANIR
Tony Blair, forsætisráðherra
Bretlands, seg-
ir að tveir val-
möguleikar séu
fyrir hendi í
Íraksdeilunni.
Annar sé að
fara í stríð,
hinn sé víðtæk-
ari efnahags-
þvinganir. Þar
sem efnahags-
þvinganirnar
myndu fyrst og fremst bitna á
óbreyttum borgurum væri stríð
skárri kostur.
MARGÞÆTTAR TILLÖGUR Frakkar
hafa kynnt tillögu sína um að
þrefalda fjölda eftirlitsmanna í
Írak, senda öryggissveitir til að
hafa eftirlit með grunsamlegum
stöðvum, koma fyrir hreyfanleg-
um tollskoðunarstöðvum til að at-
huga varning sem kemur inn í
landið og auka eftirlit úr lofti. Þá
verði skipaður yfirmaður Sam-
einuðu þjóðanna í landinu og upp-
lýsingaskrifstofa opnuð í New
York.
ÓSANNFÆRANDI SÖNNUNAR-
GÖGN Þau sönnunargögn sem
Colin Powell, utanríkisráðherra
Bandaríkjanna, lagði fram í ör-
yggisráðinu eru ósannfærandi,
segir Igor Ivanov, utanríkisráð-
herra Rússlands.
MÚSLÍMAR STYÐJI ÍRAKA
Múslímar eru
hvattir til að
hjálpa Írökum í
baráttunni við
Bandaríkjamenn
í upptöku sem
leikin var á Al-Jazeera sjónvarps-
stöðinni og er sögð flytja boð
Osama bin Ladens.
RÁÐIST Á ELDFLAUGASTÖÐ
Bandarískar herþotur réðust á
eldflaugastöð í sunnanverðu Írak.
Þetta er fyrsta árásin gegn
vopnakerfum Íraka sem skjóta á
skotmörk á jörðu niðri en ekki
flugvélar eða skip.
FLEIRI KALLAÐ-
IR TIL HERÞJÓN-
USTU Banda-
ríkjamenn hafa
kallað rúmlega
150.000 varaliða
og þjóðvarðliða
til herþjónustu
vegna Íraksdeil-
unnar. Síðasta
mánuð hafa um
hundrað þúsund verið kallaðir út,
þar af 38.600 í síðustu viku.
ALÞINGI „Það er fagnaðarefni að
ríkisstjórnin horfist í augu við
aðstæður og vaxandi atvinnu-
leysi,“ sagði Stein-
grímur J. Sigfús-
son, Vinstri hreyf-
ingunni – grænu
framboði, máls-
hefjandi utandag-
skrárumræðu um
ráðstafanir ríkis-
stjórnarinnar til að
sporna gegn auknu
atvinnuleysi í land-
inu og þeim slaka
sem kominn er í efnahagslífið.
Steingrímur J. sagði aðgerð-
irnar skynsamlegar í atvinnu- og
byggðalegu tilliti. Hins vegar
mætti ætla að flest störfin yrðu
einhæf og nýttust einkum körl-
um. Steingrímur spurði hve mörg
störf sköpuðust vegna aðgerð-
anna og hvort til greina kæmi að
grípa til frekari aðgerða sem
næðu til fleiri greina atvinnulífs-
ins og nefndi opinbera þjónustu
og velferðarmál.
Forsætisráðherra sagði að
ekki hefði verið metið sérstak-
lega hvað þessar fyrirhuguðu
framkvæmdir sköpuðu mörg
störf, þrátt fyrir að til væru ein-
hverjar þumalfingursreglur í
þeim efnum. „Við teljum að
svona mikil innspýting fari fram
úr þeirri þumalfingursreglu,“
sagði Davíð Oddsson og bætti við
að auk starfa sem til verði beint
vegna framkvæmdanna verði til
fjöldi afleiddra starfa.
„Við teljum einnig að þessi
innspýting muni í raun ná til
landsins alls. Það má auðvitað
segja að meginþungi aðgerðanna
verði bundinn við landsbyggðina.
Þetta eru ekki atvinnubótaverk-
efni af gamla skólanum, heldur
munu verkin standa áfram og
duga til framtíðar, öllum til hags-
bóta,“ sagði Davíð Oddsson.
Jóhanna Sigurðardóttir, Sam-
fylkingunni, fagnaði aðgerðunum
líkt og aðrir þingmenn en sagði
þær öðrum þræði lýsa nokkrum
kosningaskjálfta. „Nöturlegt er
þó að sjá hvernig hlutur höfuð-
borgarsvæðisins og kvenna, sem
að meirihluta fylla hóp atvinnu-
lausra, er fyrir borð borinn,“
sagði Jóhanna og bætti við að
64% atvinnulausra væru á höfuð-
borgarsvæðinu. Hún spurðu hve
mörg kvennastörf sköpuðust
vegna aðgerðanna og enn fremur
hvar kvenráðherrar ríkisstjórn-
arinnar hefðu verið við ákvörðun
þeirra.
„Það er afskaplega miður að
fara að ala á sundurlyndi milli
landsbyggðar og höfuðborgar-
svæðis af þessu tilefni,“ sagði
Halldór Ásgrímsson utanríkis-
ráðherra og bætti við að aðgerð-
irnar skiptu alla íbúa landsmenn
miklu máli.
the@frettabladid.is
Aðgerðirnar eru
öllum til góða
Stjórnarandstæðingar segja hlut höfuðborgarinnar og kvenna í
aðgerðum ríkisstjórnarinnar skammarlega rýran. Forsætisráðherra
segir verkin munu standa áfram öllum landsmönnum til hagsbóta.
JÓHANNA SIGURÐARDÓTTIR
Sagði aðgerðir ríkisstjórnarinnar fagnaðar-
efni en fýsti að vita hvar kvenráðherrar
hefðu verið við ákvörðun aðgerðanna.
Hlutur kvenna væri fyrir borð borinn.
„Það er af-
skaplega mið-
ur að fara að
ala á sundur-
lyndi milli
landsbyggðar
og höfuðborg-
arsvæðis af
þessu tilefni“
Alan Greenspan:
Efast um
stefnu Bush
VÆNGURINN LASKAÐIST
Ekki er ljóst hvað tjón Flugleiða er mikið
að sögn Guðjóns Arngrímssonar upplýs-
ingafulltrúa.
Keflavíkurflugvöllur:
Flugleiðavél
skemmdist
VEÐUR Farþegavél frá Flugleiðum
skemmdist í óveðrinu sem gekk
yfir í fyrrinótt. Flugvélin, sem er
sú nýjasta í eigu Flugleiða, færð-
ist til í hvassri suðvestanáttinni
og lenti landgöngubrú á vinstri
vængnum og skorðaðist. Hlíf sem
er utan um vænginn skemmdist.
Vélin er óstarfhæf í bili.
Björn Ingi Knútsson flugvall-
arstjóri segir veðurhaminn hafa
komið öllum að óvörum og þess
vegna hafi ekki verið gripið til
viðeigandi varúðarráðstafana. ■
M
YN
D
/VÍKU
R
FRÉTTIR
Andlát:
Lést í
vinnuslysi
ANDLÁT Maðurinn sem lést í vinnu-
slysi í Bryggjuhverfi í Grafarvogi
í fyrradag hét Valdimar Gunnars-
son, til heimilis að Stekkjarbergi
4, Hafnarfirði. Valdimar var
fæddur 12. mars 1973. Hann lætur
eftir sig sambýliskonu og 12 ára
gamlan son.
Valdimar lést eftir að hafa
fallið niður af vinnupalli og á
steinsteypt plan. ■