Fréttablaðið - 13.02.2003, Qupperneq 6
6 13. febrúar 2003 FIMMTUDAGURVEISTU SVARIÐ?
Svörin eru á bls. 31
1.
2.
3.
Utanríkisráðherra Bandaríkj-
anna hefur gagnrýnt nokkrar
þjóðir í Evrópu vegna andstöðu
við eflingu varna Tyrklands.
Hvað heitir ráðherrann?
Ríkisstjórnin ætlar að setja millj-
arða króna í framkvæmdir til að
sporna gegn atvinnuleysi í land-
inu. Hversu há er sú upphæð?
Meðlimur í þáttaröðinni Vinum
ætlar að heyja frumraun sína á
leiksviði í London. Hver er vin-
urinn?
GENGI GJALDMIÐLA
Bandaríkjadalur 77.27 -0.32%
Sterlingspun 125.14 -0.23%
Dönsk króna 11.19 0.45%
Evra 83.18 0.46%
Gengisvístala krónu 121,16 -0,01%
KAUPHÖLL ÍSLANDS
Fjöldi viðskipta 303
Velta 4.900 milljónir
ICEX-15 1.348 -0,55%
Mestu viðskipti
Össur hf. 118.103.000
Landsbanki Íslands hf. 99.939.716
Íslandsbanki hf. 68.831.003
Mesta hækkun
Líftæknisjóðurinn MP BIO hf. 33,33%
Íslenskir aðalverktakar hf. 7,04%
Íslenski hugb.sjóðurinn hf. 3,70%
Mesta lækkun
ACO-Tæknival hf. -8,00%
Ker hf. -4,20%
Sölumiðst. Hraðfrystih. hf. -4,04%
ERLENDAR VÍSITÖLUR
DJ*: 7824,7 -0,2%
Nasdaq*: 1294,8 -0,1%
FTSE: 3616,1 -1,5%
DAX: 2612,9 -0,5%
Nikkei: 8664,2 2,1%
S&P*: 826,9 -0,3%
*Bandarískar vísitölur kl. 17.00
Fiskverð:
Minnsti
munur á
ýsu í sósu
FISKVERÐ Munur á fiskverði milli
verslana var yfir 50 prósent í
nítján af 25 tilvikum samkvæmt
verðkönnun Alþýðusambands Ís-
lands. Í fjórum tilvikum var verð-
munurinn yfir 90 prósent. Verð
var kannað í sextán verslunum og
fiskbúðum á 37 vöruflokkum.
Minnsti munur á verði var á ýsu í
sósu eða 17,4 prósent.
Töluverð dreifing var milli
verslana varðandi hæsta og
lægsta verð. Af 16 verslunum
voru ellefu einhvern tímann með
lægsta verðið í vöruflokki. Fjarð-
arkaup voru oftast með lægsta
verðið, en Melabúðin var oftast
með það hæsta. ■
LEITUÐU AÐ FÍKNIEFNUM
Lögreglan á Ísafirði stöðvaði
för ungmenna á tveimur bílum
aðfaranótt sunnudags á Ísafirði.
Lék grunur á að ungmennin
væru með fíkniefni meðferðis.
Eftir leit í bílunum fannst ólö-
glegur hnífur auk áhalda sem
talin eru til neyslu fíkniefna.
Viðurkenndi einn að eiga áhöld-
in. Málið verður rannsakað sem
fíkniefnamál og brot á vopna-
lögum samkvæmt upplýsingum
frá lögreglunni. ■
Deilt um aðild að Starfsmannafélagi Reykjavíkurborgar:
Vagnstjóri ótækur til stjórnarkjörs
FÉLAGSMÁL Sigurður R. Sigur-
björnsson, vagnstjóri hjá Strætó
bs., telur stjórn Starfsmannafé-
lags Reykjavíkurborgar koma í
veg fyrir framboð sitt til stjórn-
ar félagsins.
Sigurður gekk úr félaginu á
árinu 2000 eins og nærri 60 aðr-
ir strætisvagnastjórar hjá
Strætó bs. vegna óánægju með
breytingar á launakerfi og vökt-
um. Flestir þeirra, þó ekki Sig-
urður, hafa dregið úrsögn sína
formlega til baka enda fengu
þeir ekki inngöngu í Bifreiða-
stjórafélagið Sleipni eftir úr-
skurð Félagsdóms.
Í gær klukkan fjögur rann út
frestur til að skila framboðum
til stjórnar starfsmannafélags-
ins sem kjósa á í næstu viku. Til
að bjóða sig fram þarf 75 með-
mælendur. Um hádegi í gær
hafði Sigurður safnað 79 undir-
skriftum. Framboði hans var þó
hafnað á skrifstofu félagsins af
Gunnar Inga Jónssyni kjör-
stjóra, sem sagði Sigurð ekki
vera í félaginu.
Gunnar sagði enn fremur of
skamman tíma til stefnu til þess
að Sigurður gæti dregið úrsögn
sína til baka og þannig öðlast
kjörgengi í stjórnarkjörinu. „Það
eru allir velkomnir til baka. Það
tekur gildir þegar búið er að
kynna það í stjórn og sam-
þykkja,“ sagði Gunnar í gær.
Sigurður segist líta svo á að
hann sé enn fullgildur meðlimur
í starfsmannafélaginu þrátt fyrir
úrsögnina. Hann hafi ætíð greitt
félagsgjöld og notið ýmissa rétt-
inda sem því fylgi. „Og það er
heldur ekkert í lögum félagsins
sem segir að stjórn þess þurfi
sérstaklega að samþykkja mig
inn í það að nýju,“ segir hann. ■
STJÓRNSÝSLA Róbert R. Spanó, lekt-
or við lagadeild Háskóla Íslands,
telur lög um ábyrgð ráðherra vera
óvirk. Stjórnarmeirihlutinn á Al-
þingi geti á hverjum tíma haldið
hlífiskildi yfir ráðherrum sínum.
Þetta kom fram
í umræðum í mál-
stofu um ráðherra-
ábyrgð sem haldin
var í Háskóla Ís-
lands í gær.
S a m k v æ m t
stjórnarskránni
getur Alþingi
ákveðið að hefja
rannsókn á störf-
um ráðherra og
eftir atvikum að
höfða mál gegn
ráðherranum með
útgáfu ákæru. Það
er síðan svokallaður Landsdómur
sem dæmir í málinu.
Landsdómur yrði að stærstum
hluta skipaður fulltrúum sem Al-
þingi tilnefnir sjálft en þar ættu
einnig sæti fulltrúar frá Hæsta-
rétti og lagadeild Háskóla Íslands.
Enginn ráðherra hefur verið
kærður fyrir brot gegn lögum um
ráðherraábyrgð þau tæplega 100
ár sem lög hafa verið til um slíkt
hérlendis.
Róbert segir tæpast hægt að
skilja stjórnarskrána á annan
veg en að á Alþingi þurfi bæði
að vera meirihluti fyrir því að
hefja rannsókn og því að gefa út
ákæru á ráðherra. Þá sé það
auðvitað óumflýjanlegt að
meirihluti Alþingis, sem jafn-
framt sé pólitískur stjórnar-
meirihluti, styðji ráðherrann –
flokksbróður sinn. Stjórnar-
hættir hérlendis séu þannig að
stjórnarmeirihlutinn á hverjum
tíma hafi verið „nokkuð virkur í
því að vernda gjörðir ráðherr-
anna“ enda nánast um samruna
að ræða á milli stjórnarmeiri-
hluta á Alþingi og framkvæmda-
valdsins:
„Þannig að ef að stjórnar-
meirihlutinn ákveður að láta
gjörðir ráðherra koma fyrir
Landsdóm þá er það náttúrlega í
eðli sínu einhver áfellisdómur
yfir því hvernig stjórnarmeiri-
hlutinn hefur hagað sínu um-
boði. Þetta er vandamálið,“ seg-
ir Róbert.
Eins og áður segir telur Róbert
meirihluta Alþingis þurfa til að
beita lögum um ráðherraábyrgð.
Hann nefnir þann möguleika að
því verði breytt. „Ef við viljum
virkja þau úrræði sem hin laga-
lega ábyrgð er held ég að langlík-
legast sé að þá þurfi að breyta
stjórnarskránni og gera þá ráð
fyrir því að færri – einn þriðji
þingmanna – geti virkjað þetta úr-
ræði. Lagabreyting dugar ekki.“
gar@frettabladid.is
FLUG
Ryanair ætlar að byrja að fljúga frá
Skavsta-flugvellinum í Stokkhólmi til
Oslóar, Árósa, Hamborgar og Glasgow.
Ryanair gefur miða:
Tekjur
keppinautar-
ins viðmiðið
STOKKHÓLMUR, AP Flugfélagið
Ryanair ætlar að gefa flugmiða á
nýjum flugleiðum sínum frá
Stokkhólmi til fjögurra Evrópu-
borga í hlutfalli við tekjur skand-
inavíska flugfélagsins SAS. Að
sögn talsmanna Ryanair stendur
til að gefa tvo miða til hvers hinna
nýju áfangastaða fyrir hverjar 50
milljónir sænskra króna sem SAS
tapar en tvöfalt fleiri miða ef um
hagnað verður að ræða.
SAS er aðalkeppinautur Ryan-
air á þessum nýju flugleiðum en
tap SAS nam 284 milljónum sæn-
skra króna á síðasta fjórðungi árs-
ins 2002. ■
RÓBERT R. SPANÓ
Lög um ábyrgð ráðherra voru til umræðu í málstofu lagadeildar og laganema við Háskóla Ís-
lands í gær. Róbert R. Spanó lektor sagði stjórnarhætti hérlendis þannig að stjórnarmeiri-
hlutinn á hverjum tíma hafi verið „nokkuð virkur í því að vernda gjörðir ráðherranna“.
Enginn ráð-
herra hefur
verið kærður
fyrir brot gegn
lögum um
ráðherraá-
byrgð þau
tæplega 100
ár sem lög
hafa verið til
um slíkt hér-
lendis.
Lög um ábyrgð
ráðherra óvirk
Lögin um ábyrgð ráðherra eru í raun óvirk vegna þess að meirihluta
þarf á Alþingi til að beita þeim. Róbert R. Spanó lektor segir að til að
lögin verði virk þurfi að breyta stjórnarskránni.
LÖGREGLUFRÉTTIR
Á SKRIFSTOFU STARFSMANNA-
FÉLAGS REYKJAVÍKURBORGAR
Sigurður R. Sigurbjörnsson vagnstjóri hefur
safnað 79 stuðningsmönnum við framboð
sitt til stjórnar Starfsmannafélags Reykja-
víkur. Gunnar Ingi Jónsson, starfsmaður fé-
lagsins og meðlimur kjörstjórnar, segir Sig-
urð hins vegar ekki vera kjörgengan. Hann
hafi sagt sig úr félaginu og ekki gengið í
það að nýju.
FRÉTTAB
LAÐ
IÐ
/VILH
ELM
DÓMSMÁL Héraðsdómur Reykja-
víkur segir Samkeppnisstofnun
ekki mega upplýsa Samskip um
gögn sem aflað hafi verið hjá Eim-
skip.
Samkeppnisstofnun gerði hús-
leit hjá Eimskip 4. september í
fyrra í kjölfar beiðni Samskipa
um athugun á því hvort Eimskip
hefði brotið samkeppnislög. Lagt
var hald á fjölda margvíslegra
gagna, meðal annars fundagerðir,
bréf, skeyti, samninga, minnis-
blöð, álitsgerðir, áætlanir og út-
reikninga. Tekin voru afrit af
tölvugögnum allmargra starfs-
manna.
Þegar Samkeppnisstofnun
óskaði umsagnar Eimskipafélags-
ins við erindi Samskipa kom fram
að Samskip fengu send afrit af
þeirri ósk. Eimskip vildi að Sam-
keppnisstofnun útskýrði hvort
Samskip hefði komið að málinu.
Stofnunin taldi svo vera og Áfrýj-
unarnefnd samkeppnismála
reyndist sama sinnis.
Héraðsdómur er hins vegar
ósammála samkeppnisyfirvöldum
að þessu leyti: „Það er niðurstaða
dómsins að hér vegi þyngra hags-
munir stefnanda (Eimskips) af
því að halda leyndum gögnum sín-
um fyrir keppinautnum en hags-
munir Samskipa hf. af því að geta
fylgst með rannsókninni.“ ■
EIMSKIP
Héraðsdómur segir viðkvæm viðskipta-
gögn Eimskips ekki eiga að falla í hendur
samkeppnisaðilanum Samskipum.
Úrskurður áfrýjunarnefndar samkeppnismála felldur:
Samskip fá ekki
gögn frá Eimskip
Lögreglan:
Kveikti í
manni
INDÓNESÍA, AP Lögreglustjóri í litlu
héraði í Indónesíu kveikti í manni
sem hann grunaði um að hafa
stolið mótorhjóli. Maðurinn lést af
völdum eldsins. Lögreglustjórinn
segist ekki hafa ætlað að kveikja í
manninum heldur hafi hann ein-
göngu ætlað að hræða hann.
Skömmu eftir að maðurinn var
handtekinn dró lögreglustjórinn
hann út á bílastæði, hellti bensíni
yfir hann og kveikti sér í sígar-
ettu. Áður en maðurinn játaði
komst glóð í bensínið þannig að
eldur kviknaði og maðurinn lést.
Lögreglustjórinn hefur verið rek-
inn og verður kærður. ■