Fréttablaðið - 13.02.2003, Síða 7
Góður innri vöxtur Össurar:
Hagnaður undir væntingum
UPPGJÖR Stoðtækjafyrirtækið
Össur hagnaðist um rúmar tíu
milljónir dollara eða um 800
milljónir króna eftir skatta mið-
að við núverandi gengi. Miðað
við meðalgengi liðins árs er
hagnaðurinn um 900 milljónir
króna. Afkoman er heldur lakari
en fyrirtækið sjálft og fjármála-
fyrirtæki höfðu gert ráð fyrir.
Tekjur námu rúmum 80 milljón-
um dollara og var innri vöxtur
félagsins um nítján prósent.
Hagnaðurinn í fyrra er rúmum
sextán prósentum meiri en árið
áður.
Framlegð síðasta ársfjórð-
ungs ársins var lakari en áætl-
anir höfðu gert ráð fyrir. Helstu
ástæður þess eru einkum að
gjaldfærður var kostnaður við
að auka framleiðslugetu. Fram-
lag í ábyrgðarsjóð vegna
ábyrgðarviðgerða var aukið. Að
auki voru birgðir færðar niður
og styrking krónunnar hafði í
för með sér aukinn kostnað fyr-
ir fyrirtækið.
Össur hefur gefið út ná-
kvæmar áætlanir um rekstur
sinn. Fyrirtækið hefur ákveðið
að falla frá slíku. Sú ákvörðun
er rökstudd með því að fyrir-
tækið hafi gengið lengra í slíku
en fyrirtæki almennt. Þar fyrir
utan hefur að mati fyrirtækisins
orðið viðhorfsbreyting til gagn-
semi svo nákvæmra upplýsinga
varðandi horfur fyrir heilbrigð-
an markað. ■
Biskup um Karl prins:
Verji hina
réttu trú
LONDON, AP Erkibiskupinn af
Kantaraborg er andvígur hugmynd-
um Karls Bretaprins um að konung-
ur eða drottning Bretlands eigi að
vera „verjandi trúar“ en ekki „verj-
andi trúarinnar“ eins og nú er. Karl
prins hefur sagt að með breyting-
unni yrði tekið fullt tillit til þeirra
sem játa aðra trú. Erkibiskupinn
segir þetta ómögulegt. „Ef engar
róttækar breytingar eiga sér stað
verður hann að sætta sig við það,
hvort sem honum líkar betur eða
ver, að vera verjandi trúarinnar og
eigi sérstakt samband við kirkjuna
sem hann getur ekki átt við önnur
trúarbrögð.“ ■
HUGO CHAVEZ
Stutt er síðan forsetinn sagði að réttast
væri að fangelsa verkfallsmenn.
12.000 reknir:
Chavez rek-
ur verkfalls-
menn
VENESÚELA, AP Hugo Chavez, for-
seti Venesúela, hefur rekið nærri
þriðja hvern starfsmann ríkisolíu-
fyrirtækisins fyrir að taka þátt í
tveggja mánaða verkfalli til að
koma Chavez frá völdum. 12.000
starfsmenn Petroleos de Venezu-
ela, fyrst og fremst stjórnendur
og umsjónarfólk, fengu reisupass-
ann eftir að Chavez tilkynnti
skipulagsbreytingar á fyrirtæk-
inu.
Chavez segir að með þessu vilji
hann draga úr skrifræði innan
fyrirtækisins og losna við andófs-
menn. Erlendir sérfræðingar í
olíuiðnaði kváðust óttast að upp-
sagnirnar hefðu neikvæð áhrif á
rekstur fyrirtækisins. ■
Búnaðarbanki:
Fjármála-
eftirlitið safn-
ar gögnum
EINKAVÆÐING Fjármálaeftirlitið er
að vinna að mati á hæfi kaupenda
Búnaðarbankans. Kaupendur
bankans hafa sent gögn til eftir-
litsins að undanförnu, en gagna-
öflun mun ekki að fullu lokið.
Samkvæmt reglum hefur Fjár-
málaeftirlitið mánuð til að kveða
upp úr um hæfi eigenda ráðandi
hlutar í fjármálastofnun eftir að
síðustu gögnum hefur verið skil-
að.
Vinna við slíkt mat er tímafrek
og því er ekki búist við niðurstöðu
alveg á næstunni. ■
7FIMMTUDAGUR 13. febrúar 2003
INNRI VÖXTUR
Fyrirtækið Össur heldur áfram að vaxa.
Framlegð og hagnaður voru undir
áætlunum á síðasta ári.
AFTANÍVAGN FAUK Á BENSÍN-
DÆLU Aftanívagn flutningabíls
fauk á plani bensínstöðvar á
Hólmavík í vindhviðu í gærdag
og skall á bensíndælu. Vagninn
fauk um 60 metra vegalengd og
braut niður dæluna. Engin bens-
ínmengun hlaust við óhappið.
LÖGREGLUFRÉTTIR