Fréttablaðið - 13.02.2003, Page 8
8 13. febrúar 2003 FIMMTUDAGUR
AFRÍKA
AFTUR TIL FORTÍÐAR
Blaðamenn sem heimsóttu dauðadeild-
ina í San Quentin-fangelsinu líktu því
sem fyrir augu bar við atriði úr kvikmynd
frá 5. áratugnum.
Fangelsi opnað
almenningi:
Neyðar-
ástand á
dauðadeild
KALIFORNÍA, AP Fangelsisyfirvöld í
ríkisfangelsinu í San Quentin í
Kaliforníu opnuðu dyr dauða-
deildarinnar fyrir almenningi í
fyrsta sinn í þrjátíu ár til þess að
vekja athygli á þeirri bágu að-
stöðu sem vistmenn og starfsfólk
fangelsisins búa við. Lengi hefur
verið barist fyrir því að gerðar
verði endurbætur á fangelsinu og
er það ekki að ástæðulausu.
Dauðadeildin var byggð árið
1934 og var þá ætlað að hýsa 68
sakamenn. Nú eru þar yfir 600
fangar og hefur flestum þeirra
verið komið fyrir í byggingum
sem ætlaðar eru almennum föng-
um.
Fangelsisstjóri San Quentin
hefur lagt til að byggð verði
stærri og nútímalegri bygging
þar sem öryggi sé í fyrirrúmi.
Slíkar framkvæmdir yrðu afar
kostnaðarsamar og hafa ráða-
menn litið svo á að peningunum
væri betur varið í þágu mennta-
mála. ■
VEÐUR Fánaborg fauk á bíla
sem stóðu á söluplani bílasöl-
unnar Bílavíkur við Fitjar í
Njarðvík í óvæntu óveðri í
fyrrinótt. Minniháttar
skemmdir urðu á bílunum.
Ekki hafði verið gert ráð fyrir
svo miklu hvassviðri í veður-
spá. Fóru verstu vindhviðurn-
ar upp í 40 metra á sekúndu.
Lögreglan í Reykjanesbæ
þurfti að sinna nokkrum út-
köllum vegur óveðursins. Með-
al annars fauk járnplata á glugga
á annarri hæð fjölbýlishúss og olli
skemmdum. Veðrið var að miklu
leyti gengið niður um þrjúleytið
um nóttina. Í Kópavogi fauk gas-
grill fram af svölum á fimmtu
hæð fjölbýlishúss. Hafnaði grillið
á tveimur bílum sem stóðu á bíla-
stæði fyrir neðan. ■
NYTSAMLEGUR HJÓLHESTUR
Íbúar Kristjaníu hafa lifað í sátt og sam-
lyndi við aðra Kaupmannahafnarbúa í yfir
þrjá áratugi. Þeir hafa meðal annars haft
lífsviðurværi sitt af því að smíða hjól sem
hafa verið afar vinsæl meðal borgarbúa.
Fríríkið Kristjanía:
Innlimuð
í Kaup-
mannahöfn
KAUPMANNAHÖFN, AP Margt bendir
til þess að Kaupmannahöfn muni
innan skamms taka við yfirstjórn
fríríkisins Kristjaníu af danska
varnarmálaráðuneytinu. Að sögn
Politiken hafa báðir aðilar stað-
fest að ætlunin sé að boða til
samningaviðræðna um málið áður
en samningur ráðuneytisins og
Kristjaníu rennur út 30. júní árið
2004.
Borgaryfirvöld í Kaupmanna-
höfn segjast telja óeðlilegt að
frjálst og óháð þorp sé staðsett í
miðri borginni en ítreka að íbúar
svæðisins verði hafðir með í ráð-
um. Þó til standi að betrumbæta
ástandið í Kristjaníu þýði það ekki
að þurrka eigi burt þann sérstæða
lífsstíl sem þar tíðkast. ■
VILJA FRIÐARVIÐRÆÐUR Líberísk-
ir uppreisnarmenn hafa sam-
þykkt að hefja friðarviðræður
við stjórnvöld um að binda enda
á þriggja ára borgarastríð fyrir
árslok. Áður höfðu uppreisnar-
menn sagt að þeir myndu ekki
leggja niður vopn fyrr en búið
væri að koma Charles Taylor for-
seta frá völdum.
EINKAVÆÐING Ríkissjóður
fær væna greiðslu frá Sam-
soni í dag vegna kaupa á
hlut í Landsbankanum. Öll-
um formsatriðum vegna
sölu 45,8% hlutar í Lands-
bankanum er nú lokið og
mun Samson fara með at-
kvæðarétt á aðalfundi bank-
ans á föstudag í samræmi
við eign sína. Björgólfur
Guðmundsson mun setjast í
bankaráðið fyrir hönd hóps-
ins. Í framhaldinu má telja
öruggt að hann verði kjörinn
bankaráðsformaður á fundi
bankaráðsins eftir aðalfundinn.
Greiðsla Samsonar vegna kaup-
anna verður tilkynnt í
Kauphöllinni í dag.
Samson hefur fengið
blessun íslenska fjármála-
eftirlitsins vegna kaup-
anna. Í gær bættist við
samþykki breska fjármála-
eftirlitsins vegna kaupa
Samsonar á bankanum.
Heritable, Bank sem er í
eigu Landbankans, heyrir
undir breska fjármálaeft-
irlitið og þurfti það því að
samþykkja breytingarnar.
Öllum skilyrðum kaupanna er því
fullnægt og formlega mun hlutur
ríkisins færast til Samsonar í
dag. ■
Óvænt óveður:
Gasgrill og fána-
borg fuku á bíla
FÁNABORGIN Á HLIÐINNI
Fánaborgin olli skemmdum á bílum þegar
hún fauk í óveðrinu.
Lífeyrissjóður Eimskips:
Jákvæð
ávöxtun
LÍFEYRISSJÓÐIR Hrein ávöxtun Líf-
eyrissjóðs Eimskipafélags Íslands
var 6,42% í fyrra. Samkvæmt Hjör-
dísi Ásberg, framkvæmdastjóra
sjóðsins, er megin skýringin á góðri
ávöxtun á síðasta ári sú að farið
hefur verið mjög varlega í kaup á
erlendum verðbréfum og ágæt
ávöxtun hefur verið á innlendum
verðbréfamarkaði. Meðalávöxtun
sjóðsins síðustu fimm ár er 4,49%.
Hrein eign sjóðsins til greiðslu líf-
eyris nam 2.626 milljónir króna.
Í Lífeyrissjóði Eimskipafélags-
ins eru 1.605 sjóðsfélagar, en sjóð-
urinn er lokaður fyrir hefðbundn-
um iðgjaldagreiðslum. ■
Samson borgar Landsbankann:
Björgólfur formaður bankaráðs
BORGA
Samson ehf. mun greiða ríkinu vegna
kaupa á Landsbankanum í dag. Þar með
er eignarhlutur í bankanum formlega kom-
inn í hendur nýrra kjölfestueigenda.
EYMINGI AUSTAN
AF LANDI
Og helst er að skilja að þeir einir
megi tala um aumingjana sem eru
aumingjar sjálfir.
Ellert B. Schram skammar Hrafnkel A.
Jónsson fyrir að saka þá um aumingja-
gæsku sem vilja vekja máls á fátækt.
Morgunblaðið, 12. febrúar.
OG HALLDÓR EKKI
AF BOGESENÆTTINNI
Ingibjörg Sólrún er engin Salka
Valka.
Halldór Blöndal.
Morgunblaðið, 12. febrúar.
VÉR HÁHYRNINGAR
Þetta er spurning um hvort hann
kýs að koma með okkur eða verð-
ur áfram með öðrum háhyrning-
um.
Colin Baird, gæslumaður
Keikós. DV, 12. febrúar.
ORÐRÉTT
FERÐAÞJÓNUSTA „Okkur sýnist að
það sé að skapast öflug samstaða
meðal ferðaþjónustuaðila á Norð-
urlandi í markaðs- og kynningar-
málum, hugmyndin
um sameiginlega
markaðsskrifstofu
fyrir landshlutann
virðist ætla að
ganga upp,“ sagði
Ásbjörn Björgvins-
son, forstöðumaður
Hvalamiðstöðvar-
innar á Húsavík.
Undanfarin ár
hafa ferðaþjón-
ustuaðilar á Norðurlandi alið með
sér draum um sameiginlega
markaðsskrifstofu með það að
markmiði að koma svæðinu á
framfæri sem heild. Svæðið sem
um ræðir nær frá Hrútafirði í
vestri að Bakkafirði í austri en
Norðurlandið allt er undir, hálend-
ið þar með talið.
„Við erum að kynna sveitar-
stjórnarmönnum hugmyndir okk-
ar, viljum fá sveitarfélög og
greinina alla til þess að standa
sameiginlega að slíkri markaðs-
og kynningarskrifstofu fyrir
svæðið. Við erum búnir að halda
tvo fundi, annan með
Skagfirðingum og hinn með
Þingeyingum. Viðtökur hafa verið
góðar og nú erum við að kynna
þetta fyrir Húnvetningum. Næst
er það Eyjafjörður og í framhaldi
af því metum við stöðuna,“ sagði
Ásbjörn og bætti við að undanfar-
in ár hefði hver sýslað í sínu
horni. Það hefði ekki skilað þeim
árangri sem æskilegur væri.
„Til þess að auka markaðshlut-
deild Norðurlands í heildinni
þurfum við meiri slagkraft. Hann
næst ekki nema með aukinni sam-
vinnu. Hugmyndir okkar ganga út
á það að sveitarfélögin og fyrir-
tæki sem hafa beinan hag af
ferðamennskunni komi að fjár-
mögnun markaðsskrifstofunnar
með greininni. Þar gætu orðið tvö
til þrjú störf til að byrja með. Það
má ekki líða mikið meira en mán-
uður þar til menn komast að end-
anlegri niðurstöðu og eftir þessa
kynningarfundi núna komum við
til með að senda erindi til sveitar-
félaganna og óska eftir formlegri
afstöðu þeirra til verkefnisins.
Okkar draumur er að starfsemin
komist í gang sem allra fyrst þan-
nig að skrifstofan nýtist í mark-
aðs- og kynningarmálum í sumar.
Árangurinn mun þó ekki sjást að
marki fyrr en á næsta ári,“ sagði
Ásbjörn Björgvinsson.
the@frettabladid.is
Markaðsskrifstofa
í burðarliðnum
Sveitarfélög á Norðurlandi frá Hrútafirði að Bakkafirði taka jákvætt í
hugmyndir um sameiginlega markaðsskrifstofu ferðamála fyrir svæðið.
Skýrist innan mánaðar hvort verkefninu verður hrint í framkvæmd.
HÚSAVÍK
Norðlenskir sveitarstjórnarmenn taka jákvætt í hugmyndir um sameiginlega markaðsskrif-
stofu fyrir ferðaþjónustu á svæðinu. Ætlunin er að stórauka hlut Norðlendinga í ferðaþjón-
ustu á landinu.
„Það má ekki
líða mikið
meira en
mánuður þar
til menn kom-
ast að endan-
legri niður-
stöðu.“