Fréttablaðið - 13.02.2003, Page 10
10 13. febrúar 2003 FIMMTUDAGUR
SVONA ERUM VIÐ
INNBROT Þrír menn skutu sér leið
inn í verslunina Tölvulistann í
Nóatúni í fyrrinótt og stálu far-
tölvu. Notuðu mennirnir afsagaða
haglabyssu. Skutu þeir þremur
skotum á sýningarglugga sem
brotnaði. Mennirnir þrír, sem allir
eru um tvítugt, náðust tveimur
klukkustundum síðar. Mikil leit
hafði staðið yfir í hverfinu eftir að
tilkynning um innbrotið barst um
klukkan 1.40. Að sögn lögreglu
fannst yfirgefinn bíll í nágrenni
innbrotsstaðarins og var byssan í
bílnum. Höfðu mennirnir flúið af
vettvangi á fæti. Þeir voru í haldi
lögreglu í gærdag.
Lögreglu þykir þetta heldur
undarleg og nýstárleg aðferð til
innbrots. Liggi í augum uppi að
skotvopn á borð við afsagaða
haglabyssu sé ekki hljóðlátt verk-
færi. Litið sé á þennan verknað al-
varlegum augum.
Óskar Óskarsson, verslunar-
stjóri Tölvulistans, segir höglin úr
byssunni hafa dreifst víða um
búðina og valdið skemmdum. Tel-
ur hann tjónið nema hundruðum
þúsunda en fyrir urðu tölvur,
prentarar og skjáir. „Það verður
að viðurkennast að manni er ansi
órótt að vita til þess að menn séu
farnir að mæta með skotvopn við
innbrot,“ segir Óskar. Þá séu eig-
endur verslunarinnar að skoða
hvort ekki sé ráð að setja rimla
fyrir gluggana. ■
Dugmikill Nepali:
Netkaffi á
Everest
NEPAL, AP Framtakssamur Nepali
ætlar að opna netkaffihús í hlíð-
um Everest-fjalls á komandi
vori.
Kaffihúsið verður staðsett í búð-
um í 5.300 metra hæð yfir sjáv-
armáli þar sem veður eru oft á
tíðum afar óblíð. Í búðunum er
ekkert rafmagn og engin varan-
leg mannvirki enda standa þær á
jökulís sem færist til um nokkra
sentímetra á dag.
Ætlunin er að setja upp átta
fistölvur sem ganga fyrir raföl-
um og sólarrafhlöðum en áætlað
er að það taki um viku að bera
allan búnaðinn á staðinn. ■
Skoðanakönnun IBM:
Ríkisstjórnin
heldur velli
KÖNNUN Samfylkingin og Sjálfstæð-
isflokkurinn mælast með svipað
fylgi samkvæmt niðurstöðum skoð-
anakönnunar sem Rannsóknarsvið
IBM viðskipta-
ráðgjafar gerði
fyrir Ísland í bítið
á Stöð 2. Fylgi
Samfylkingarinn-
ar mældist 37,7%
en 36,6% sögðust
kjósa Sjálfstæðis-
flokkinn. Fylgi
F r a m s ó k n a r -
flokksins mæld-
ist 13,3%, fylgi
Vinstri hreyfing-
arinnar – græns
framboðs mældist 6,9% og Frjáls-
lynda flokksins 1,4%. Alls voru 834
á aldrinum 16-67 ára á landinu öllu
spurðir í könnuninni og tók 361 af-
stöðu. Þegar spurt var um líkleg-
asta ríkisstjórnarmynstrið nefndu
flestir aðspurðra óbreytta ríkis-
stjórn. 47,8% sögðust telja að
Framsóknarflokkur og Sjálfstæðis-
flokkur endurnýjuðu samstarf sitt
að loknum kosningum en 14,9%
telja að Framsóknarflokkurinn og
Samfylkingin myndi ríkisstjórn.
Þá vilja flestir sjá Ingibjörgu
Sólrúnu Gísladóttur sem forsætis-
ráðherra. 46,9% nefndu hana en
39,1% sögðust vilja Davíð Odds-
son. ■
Á FRAMABRAUT
Íbúar Singapore segja að erfitt sé að stof-
na fjölskyldu í þjóðfélagi þar sem allt snýst
um peninga.
Fólksfækkun veldur
áhyggjum:
Herferð
gegn
barnleysi
SINGAPORE, AP Yfirvöld í Singapore
hafa hrint af stað herferð sem
beint er að ungum einhleypum
konum í landinu og er ætlað að
vinna gegn fólksfækkun í landinu.
Herferðin, sem tengd er Valent-
ínusardegi, á að höfða til móður-
eðlis kvennanna og hvetja þær
þar með til þess að festa ráð sitt
og stofna fjölskyldu.
Sérstök ríkisstofnun í
Singapore sér um að auka áhuga
landsmanna á hjónaböndum og
barneignum og stendur hún á bak
við herferðina. Á undanförnum
árum hafa sífellt fleiri valið að
bíða með barneignir til þess að
geta einbeitt sér að frama sínum á
vinnumarkaði. Í kjölfarið hefur
fæðingartíðnin í landinu hrapað
og hafa yfirvöld reynt að sporna
við þessari þróun með öllum til-
tækum ráðum. ■
FYLGI
FLOKKANNA
B 13,30%
D 36,60%
F 1,40%
S 37,70%
U 6,90%
Annað 4,20%
*samkvæmt
könnun Rannsókn-
arsviðs IBM við-
skiptaráðgjafar
Þrír menn handteknir:
Skutu sér leið
inn í verslun
TÖLVULISTINN Í NÓATÚNI
Óskari Óskarssyni, verslunarstjóra Tölvulist-
ans, er órótt að vita til þess að menn mæti
með skotvopn í innbrot.
Alls kom 1.791 sjúklingur á Vog árið 2001.
Þar af voru konur 525 eða 30% og karlar
1.266 eða 70%. Fjölmennasti aldurshóp-
urinn var fólk á aldrinum 14-24 ára, eða
588 manns. Mjög dregur úr fjölda sjúk-
linga þegar komið er yfir fimmtugt, en
þeir voru alls 14% af heildinni.
DEILA Sjóntækjafræðingar og
augnlæknar hafa ekki verið á
eitt sáttir um hvort það sé al-
menningi til framdráttar að þeir
fyrrnefndu mæli sjón manna.
Augnlæknar hafa borið því við
að sjúkdómar eins og gláka fari
framhjá sjóntækjafræðingum
og tilfellum hennar muni því
fjölga.
Sjóntækjafræðingar hafa
bent á þá staðreynd að þeir hafi
fram til þessa mælt fyrir linsum
og á því og mælingu fyrir gler-
augum sé ekki eðlismunur; að-
eins stigsmunur. Þeir telja lögin
úrelt og margbrotin ekki síður
sér í óhag því hægt sé að kaupa
gleraugu víða, svo sem á bensín-
stöðum. ■
ELÍNBORG GUÐMUNDSDÓTTIR,
FORMAÐUR FÉLAGS AUGNLÆKNA:
Ekki
fullgilt nám
Augnlæknar eru ekki að berjastfyrir að lögum sé framfylgt
vegna eigin hagsmuna. Til að
skilja þetta mál þarf að setja sig
inn í forsöguna. Þessi lög voru
sett 1984 en þá fengu þeir sem
starfað höfðu við gleraugnasölu í
fjögur ár réttindi. Fyrir nokkrum
árum fengu sjóntækjafræðingar
til sín mann að utan sem hélt nám-
skeið í sjónmælingum. Við teljum
að það geti tæplega talist til jafns
við fullgilt nám. Það sem hefur
hins vegar gerst síðari ár er að
utan úr námi hafa komið betur
menntaðir sjóntækjafræðingar.
Því verða þessar kröfur um að sjá
alfarið um sjónmælingu auðvitað
háværari.
Þeir halda því fram að mennt-
un þeirra sé betri til að mæla sjón
en augnlækna. Það er eins og
hvert annað kjaftæði og í raun
óskiljanlegt hvernig þeim dettur
slík vitleysa í hug. Sjónmæling er
ekki aðgreinanleg frá augnlækn-
ingum eins og lungnalæknir getur
ekki verið án hlustunarpípu eða
eitthvað viðlíka.
Það er misskilningur að þeir
hafi heimild til að mæla fyrir lins-
um. Það að þeir hafi gert það í
mörg ár gerir það ekki löglegt.
Það er svipað og að aka yfir á
rauðu ljósi. Þó þú komist upp með
það breytir það því ekki að það er
bannað.“ ■
KJARTAN KJARTANSSON
SJÓNTÆKJAFRÆÐINGUR:
Okkar
verksvið
Sjónmælingar eru okkar fag ogþað er okkar verksvið en ekki
augnlækna. Okkur er treyst til að
mæla fyrir réttum sjónhjálpar-
tækjum. Það er nauðsynlegt að
draga fram fáránleika þessara
laga. Sala á stöðluðum gleraugum
hefur viðgengist síðustu átján ár.
Hvar voru augnlæknar þá í sjón-
vernd sinni fyrir almenning? Það
er klárt samkvæmt lögum að það
er ekki heimilt að selja stöðluð
gleraugu nema í gleraugnaversl-
unum. Sala á sjónhjálpartækjum
fer fram á augnlæknastofum og
hefur gert það í mörg ár. Það hlýt-
ur að vera skýlaust brot. Það ligg-
ur í hlutarins eðli að sá sem fram-
leiðir vöruna beri ábyrgð á henni.
Augnlæknar hafa talað um
augnsjúkdóma eins og gláku. Það
lýsir vankunnáttu þeirra um okk-
ar nám að halda því fram að við
könnum ekki bæði gláku og aðra
augnsjúkdóma. Við spyrjum
menn hve langt er síðan þeir fóru
síðast til augnlæknis og vísum
þeim til þeirra ef of langur tími er
liðinn. Það er ómaklegt af augn-
læknum að þakka sjálfum sér góð-
an árangur í að greina gláku á
byrjunarstigi. Hjartavernd á þar
stóran þátt.“ ■
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
B
ER
T
ÓLÍK SJÓNARMIÐ
Úrelt lög eða forsjárhyggja?