Fréttablaðið - 13.02.2003, Síða 12
12 13. febrúar 2003 FIMMTUDAGUR
HÚSAVÍKURLÖGGAN FANN HASS
Lögreglan á Húsavík lagði hald á
14 grömm af hassi á einum gisti-
staða bæjarins aðfaranótt sunnu-
dagsins. Einn maður var handtek-
inn vegna málsins og viðurkenndi
hann að eiga efnið. Málið telst
upplýst. Sömu nótt var rúða brot-
in í anddyri Landsbankans, nánar
tiltekið við hraðbankann.
INNBROT Í TVO SKÓLA Innbrot
var framið í tvo grunnskóla á Ak-
ureyri í fyrrinótt, Glerárskóla og
Síðuskóla. Að sögn lögreglu er
talið að um sömu þrjóta sé að
ræða. Þjófarnir höfðu á brott
með sér verðmætan tækjabúnað
og lítilræði af peningum.
PREDIKARI Landlæknir telur að
Charles Indifone, predikarinn
sem kom hingað á vegum Kross-
ins og annarra trúfélaga, blekki
fólk á samkomum sínum.
„Við erum ekki endilega að
segja að það sé mönnum skaðlegt
að sækja svona
samkomur en fólk
er misjafnlega út-
sett fyrir þessu og
svona samkomur
geta beinlínis vald-
ið því skaða,“ segir
Haukur Valdi-
marsson aðstoðar-
landlæknir.
Hann segir
manninn hafa aug-
lýst að hann geti
læknað alnæmi,
krabbamein og lifrarbólgur. „Við
erum ekki hrifin af slíkum yfir-
lýsingum því sá sem segist geta
læknað þessa sjúkdóma á einni
samkomu er augljóslega að
blekkja, fyrir utan þá staðreynd
að það er ekki heimilt samkvæmt
lögum,“ segir Haukur.
Hann segist vissulega bera
virðingu fyrir trúnni og máttur
hennar sé mikill svo lengi sem
menn beri ekki skaða af. Hann
bendir á að vitað sé um í það
minnsta eitt tilfelli þar sem mað-
ur þurfti að leggjast inn á sjúkra-
hús vegna þess að hann hætti að
nota lyf sem voru honum nauð-
synleg.
Gunnar Þorsteinsson, for-
stöðumaður Krossins, sem átti
aðild að því að fá Charles Indi-
fone hingað, segir að vissulega
hljóti ekki allir lækningu. „Við
eigum engin svör við því hvers
vegna einn en ekki annar lækn-
ast. Þessi maður hefur unnið
talsvert í Danmörku og þar hef-
ur verið rituð bók um lækningar
hans. Það er enginn vafi á að
margir hljóta bót meina sinna og
ég var að fá eintak af færeysku
dagblaði þar sem segir af manni
sem steig úr hjólastól og skautar
nú á hjólaskautum,“
Gunnar telur að það heyri til
algjörra undantekninga að fólk
telji sig læknað og skaðist af.
„Við leggjum ríka áherslu á að
menn geri ekkert nema í samráði
við sinn lækni og það er ekki frá
okkur komið að hægt sé að kasta
öllum lyfjum fyrirvaralaust. Það
breytir ekki því að Guð hefur
hjálpað mörgum fyrir tilstilli
þessa manns því það er ekki
hann sem læknar heldur kemur
lækningin frá Guði,“ segir Gunn-
ar Þorsteinsson.
Charles Indifone er væntan-
legur aftur í maí.
bergljot@frettabladid.is
DECODE Sverrir Her-
mannsson, þingmaður
Frjálslynda flokksins,
vill að Alþingi skipi
nefnd til að rannsaka
umsvif bandaríska
fyrirtækisins DeCode
Genetics Inc. og að-
stoðarmanna þess í ís-
lensku fjármálakerfi.
Í greinargerð með
þingsályktunartillögu
Sverris segir að þeir
viðskiptahættir sem
viðhafðir voru við sölu
hlutabréfa í DeCode á
Íslandi virðist hafa
verið með þeim hætti
að ítarleg rannsókn sé
nauðsynleg. Ekki
þurfi síst að rannsaka
hvaða ábyrgð íslensk
stjórnvöld kunni að bera í því
sambandi. Enn fremur segir að
með ótrúlegum blekkingum hafi
starfsmönnum ýmissa fjármála-
fyrirtækja tekist að selja fjöl-
mörgum Íslendingum bréf í
DeCode sem verðlítil hafi reynst
og standi kaupendur nú frammi
fyrir gjaldþroti. Slíkar aðferðir
hafi einnig verið stundaðar af
fyrirtækjum í ríkiseign, svo sem
bönkum. Þessa rannsókn telur
Sverrir Hermannsson að þurfi að
framkvæma með tilliti til þess
einnig hvort íslensk stjórnvöld
verði kölluð til fjárhagslegrar
ábyrgðar á viðskiptunum. ■
JÜRGEN MOELLEMANN
Ummæli hans um forystumann gyðinga í
Þýskalandi og forsætisráðherra Ísraels urðu
honum að falli.
Sakaður um
gyðingahatur:
Segir af sér
þingsæti
BERLÍN, AP Þýski þingmaðurinn
Jürgen Moellemann hefur til-
kynnt afsögn sína á þýska þinginu
vegna ummæla sinna sem samtök
gyðinga segja að einkennist af
fordómum í sinn garð.
Afsögn þingmannsins á sér
langan aðdraganda. Á síðasta ári
sagði hann óbilgjarnan og ill-
gjarnan málflutning eins forystu-
manna gyðinga ýta undir gyðinga-
hatur. Ummælin ollu miklu
fjaðrafoki.
Félagar Moellemanns í flokki
Frjálsra demókrata reyndu án ár-
angurs að reka hann úr flokknum
og höfðu undirbúið að reyna að fá
hann rekinn af þingi. ■
ALÞINGI Umhverfisráðuneytinu
hafa borist mótmæli gegn Kára-
hnjúkavirkjun frá tvennum er-
lendum samtökum, annars veg-
ar frá The British Association
for Shooting and Conservation
og hins vegar frá Föreningen
Natur och Samhälle i Norden.
Þetta kemur fram í svari ráð-
herra við fyrirspurn Kolbrúnar
Halldórsdóttur.
Fram kemur að einnig hafi
borist afrit af mótmælum frá
BirdLife International, The
Wildfowl & Wetlands Trust,
Northumberland Wildlife Trust
og The Royal Society for the
Protection of Birds, sem send
voru öðrum aðilum. Northum-
berland Wildlife Trust er með
yfir fjögur hundruð þúsund
meðlimi og The Royal Society
for the Protection of Birds með
yfir milljón aðila.
Þá upplýsir umhverfisráð-
herra að í lok janúar hafi ráðu-
neytinu borist alls 1.958 mót-
mælasendingar frá erlendum
einstaklingum, þar af 1.890 með
tölvupósti. ■
Stríðsfangar:
Lausir eftir
20 ára fang-
elsisvist
MAROKKÓ, AP Polisario-hreyfingin
hefur leyst um hundrað marokk-
óska hermenn úr haldi, rúmum 20
árum eftir að hermennirnir féllu í
hendur hreyfingunni. Polisario
hefur barist fyrir sjálfstæði Vest-
ur-Sahara, sem Marokkó hernam
eftir að Spánverjar héldu þaðan á
brott í lok nýlendutíma síns 1975.
Tólf ár eru síðan samið var um
vopnahlé í átökum Polisario og
Marokkó. Sameinuðu þjóðirnar
hafa síðan þá reynt að finna endan-
lega lausn á deilunni. ■
Amnesty um Myanmar:
Meiri vegur
réttinda
BANGKOK, AP Mannréttindum er
enn ábótavant í Myanmar en ein-
hver árangur hefur þó náðst í að
auka veg þeirra, sagði svæðis-
stjóri Amnesty International í
Asíu eftir að fulltrúar samtak-
anna könnuðu stöðu mannrétt-
indamála í landinu.
Sendimenn Amnesty ræddu við
fjölda fanga og fyrrum fanga í
Myanmar og höfðu eftir þeim að
aðstæður í fangelsum hefðu batn-
að á síðustu árum. Einræðisstjórn-
in í Myanmar hefur verið gagn-
rýnd fyrir að fangelsa þúsundir
stjórnarandstæðinga og vista þá
við harkalegar aðstæður. ■
Úr hjólastól á hjólaskauta
Predikarinn Charles Indifone, sem kom til Íslands og hélt samkomu í lækningaskyni, hefur ein-
nig verið í Færeyjum. Þar segja blöð frá því að maður hafi stigið úr hjólastól og farið á hjóla-
skauta eftir samkomu hjá honum. Landlæknir ekki hrifinn.
KROSSINN
Gunnar Þorsteinsson í Krossinum segir ekki til nein svör við því hvernig standi á að einn
læknist fremur en annar á samkomum Charles Indifone. Lækningin komi frá Guði en ekki
predikaranum sjálfum.
„Það er ekki
frá okkur
komið að
hægt sé að
kasta öllum
lyfjum fyrir-
varalaust. Við
bendum fólki
á að hafa
samráð við
lækni.“
Blekking við sölu hlutabréfa í DeCode:
Rannsókn
nauðsynleg
SVERRIR HERMANNSSON
Fyrrverandi Landsbankastjóri og núver-
andi þingmaður Frjálslynda flokksins telur
blekkingum hafa verið beitt við sölu á
hlutabréfum í DeCode. Sverrir segir nauð-
synlegt að rannsaka hvort ríkið beri þar
ábyrgð.
Mótmæli erlendra gegn Kárahnjúkavirkjun:
Tvenn samtök og tvö
þúsund einstaklingar
SIV FRIÐLEIFSDÓTTIR
Umhverfisráðherra hefur fengið hátt í tvö
þúsund tölvupósta frá útlöndum þar sem
Kárahnjúkavirkjun er mótmælt. Mótmæli
hafa aðeins borist frá tvennum erlendum
samtökum.
LÖGREGLUFRÉTTIR
Rússland:
Mega blóta og
tala útlensku
MOSKVA, AP Rússneskir embættis-
menn, fjölmiðlamenn og auglýs-
ingamenn mega halda áfram að
tala og skrifa erlend orð auk þess
að blóta. Efri deild rússneska
þingsins hefur hafnað lagafrum-
varpi sem gekk út á að banna blóts-
yrði og notkun erlendra orða á op-
inberum vettvangi.
Hefði frumvarpið verið sam-
þykkt hefði verið bannað að
viðhafa skammaryrði, grófar at-
hugasemdir og blótsyrði á opinber-
um vettvangi. Þá hefði ekki mátt
nota erlend orð ef til væru algeng
rússnesk orð til að lýsa sama við-
fangsefninu. ■
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M