Fréttablaðið - 13.02.2003, Síða 13
FIMMTUDAGUR 13. febrúar 2003
VG í kraganum:
Allir listar
frágengnir
FRAMBOÐSLISTI Jóhanna B. Magn-
úsdóttir umhverfisfræðingur
verður í 1. sæti framboðslista
Vinstri hreyfingarinnar – græns
framboðs í Suðvesturkjördæmi
fyrir komandi alþingiskosningar.
Þórey Edda Elísdóttir stangar-
stökkvari verður í öðru sæti og
Ólafur Þór Gunnarsson læknir í
því þriðja.
Tvö neðstu sætin skipa Arn-
þór Helgason, framkvæmda-
stjóri Öryrkjabandalags Íslands,
og Kristín Halldórsdóttir, fram-
kvæmdastjóri VG. Vinstri hreyf-
ingin – grænt framboð hefur nú
gengið frá framboðslistum í öll-
um kjördæmum fyrir komandi
kosningar. ■
FRAMBOÐSLISTI VINSTRI
GRÆNNA Í SV-KJÖRDÆMI
1. Jóhanna B. Magnúsdóttir
2. Þórey Edda Elísdóttir
3. Ólafur Þór Gunnarsson
4. Sigmar Þormar
5. Jón Páll Hallgrímsson
6. Oddný Friðriksdóttir
7. Anna Ólafsdóttir Björnsson
8. Sigurður Magnússon
9. Þóra Sigurþórsdóttir
10. Jens Andrésson
11. Anna Tryggvadóttir
Kínverjar þróa snakk:
Kex fyrir
pandabirni
PEKING, AP Kínverjar hafa þróað
næringarríkt kex til að gefa
pandabjörnum. Björnunum hef-
ur fækkað verulega og eru nú
rétt rúmlega þúsund talsins.
Pandabirnir eru matvandir og er
talið að það eigi þátt í því að þeir
eru ekki fleiri en raun ber vitni.
Að sögn Xinhua-fréttastof-
unnar hefur nýja kexinu verið
dreift meðal pandabjarna í sér-
stakri rannsóknarstöð. Í því er
að finna næga næringu fyrir
pandabirni sem eru að vaxa auk
þess sem það á að geta hjálpar
pandabjörnum sem eiga erfitt
með meltingu. ■
SKÝR ÁDEILA
Þó að helstu aðilar Íraksdeilunnar séu
hvergi nefndir á nafn í leiksýningunni dylst
fáum sem á horfa hvað leikararnir eru að
túlka.
Götuleikhús með
boðskap:
Nýstárlegar
mótmæla-
aðgerðir
PAKISTAN, AP Pakistanskur leikhóp-
ur hefur sett upp götuleiksýningu
þar sem hvatt er til þess að komið
verði í veg fyrir árás Bandaríkja-
manna á Írak. Að sögn höfundar
leikritsins er boðskapur þess sá
að stríð sé aldrei lausn á deilumál-
um og friður sé ávallt eini raun-
hæfi kosturinn. Einnig er lögð
áhersla á það að yfirvofandi stríð
snúist framar öllu um olíu en ekki
trúarbrögð.
Leikverkið byggir á skýrum
táknmyndum en aldrei er minnst
þar orði á George W. Bush Banda-
ríkjaforseta, Saddam Hussein,
gereyðingavopn eða annað í þeim
dúr. ■