Fréttablaðið - 13.02.2003, Qupperneq 16
16 13. febrúar 2003 FIMMTUDAGURFÓTBOLTI
NÝR LANDSLIÐSÞJÁLFARI
Hollendingurinn Arie Haan stýrir kínverska
landsliðinu í knattspyrnu í kvöld þegar það
mætir því brasilíska. Haan kann greinilega
ýmislegt fyrir sér í boltanum.
ÍÞRÓTTIR Í DAG
tilboð á hillum og brettarekkum
Yfir 40 ára þjónusta við íslensk fyrirtæki í lausnum á
lagerrýmum. Hillur og brettarekkar eru nú á sérstöku tilboði.
Sindri Reykjavík · Klettagarðar 12 · 104 Reykjavík · sími 575 0000 · fax 575 0010
Sindri Akureyri · Draupnisgötu 2 · 603 Akureyri · sími 462 2360
Sindri Hafnarfirði · Strandgötu 75 · 220 Hafnarfirði · sími 565 2965
kynntu þér
tilboðin!
FÓTBOLTI Peter Schmeichel, mark-
vörður Manchester City, gæti
neyðst til að leggja skóna á hilluna
í lok tímabilsins. Hinn tröllvaxni
Dani hefur misst af fjórum síð-
ustu leikjum liðsins vegna kálfa-
meiðsla.
Schmeichel, sem nú er 39 ára,
segist ekki lengur setja sér lang-
tímamarkmið í knattspyrnunni.
„Eins og staðan er nú á ég
erfitt með að horfa fram á veginn.
Ef ég væri spurður hvort ég yrði
hér á næsta ári og líkaminn leyfði
það myndi ég segja já. En ég veit
ekki hvort ég verð í lagi,“ sagði
Schmeichel, sem hefur slegið á
frest frekari samningaviðræðum
við City á meðan hann jafnar sig
af meiðslunum.
Schmeichel segist vera afar
svekktur með að hafa misst af ná-
grannaslag Manchester-liðanna á
Old Trafford um síðustu helgi, en
þar lék hann með Manchester
United um átta ára skeið.
Hann stefnir á að vera klár í
slaginn eftir tvær vikur þegar
City mætir Arsenal. ■
Peter Schmeichel:
Ferillinn á enda?
PETER SCHMEICHEL
Lék í átta ár með Manchester United
áður en hann fór til Portúgals. Hann
sneri skömmu síðar aftur í úrvalsdeild-
ina og lék þá með Aston Villa áður en
hann fór yfir í Manchester City.
FÓTBOLTI Að sögn Hermanns er
andrúmsloftið í herbúðum
Ipswich mjög gott þrátt fyrir það
sem á undan er gengið. „Það er
búið að ræða við leikmenn. Það
eru margir verr staddir en við en
það var kannski við þessu að bú-
ast eftir allt saman,“ sagði Her-
mann.
„Það eru margir klúbbar búnir
að brenna sig á bilinu á milli úr-
valsdeildar og fyrstu deildar á
síðustu árum. Þessir klúbbar sem
koma til með að fara upp og niður
um deild munu verða betur undir-
búnir fyrir þetta næstu árin.“
Hermann viðurkennir að mikl-
ar breytingar gætu orðið á leik-
mannahópi Ipswich í sumar kom-
ist liðið ekki upp í úrvalsdeildina
því þá muni félagið neyðast til að
selja leikmenn. Hann á sjálfur tvö
og hálft ár eftir af samningi sín-
um og segist ekkert vita hvað ger-
ist í hans málum eftir leiktíðina.
„Maður veit aldrei hverjir fara og
það getur alltaf eitthvað gerst. Fé-
lagaskipti verða samt að vera rétt,
ekki bara fyrir klúbbinn heldur
leikmanninn líka.“
Hermann segist ekki sjá eftir
að hafa sleppt tækifæri til að
ganga til liðs við West Bromwich
Albion, sem leikur í úrvalsdeild-
inni, fyrir þessa leiktíð. „Nei, ég
hugsaði það alveg út. Hvernig
sem tímabilið hefði farið hjá
Ipswich ætlaði ég aldrei að sjá
eftir þessari ákvörðun. Ég fékk
sénsinn á því að fara og ég hefði
tekið hann ef ég hefði viljað. Það
var bara margt annað sem spilaði
inn í og það varð ekkert af því.“
Ipswich er sem stendur í ní-
unda sæti 1. deildar og er í harðri
baráttu um eitt af fjórum sætum í
úrslitakeppni um laust sæti í úr-
valsdeildinni. Næsti leikur liðsins
í deildinni er gegn Wolves á mið-
vikudag. Þar verður Hermann
fjarri góðu gamni því hann er á
leið í fjögurra leikja bann vegna
fimm gulra spjalda á leiktíðinni.
Að sögn Hermanns var 3:2 sig-
ur Ipswich gegn Sheffield United
um síðustu helgi mjög mikilvæg-
ur. „Við vorum tvö núll undir og
manni færri í 75 mínútur en náð-
um að vinna leikinn 3:2 á síðasta
hálftímanum. Þetta var ótrúlega
sterkur sigur á móti liðinu sem er
í þriðja sæti. Við sýndum karakt-
er og það að við getum unnið
hvaða lið sem er í þessari deild.
Vonandi náum við smá skriði í
restina og tryggjum okkur sæti í
úrslitakeppninni.“
freyr@frettabladid.is
Mjög gott
andrúmsloft
hjá Ipswich
Ipswich, félag Hermanns Hreiðarssonar, hefur
óskað eftir nauðasamningum til að bjarga sér frá
gjaldþroti. Hermann segir að margir leikmenn
verði seldir komist félagið ekki í úrvalsdeild.
HERMANN
Hermann segist ætla að æfa vel í fríinu sem hann fær nú vegna leikbannsins. Kannski
ætlar hann samt að reyna að fá einhverja frídaga.
KÖRFUBOLTI Kobe Bryant átti enn
einn stórleikinn þegar meistarar
L.A. Lakers unnu Denver Nugg-
ets með 121 stigi gegn 93 í NBA-
deildinni í körfubolta í fyrrinótt.
Bryant skoraði 42 stig þrátt
fyrir að hvíla í síðasta leikhlutan-
um. Þetta var sjötti leikurinn í
röð sem Bryant skorar meira en
35 stig í leik og í tíunda sinn á
leiktíðinni sem hann skorar
meira en 40 stig í leik. Þetta var
jafnframt sjötti sigurleikur
Lakers í röð.
Shaquille O’Neal, samherji
Bryant, skoraði 20 stig, tók átta
fráköst og gaf fimm stoðsending-
ar. ■
Martin Keown,
leikmaður Arsenal:
Sektaður
fyrir að ýta
Nistelrooy
FÓTBOLTI Martin Keown, leikmaður
Arsenal, hefur verið sektaður um
rúmar 600 þúsund krónur af enska
knattspyrnusambandinu fyrir að
ýta við Ruud van Nistelrooy, leik-
manni Manchester United, í leik
liðanna 7. desember.
Keown fékk einnig áminningu
frá knattspyrnusambandinu vegna
athæfisins, sem sást á myndbands-
upptöku.
Keown segist ekki hafa ætlað
sér neitt illt með athæfi sínu. ■
16.45 RÚV
Sýnd verða helstu atriði liðinn-
ar viku í handboltanum í Hand-
boltakvöldi.
18.00 Sýn
Sportið með Olís.
18.30 Sýn
Heimsfótbolti með Western
Union.
19.15 Grindavík
Nágrannaslagur verður í 1.
deild kvenna í körfu þegar
Grindavík tekur á móti Kefla-
vík.
19.15 Ásvellir
Haukastelpur taka á móti ÍS,
nýkrýndum bikarmeisturum í
körfubolta, að Ásvöllum.
19.15 Sauðárkrókur
Tindastóll, sem situr í 7. sæti
Intersport-deildarinnar í körfu,
tekur á móti Breiðabliki, sem
er í níunda sæti.
19.15 Stykkishólmur
Snæfellingar taka á móti Njarð-
víkingum í Intersport-deildinni
í körfu.
19.15 Valsheimili
Valur, neðsta lið deildarinnar í
körfu karla, tekur á móti Hamri
frá Hveragerði, sem situr í
þriðja neðsta sætinu.
20.00 Sýn
Í golfþætti á Sýn fáum við að
fylgjast með spænska kylf-
ingnum Jose Maria Olazabal í
nærmynd.
20.30 Sýn
Golfarinn Bernard Langer í
nærmynd.
22.00 Sýn
Vikan í enska boltanum.
22.30 Sýn
Sportið með Olís.
23.00 Sýn
Leikur Argentínu og Englands á
HM 2002 verður endursýndur á
Sýn.
TROÐSLA
Kobe Bryant undirbýr troðslu gegn Denver Nuggets. Kappinn skoraði 42 stig í leiknum.
Kobe Bryant með enn einn stórleikinn:
Yfir 35 stig í sex
leikjum í röð