Fréttablaðið - 13.02.2003, Side 17
FIMMTUDAGUR 13. febrúar 2003
FÓTBOLTI
Útsala
afsláttur
70%
allt a›
Girnilegar tilboðskörfur á
500 kr., 1.000 kr. og 1.500 kr.
Smáralind - Glæsibæ
Simi 545 1550 og 545 1500
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
U
TI
2
00
17
0
2/
20
03
KEANE
Roy Keane mun ekki klæðast grænu
landsliðstreyjunni framar.
Roy Keane tekur
erfiða ákvörðun:
Hættur
með írska
landsliðinu
FÓTBOLTI Roy Keane, leikmaður
Manchester United, hefur til-
kynnt að hann sé hættur að leika
með írska landsliðinu í knatt-
spyrnu.
Búist hafði verið við því að
Keane yrði tekinn aftur inn í írska
landsliðshópinn af hinum nýja
þjálfara Brian Kerr en sú varð
ekki raunin.
„Á fundi mínum með Brian
Kerr í síðustu viku kynnti hann
fyrir mér framtíðaráform sín með
írska landsliðið,“ sagði Keane.
„Þetta var fyrsti fundurinn minn
með Brian og eftir hann komst ég
strax á þá skoðun að írska liðið
væri í mjög góðum höndum. Ég
ráðfærði mig við Alex Ferguson
(knattspyrnustjóra Manchester
United), fjölskyldu mína og lækn-
ana sem gerðu á mér mjaðmar-
aðgerð í september. Þér ráðlögðu
mér að snúa ekki aftur í landslið-
ið,“ sagði Keane og bætti við: „Ég
óska Brian og strákunum í liðinu
hins besta í framtíðinni. Þeir hafa
allan minn stuðning.“
Kerr var ráðinn landsliðsþjálf-
ari Írlands í síðasta mánuði. Hafði
hann vonast til að fá Keane aftur í
hópinn eftir að hann var rekinn
heim með skömm af HM síðastlið-
ið sumar. ■
BOBSLEÐAKAPPAR
Þýskir bobsleðakappar voru meðal kepp-
enda á heimsmeistaramótinu í bobsleða-
akstri sem haldið var á dögunum í Calgary
í Alberta-ríki í Kanada. Á myndinni sést
ökumaðurinn Andre Lange stökkva um
borð í sleðann í keppni fjögurra manna
bobsleða.
BEÐIÐ TIL GUÐS?
Það er engu líkara en að Gary Kirsten,
leikmaður suður-afríska landsliðsins í
krikkett, hafi beðið til Guðs um leið og
hann greip boltann í sigurleik liðsins
gegn Kenýa í gær. Leikurinn, sem háður
var í Suður-Afríku, var liður í heimsmeist-
arakeppninni í krikktett.
Dennis Bergkamp, framherjiArsenal, segist alsaklaus af
því að Lauren Robert, leikmaður
Newcastle, hafi fengið rauða
spjaldið í leik liðanna um helgina,
líkt og Bobby Robson vill meina.
Bergkamp hugðist taka auka-
spyrnu en Robert stóð fyrir hon-
um og fékk boltann í sig. Fyrir
vikið fékk Robert að líta annað
gula spjaldið sitt í leiknum.
Agustin Delgado, framherjiSouthampton, hefur yfirgefið
liðið þar sem hann segir knatt-
spyrnustjórann Gordon Strachan
“hata sig“. Hinn 28 ára gamli
framherji hefur aðeins spilað
átta leiki fyrir liðið á yfirstand-
andi tímabili. Hann var keyptur
frá mexíkóska liðinu Rayos
Nacaxa fyrir 15 mánuðum.