Fréttablaðið - 13.02.2003, Síða 18
FUNDIR
14.00 Ráðstefna um nýbreytni í
kennsluháttum grunnskóla verð-
ur haldin á Grand hótel í Reykja-
vík. Fyrirlesarar koma úr röðum
fræðimanna, þar á meðal einn frá
Kanada, úr röðum kennara og frá
Kennaraháskóla Íslands.
16.00 Opinber fyrirlestur á vegum
Rannsóknastofu í kvennafræð-
um í stofu 101 í Lögbergi. Oddný
Mjöll Arnardóttir lögfræðingur
fjallar um „Jafnrétti og bann við
mismunun í Mannréttindasátt-
mála Evrópu“. Fyrirlesturinn er
byggður á doktorsritgerð Oddnýj-
ar.
16.15 Guðmundur J. Guðmundsson,
sagnfræðingur heldur fyrirlestur
sem nefnist Grænlandsverslunin
á miðöldum fram til 1400 í stofu
16, Þingvallastræti 23, Akureyri.
Dregnar eru fram vísbendingar
um að Grænlendingar hafi farið
að verka skreið eftir 1300 og hún
hafi orðið ein af útflutningsvörum
þeirra.
16.15 Á málstofu Læknadeildar Háskóla
Íslands fjallar Þórarinn Sveinsson
um „lífeðlisfræðilegar breytingar
hjá leiðangursmönnum meðan á
leiðangri yfir Grænlandsjökul
stóð“. Málstofan fer fram í sal
Krabbameinsfélags Íslands,
efstu hæð.
20.00 Efnt verður til opinbers fundar í
Pathfinder bóksölunni, Skóla-
vörðustíg 6b, til stuðnings baráttu
blaðamannsins Róger Calero,
sem er fæddur í Nicaragua og á á
hættu að vera vísað frá Bandaríkj-
unum.
20.00 Nemendur verða með heilun og
ýmislegt annað áhugavert í opnu
húsi í kvöld, fimmtudag 13. febrú-
ar, í húsnæði Sálarrannsóknarfé-
lags Íslands, Garðastræti 8. Húsið
opnað kl. 19 og lokað kl. 20. Að-
gangseyrir kr. 300 fyrir félags-
menn, 500 fyrir aðra. Allir vel-
komnir meðan húsrúm leyfir.
20.00 Samband ungra Framsóknar-
manna efnir til málþings um
samkeppnisstöðu háskólanna,
Lánasjóð íslenskra námsmanna,
framtíðarsýn í menntamálum og
fleira. Framsögumenn verða
Hjálmar Árnason, Ármann Hösk-
uldsson, Runólfur Ágústsson og
Sæunn Stefánsdóttir. Málþingið
fer fram að Hverfisgötu 33 í
Reykjavík.
21.00 Nýhil efnir til upplestrarkvölds á
Grandrokk fyrir vini ljóðsins. Eftir-
taldir munu lesa: Gunnar Þorri,
Ófeigur, Varði, Bjarni Delerium
Klemenz, Pétur Már, Stína og Alli.
OPNUN
Í anddyri Norræna hússins verður opn-
uð sýning á verkum grænlenska
listamannsins Thue Christiansen.
Hann sýnir listiðnað og hönnun
og notar fjölbreyttan efnivið í verk
sín.
LEIKSÝNINGAR
20.00 Maðurinn sem hélt að konan
hans væri hattur eftir Peter
Brook og Marie-Hélène Estienne
á Nýja sviði Borgarleikhússins.
20.00 Nemendur Verslunarskóla Ís-
lands sýna söngleikinn Made in
USA eftir Jón Gnarr í Loftkastal-
anum.
21.00 Einleikurinn Sellófon eftir Björk
Jakobsdóttur í NASA við Austur-
völl.
TÓNLEIKAR
20.00 Orgeltónleikar í Hallgrímskirkju
á Myrkum músíkdögum. Einleikari
á orgel er Eyþór Jónsson. Hann
leikur verk eftir Olivier Messiaen,
Jón Leifs, Hans-Ola Ericsson,
Magnús Blöndal Jóhannsson,
Torsten Nilsson, Steve Ingham og
Báru Grímsdóttur.
20.30 Þau Bryndís Halla Gylfadóttir, Stef-
án Vovka Ashkenazy og Judith
Ingólfsson mynda einleikaratríó á
tónleikum Sinfóníuhljómsveitar-
innar í Þríleikskonsert Beet-
hovens. Einnig eru á dagskrá
þetta kvöld verkið Gangur eftir
Þorkel Sigurbjörnsson og sinfónía
nr. 1 eftir Gustav Mahler.
SKEMMTANIR
20.00 Rosalegt uppistand verður á
Sportkaffi. Gestir fyrsta alþjóðlega
uppistandsklúbbsins á Íslandi
verða Írinn David O’Doherty og
Nýsjálendingurinn Rhys Darby.
Báðir eru að gera það reglulega
gott á uppistandsenunni í Bret-
landi og eru atvinnumenn í fag-
inu.
20.00 Nokkrar óþekktar rokksveitir sýna
hvað í þeim býr á Fimmtudags-
forleik í Hinu Húsinu, Lada
Sport, Diagon, Brutal og Fíkn úr
Hafnarfirði. 16 ára aldurstakmark
er á þessa tónleika og frítt er inn.
Botnleðjutónleikar á Tuttuguogtveimur
í kvöld. KGB hitar upp.
Dj Dabbi heldur uppi stuði á Vídalín.
Á klúbbakvöldi á Astró í kvöld verður
leikin íslensk raftónlist og drum & bass.
VDE-066 og Jungulizt spila. Íslensku
plötusnúðarnir DJ Bjöggi, DJ Gunni og
DJ Tryggvi sjá um skífurnar.
SÝNINGAR
Landssamband hugvitsmanna sýnir í
Hönnunarsafni Íslands við Garðatorg í
Garðabæ ýmislegt af því sem Íslending-
ar hafa fundið upp og komið á markað
hérlendis og erlendis.
Haukur Helgason, áhugaljósmyndari í
50 ár, heldur ljósmyndasýningu á
nokkrum mynda sinna frá síldveiðum
áranna 1953-57 á veitingahúsinu Kæn-
unni við Hafnarfjarðarhöfn.
Að teikna hugarheima nefnist sýning á
frönskum og belgískum teiknimynd-
um frá upphafi til samtímans, sem nú
stendur yfir í listasafni Kópavogs, Gerð-
arsafni.
Ósk Vilhjálmsdóttir opnaði um síðustu
helgi hugmyndasmiðjuna Eitthvað ann-
að í Gallerí Hlemmi. Hugmyndasmiðjan
er opinn vettvangur fyrir alla sem vilja
ræða og rannsaka möguleika lífsins í
landinu. Sett hefur verið upp örvandi
starfsumhverfi fyrir hugarflugið.
Í Ásmundarsal við Freyjugötu stendur
nú yfir alþjóðlega samsýningin then
...hluti 5. Þar sýna þeir Birgir Snæbjörn
Birgisson, Miles Henderson Smith,
Andrew Child, Gísli Bergmann, Tom
Merry og Stefan Bottenberg en sami
hópur er einnig með sýningu á Kjarvals-
stöðum um þessar mundir. Sýningin er
opin til 16. febrúar, alla daga nema
mánudaga, milli 13.00 og 17.00.
Elísabet Ýr Sigurðardóttir sýnir olíu-
málverk á striga í Blómaverkstæði Betu,
Reykjavíkurvegi 60, Hafnarfirði, frá 6.
febrúar til 6. mars 2003.
Tilfinningar heitir myndlistarsýning
Freygerðar Dönu Kristjánsdóttur á Te
og Kaffi, Laugavegi 27, Reykjavík.
Sýningin stendur út febrúarmánuð.
Á mörkum málverksins er sameiginleg
yfirskrift þriggja sýninga í Listasafni Ís-
lands. Ragna Róbertsdóttir sýnir verk úr
vikri og muldu gleri, Mike Bidlo sýnir
eftirmyndir af frægustu málverkum 20.
aldarinnar og Claude Rutault sýnir
„málverk sem eru í sama lit og veggur
sýningarsalarins“.
Agatha Kristjánsdóttir sýnir ellefu olíu-
málverk í kaffistofunni Lóuhreiðri að
Laugavegi 59. Málverkin á sýningunni
eru flest ný. Sýningin stendur út febrúar.
Sýning á verkum Ólafs Más Guð-
mundssonar er í sýningarsal Ingustofu
á Sólheimum í Grímsnesi. Sýningin
verður opin fram í maí, virka daga frá kl.
9-17, um helgar frá kl. 14-18. Allir eru
velkomnir og aðgangur ókeypis.
Mannakyn og meiri fræði er yfirskrift
sýningar á myndlýsingum í gömlum ís-
lenskum handritum, sem nú stendur yfir
í Listasafni Reykjavíkur - Hafnarhúsi.
Sýningin stendur til 9. mars.
Um síðustu helgi hófst í Listasafni
Borgarness sýning á málverkum eftir
Hubert Dobrzaniecki. Þar sýnir lista-
maðurinn olíumálverk og grafík frá ár-
unum 1999-2002. Sýningin er opin frá
13-18 alla virka daga og til kl. 20 á
þriðjudags- og fimmtudagskvöldum.
Sýningin stendur til 26. febrúar.
Ingimar Waage sýnir 25 landslagsmál-
verk í Galleríinu Skugga, Hverfisgötu 29.
Nú stendur yfir í Hafnarborg, menning-
ar- og listastofnun Hafnarfjarðar, sýning-
in Akvarell Ísland. Þetta er fjórða sýn-
ingin sem hópurinn Akvarell Ísland
heldur í Hafnarborg og er hún í boði
safnsins. Sýningin er opin alla daga
nema þriðjudaga frá kl. 11 til 17 og
henni lýkur 17. febrúar.
Heimildir nefnist sýning Hafdísar
Helgadóttur í Þjóðarbókhlöðunni. Sýn-
ingin er á vegum Kvennasögusafns. Á
fjórðu hæð er spjaldskrá með sjálfs-
myndum listamannsins frá 1963-1998,
en í sýningarkassa á 2. hæð eru blöð
með myndum af sömu verkum.
Smákorn 2003 nefnist sýning á smá-
verkum 36 listamanna í Baksalnum í
Galleríi Fold, Rauðarárstíg 14-16. Þetta
er í þriðja skipti sem Gallerí Fold efnir til
smáverkasýningar. Eina reglan um gerð
verka er að innanmál ramma sé ekki
meira en 24x30 sentimetrar.
María Kristín Steinsson sýnir olíumál-
verk í Café Cozy, Austurstræti. Sýningin
er opin á opnunartíma Café Cozy.
Margrét Oddný Leopoldsdóttir sýnir
„Storesarnir eru að hverfa“ í gluggagall-
eríinu Heima er best, Vatnsstíg 9. Sýn-
ingin stendur til 26. febrúar.
Í Nýlistasafninu, Vatnsstíg 3, sýna þau
Finnur Arnar Arnarsson, Hlynur Halls-
son og Jessica Jackson Hutchins verk
sín.
Nú stendur yfir samsýning 7 málara í
Húsi málaranna, Eiðistorgi. Allir þessir
málarar eru löngu þjóðkunnir fyrir verk
sín og einkennir fjölbreytni sýninguna.
Þeir sem taka þátt í sýningunni eru:
Bragi Ásgeirsson, Einar Hákonarson, Ein-
ar Þorláksson, Guðmundur Ármann,
18 13. febrúar 2003 FIMMTUDAGUR
Þrír magnaðir
einleikarar
Háskólabíó við Hagatorg I Sími 545 2500
sinfonia@sinfonia.is I www.sinfonia.is
AÐALSTYRKTARAÐILI SINFÓNÍUNNAR
M
Á
T
T
U
R
IN
N
&
D
Ý
R
Ð
IN
Tónleikar í gulu röðinni í Háskólabíói
í kvöld kl. 19:30
Hljómsveitarstjóri: Thomas Kalb
Einleikarar: Judith Ingólfsson
Bryndís Halla Gylfadóttir
Vovka Stefán Ashkenazy
Þorkell Sigurbjörnsson: Gangur
Ludwig van Beethoven: Þríleikskonsert
Gustav Mahler: Sinfónía nr. 1
FIMMTUDAGUR
13. FEBRÚAR
hvað?
hvar?
hvenær?
Myrkir músíkdagar í Hallgrímskirkju:
Orgelverk Jóns
Leifs og Magn-
úsar Blöndals
TÓNLIST Eyþór Jónsson orgelleik-
ari hefur undanfarin ár lagt
stund á framhaldsnám í orgel-
leik í Svíþjóð. Hann hefur kom-
ið hingað heim á hverju sumri
og haldið orgeltónleika víða um
land, meðal annars í Hallgríms-
kirkju. Í kvöld ætlar hann að
flytja þar verk eftir Jón Leifs,
Magnús Blöndal Jóhannsson,
Báru Magnúsdóttur, Olivier
Messiaen, Hans-Ola Ericsson,
Torsten Nilsson og Stephen Ing-
ham.
„Ég þekki orgelið í Hall-
grímskirkju orðið mjög vel,“
segir Eyþór. „Þetta er mjög
kraftmikið orgel og hefur sín
sérkenni. Mig grunar að org-
elsmiðirnir hafi haft þá hug-
mynd að tengja orgelið ís-
lenskri náttúru, þeir hafi reynt
að ná því fram í orgelinu hve
kraftmikil og fjölbreytileg hún
er.“
Magnús Blöndal Jóhannes-
son samdi aðeins tvö verk fyr-
ir orgel. Þau eru bæði á efnis-
skrá tónleikanna. Eyþór ætlar
einnig að leika þrjú orgelverk
eftir Jón Leifs. „Fyrir utan
orgelkonsertinn samdi hann
aðeins þessi þrjú orgelverk
um ævina. Svo er ég með tíu
ára gamalt verk eftir Báru
Grímsdóttur. Skemmtilegt
verk sem heyrist sjaldan. Ég
er ekki viss um að hún hafi
heldur samið meira fyrir org-
el en þetta verk.“
„Verk Inghams er fyrir
orgel og segulband. Ég frum-
flutti það sjálfur. Það var fyrst
samið fyrir orgel eingöngu en
hann breytti því og ég fékk að
vinna með honum að því, sem
var mjög gaman. Það var nátt-
úrlega einstakt tækifæri að fá
að vinna með tónskáldinu.“
gudsteinn@frettabladid.is
EYÞÓR JÓNSSON
Flytur bæði íslensk og erlend orgelverk á Myrkum músíkdögum í Hallgrímskirkju.
Borgarskjalasafn Reykjavíkur
www.rvk.is/borgarskjalasafn
Sími: 563 1770
LESSTOFA OG AFGREIÐSLA
opin alla virka daga kl. 10-16.
www.ljosmyndasafnreykjavikur.is
Langar þig í mynd af Reykjavík
t.d. frá árinu 1910, 1930 eða 1950?
Verð frá 1000 kr.
Grófarhúsi, Tryggvagötu 15.
Opið mán.-fös. kl. 10-16
www.listasafnreykjavikur.is Sími 590 1200
HAFNARHÚS
Loud & Clear, Lýsir, Hugarleiftur, Erró.
Leiðsögn sunnud. kl. 15.00
KJARVALSSTAÐIR
then ...hluti 4, Odd Nerdrum, Kjarval
Leiðsögn sunnud. kl. 15.00
ÁSMUNDARSAFN
Tumi Magnússon,
Ásmundur Sveinsson
Minjasafn Reykjavíkur
Árbæjarsafn - Viðey
www.arbaejarsafn.is
Safnhús Árbæjarsafns eru lokuð
en boðið er upp á leiðsögn alla mánud.,
miðvikud. og föstudaga kl. 13. Einnig er tek-
ið á móti hópum eftir
samkomulagi. Nánari upplýsingar
í síma 577 1111.
Upplýsingar um leiðsögn í
Viðey í síma 568 0535.
www.gerduberg.is
Gerðubergi 3-5, sími 575 7700
Opnunartími sýninga frá kl. 11-19
mán.-fös., kl. 13-17 lau.-sun.
Ókeypis aðgangur.
Sýning: Ekki missa af Bauhaus
ljósmyndasýningunni. Sýningin stendur
til 23. febrúar. Sýning í félagsstarfi: Árni
Sighvatsson. Allir velkomnir.
www.borgarbokasafn.is • s. 563 1717
Upplýsingar um afgreiðslutíma
s. 552 7545
Foldasafn í Grafarvogskirkju
og Kringlusafn í Borgarleikhúsi
verða lokuð vegna eignatalningar
13. og 14. febrúar.
Opið eins og venjulega í aðalsafni
Tryggvagötu, Gerðubergi, Sólheima-
og Seljasafni
www.borgarbokasafn.is
Minjasafn Orkuveitunnar
Minjasafn Orkuveitunnar í
Elliðaárdal er opið
sun. 15-17
og eftir samkomulagi
í s. 567 9009
Miðasalan er opin virka daga á milli 10.00 og 16.00 og laugar-
daga 14.00-17.00 og frá kl. 19.00 sýningardaga, en síminn er
562 9700. Ósóttar pantanir eru seldar 4 dögum fyrir sýningar.
Föstud. 14. feb. NOKKUR SÆTI LAUS
Laugard. 22. feb. NOKKUR SÆTI LAUS
Laugard. 22. feb. Aukasýning
NOKKUR SÆTI LAUS
Föstud. 28. feb.
Laugard. 1. mars
Fim. 13/2 kl. 21, UPPSELT
Fös. 14/2 kl. 21, örfá sæti
Lau. 15/2 kl. 21, UPPSELT
Fim. 20/2 kl. 21, UPPSELT
Fös. 21/2 kl. 21, UPPSELT
Lau. 22/2 kl. 21, örfá sæti
Fim. 27/2 kl. 21,
AUKASÝNING, UPPSELT
Fös. 28/2 kl. 21, UPPSELT
lau. 1/3 kl. 21, 100. SÝNING, örfá sæti
Mið. 5/3 kl. 21,
ÖSKUDAGSAUKASÝNING, laus sæti
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
B
ER
T