Fréttablaðið - 13.02.2003, Page 19
Kjartan Guðjónsson, Jóhanna Bogadóttir
og Óli G. Jóhannsson. Sýningin stendur
til 2. mars.
Haraldur Jónsson sýnir Stjörnuhverfi og
Svarthol fyrir heimili í galleríinu i8 við
Klapparstíg. Sýningin er opin fimmtu-
daga og föstudaga kl. 11-18, laugardaga
kl. 13-17 og eftir samkomulagi.
Jón Sæmundur er með myndbandsinn-
setningu í rýminu undir stiganum í gall-
eríinu i8 við Klapparstíg. Sýningin er
opin fimmtudaga og föstudaga kl. 11-
18, laugardaga kl. 13-17.
Hugarleiftur er yfirskrift á samvinnu-
verkefni bandarísku myndlistarkonunnar
Diane Neumaier og gríska rithöfundar-
ins Christos Chrissopoulos, sem nú er
sýnt í Listasafni Reykjavíkur - Hafnarhúsi.
Sýningin er afrakstur Íslandsferðar þeirra
sumarið 2000.
Hitler og hommarnir nefnist sýning
þeirra David McDermott og Peter Mc-
Gough í Listasafni Akureyrar. Sýning
þeirra fjallar um útrýmingu samkyn-
hneigðra á nasistatímanum.
Aftökuherbergi nefnist sýning í Lista-
safni Akureyrar á 30 ljósmyndum eftir
Lucindu Devlin sem teknar voru í
bandarískum fangelsum á tíunda ára-
tugnum.
Hinstu máltíðir nefnist sýning Barböru
Caveng í Listasafni Akureyrar. Viðfangs-
efni sýningarinnar eru síðustu máltíðir
fanga sem teknir hafa verið af lífi í
Bandaríkjunum.
Á Kjarvalsstöðum stendur yfir samsýning
ungra íslenskra og breskra listamanna.
Sýningin ber heitið „then ...hluti 4 -
minni forma“ og stendur til 2. mars.
19FIMMTUDAGUR 13. febrúar 2003
STÓRA SVIÐ
LÁT HJARTAÐ RÁÐA FÖR
ÍSLENSKI DANSFLOKKURINN - Þrjú ný verk
eftir Katrínu Hall, Itzik Galili og Ed Wubbe
Frumsýning föstudaginn 21/2 hvít kort - UPPSELT
2. sýn sun. 23/2 kl. 20 gul kort
3. sýn fim. 27/2 kl. 20 rauð kort
4. sýn sun. 2/3 kl. 20 græn kort
5. sýn sun. 16/3 kl. 20 blá kort
ATH: Aðeins 8 sýningar
SÖNGLEIKURINN SÓL & MÁNI
eftir Sálina og Karl Ágúst Úlfsson
Fös. 14/2 kl. 20
Lau. 15/2 kl. 19 ath. breyttan sýn.tíma
Lau. 22/2 kl. 20
Fös. 28/2 kl. 20
Lau. 1/3 kl. 20 UPPSELT
Fim. 6/3 kl. 20
Fös. 14/3 kl. 20
Lau. 15/3 kl. 20
SÖLUMAÐUR DEYR e. Arthur Miller
Sun. 16/2 kl. 20
Fim. 20/2 kl. 20
SÍÐUSTU SÝNINGAR
HONK! LJÓTI ANDARUNGINN
e. George Stiles og Anthony Drewe
Gamansöngleikur fyrir alla fjölskylduna
Sun. 16/2 kl. 14
Sun. 23/2 kl. 14
Sun. 2/3 kl. 14
Sun. 9/3 kl. 14
Sun. 15/3 kl. 14
FÁAR SÝNINGAR EFTIR
NÝJA SVIÐ
V-DAGURINN
Baráttudagskrá
Fös. 14/2 kl. 20
MAÐURINN SEM HÉLT AÐ KONAN HANS VÆRI HATTUR
eftir Peter Brook og Marie-Hélène Estienne
Fim. 13/2 kl. 20
Lau. 15/2 kl. 20
Fim. 20/2 kl. 20
Fös. 28/2 kl. 20 UPPSELT
JÓN OG HÓLMFRÍÐUR
frekar erótískt leikrit í þrem þáttum
e. Gabor Rassov
Lau. 22/2 kl. 20 AUKASÝNING
SÍÐASTA SÝNING
KVETCH eftir Steven Berkoff
í samstarfi við Á SENUNNI
Sun. 16/2 kl. 20
Fös. 21/2 kl. 20
MYRKIR MÚSIKDAGAR
Lau. 15/2 kl. 15 Kammertónleikar-Stelkur
Sun. 16/2 kl. 15 Flaututónleikar
Mið. 19/2 kl. 20 Lúðrasveitartónleikar
ÞRIÐJA HÆÐIN
PÍKUSÖGUR eftir Eve Ensler
Sun. 16/2 kl. 20
Fös. 21/2 kl. 20
LITLA SVIÐ
STÍGVÉLAÐI KÖTTURINN
í samstarfi við SJÓNLEIKHÚSIÐ
Leikrit með söngvum - og ís á eftir!
Lau. 15/2 kl. 14
Lau. 22/2 kl. 14
RÓMEÓ OG JÚLÍA e. Shakespeare
í samstarfi við VESTURPORT
Fös. 14/2 kl. 20 UPPSELT
Lau. 15/2 kl. 20
Mið. 19/2 kl. 20
Lau. 22/2 kl. 16 UPPSELT
Mið. 26/2 kl. 20 UPPSELT
Mið. 5/3 kl. 20 UPPSELT
Miðasalan, sími 568 8000, er opin kl. 13-18
alla virka daga og fram að sýningu sýningar-
daga. Sími miðasölu opnar kl. 10 virka dag.
Fax 568 0383 midasala@borgarleikhus.is
www.borgarleikhus.is
Leyndarmál rósanna
Sýning laugard. 15.02. kl. 19
Sýning föstudag 28.02. kl. 20
Hversdagslegt kraftaverk
Sýning föstudag 14.02. kl. 20
Allra síðasta sýning
Uppistand um
jafnréttismál
Sýning laugard. 15.02. kl. 22
Sýning laugard. 01.03. kl. 19
Gesturinn
í samvinnu við Borgarleikhúsið
Sýning laugard. 22.02. kl. 19
Sýning sunnud. 23.02. kl. 20
Aðeins þessar sýningar.
Miðasölusími 462 1400
www.leikfelag.is
Kveðjutónleikar Kidda kanínu:
Brjálæðingur og
einstakt ljúfmenni
TÓNLEIKAR „Það er sambland af
brjálæðingi og einstöku ljúf-
menni sem gerir Kidda kanínu
algerlega frábæran gaur,“ segir
Freyr Eyjólfsson útvarpsmaður
en hann stendur ásamt félaga
sínum Óla Palla fyrir miklum
kveðjutónleikum í kvöld á
Gauknum undir yfirskriftinni:
„Burt með Kidda!“
Og ekki er það dónaleg dag-
skrá sem boðið er upp á: KK,
Bubbi og Stríð og friður, Dr.
Gunni, Rúnar Júlíusson og Gálg-
ar eru meðal þeirra sem ætla að
troða upp.
„Þetta er hugsjónamaður
sem rekið hefur litla plötubúð
sem verið hefur einskonar Unu-
hús íslenskra tónlistarmanna,“
heldur Freyr áfram. „Hljóma-
lind hefur verið tónlistarskóli,
útungunarstöð fyrir tónlistar-
menn, heilsuhæli og lágmenn-
ingarsetur. Það má spyrja sig:
Hvað býr að baki þessu íslenska
vori í dægurtónlist? Mín skoðun
er sú að Kiddi eigi þar mikinn
þátt. Hann hefur verið ódrep-
andi við að kynna okkur nýja
tónlist, hjálpa íslenskum tón-
listarmönnum að hasla sér völl
og ég veit að það eru margir ís-
lenskir tónlistarmenn sem og
áhugamenn um tónlist sem eiga
eftir að sakna hans. Ef einhver
á það skilið að haldið sé kveðju-
hóf, með heiðri og sóma, þá er
það hann.“
Freyr bendir á að Kiddi kan-
ína hafi ávallt staðið í þessu
basli sínu einn og óstuddur.
Hann hefur ekki seilst í opin-
bera sjóði heldur er hann
glöggt dæmi um afskaplega já-
kvætt framtak einstaklingsins.
Nú er Kiddi að fara, Hljóma-
lind að loka og hann skilur eft-
ir sig stórt skarð. Freyr segir
Kidda á leið til Englands.
„Kominn með enska kærustu
og ætlar bara að slaka á eftir
því sem ég best veit.“
Freyr, sem tekur fram að
Kiddi sjálfur komi ekki nálægt
þessari veislu heldur einungis
velunnarar hans, vill meina að
afrekaskráin sé nánast ótæm-
andi þegar Kanínan er annars
vegar, en nefnir nokkur dæmi.
jakob@frettabladid.is
ÓLI PALLI OG FREYR EYJÓLFSSON
Ef einhver á skilið að honum séu haldnir veglegir kveðjutónleikar,
þá er það Kiddi Kanína.
MEÐAL AFREKA KIDDA KANÍNU
... fékk Propellerheads til að spila í Fellahelli á sínum tíma. Tveimur árum síðar
gerðu þeir titillag nýjustu Bondmyndarinnar.
... flutti Will Oldham (Bonnie Prince Billy) í tvígang til Íslands
... stóð meðal annarra fyrir tónlistarhátíðinni UXA ‘95
... gerðist umboðsmaður Sigur Rósar og kom hljómsveitinni á kortið
... keyrði Bubbleflies áfram fyrir um áratug
... sá um endurkomu Utangarðsmanna fyrir tveimur árum
... stóð að tónleikaröðinni Lágmenningarborgin Reykjavík árið 1999
... hélt risatónleika með Emir Kusturica og Sigur Rós árið 2000
... stóð fyrir tónleikum The Jon Spencer Blues Exlosion og Fugazi árið 1999
... stóð fyrir tónleikum Saint Etienne, Prodigy, Shellac og mörgum öðrum
... tók Færeysku bylgjuna upp á sína arma og flutti inn Tý og Eivöru Pálsdóttur
... dustaði rykið af Hljómum í tengslum við Upprisuhátíð Hljómalindar
... stóð að endurkomu Lúdó og Stefáns er þeir hituðu upp fyrir Utangarðsmenn
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
B
ER
T
Ráðstefna á
Grand hótel:
Nýbreytni
í kennslu-
háttum
SKÓLAMÁL Búist er við um 400
manns á ráðstefnu um nýbreytni
í kennsluháttum grunnskóla,
sem haldin verður á Grand hótel
í Reykjavík í dag. Þarna verður
vakin athygli á ýmsum nýjung-
um sem bryddað hefur verið upp
á í grunnskólum Reykjavíkur á
síðustu misserum.
Þessar nýjungar miða flestar
annars vegar að því að efla sam-
vinnu nemenda og hins vegar að
miða námið við einstaklings-
þarfir og mismunandi þroska
hvers og eins.
Meðal annars verður skóla-
starf í Ingunnarskóla í Grafar-
holti kynnt. Þar hafa meðal ann-
ars verið gerðar tilraunir með að
hafa tvo árganga saman í bekk.
Tveir fyrirlesara á ráðstefn-
unni koma erlendis frá. Maxine
Giberson, sérfræðingur í
kennsluráðgjöf, ræðir um svo-
nefnda fjölþrepa kennslu og ein-
staklingsmiðað nám. Katrín Frí-
mannsdóttir menntunarráðgjafi
fjallar hins vegar um samvinnu
nemenda.
Um helgina verður svo opnuð
sýning í Ráðhúsi Reykjavíkur á
nýbreytniverkefnum grunnskól-
anna og á sunnudaginn verða í
fyrsta skipti afhent hvatningar-
verðlaun fræðsluráðs Reykja-
víkur. ■
Tumi Magnússon sýnir vídeóverk í Kúl-
unni í Ásmundarsafni við Sigtún í
Reykjavík. Safnið er opið alla daga frá kl.
13 til 16. Sýningin stendur til 16. febrú-
ar.
Friðrik Tryggvason ljósmyndari sýnir
sex ljósmyndir á Mokka kaffi. Sýninguna
kallar hann Blátt og rautt. Hún stendur
til 15. febrúar og er opin á opnunartíma
kaffihússins.
Í Menningarmiðstöðinni Gerðubergi
stendur nú yfir sýning á 124 ljósmynd-
um frá árunum 1921-81. Ljósmyndar-
arnir eru 41 talsins, allir þýskir og að-
hylltust allir Bauhaus-stefnuna, sem
fólst í því að myndlist og iðnhönnun
ættu að sameinast í byggingarlistinni.
Sýning á málverkum Aðalheiðar Val-
geirsdóttur stendur yfir í Hallgrímskirkju
í Reykjavík. Á sýningunni eru málverk
unnin á þessu ári sérstaklega fyrir sýn-
inguna í kirkjunni. Viðfangsefnið er Lífið,
tíminn og eilífðin. Sýningin í Hallgríms-
kirkju er haldin í boði Listvinafélags Hall-
grímskirkju og stendur til loka febrúar-
mánaðar.
Íslandsmynd í mótun - áfangar í
kortagerð er yfirskrift sýningar í Þjóð-
menningarhúsinu. Sýnd eru þau kort
sem markað hafa helstu áfanga í leitinni
að réttri mynd landsins. Sýningin stend-
ur þangað til í ágúst.
Sýningin Handritin stendur yfir í Þjóð-
menningarhúsinu. Sýningin er á vegum
Stofnunar Árna Magnússonar. Opið er
frá klukkan 11 til 17.
Í Ásmundarsafni við Sigtún stendur yfir
sýningin Listin meðal fólksins, þar sem
listferill Ásmundar Sveinssonar er sett-
ur í samhengi við veruleika þess samfé-
lags sem hann bjó og starfaði í. Sýning-
in er opin alla daga klukkan 13-16. Hún
stendur til 20. maí.