Fréttablaðið - 13.02.2003, Qupperneq 20
20 13. febrúar 2003 FIMMTUDAGUR
HALF PAST DEAD b.i. 16 8 og 10.15 JAMES BOND b.i. 12 ára kl. 5 og 10.10
SPY KIDS 2 kl. 3.45, 5.50 og 8
ANALYZE THAT HARRY POTTER m/ísl.tali kl. 5
JUWANNA MANN kl. 4, 6, 8 og 10 GULLPLÁNETAN m/ísl.tali kl. 4
THE HOT CHICK kl. 4, 6 og 8
Sýnd kl. 3.45, 5.50, 8 og 10.10 bi. 12
Sýnd kl. 4 og 8 b.i. 12 ára
Sýnd í lúxus kl. 8
kl. 5.50 HAFIÐ
kl. 6DIDDA OG DAUÐI KÖTTURINN
kl. 98 MILE
kl. 10.30COUP DE TÉTE
kl. 10IRREVERSIBLE e. texti b. 16 ára
Sýnd kl. 6, 8 og 10.10
Sýnd kl. 8
kl. 6 og 8STELLA Í FRAMBOÐI
Sýnd kl. 6, 8 og 10 b.i.14.ára
FRÉTTIR AF FÓLKI
Leikarinn Michael Caine er afarstoltur af Óskarsverðlaunatil-
nefningu sinni í aðalleikaraflokkn-
um. Hann hefur
tvisvar sinnum
unnið Óskarinn
fyrir aukahlut-
verk, fyrst fyrir
„Hannah and Her
Sisters“, svo „The
Cider House
Rules“, en aldrei
fyrir aðalhlutverk.
Þetta er þó í fjórða skipti sem
hann fær tilnefningu í flokknum.
Caine er að þessu sinni tilnefndur
fyrir leik sinn í myndinni „The
Quiet American“. Leikarinn segist
sáttur við það eitt að hafa fengið
tilnefningu.
Eftirlifandi liðsmenn The Grate-ful Dead hafa ákveðið að
skipta aftur um hljómsveitarnafn.
Eftir að höfuðpaur sveitarinnar,
Jerry Garcia, lést úr hjartaslagi á
meðferðarstofnun tóku félagarnir
upp nafnið The Other Ones. Nú
hafa þeir tekið sér nafnið „The
Dead“. Þeir hafa leikið saman síð-
an á sjöunda áratugnum og eiga
enn auðvelt með að fylla stærðar
leikvanga í Bandaríkjunum. Aðdá-
endur The Grateful Dead hafa
lengi kallað sig „Deadheads“ og er
nafnið „The Dead“ það sem hörð-
ustu aðdáendur sveitarinnar hafa
kallað sveitina lengi.
Harðjaxlinn Steven Seagal héltþví fram í vitnastúku á þriðju-
dag að mafían hefði krafist hluta
af gróða mynda
hans. Leikarinn
var fenginn sem
vitni í máli Peter
Gotti, bróður hins
alræmda glæpa-
konungs John
Gotti. Seagal held-
ur því fram að
Gambino-glæpa-
fjölskyldan hafi kúgað sig til þess
að aðstoða sig við að ná tökum á
fólki innan kvikmyndabransans.
Seagal segist hafa lengi óttast um
líf sitt.
Sýnd kl. 5, 8 og 10 b.i.16.ára
Sýnd í lúxus kl. 5 og 8
TÓNLIST
Fyrir mér gæti Zwan-platan íraun verið sjötta breiðskífa
The Smashing Pumpkins (eða sjö-
unda, fer eftir því hvort við teljum
Machina II með eða ekki). Ný sveit
fyrrum graskershaussins Billy
Corgan hljómar nánast alveg ná-
kvæmlega eins og The Smashing
Pumpkins gerði um það leyti er
„Siamese Dream“ kom út. Hljóm-
urinn er sem sagt mýkri en sá vél-
ræni tónn er Pumpkins var komin í
og einkenndi meistarastykkið
„Adore“.
Miðað við þá jaðarbolta er
Corgan valdi í lið sitt núna bjóst ég
við því að tónninn yrði hrárri og
tilraunakenndari. Það er þvert á
móti, hér eru lagasmíðar poppaðri,
tónn aðgengilegri og aðaláherslan
lögð á grípandi melódíur. Eitthvað
sem Corgan er virkilega flinkur
við að smíða og hér er bunki af
grípandi krókum. Dágóður efnivið-
ur í nokkra útvarpsslagara.
Persónulega ónáðar það mig að
gítarleikarinn David Pajo, áður úr
Slint og Papa M, fái ekki meira
rými fyrir frumlegan gítarleik
sinn. Ég hefði viljað sjá Corgan
nýta tækifærið á nýrri byrjun með
því að stiga stórt skref áfram. Þess
í stað stígur hann skref til baka og
virðist ætla að njörva sig niður í
síamsdraum sínum. Aðdáendur
þeirrar plötu verða yfir sig hrifnir
af Zwan.
Birgir Örn Steinarsson
ZWAN: Mary Star of the Sea
KVIKMYNDIR Warren Schmidt er á
tímamótum. Hann var að ná eftir-
launaaldrinum og veit ekki hvað
hann á að gera nú þegar ævistarfi
hans sem tryggingafræðingur
skógarhöggsmanna fyrir Heims-
tryggingafyrirtækið lýkur. Það er
ekki til þess að bæta ástandið að
dóttir hans er við það að giftast al-
gjörum aula. Til þess að toppa til-
gangsleysi hans hrekkur eiginkona
hans til 42 ára skyndilega upp af.
Fyrir fráfall hennar höfðu hjón-
in ákveðið að leggjast í ferðalag
um Nebraska-fylki á hjólhýsi sínu.
Schmidt ákveður að leggja einn af
stað í átt til Denver þar sem dóttir
hans býr. Samband þeirra hefur
ekki verið með besta móti í gegn-
um árin og er hann staðráðinn í því
að gera bragarbót þar á. Hann
kynnist tilvonandi tengdaforeldr-
um dóttur sinnar og líkar ekki
frjálslyndi þeirra. Hann setur sér
það því sem takmark að gera allt
sem í sínu valdi stendur til þess að
fá dóttur sína ofan af þeirri vit-
leysu að giftast lúðanum.
Leikstjóri myndarinnar, Alex-
ander Payne, er einn þeirra kvik-
myndagerðarmanna sem skrifa
handrit mynda sinna sjálfir. Hann
þykir afar kaldhæðinn og fékk á
sig stimpilinn „meistari satíranna“
eftir síðustu mynd sína „Election“,
sem skaut leikkonunni Reese
Witherspoon upp á stjörnuhimin-
inn. „About Schmidt“ er þriðja
mynd hans en áður gerði hann
„Citizen Ruth“ sem skartaði Lauru
Dern í aðalhlutverki. Payne tók
einnig að sér að skrifa handritið að
þriðju Jurassic Park-myndinni.
Í „About Schmidt“ fjallar
Payne um tilgangsleysi lífsgæða-
kapphlaupsins og hversu auðvelt
það sé að gleyma hinum sönnu
gildum í uppbyggingu skýjaborga.
Leikarinn Jack Nicholson er
þekktur fyrir að velja hlutverk sín
vandlega. Að fá hann um borð þyk-
ir því eitt og sér vera mikill gæða-
stimpill á kvikmynd. Sá gamli er til-
nefndur til Óskarsverðlauna í
flokki aðalleikara fyrir frammi-
stöðu sína. Þar með varð hann sá
leikari sem oftast hefur fengið til-
nefningar. Á arinhillu hans hvíla nú
þegar þrjár Óskarsverðlaunastytt-
ur. Þær fékk hann fyrir myndirnar
„As Good as it Gets“ (1997), „Terms
of Endearment“ (1983) og „One
Flew Over the Cuckoo’s Nest“
(1975).
biggi@frettabladid.is
kl. 8 og10
Skref til baka
O’NEAL
Tatum O’Neal segir Michael Jackson hafa
ríkt ímyndunarafl.
Leikkonan Tatum
O’Neal:
Vísar um-
mælum
Jackson á bug
TÓNLIST Leikkonan Tatum O’Neal
segist ekki hafa reynt að tæla
popparann Michael Jackson til ást-
arleikja þegar hún var aðeins 12
ára gömul.
Jackson hélt því fram í heimild-
armyndinni um hann sem nýlega
var sýnd í sjónvarpinu að O’Neal
hefði leitt hann í svefnherbergið,
hneppt frá skyrtu hans og talað á
opinskáan hátt við hann um kynlíf.
O’Neal hefur vísað ummælum
Jackson á bug og segir hann hafa
mjög ríkt ímyndunarafl. „Michael
kom heim til mín en það er ekki
möguleiki að ég hafi verið eins
þroskuð og fáguð og hann sagði, að-
eins 12 ára gömul,“ sagði O’Neal. ■
KVIKMYNDIR Tökur standa yfir á nýj-
ustu Tom Cruise-myndinni á Nýja-
Sjálandi. Myndin heitir The Last
Samurai og er væntanleg um næstu
áramót. Cruise leikur fyrrverandi
hermann í þrælastríðinu sem fer í
umboði byssuframleiðanda til Japan
um 1870. Honum er ætlað að þjálfa
hermenn keisarans en þeim er ætlað
að leysa hina gamalgrónu samúræja
af hólmi og útrýma þeim um leið.
Cruise kynnist svo hinni fornu
heiðursmannareglu samúræjanna og
þarf í framhaldinu að gera upp við
sig með hvorri fylkingunni hann ætl-
ar að standa. ■
Tom Cruise:
Við tökur á Nýja-Sjálandi
NÝJA-SJÁLAND
Það er ekkert til sparað við gerð nýju Tom Cruise myndarinnar sem á að gerast í Japan í
kringum 1870.
Á morgun verður nýjasta kvikmynd leikarans Jack Nicholsson, „About
Schmidt“, frumsýnd. Á móti honum leikur leikkonan Kathy Bates en þau eru
bæði tilnefnd til Óskarsverðlauna fyrir leik sinn í myndinni.
DÓMAR Í
ERLENDUM MIÐLUM:
Internet Movie Database - 8.0/10
Rottentomatoes.com - 85% = Fresh
Ebert & Roeper - Tveir þumlar upp
Los Angeles Times - 4 stjörnur (af 5)
AÐRAR FRUMSÝNINGAR
UM HELGINA:
Two Weeks Notice
Ballistic
Dark Blue World
Er líf
eftir starfslok?