Fréttablaðið - 13.02.2003, Side 23
23FIMMTUDAGUR 13. febrúar 2003
Ali G:
Bandaríkjamenn
teknir á beinið
SJÓNVARP Sjónvarpsfígúran Ali G
hefur innreið sína á Bandaríkja-
markað í næstu viku en þá hefjast
sýningar á nýrri þáttaröð kappans
þar sem bandarískt þjóðfélag er
tekið á beinið.
Í þáttunum ræðir Ali G, sem
heitir réttu nafni Sacha Baron
Cohen, meðal annars við James
Woolsey, fyrrverandi forstjóra
bandarísku leyniþjónustunnar,
CIA, og spyr hann út í morðið á
John F. Kennedy og hver myrti
JR. ■
BEÐMÁL
Þættirnir Sex and the City fjalla á opinská-
an hátt um kynlíf fjögurra vinkvenna í New
York.
Stærstu sjónvarpsstöðvar
Bandaríkjanna:
Ekki klippta
útgáfu af
Beðmálum
SJÓNVARP Þrjár af fjórum stærstu
sjónvarpsstöðvum Bandaríkjanna
hafa engan áhuga á að sýna
klippta útgáfu af framhaldsþátt-
unum vinsælu Beðmál í borginni.
Stjórnendur HBO-sjónvarps-
stöðvarinnar, sem framleiðir
þættina, reyndu nýverið að selja
sjónvarpsstöðvunum ABC, NBC,
CBS og Fox klippta útgáfu af
gömlum þáttum, sem þar með
væri hægt að sýna á besta sjón-
varpstíma. Þrjár stöðvanna höfn-
uðu hugmyndinni en Fox hefur
ekki gefið fjölmiðlum svar. Eins
og kunnugt er fjalla þættirnir á
fremur opinskáan hátt um kynlíf
fjögurra vinkvenna í New York.
Þættirnir um Beðmálin hafa
hingað til einungis verið sýndir á
HBO-sjónvarpsstöðinni, sem nær
til um þriðjungs bandarískra
heimila. Lengi hefur staðið til að
stöðin selji gamla þætti til ann-
arra stöðva. Þetta er hins vegar í
fyrsta sinn sem hún reynir að
selja stærstu sjónvarpsstöðvum
landsins þættina. ■
ALI G
Ali G fer ótroðnar slóðir þegar hann ræðir
við viðmælendur sína.
Í TREYJU NÚMER 23
Mariah Carey klæddist treyju Michael Jord-
an þegar hann lék með Chicago Bulls þeg-
ar hún skemmti í leikhléi í Stjörnuleik
NBA-deildarinnar.