Fréttablaðið - 13.02.2003, Side 24
24 13. febrúar 2003 FIMMTUDAGUR
BÆKUR Random House-bókaútgáf-
an hefur samið við rithöfundinn
Mark Winegardner um að skrifa
nýja bók um Corleone-fjölskyld-
una sem Mario heitinn Puzo gerði
alræmda í bókum sínum um Guð-
föðurinn. Winegardner, sem hefur
áður skrifað um jafn ólíka hluti og
hafnabolta, Cleveland-borg og
skipulagða glæpi, fékk þetta eftir-
sótta verkefni að undangenginni
samkeppni. Gert er ráð fyrir að
bók hans „The Godfather Ret-
urns“ eða „Guðfaðirinn snýr aft-
ur“ komi út haustið 2004. „Það eru
enn margar sögur ósagðar,“ segir
hinn 41 árs gamli Winegardner,
sem kennir skapandi skrif við Há-
skólann í Flórída.
Útgáfunni bárust rúmlega
hundrað tillögur að framhalds-
sögu um Guðföðurinn og var
nokkrum hafnað nær samstundis,
þar á meðal sögu þar sem arftak-
inn Michael Corleone, sem Al
Pacino hefur leikið í þremur kvik-
myndum, verður ástfanginn af
indíánakonu sem er á kafi í mann-
réttindabaráttu og annarri þar
sem Corleone-fjölskyldan kom
hvergi við sögu. Þá var tveimur
sögum hafnað þar sem höfundar
þeirra eru Bretar. Winegardner er
þó ekki Ítali eins og Puzo en hann
er aftur á móti af írsku og þýsku
bergi brotinn líkt og Tom Hagen
sem var ráðgjafi Guðföðurins „og
honum gekk ágætlega að fóta sig í
þessum heimi“, eins og Wine-
gardner orðar það. ■
TÆKNI Fullt var út úr dyrum í sal
1 í Háskólabíói þegar Hönnunar-
keppni félags véla- og iðnaðar-
verkfræðinema fór fram síð-
astliðinn föstudag. Keppnin hef-
ur hlotið verðskuldaða athygli
og hefur áhugi fyrir henni aukist
með hverju árinu sem líður.
Þrautin í ár var óvenju erfið
en 17 lið voru skráð til leiks. Lið-
in áttu að smíða tæki, sem keyra
átti ákveðna leið, taka upp dós
fulla af glerkúlum og skila þeim
í gat við enda brautarinnar. Á
leiðinni átti tækið að fella niður
fallhlera, keyra upp og niður
hæð og komast yfir tvær þrí-
hyrndar hindranir. Keppendur
fengu stig fyrir magn glerkúlna
sem þeir skiluðu í mark.
Ólafur Kr. Þórðarson, nem-
andi í lyfjafræði við Háskóla Ís-
lands, hlaut flest stig í ár. Hann
var sá eini sem tókst að leysa
alla þrautina og skila kúlunum
ofan í gatið.
Frumlegustu hönnunina áttu
Berglind Hálfdánardóttir, nem-
andi í hjúkrunarfræði, og Páll
Einarsson, nemi í Listaháskóla
Íslands.
Bestu hönnunina átti Ingi
Sturla Þórisson, nemi í véla- og
iðnaðarverkfræði í Háskóla Ís-
lands, Andri Guðmundsson,
nemandi í eðlisfræði, og Elvar
Már Pétursson.
Tæki keppenda vekja jafnan
mikla lukku enda mikið í þau
lagt. Mótorar úr borvélum og
rúðuþurrkum voru vinsælir í ár,
sem og rafdrifin bílaloftnet og
annar flókinn rafeindabúnaður.
Ákveðnar reglur gilda um
tækin. Þau mega ekki kosta
meira en tíu þúsund krónur, ekki
vera stærri en 40x40x40 rúm-
sentimetrar, mega ekki skaða
keppendur, brautina eða um-
hverfið né stofna lífi áhorfenda,
dómara eða annarra þátttakenda
í hættu. Ekki má heldur nota lif-
andi veru við lausn þrautarinn-
ar.
Flest liðanna áttu í miklum
erfiðleikum með að leysa fyrstu
þrautina, það er að fella niður
fallhlerann.
Keppninni er ætlað að vekja
áhuga á tækni og nýsköpun og er
liður í kynningu á starfi verk-
fræðideildar Háskóla Íslands.
Valgerður Sverrisdóttir, við-
skipta- og iðnaðarráðherra, setti
keppnina.
kristjan@frettabladid.is
EINBEITING
Það var mikið lagt upp úr glæsilegum tækjum á hönnunarkeppni véla- og iðnaðarverkfræðinema.
Lyfjafræðinemi
leysti einn þrautina
Hönnunarkeppni véla- og iðnaðarverkfræðinema lokið. Lyfjafræðinemi
bar sigur úr býtum. Einn náði að leysa þrautina. Strangar reglur gilda
um tæki keppenda. Ekki má nota lifandi veru.
ERFIÐ ÞRAUT
Þrautin í ár var óvenju erfið. Aðeins sigur-
vegaranum tókst að leysa hana alla og
koma glerkúlunum í gatið.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M
Guðfaðirinn:
Ættarsagan
heldur áfram
LJÁÐU MÉR EYRA
Nýr maður hefur verið fenginn til að halda ættarsögu Guðföðurins gangandi
að Mario Puzo látnum.
1
METSÖLULISTI
2
3
4
5
6
7
8
9
10
MEST SELDU ERLENDU BÆKURNAR
HJÁ PENNANUM-EYMUNDSSYNI
James Patterson
2ND CHANCE
John Connolly
THE WHITE ROAD
Nora Roberts
THREE FATES
Jeffrey Deaver
THE STONE MONKEY
Catherine Coulter
THE PENWYTH CURSE
Stephen King
EVERYTHING’S EVENTUAL
Stephanie Laurens
THE PROMISE IN A KISS
Iris Johansen
BODY OF LIES
Linda Howard
STRANGERS IN THE NIGHT
Terry Pratchett
THE AMAZING MAURICE
Bókalistinn:
Góðir
kunningjar
BÆKUR James Patterson hefur
hreiðrað um sig í efsta sæti list-
ans. Hann er einna þekktastur
fyrir spennusögur sínar um Alex
Cross, sem Morgan Freeman hef-
ur leikið í tveimur kvikmyndum
byggðum á bókum Pattersons,
Kiss the Girls og Along Came a
Spider. Hann lætur hins vegar til
skarar skríða með 2nd Chance að
þessu sinni en þar segir af frekari
ævintýrum fjögurra kvenna sem
leystu morðmál í sameiningu í
Fyrstur til að deyja, sem kom út
hjá JPV-útgáfu fyrir jólin. Vin-
sældir þessa flokks eru miklar og
fregnir herma að Patterson sé
þegar byrjaður á þriðju bókinni
um þær stöllur. ■
WILLIAM SHAKESPEARE
Globe-leikhúsið, sem kennt er við skáldjöf-
urinn enska, heldur í sína fyrstu leikferð til
Bandaríkjanna á þessu ári.
Þrettándakvöld:
Heimurinn
settur á svið
í Bandaríkj-
unum
LEIKHÚS Shakespeare-leikhúsið
Globe leggur land undir fót í
haust og setur upp sýningu í
Bandaríkjunum í fyrsta sinn.
Leikhópurinn 2Luck Concepts
mun fara í tveggja mánaða leik-
ferð um Bandaríkin með upp-
færslu sína á þrettándakvöldi eft-
ir Shakespeare.
Shakespeare’s Globe Theatre í
London er eftirlíking hins upp-
runalega Globe-leikhúss. Það var
draumur bandaríska leikarans og
framleiðandans Sam Wanamaker
að koma leikhúsinu á laggirnar.
Hann lést árið 1993 en leikhúsið
var opnað fjórum árum síðar og
hefur þegar ferðast til Þýskalands
og Japans. ■
HVAÐA BÓK ERT ÞÚ AÐ LESA?
Haukur Örn Birgisson,
formaður Frjálshyggjufélagsins.
„Núna er ég að lesa The Fountainhead eftir
Ayn Rand. Hún leggst mjög vel í mig. Þetta
er svolítið öðruvísi heimspekileg skáldsaga
um einstaklingseðlið.“
NLP Námskeið
Neuro-Linguistic Programming
Námskeiðið fer fram 17. til 25. febrúar.
NLP undirmeðvitundarfræði er fyrir alla og er okkar innra
tungumál milli hugsana og undirmeðvitundar.
NLP er notað af fólki um allan heim sem hefur náð
frábærum árangri í lífinu.
Kennt er m.a.:
- Að vera móttækilegur og læra á auðveldan hátt
- Að skapa nýtt samskiptamál
- Að skapa þína eigin framtíð
- Að stjórna samtölum
- Að vekja snillinginn í sjálfum sér
- Að leysa upp neikvæðar venjur
- Að lesa persónuleika fólks
- Venjur til varanlegs árangurs
Leiðbeinandi: Kári Eyþórsson MPNLP
Upplýsingar í síma: 588 1594 • Netfang: koe@islandia.is
Nánari upplýsingar um NLP má finna á: www.ckari.com
Þ a ð e r e n þ á p l á s s f y r i r þ i g á þ e t t a f r á b æ r a n á m s k e i ð